31.10.2005

Haaaaaaaalló! :)

Æj, það er æði að búa í borg :) Ég kann betur og betur við það með hverjum deginum! Það er stutt í allt og fjölbreytileikinn er mikill. Ég er meira að segja næstum því farin að kunna vel við þegar kirkjuklukkurnar hringja kl. 8 á morgnanna, BEINT fyrir utan gluggann minn :P Það er e-ð... kósí við það :) Þarf líka að fara að kíkja inn í þessa kirkju e-r tímann. Því að þó ég sé trúleysingi þá hefur mér alltaf fundist kirkjur rosalega fallegir staðir. Ég alveg elska að skoða gamlar-stórar- helst dimmar kirkjur. Minnir að það hafi verið ein sérstaklega flott í Granada og svo er auðvitað París full af þeim... En jáh.. út fyrir efnið. Ég hef nefnilega aðeins séð inn um gluggana á þessari kirkju og hún virðist vera ágætlega flott að innan.

Hverfið mitt er líka svo sætt. Gatan sem ég labba til að fara út í búð er æðisleg. Hún er svo sæt, svo margt að horfa á. Sumum finnst þetta kannski ekkert merkileg gata eða finnst hún etv ljót en mér finnst hún sæt. Rosalega sætur húsagarður í miðri götunni, hrikalega brattar trétröppur sem liggja niður að svona... kjallaradyrum... útflúrað/útskorið/e-ð í kringum margar hurðir þarna... frekar gömul ofboðslega sjarmerandi hús. Um daginn sá ég líka eitt í þessari götu sem mér fannst ofboðslega sætt... e-ð sem margir myndu líklega kalla skemmdarverk eða "veggjakrot" eða subbuskap. En það var s.s. búið að mála setningu á gangstéttina á einum stað. Setningin snýr að húsinu við gangstéttina og er s.s. beint á móti innganginum á þessu tiltekna húsi, beint þar sem tröppurnar enda. Þannig þegar e-r kemur út úr þessu húsi þá getur þessi setning, skrifuð með stórum hvítum stöfum, ekki farið framhjá henni... blasir beint við. En þarna s.s. stendur "I FUCKING LOVE YOU". Er það bara mér sem finnst þetta sætt? Okay okay, þetta er heldur langt gengið... en það að e-r hættir á það að vera handtekin fyrir á mála á gangstétt til þess að koma því til skila til manneskju (sem kannski neitar að tala við hann/hana) að viðkomandi elski hina manneskjuna... mér finnst það sætt. Þið dæmið sjálf hvað ykkur finnst...

Anyhow... ég hef ekki svo mikið að segja :) Var að tæma síðasta kassann áðan.. s.s. af kössunum sem ég lét senda hingað frá Íslandi, allar mínar eigur nánast. Þessi var fullur af smádrasli, uppskriftum og e-u fleiru. Hef virkilega ekki nennt að tæma hann hingað til, vissi ekkert hvar ég átti að setja þetta drasl. En þar sem mér tókst að troða kössunum upp á vin minn sem er að fara að flytja líka og hann er að koma að sækja þá á þriðjudaginn þá neyddist ég til að tæma þann síðasta. Þannig eftir þriðudaginn.. verða kassarnir farnir út.. og herbergið mitt verður enn fínna! Nenni samt ekki að taka fleiri myndir! Tók betri myndir af því núna um daginn þegar Gúndi kom í heimsókn (með fínu myndavélina sína). Mér finnst hálf skrítið að vera e-ð að setja þær myndir hér inn á síðuna... þannig bara... þið sem hafið áhuga á því að sjá þær.. sendið mér e-mail eða potið í mig á msn.. skal senda ykkur þær í e-maili :)

Á morgunn ætla ég að þvo þvott... í annað skipti síðan ég kom hérna.. jibbí jeij... vona að það gangi jafn slysalaust og í fyrra skiptið! Líkar ekkert allt of vel við þessa blessuðu þeytivindu... en maður þarf held ég að setja þvottinn í hana áður en maður setur hann í þurrkarann.. bölvað vesen sko. En maður þarf víst að passa sig að gera það rétt... annars tætir hún fötin manns :S Finnst heldur ekkert gaman að fara með þvottinn upp og niður ekkert-of-skemmtilegan stiga tvær hæðir... ekki sniðugt þegar jafn klaufsk manneskja og ég er á ferð :D Passa mig á að taka símann alltaf með mér þegar ég fer þarna niður... ef mér skildi nú takast að slasa mig eða e-ð :D

Jæja... ég ætla að fara að koma mér að sofa bráðlega... er búin að vera að fara allt of seint í rúmið og seint á lappir undanfarið. Á... fimmtudaginn (held ég) skrapp ég niðrí bæ í bókabúð og ákvað þar.. að kaupa mér eitt stk bók. Bókin sem mig (mér? ég er vonlaus í málfræði) langaði mest í ("Veronika Decides to Die") virtist ekki vera til þarna þannig ég endaði á að kaupa "Darkly Dreaming Dexter". Ég byrjaði þó ekki strax á henni þar sem ég var að lesa "By the Pricking of My Thumbs" eftir Agöthu Christie. Á föstudagskvöldið... upp úr miðnætti.. kláraði ég svo þá bók... og byrjaði á Dexter. Á laugardagskvöldið... var ég komin svo langt í Dexter að ég ákvað að reyna að klára hana.. gafst upp kl. 3 en kláraði hana svo þegar ég vaknaði.
Það eru svona.. kjánalegheit sem eru að valda því að ég er að fara seint að sofa... ekki það að ég sé að hanga út á næsta bar öll kvöld eða e-ð :) I wish... Mér hálf leiðist þessa daganna.. vantar fólk til að hitta. Hef ekki haft tíma/tækifæri til að vera kynnast fólki hérna síðan ég flutti út, allt verið í of miklu rugli. Þannig núna er ég voða mikið ein og fá tækifæri gefast til að kynnast fólki. Enginn skóli síðan 15.okt... og verður enginn skóli fyrr en 14.nóv... og það eru engin partý því allir á brautinni eru að læra fyrir próf. Þannig ég verð víst bara að sætta mig við það. Ég kann ekki sniðugar leiðir til að kynnast nýju fólki, ég er feimin... þannig ég læt mér bara leiðast smá. Í bili. Í næstu viku (5.-10. nóv) er það Íslandsheimsókn og þegar ég kem til baka er stutt í að skólinn byrji aftur :)

En þarna.. eitt enn: http://www.peta2.com/takecharge/swf/dogcatfur.swf (VARÚÐ ÓGEÐSLEGT!) :/ Finnst bara að fólk eigi samt að vita hvernig er verið að fara með dýr og HUGSI SIG TVISVAR UM áður en það kaupir loðfeldi eða skinnhanska eða skó eða whatever. Oh, fólk er fífl! Fífl, fávitar, hálfvitar, kúkalabbar, ógeð... ! Stundum skammast ég mín virkilega mikið fyrir að vera manneskja, t.d. við það að horfa á þetta myndband. Við ættum að skammast okkar fyrir að láta þetta viðgangast.




Jæja, hætta þessu áður en ég held mikið áfram á þessum neikvæðu nótum... :) Vona að þið hafið það öll sem best og svo framvegis...

P.S. Ég lýsi hér með eftir Le Tigre disknum mínum. Hann er horfinn :/ Var reyndar horfinn áður en ég flutti út. Þannig hann er að öllum líkindum á Íslandi. Ég er með hulstrið en diskinn vantar :/ Diskurinn er vibbalega bleikur að lit (já mér finnst bleikur ekki fallegur litur) með grænum stöfum þar sem stendur Le Tigre. Ég lánaði hann held ég síðast til Sillu (í vor?) en ég held samt að hann hafi alveg verið í hulstrinu þegar ég fékk hann til baka (ég athuga það yfirleitt). Þannig... líklega er hann heima (týndur og tröllum gefinn?)... en ef e-r er með hann.. láta mig vita :)

22.10.2005

Langt síðan síðast...



Jæja, nú hef ég loksins tíma og er í nógu góðu skapi til að blogga :)

Ætla að renna yfir hvernig síðasta vikan hefur verið.... Þessi færsla verður líklega frekar löng, sé ekki alveg hvernig hjá því verður komist. Skil vel ef enginn nennir að lesa hana til enda! :D

Ég vaknaði snemma á föstudagsmorguninn og eftir morgunmat í flýti hélt ég af stað niðrá Nörrebrogade að sækja lyklana að nýja kollegíuherberginu mínu. Þar sem ég var nývöknuð og hausinn ekki alveg kominn í gang þá gleymdi ég því á miðri leið að ég væri á leið niðrá Nörrebrogade þar sem umsjónarmaðurinn er með skrifstofu og fannst ég vera að fara beint á kollegíuna :) Ég fór því út úr strætó á vitlausum stað og var búin að labba að götunni sem kollegían er við þegar ég fattaði að ég væri á leið á vitlausan stað :) Ég þurfti því að taka auka strætó til að leiðrétta mistökin... Eftir að sækja lyklana fór ég beint uppí skóla til þess að missa ekki af síðasta fyrirlestri blokkarinnar þar sem fólk ætlaði að klæðast eins og Axel Hunding eins og ég var búin að segja ykkur frá :) Sumir tóku þetta meira alvarlega en aðrir og voru í allri A.H. múnderingunni... það var frekar kostulegt að sjá :) Fyrsta korterið af fyrirlestrinum fór í fliss, bæði hjá nemendum og kennara. Í lok fyrirlestrarins var honum svo færður rauður pólóbolur með e-i áletrun sem ég sá reyndar ekki hver var.

Eftir þetta hélt ég gangandi að nýju kollegíunni minni (komin með nóg af strætóferðum eftir þessar 5 um morguninn). Ég verð að játa að við fyrstu sýn af kollegínunni og herberginu fékk ég algjört áfall. Mér leist ekkert á þetta! :S Ég fór út í sjokki og labbaði bara í e-a átt... endaði á e-u strætóstoppi og tók bara næsta strætó sem kom... komst að því eftir nokkur stopp að ég var á leið í bandvitlausa átt.... fór þá úr strætónum og tók næsta sem lá í hina áttina... uppá Nörreport.. og þaðan annan strætó "heim". 8 strætóar og klukkan ekki orðin 2... ojoj.

Um kvöldið var svo menningarnótt í Kaupmannahöfn. Það voru alveg hundruðir viðburða af öllu tagi í gangi. Ég hins vegar fór ekki á neina af þeim atburðum sem voru yfir daginn og kvöldið (fyrir utan eitt, minnist á það á eftir) þar sem ég var upptekin af öðru. Mamma og pabbi voru nefnilega að koma til Kaupmannahafnar þetta kvöld til þess að hjálpa mér að flytja og kaupa húsgögn (sætt af þeim ekki satt?). Ég hitti þau á Hovedbanegård um kl. 10. Skrapp reyndar aðeins fyrst niður á Rådhuspladsen með Gúnda og Einari þar sem við horfðum á litla krakka fara í bjórkassaklifur. Þar sem þau s.s. fá einn bjórkassa, klifra upp á hann, fá svo annan... og eiga s.s. að reyna að komast eins hátt upp og þau geta og mega s.s. bara standa upp á kössunum, ekki snerta jörðina (held ég). Á staðnum var svo svona krani sem krakkinn var hengdur í svo hann myndi ekki slasa sig. Við horfðum á litla stelpu, ca. 9-10 ára kannski, klifra svona upp... marga metra... (ég er ekki góð í að meta hæðir... en hún var næstum komin upp að toppi kranans allavega og það voru nánast engir kassar eftir þegar kassastaflinn hennar fór að riða til og féll). Hún var þvílíkt köld sko, alveg ligeglad á svipinn, tuggði bara sitt tyggjó og virtist þykja þetta jafn mikið mál og að glápa á sjónvarpið. Það var ekki fyrr en staflinn hennar var farinn að sveigjast ískyggilega til að hún greyp í öryggislínuna.
Við röltum síðan aðeins niður Strikið, mauluðum brenndar möndlur og fórum í dótabúð. Síðan hélt ég uppá lestarstöð að hitta foreldra mína og aðstoða þau með farangurinn þeirra (ekkert smá magn) upp á hótel. Síðan hófst leit að veitingastað sem væri opinn á þessum tíma. Enduðum á Vesuvio á Ráðhústorginu, það var ágætt.
Ég var síðan samferða Gúnda og Einari tilbaka uppí Lyngby aftur... Ég ætlaði nú bara beint að sofa þar sem ég vissi að laugardagurinn yrði langur og erfiður... Það varð hins vegar ekki mikið úr því, ég hafði gleymt að það var TDC kvöld á kollegíuganginum (Tour de Chambres). Það er s.s. bara... mesta fyllerí annarinnar skilst mér. Ég hef allavega aldrei séð ganginn jafn subbulegan og fólkið.. sjaldan.. jafn drukkið :)
Gerði þau mistök að kíkja fram í eldhús... sá mjög fljótlega eftir því.... Fólkið þarna sem flest hefur lítið sem ekkert talað við mig þennnan tvo og hálfa mánuð sem ég hef dvalið þarna.. verður alveg voða ræðið þegar það er svona drukkið. Og sumir.... ansi uppáþrengjandi og óþolandi.... Sem betur fer tókst Gúnda að hjálpa mér að flýja þaðan eftir e-n tíma... það var samt ekkert sérlega auðvelt... (hefði örugglega verið skárra ef það hefðu verið aðrar stelpur þarna sem þeir gætu böggast í en svo var ekki, sú eina sem ég sá þarna lét sig hverfa fljótlega). Reyndi að fara að sofa en gat það ekki fyrir háværri tónlist... sofnaði ekki fyrr en um 3...

Vaknaði snemma á laugardeginum því við þurftum að nýta tímann vel, mikið af húsgögnum og drasli að kaupa :) Það var hins vegar hellings vesen með að fá líkið okkar... eða bílinn s.s. sem við leigðum af bílaleigunni Lej et lig. Það tafði okkur um nokkra tíma :S
Það var forgangsatriði að finna svefnsófa (fyrir mömmu og pabba til að hafa í íbúðinni minni) og rúm (fyrir mig) svo við gætum sofið í nýja herberginu um nóttina. Ég gæti alveg farið út í nákvæmar lýsingar á helginni.. alveg þónokkuð sem er vert að minnast á... en ég ætla að hlífa ykkur við því og gefa ykkur hér samanþjappaða útgáfu:
- Við komumst af því að gatnaskipulag í Lyngby er 30x verra en í Kópavogi.
- Ég keypti mikið af húsgögnum.
- Ég keypti mikið af drasli.
- Við eyddum miklum tíma í að skrúfa saman húsgögn.
- Við borðuðum hádegismat í IKEA þrjá daga í röð.
- Við fengum lítinn svefn og soldið leið á húsgögnum sem þarf að skrúfa saman.
- Mér fór mikið fram sem kortalesara og leiðsögumanni.
- Mér fór smám saman að lítast betur og betur á herbergið mitt.
- Fólk horfir mikið á mann ef maður keyrir um á stórum ógeðslega ljótum sendiferðabíl sem er málaður svartur og á stendur "Lej et lig".
- ILVA er æðisleg húsgagnaverslun með frábæra þjónustu.
- Það er mjög góður pizzastaður hérna í hverfinu.
- Ef maður er mjög óheppinn fylgir alltaf heppni í kjölfarið.
- Mamma og pabbi eru húsgagna-skrúfi-saman-meistarar.

Mamma fór svo heim á mánudagsmorguninn en pabbi ekki fyrr en á þriðjudagskvöldið því á þriðjudaginn þurfti að sækja kassana mína niðrá höfn. Það gekk fínt...

Síðan þau fóru er ég bara búin að vera að ganga frá, taka til, reyna að læra og svoleiðis fjör :)

Í gær fór ég í fyrsta sinn út í búð hér í hverfinu... komst þá að tvennu... Í fyrsta lagi eru mjög svo sætar götur hér í kring (og gatan mín er ferlega krúttleg) og í öðru lagi er stutt í allt :) Hér við hliðiná er kirkja sem gluggarnir mínir snúa útað. Næsta hús við hana er svo síðasta hefðbundna baðhús Kaupmannahafnar :) Við hliðiná því er svo grunnskóli.. hinum megin við götuna er svo leikskóli...
Niðrá horni er þvottahús... og þar við hliðinaá er bakarí. Næsta gata við er svo Nörrebrogade. Sú gata er FULL af Kebab-stöðum og Persneskum veitingastöðum... og svona litlum araba-búðum :) Og þar er plötubúð!!!! Ef maður labbar aðeins eftir þeirri götu kemur maður niður á Nörrebros Rundell en þar eru 3 matvöruverslanir, 7-11 búð, apótek, McDonalds (OJJBARA), Sunset, gæludýrabúð... name it. Pósthús í sjónmáli nokkrum metrum ofar við götuna...

Birgði mig meðal annars upp af kryddi, átti bara salt og pipar fyrir :D Hver kryddstaukur kostaði tæpar 40 isk. Smá munur á verðum hér og heima...

Dagurinn í dag var ágætur... vaknaði kl. hálf 9, dreif mig í sturtu, sturtaði í mig skál af kornflexi og dreif mig niður í þvottahús (tvær ferðir í að flytja þvottin niðrí kjallara, jeij). Svo önnur ferð til að setja draslið í skilvindu og í þurrkarann og enn önnur að sækja þetta.... jeij . Tók líka helling til og svona... voða lítið merkilegt... Seinni part dags fékk ég svo skemmtilega heimsókn, minn fyrsti gestur hér á nýja heimilið mitt (fyrir utan mömmu og pabba sem teljast nú varla með). Gesturinn var s.s. strákur sem er með mér í námi, hann ætlaði rétt að kíkja en það endaði með að hann fór ekki fyrr en um hálf 11 leitið eftir að við höfum fengið okkur að borða á veitingastað hérna útá horni. Voða nice.

En þarna.. ég er alveg að farast úr þreytu... ætla að hætta þessu rugli. Þessi færsla er pottþétt hræðilega skrifuð, full af stafsetningavillum og so on... en í þetta sinn.. verðið þið bara að sætta ykkur við það. Ég er í engu ástandi til að leiðrétta þetta núna! *Geisp-geisp-geispedí geisp*

Eitt sem ég vil bæta við: Takk til mömmu og pabba fyrir að vera svona yndisleg að koma út og vesenast þetta með mér (og fyrir hnífapörin) :D Takk til ömmu og afa fyrir samlokugrillið (og sæta viskustyttið), hinna ömmu og afa fyrir hraðsuðuketilinn, takk til Nonna frænda fyrir pönnurnar, og so on... úff.. ég er of þreytt til að hugsa. núna.. En allavega, takk :) Þetta hjálpar allt við að gera heimilislegra hér... :)

9.10.2005

Flutningar í vændum

Á föstudaginn er síðasti skóladagurinn minn í þessari "blokk". Þá tekur við viku vetrarfrí, síðan er upplestrarfrí og lokaprófið er svo ekki fyrr en 4. nóvember. Þetta kemur sér vel fyrir mig því að bæði þarf ég tíma til að ná að flytja inn á nýju kollegíuna mína og einnig þarf ég virkilega að fá tíma til að læra.

Föstudagsmorguninn er líka merkilegur fyrir þær sakir að þá mun ég fara og ná í lyklana að nýja heimilinu mínu. Beint eftir það ætla ég að drífa mig upp í skóla til að sjá síðasta fyrirlestur "blokkarinnar". Ekki það að fyrirlesturinn sem slíkur skipti mig einhverju máli heldur af því að þetta mun verða mjög sérstakur fyrirlestur :) Kennarinn sem heldur þennan fyrirlestur er mjög sérstakur. Fyrirlestrarnir hans eru ekki góðir, hann fer allt of hratt yfir, talar óskýrt og flestum finnst hann frekar flækja efnið en útskýra það. Hann talar líka á frekar skondinn hátt, mér finnst sérstaklega fyndið þegar hann segir "et eller andet" (sem hann segir mjög oft). Ég get því varla setið fyrirlestur hjá honum því ég þarf alltaf að vera að passa mig að flissa ekki upphátt. Það er hins vegar annað við þennan mann sem vekur mesta athygli og er það klæðaburður hans. Hér ætla ég að birta smá brot af fréttapósti af síðu molbiomed nema:
"som en stor hyldest til vores alles yndlings fysisk kemi-forelæser axel hunding har kom-som-axel-hunding-dag-udvalget taget initiativ til en kom-som-axel-hunding-dag. så det er bare med at finde den røde polo, de blå fløjlsbukser, de lyserøde truckersolbriller (eller briller??) og prikken over i'et: de TO nøglekæder (én til hver lomme) frem, så vi alle i fællesskab kan hylde HCØs modeguru".
Á föstudaginn ætlar hópurinn s.s. að heiðra þennan kennara með því að klæðast í rauða pólóboli, bláar flauelsbuxur og bleik sólgleraugu (bleikt gler í þeim). Svo má náttúrulega ekki gleyma lyklakeðjunum... Ég ætla reyndar ekki að taka þátt í þessu en það verður gaman að sjá þetta... :) Ef þið flettið nafni þessa kennara upp á google (myndaleit) kemur upp mynd af honum í einum af rauðu pólóbolunum sem hann er ALLTAF í. Var að pæla í að setja hana hér en hætti við það. En jáh, ég fæ s.s. lyklana að nýja herberginu á föstudaginn. Mamma og pabbi ætla að vera svo sæt að kíkja hingað út yfir helgina og hjálpa mér að kaupa húsgögn og flytja inn. Þau koma á föstudagskvöldinu og fara heim á mánudag/þriðjudag. Ég flutti ekkert af húsgögnunum mínum hingað út (nema auðvitað mína ástkæru geisladiskahillu) þannig að ég þarf að kaupa allt nýtt. Nýtt rúm, skrifborð, náttborð, hillur, borð, stóla, skrifborðstól... :P Þetta verður fjör... Ætli ég geri ekki eins og allir Íslendingar sem flytja erlendis virðast gera, fari og versli í IKEA! Hehe. Kassarnir mínir koma með skipi á mánudag/þriðjudag, þess vegna fer pabbi ekki aftur til Íslands fyrr en á þriðjudagskvöldið.

Þar sem að ég átti flugmiða til Íslands 15.október en kemst ekki (þar sem ég er að flytja) þá flutti ég miðann til 5.nóvember. Þannig þið getið átt von á mér til landsins þá (í nokkra daga), vona að ég nái að heilsa upp á flest ykkar í þeirri ferð :) (Hver ætlar að bjóða mér í SingStar partý? ;P ) Það mun samt hafa algjöran forgang að hitta fjölskylduna mína, Dominique og svo ömmur mínar og afa :)

Í gærkvöldið var ég boðin í partý hjá stelpu sem er með mér í námi. Var mjög forvitin að fara þangað þar sem hún býr á glænýrri kollegíu (eða nýuppgerðri?) sem á víst að vera mjög flott (sjá hér). Ég fór hins vegar ekki þar sem að eftir kvöldmat í gær fékk ég vondan hausverk og varð illt í hálsinum. Hélt að ég væri að vera veik þannig ég ákvað að vera heima. Hausverkurinn virðist vera að koma aftur núna... :S

Jæja, segja þetta gott í bili?? :) Er pottþétt eitthvað sem ég ætlaði að skrifa um sem ég er að gleyma... eeeen whatever.

P.S. Ég bætti við linkum hér til hliðar...

3.10.2005

Húsnæðismál leyst?

Komið þið sælir strumparnir mínir :)

Jæja, þá loksins get ég skrifað smá fréttir af húsnæðismálum. Hingað til hafa nánast eingöngu verið vondar fréttir af þeim og hef ég einfaldlega verið of pirruð á þessu drasli til að skrifa um það. Til að gera langa sögu stutta hefur þetta verið vesen... s.s. bréfaskrif, símtöl og þó nokkrar heimsóknir á kollegíu-úthlutunar-skrifstofur til að reyna að fá e-n stað til að búa á. Gefin loforð, svikin loforð... gífurlegt fjör. Allavega, í þetta sinn stóðu þau við það sem lofað var og í gær fékk ég tilboð um kollegíuherbergi. *strump*
Það var búið að segja mér að líklega myndi ég bara fá tilboð um að vera á ákveðinni kollegíu sem ég vil alls ekki búa á og því var það óvænt ánægja að fá tilboð á kollegíu sem ég vil gjarnan búa á. Hún er að vísu soldið dýr en það er allt í lagi. Hún er frekar stutt frá skólanum mínum og hefur ýmsa aðra kosti. Ég flýtti mér að segja já við tilboðinu um leið og það kom. Auðvitað var hængur þarna á... tveimur manneskjum var boðið þetta sama herbergi (og hin var á undan mér á listanum) þannig ef sú manneskja hefði sagt já við tilboðinu líka þá hefði hún fengið það en ekki ég... En en en! Í morgun fékk ég e-mail um að ég hefði fengið herbergið... og ég á von á að fá leigusamninginn í hendurnar á næstu dögum :) Skilst að ég geti svo flutt inn í herbergið um miðjan mánuðinn :) Það verður yndislegt að komast í eigin húsnæði, hafa pláss, geta farið að kaupa húsgögn og fá dótið mitt sent frá Íslandi :) *strump*

Á laugardagskvöldið síðasta fórum við í bíó að sjá "The 40 year old virgin". Hún var mjög fyndin og ágætis skemmtun. Hefði ég fengið að ráða hefðum við farið að sjá e-a aðra mynd samt. Ég er ekki vön að fara að sjá gamanmyndir í bíó, sé þær frekar á dvd ef ég sé þær yfir höfuð. Finnst meira varið í myndir sem skilja e-ð eftir sig.

Allavega, þar sem að ég stend líklega í flutningum um miðjan október og þar sem að ég fer í lokapróf fyrir þessa "blokk" 4. nóvember þá kem ég líklega ekki til Íslands 15. október eins og ég var að vonast til. Þá er nefnilega viku vetrarfrí sem ég ætlaði að nota til þess að heimsækja klakaland og knúsa allt fólkið þar sem ég sakna svo mikið. En því miður verður hitt að ganga fyrir, kannski kíki ég í staðinn til Íslands eftir lokaprófið í nóv., það er aldrei að vita :)

Held ég láti þetta duga í bili...
verið þið sælir strumparnir mínir :)

1.10.2005

Ýýýýýýýýl

Finnst ykkur ekki óþolandi þetta ýl sem maður heyrir stanslaust eftir að hafa verið á háværum tónleikum? Það eru meira en 14 klst síðan ég kom af tónleikunum en ég heyri ennþá þetta bannsetta ýl. Kannski það væri sniðugt að fara að venja sig á að nota eyrnatappa á tónleikum?


Allavega, eins og ég nefndi í síðasta pósti þá var ég s.s. á tónleikum í gærkvöldi. Þeir voru haldnir á stað sem nefnist Loppen og er staðsettur í útjaðri Kristjaníu. Þetta er rosalega kósí staður sem rúmar 450 manns, skemmtilegur tónleikastaður finnst mér. Helsti gallinn er að það verður hrikalega heitt þarna inni og bjórinn þarna smakkast uuundarlega (virðist ekki skipta máli hvort maður kaupir kranabjór eða í gleri). Eftir að hafa smakkað hann ákvað ég að drekka bara vatn frekar.



Þeir sem voru að spila voru Stephen Malkmus and the Jicks
(fyrir þá sem ekki vita þá var Stephen Malkmus áður söngvarinn, lagasmiðurinn og gítarleikarinn í Pavement). Eins og við var að búast voru tónleikarnir mjög skemmtilegir en ég verð þó að játa að ég þekkti ekki nema svona þrjú lög, þ.e.a.s. bara þau sem eru af fyrstu plötunni enda hef ég ekki heyrt hinar tvær. Upphitunarbandið, The Cribs, kom svo mjööög skemmtilega á óvart. Það band samanstendur af þremur breskum bræðrum og hefur verið starfandi í tvö ár. Mæli með að þið tékkið á þeim, vona allavega að þeir séu jafn góðir í stúdíói og þeir eru live.


Fyrr um daginn var ég niðrí miðbæ Lynby. Fór þangað til þess að fara á pósthúsið að sækja peysu sem ég var að panta af TshirtHell.com . Ég veit að flestir bolirnir sem eru seldir á þessari síðu eru frekar brútal en ég var ekki að kaupa mér neinn af þeim, vil ekki vera að ganga í e-u sem ég gæti verið
lamin fyrir að ganga í :P
Þar sem ég nennti ekki að fara heim strax ákvað ég að kíkja aðeins í Lyngby Storcenter. Síðan ég kom hingað hef ég ekkert farið þangað nema til að kaupa í matinn, kaupa e-ð dót fyrir rus-túrinn (tuskur, vasaljós, handklæði og svoleiðis drasl) og kaupa lestarkort. Núna hins vegar endaði ég á að kaupa mér tvær peysur, aðra stóðst ég ekki því hún var svo mjúúúk og hlý.... og hina því hún var svo APPELSÍNUGUL! :D Ég veit ekki alveg hvað málið er með mig og appelsínugular peysur sko :/ Núna á ég fjórar... eða eiginlega fimm (ein er 50/50 grá og appelsínugul). Ég er bara svo hrikalega skotin í þessum lit... :P Mamma er held ég ofboðslega fegin samt að það sé e-ð komið í staðinn fyrir dökkbláan, í mörg ár var nánast allt í fataskápnum mínum dökkblátt... :P

Ég er búin að vera rosalega dugleg síðustu 4 mánuðina (allavega) að vera ekki að panta neitt af geisladiskum eða dvd á netinu. Til þess þarf mikla sjálfstjórn af minni hálfu enda er ég hálfgerður amazon fíkill :P Þó ég hafi staðist freistinguna að panta e-ð þá hefur óskalistinn minn á síðunni lengst óstjórnlega á þessum tíma.. Held þar séu nálægt 200 hlutir núna... (bækur, cd, dvd, tölvuleikir og spil) og svona 50 til viðbótar í innkaupakörfunni (set stundum óvart þangað...)... En ég held áfram að vera þæg... allavega svona á meðan ég hef engað stað til þess að setja það sem ég myndi panta :P Svo þarf ég líka að vera dugleg að spara svona fyrst ég flutt út og farin að þurfa að borga allt sjálf...
En ég hef reyndar leyft mér eitt í staðinn... þ.e. að panta mér örfáar flíkur... Keypti þarna peysuna af t-shirthell og svo er ég að bíða eftir bol sem ég pantaði af questionablecontent.net (QC er uppáhalds myndasagan mín). Svo er ég að pæla í að panta einn bol í viðbót en á honum stendur að framan: "I solemnly swear that I am up to no good" og að aftan "Mischief Managed". Þetta ætti að hljóma kunnuglegta fyrir mörg ykkar... (jáh, ég er soldið nörd, ég veit). Svo stalst ég líka til að kaupa mér bol á tónleikunum í gær.. :P

Í dag er þjóðhátíðardagur kínverja. Í næsta herbergi við okkur býr kínverskt par og verða þau með partý hér í eldhúsinu fyrir alla kínversku vini sína af þessu tilefni. Ég er því farin að efast um að við getum eldað okkur mat í kvöld... Eldhúsið var þegar undirlagt fyrir undirbúning núna uppúr hádegi og þegar vinir þeirra koma... þá verður ekki hægt að komast þangað inn... Sem er frekar fúlt því að við náðum ekki að elda í gær heldur. Það var reyndar af því að sumir ákváðu að leggja sig og það var frekar erfitt að vekja suma þannig að við vorum frekar sein og höfðum ekki tíma til að elda... enduðum á því að borða e-n ógeðismat á McDonalds á hlaupum á leið á tónleikana :S ojbara!

Jæja, ég er að pæla í að reyna að fara að læra e-ð. Btw þá er veðrið hérna í dag ömurlegt, rok og rigning :S
...og jáh, verið dugleg að kommenta þarna :P

27.9.2005

Ekkifréttir

Hæj og hó.

Nei, ég hef ekki gleymt að blogga, hef einfaldlega alltaf farið að gera e-ð annað en að blogga þegar ég hef haft tímann í að gera það... Í 90% tilvika er þetta annað “að lesa fanfiction”. Jáh, ég er forfallinn aðdáandi Draco trílógíunnar eftir Cassöndru Claire. Þetta eru s.s. þrjár sögur (varúð: langar sögur) sem byggðar á HP bókunum og aðeins birtar á netinu. Þær gerast á 6. og 7. ári Harry’s í Hogwarts en athugið að þær eru aðeins byggðar á fyrstu fjórum bókunum (enda var byrjað að skrifa þær árið 2001) og það sem gerist í 5. og 6. bókinni er ekki “haft með” ef svo má segja. (S.s. Sirus og ákveðinnaðillisemégætlaekkiaðnefnaefeinhverrskildieigaeftiraðlesa6.bókina eru enn á lífi og fl.)

Það er til alveg ótrúlegur fjöldi af svona fanfiction sögum á netinu. Ég hef hins vegar bara lesið smá af HP fanfiction sögum (það er pottþétt til fanfics af öðrum bókum). Byrjaði að lesa svona sögur árið 2001 þegar ég vann á Bókasafni Kópavogs en nokkrir sem voru að vinna með mér voru að lesa þetta daginn út og daginn inn. Ég hætti hins vegar alveg að lesa þetta eftir sumarið, nema ég hélt áfram að lesa í Draco-sögunum þegar nýr kafli bættist við (það er sko ennþá verið að skrifa síðustu söguna) en missti þráðinn e-r tímann þegar margir mánuðir liðu á milli kafla.

Síðan bara núna í sumar ákvað ég að lesa þessar 3 sögur aftur og er á þeirri síðustu núna. Mæli með þessu ef ykkur vantar e-ð að lesa.. mér finnst þessar sögur persónlega vera alveg jafn góðar og bækurnar en það getur vel verið að e-r HP aðdáendur muni slátra mér fyrir að segja það :)

Annars er nú ekki mikið að frétta, fór reyndar í bíó á föstudaginn að sjá Charlie and the Chocolate Factory. Hún er frábær, mæli virkilega með henni :) Tim Burton tekst eins og venjulega að ljá myndinni virkilega súran blæ en eins og með allar hinar myndirnar hans þá á það bara virkilega vel við. Sem Roald Dahl aðdáanda fannst mér rosalega gaman að sjá hana :) Ég var tístandi eins og ég veit ekki hvað megnið af myndinni.... Fórum reyndar líka út að borða á undan bíóinu. Ég pantaði dýrasta réttin á staðnum, steik! Sem var svo ógeðslega vond!!! :S Var freeekar pirruð, en svona er þetta...

Á laugardaginn var svo Introfest, þeas. fyrsti og annar árgangur af molbio nemum að halda saman stórt party/veislu (það eru bara tveir árgangar eins og ég var búin að segja ykkur). “Matur, drykkja, live-tónlist og dans” lýsir þessu ágætlega held ég bara. Live tónlistin var flutt af þremur strákum úr eldri árgangnum, var bara virkilega vel heppnað hjá þeim. Tóku skemmtilegt sett, meðal annars AC/DC, CCR, Tenacious D, og e-ð fleira.. man ekki.. Ég fór nú svo reyndar snemma heim (rétt fyrir miðnætti, var þá samt búin að vera þarna í næstum 6 klst þar sem þetta byrjaði snemma) þar sem mér var alveg hræðilega illt í maganum :/

Btw þá var fyrsti þátturinn í annarri seríu af Lost var sýndur í Bandaríkjunum í síðustu viku. Íhh, spennandi sko! Þið sem fylgdust með fyrstu seríu.. ekki missa af annarri, lítur vel út :) Get varla beðið eftir að sjá næsta þátt...

Eitt sem mig langaði að minnast á er, að byggingin sem ég er að læra í þessa “önnina” (fram í nóvember), H. C. Ørsted Instituttet, er alveg örugglega ljótasta bygging í allri Kaupmannahöfn! Þetta eru svona þrjár risastórar foooorljótar blokkir, tengar saman með einni 2ja hæða byggingu sem liggur við hliðina á þeim. Þetta er s.s. eiginlega “efnafræðibyggingin” en ég held þarna sé meðal annars líka kennd stærðfræði.

Lækna og tannlæknabyggingin, Panum, er svo bygging sem ég verð að læra í seinna í vetur. Sú bygging lítur út eins og gömul, risastór, ljót verksmiðja; 70% rauðir múrsteinar, 30% grábrún steypa... en hún er eiginlega bara falleg ef maður ber hana saman við efnafræðibygginguna.

H. C. Ørsted byggingin er reyndar mismunandi slæm eftir því hvaðan er horft á hana. Þegar ég kem í skólann á morgnanna sé ég voða lítið af ljótleikanum. Ef maður tekur hins vegar strætó neðan úr bæ og þarna framhjá þá sér maður ljótleikann í allri sinni dýrð. Ég var búin að fara þarna nokkrum sinnum framhjá í strætó og velta fyrir mér ótrúlegum ljótleika byggingarinnar áður en ég fattaði að þetta væri byggingin sem ég er í tímum í 5 daga vikunar.


En jáh, ég ætla ekki að skrifa meira í bili, er með alveg dúndrandi hausverk. Vona að ég nái að setja færsluna inn, netið er með bölvuð leiðindi. Það er búið að vera niðri síðasta sólarhringinn hér á kollegíunni og síðan það kom inn núna seinnipartinn hefur það alltaf verið að detta út aftur. Helvítis rusl.

Btw húsnæðismál eru eins og venjulega í algjöru hakki, er bara of pirruð yfir því til að nenna um skrifa um það þannig ekki búast við fréttum af því hér... nema það séu loksins góðar fréttir... þá skal ég skrifa um það.

Btw2 þá eru plön í þessari viku að: fara og nöldra í kollegíufólki, fara hugsanlega á óperu (eða í bíó) með norskri stelpu sem ég kynntist hér og e-u fleira fólki og svo á föstudaginn eigum við Gúndi miða á tónleika með Stephen Malkmus and the Jicks (sem eru haldnir á e-m stað niðrí Kristjaníu)! :D

Hobbitakveðjur,
Linda Muddyfoot from Longbottom

20.9.2005

Ég var klukkuð

Hæj hæj

Ég ætlaði nú ekki að blogga aftur fyrr en eftir nokkra daga þar sem það er frekar mikið að gera hjá mér. Hins vegar var hún Hulda svo ill að klukka mig þannig nú kemst ég ekki hjá því að blogga.

Ef ég skil þetta klukk dæmi rétt þá á ég núna að skrifa fimm hluti um sjálfa mig og svo klukka fimm aðrar manneskjur sem þá eiga að gera slíkt hið sama. Ég hef ekki ennþá ákveðið hvað ég ætla að skrifa... en ætla bara að byrja að skrifa.. og go with the flow... (eins og sjá má á lengd bloggfærslanna sem ég hef skrifað þá virkar sú aðferð ágætlega fyrir mig :P )

1. Nafnið mitt: Ég heiti Salóme Mist. Svo skemmtilega vill til að ég er eina manneskjan sem heitir þetta (þ.e.a.s. þessum tveim nöfnum saman, auðvitað eru margar aðrar sem heita Salóme og margar sem heita Mist en þessi samsetning er einstök :P). Ég var ekki sérlega hrifin af Salóme nafninu þegar ég var yngri, kannski af því að mér var oft strítt á því (Salómeeeeee!*jarm*) en ég vandist því. Nú orðið finnst mér frekar gaman að heita þessu nafni, bæði af því að ég fæ oft að heyra hvað nafnið mitt sé fallegt (alltaf jafn gaman að heyra fólk segja það) og líka því að mér er aldrei ruglað saman við neina aðra manneskju.
Langamma mín í föðurætt (mamma afa) hét Rannveig Salóme Sveinbjörnsdóttir og er ég skírð eftir henni og svo líka eftir systur langaafa míns (sem var s.s. systir pabba ömmu minnar í föðurætt) sem hét Salóme Kristjánsdóttir.
Salóme er nafn úr biblíunni, meira segja tvær með því nafni þar. Sú sem dansaði höfuðið af Jóhannesi skírara og svo önnur sem var fylgismaður(kona) Jesús. Nafnið er dregið af hebreska orðinu "Shalom" sem þýðir friður. Þetta nafn var lítið notað í margar aldir vegna þessa litla atviks með greyið Jóhannes en það fór að öðlast smá vinsældir aftur eftir að Oscar Wilde skrifaði leikrit með þessu nafni (seinna var líka gerð ópera og bíómynd...).
Mist er svo nafn úr norrænu goðafræðinni, Mist og Hrist bera Óðni veigar (held ég). Svo er þetta náttla orð á ensku, ekkert að því en ég mun vísast aldrei nota millinafnið mitt í Þýskalandi af sökum þess hvað það þýðir þar.

2. Safnaraáráttan: Ég hef alltaf verið mikið fyrir að safna hlutum. Þegar ég var yngri safnaði ég meðal annars frímerkjum í mörg ár. Einnig safnaði ég t.d. dúkkulísum og fullt af dóti sem mér er ekki að takast að rifja upp núna. Ég hef hins vegar fyrir löngu síðan snúið mér frá frímerkjunum og dúkkulísunum og annað komið í staðin. Það sem ég safna helst núna eru:
- Jókerar: Jáh, jókerar úr spilum. Ég byrjaði að safna jókerum fyrir þó nokkrum árum eftir að ég las Kapalgátuna eftir Jostein Gaarder í fyrsta skipti (það er enn í dag uppáhalds bókin mín). E-r tímann var mér sagt að langafi minn (sem lést þegar ég var 8 ára) hafi líka safnað jókerum en ég hef ekki getað fengið það staðfest. (Ef þið eigið jókera sem þið notið ekki þá megið þið endilega gefa mér þá :)
- Gamlar (80's) teiknimyndir á DVD: Jáh, þetta er fíkn. Datt fyrst í þetta fyrir svona mestalagi ári síðan. Nú á ég meðal annars: 3 seríur af Kærleiksbjörnunum, allar Tinna-myndirnar, alla þættina af Skófólkinu, Rainbow Brite þætti, The Super Mario Bros super show! þætti, Dennis the Menace þætti, Inspector Gadget þætti, Peter Pan þætti, Count Duckula þætti, (Teddy Ruxpin á VHS), 3 seríur af Bananaman, (Raggydolls á VHS), Stopit and Tidyup...
-Geisladiskar: Ólæknandi árátta, kaupi meira en ég næ að hlusta á... er að reyna að taka því rólega samt.
-Ýmislegt: Safna öllum gömlum tónleikamiðum, finnst voða gaman að kaupa bíómyndir á DVD og e-ð..

3. Málæði: Mér finnst voða gaman að tala en fæstir sem ekki þekkja mig vel vita það afþví að ég er frekar mikið feimin í kringum fólk sem ég þekki lítið. Aftur á móti finnst mér voða þægilegt stundum að bara þegja og ég skil ekki fólk sem finnst þagnir óþægilegar.

4. Partý: Ég er kannski skrítin en mér finnst partý oftast ekkert sérlega skemmtileg. Mér finnst heldur ekki spennandi að fara að "djamma" eða dansa. Þar er of mikið af fólki (mér líður ekki vel í kringum mikið af fólki) plús megnið af því er alltaf drukkið, vitlaust, sveitt og ógeðslegt. Ég vil miklu frekar vera í góðum og fámennum hópi í heimahúsi hjá e-m, sitja og spjalla eða spila (ég eeeelska að spila) eða bara hvað sem er. Uppgötvaði líka nýlega að SingStar partý eru snilld ;)

5. Það sem ég hata mest af öllu: Jáh, kæru lesendur það sem ég hata mest af öllu.. er.. þegar fólk heldur að ég sé með anorexíu. Því miður er það nú svo að örugglega meira en 90% af því fólki sem hefur hitt mig síðustu 10 árin heldur (allavega áður en það kynnist mér) að ég sé haldin þessum hræðilega geðsjúkdómi. Ég efast um að ég geti útskýrt almennilega fyrir ykkur hversu mikið bögg þetta er en ég ætla aðeins að reyna.
Ég hef haft það vandamál síðan ég var svona 8-9 ára að vera allt allt of grönn. Þó svo að svo virðist vera að flestir þurfi að berjast við aukakílóin þá hef ég alltaf þurft að berjast fyrir þeim. Ég get ekki talið hversu oft ég hef reynt að fara í "fitunarkúra" eða hversu margra lækna og næringarfræðinga ég hef leitað til gegnum árin en ég get sagt ykkur að ekkert af því hefur gert mikið gagn. Engin getur sagt mér afhverju þetta er svona þannig ég get ekki útskýrt það fyrir ykkur en ég vil gjarnan bara koma því á hreint að ég er ekki með átröskun.
Átraskanir eru geðsjúkdómur og ég er voða fegin að vera ekki haldin svoleiðis þar sem það er lífshættulegt og erfitt að berjast við. Ég hef hins vegar fengið að kynnast því gegnum árin hversu mikið baktal og fordóma fólk sem er haldið þessum sjúkdómi þarf að þola.
Í öllum skólum sem ég hef farið í hef ég verið baktöluð vegna þess að fólk hefur haldið að ég sé með anorexíu. Í MK frétti ég af því gegnum vini mína, í MH frétti ég af mjög svo skrítnum sögum sem gengu um mig (þær voru nú svo fáránlegar að það var bara hlægilegt en þetta var böggandi engu að síður) og ég er nokkuð viss um að það sama hefur verið upp á teningnum í grunnskólanum sem ég var í þó ég hafi ekki (svo ég muni) fengið staðfestingu á því.
Mikið af fólki starir á mig þegar ég er innan um fólk, ég sé fólk hvísla og benda og veit alveg hvað það er að segja svosem. Þegar ég fer í veislur þar sem eru hlaðborð er oft fólk sem segir við mig "fáðu þér nú meira, þú ert nú svo voðalega horuð". Verra er samt fólkið sem hefur alltaf þurft að berjast við aukakílóin og er geðveikt biturt út í mann þó maður hafi ekkert gert því (einu sinni langaði mig virkilega að kýla eina af þessum manneskjum fyrir það sem hún sagði en ég hélt aftur af mér þar sem þetta var kona sem mamma þekkir). Ókunnugur maður bauðst einu sinni til þess að gefa mér nokkur af sínum aukakílóum, það var nú reyndar bara sætt, hann var bara að vera vinalegur. Ég hef meira að segja lent í böggi frá litlum krökkum út á götu útaf þessu. Ég hef ekki farið í sund síðan í 7.bekk (eina ástæðan fyrir að ég fór fram að því var af því að ég neyddist til að mæta í skólasund) því að það er svo mikið starað á mig. Mér leið alltaf virkilega illa í skólasundi vegna þessa, kveið því og hataði það. Ég hef fyrir löngu losað mig við allar stuttbuxur sem ég átti, ég á engin stutt pils og ég fer helst ekki út í stuttermabol því ég vil ekki vekja meiri athygli á því hversu mjó ég er.
Foreldrar mínir hafa samt örugglega lent í alveg jafn mikið af böggi og ég útaf þessu. Fólk sem þau þekkja og ekki þekkja er alltaf að benda þeim á að ég sé örugglega með anorexíu, hafa áhyggjur af mér og hálf skamma þau fyrir að gera ekkert í þessu. Held þau séu lang-þreytt á því að útskýra fyrir fólki að það sé ekki málið.
Um daginn lenti ég svo í því að drukkinn strákur sem sjálfur er með anorexíu (sést sko ekki á honum núna) kom til mín og sagði mér sína sögu. Hann var svo að reyna að sína mér fram á að ég væri með anorexíu og var ekki að trúa því þegar ég var að reyna að útskýra fyrir honum að svo væri ekki. Hann varð bara hálf sár greyið enda ætlaði hann bara að hjálpa held ég. Ég varð nú samt svo pirruð á endanum að ég barði hann í hausinn.. hann lét mig í friði eftir það.... :P
Sem betur fer hef ég ekki þurft að útskýra þetta fyrir öllum sem ég þekki, fólk sem umgengst mig dags daglega sér alveg að það er ekki séns að ég gæti haft anorexíu (sko, það er víst best að hafa svo mikið af smjörva á harðfisknum að það er helmingi meira af smjöri en fiski, ég er ekki skrítin!)
Ég held þetta sé komið nóg í bili... bara.. plís... hættið að ákveða að allar manneskju sem þið sjáið og eru of mjóar séu að reyna að vera svoleiðis. Þetta er vandamál fyrir suma, ég veit um fleiri en mig sem eru svona. Hvort sem þetta er hröðum efnaskiptum að kenna eða hvað... það skiptir ekki máli. Þetta er ekki ykkar mál heldur, fólk er bara eins og það er.. hættið að skipta ykkur af því eða baktala fólk sem er öðruvísi. Hættið að ákveða fyrirfram að e-r sé haldinn átröskun bara útaf því að manneskjan er of grönn. Meina.. þið ákveðið ekki að manneskja sé offitusjúklingur þótt hún sé með nokkur aukakíló, afhverju er það öðruvísi þegar dæmið snýst við?
Btw þá vil ég benda á að það er áhugavert hvernig fólki finnst ekkert að því að segja við e-n "Djöfull ertu mjó" á meðan það þykir ógeðslegur dónaskapur að segja "Djöfull ertu feit". Hvort tveggja er alveg jafn böggandi og særandi, bara að benda á það. Voða margir sem virðast ekki fatta það.


Jæja, ég ætla svo að klukka Benediktu, Orra, Önnu Guðrúnu, Hauk og Kristrúnu.

Bless í bili

18.9.2005

Fleiri myndir úr rustur

Fleiri myndir komnar á netið úr rusturnum :) Ef ykkur langar að sjá þá setti ég eitthvað af þeim inn á myndasíðuna í möppu sem er merkt "Rustur 2".