20.9.2008

Það er leikur að læra - Frægar tilvitnanir

Núna er fyrsta skólavikan mín búin og ég ætla að deila með ykkur einu verkefni sem við gerðum í fyrsta Text and Context tímanum.

Ég set hérna inn fyrsta hluta af tveimur og ef ég fæ einhver viðbrögð/ágiskanir við þessu þá kannski set ég inn seinni hlutann líka.

Reglurnar eru þær að þið fáið s.s. tilvitnun og eigið að finna út úr því hver mælti þessi orð upphaflega (eða hugsanlega úr hvaða fræga verki þær eru). Í allt eru 5 tilvitnanir í þessum hluta og koma þær allar úr sitthvorri áttinni.
Ef til vill eruð þið rosa klár og þekkið einhverja tilvitnunina, þá endilega gefið svarið. Það er hins vegar bannað að googla, ekkert point í þessu þá.
Ef þið þekkið ekki tilvitnunina þá verðið þið að reyna að finna út úr því. Skoðið hana í samhengi og pælið í hvers konar manneskja væri líkleg til að segja þetta. Komið með ágiskanir út í loftið! Það má líka spurja t.d. "Ég held þetta sé frægur leikari sem mælti þetta, er það rétt?" eða kannski hvort það sé Bandaríkjamaður, hvort viðkomandi sé karlkyns, etc.

Alright, here goes:

1. "I'd rather have a cup of tea than go to bed with anyone - any day". (svar komið frá Grétu)

2. "When a man sits with a pretty girl for an hour, it seems like a minute. But let him sit on a hot stove for a minute - and it's longer than any hour. That's relativity". (svar komið frá Líney Höllu)

3. "I should like to be a horse". (vísbending: kona)

4. "Adultery in your head is committed not only when you look with excessive sexual desire at a woman who is not your wife, but also if you look in the same manner at your wife".

5. "Let there be no violence in religion". (vísbending: úr "verki")

Giskið nú!
:D

17.9.2008

Mæðgur



p.s. Hvar er Valli?

3


1.
Síðastliðinn fimmtudag ákváðum við mamma að hætta okkur á Sneak Preview sýningu þrátt fyrir hrylling síðustu sýningar þar á undan. Við gerðum ráð fyrir að fyrst síðasta mynd var svona hræðilega léleg þá hlyti að koma einhver mun skárri núna. Sem betur fer höfðum við rétt fyrir okkur. Nota bene þá tókum við samt sem áður enga áhættu og völdum sæti við ganginn næst útganginum :)
Myndin leit vel út frá fyrstu mínútu og reyndist vera "The Life Before Her Eyes" (2007). Í aðalhlutverkum eru Uma Thurman (Kill Bill) og Evan Rachel Wood (Thirteen) en þær leika í raun sama hlutverkið. Eva Amurri (Saved!) leikur einning mikilvægt hlutverk.
Myndin fjallar um vinkonurnar Diönu og Maureen og það þegar skotárás er gerð í skólanum þeirra. Einnig eru atburðir í lífi þeirra skömmu fyrir skotárásina skoðaðir, sem og afleiðingarnar og framtíðin. Sterk frammistaða leikkvennana er óumdeilanleg og myndatakan er æðisleg! Myndatakan myndatakan myndatakan... hún er það besta við þessa mynd. Öðruvísi og að mínu mati mjög töff. Mikið um svona close up af hlutum í umhverfi sögupersónanna sem kannski skipta ekki máli... en já, það kemur vel út :) Þessi kvikmynd neyðir mann til að hugsa smá til að skilja hana, sem mér finnst tvímælalaust kostur!

Var þessi mynd eitthvað sýnd á Íslandi? Veit það einhver? (Atli, þú ættir nú að vita það!).

2.
Á föstudagskvöldinu var svo vídeókvöld fjölskyldunnar (þeas. þeim hluta hennar sem staðsettur er í Lúxemborg). Við erum með alveg hrúgu af DVDmyndum hérna sem við eigum eftir að sjá og að þessu sinni völdum við úr bunkanum dönsku myndina Kunsten at græde i kor (2006).
Þessi mynd hefur hlotið þvílíkan fjölda af verðlaunum á kvikmyndahátíðum út um allar trissur og fær æðislega dóma nánast alls staðar að. Ég mæli hins vegar með að þið sleppið því að sjá hana.

Það er ekki það að myndin sé ekki góð, hún er bara svo andskoti niðurdrepandi og óþægileg að horfa á. Ég persónulega þoldi ekki helvítis trailerinn sem var sýndur í kvikmyndahúsum Danmerkur á sínum tíma til að kynna þessa mynd. Ég var sko með það á hreinu að þessa vildi ég ekki sjá, hún virkaði mega pirrandi og leiðinleg. Ég hins vegar ákvað að þetta hlytu að vera fordómar í mér þegar ég sá alla þessa góðu dóma. Þvílík mistök, þessi mynd er bleeehrg. Óþægileg, subbuleg, pirrandi, niðurdrepandi, sorgleg, etc. (Reyndar samt góð.) Bara, sleppið henni.

3.
Á laugardagskvöldinu fórum við svo á galakvöld í Fílharmóníuni þar sem Hertoginn og borgarstjórinn voru að sjálfsögðu mættir ;) Þar var að spila enginn annar en Jon Lord!
Fyrir þá sem ekki vita þá var hann annar af stofnendum Deep Purple og meðlimur þeirrar hljómsveitar á öllum starfsárum hennar, allt framtil 2002. Hann var einnig meðlimur í Whitesnake og fleiri hljómsveitum. Auk þess er hann tónskáld og samdi meðal annars verkið Concerto for group and orchestra. Það verk var frumflutt af Deep Purple og The Royal Philharmonic Orchestra í The Royal Albert Hall árið 1969. Reyndar fluttu þeir það svo aftur á sama stað 30 árum seinna en þá með London Philharmonic Orchestra.

En já, það var s.s. þetta sama verk sem við fengum að hlusta á, ásamt fleiri lögum eftir Jon Lord. Með honum á sviði var flottur flokkur listamanna auk sinfóníu Lúxemborgar. Tónleikarnir voru nánast 3 tímar á lengd og á köflum mjög góðir. Sumir partar voru ekki alveg jafn sterkir. Í hléinu drukkum við freyðivín í boði borgarinnar af tilefni 75 ára afmælis tourist info skrifstofu Lúxemborgar sem var verið að halda uppá. Þess má geta að Jon Lord labbaði framhjá okkur og pabbi var alveg að flippa af spenningi enda gamla átrúnaðagoðið hans þar á ferð. (Ég fékk mikið að hlusta á Deep Purple í æsku).
Síðasta lag kvöldsins var Child in time og ef við hefðum ekki setið á efstu svölunum þá hefðum við stokkið upp úr sætunum okkar af gleði yfir að fá að heyra það flutt live. Það má einning minnast á að Jon Lord er 67 ára gamall en tók sig alveg ótrúlega vel út á sviði enda hávaxinn og rosalega virðulegur náungi. Vingjarnleiki hans líka bara einhvernveginn lak út í salinn, þó maður skildi ekki helminginn af því sem hann sagði milli laga þá var ekki hægt annað en að kunna vel við hann.

14.9.2008

Júlí 2006 - Flashback











Ég er búin að vera að nota gömlu heimilistölvuna okkar hérna á Rue des Marguerites í dag og rakst á þessar gömlu myndir sem ég hef aldrei séð áður. Datt í hug að henda nokkrum þeirra inn hér.

6.9.2008

Lag dagsins: Teenage kicks



Lag dagsins er með hljómsveitinni The Undertones og var frumflutt árið 1978. Mæli með að þið hlustið á það með hljómfluttningstækin í botni og syngið með!

Annars var þema gærkvöldsins sushi og pönk. Fórum út að borða á japanskan stað og héldum þaðan á The Black Stuff þar sem The Mahones frá Kanada héldu uppi fjörinu. Þau komu mjög skemmtilega á óvart en ekkert okkar hafði heyrt um þessa hljómsveit áður.

2.9.2008

Ég mæli með að þið horfið á:



Best er að fara inn á www.storyofstuff.com og horfa á þetta áhugaverða 20 mínútna vídeó þar. Annars er líka hægt að nálgast þetta á youtube: