27.9.2005

Ekkifréttir

Hæj og hó.

Nei, ég hef ekki gleymt að blogga, hef einfaldlega alltaf farið að gera e-ð annað en að blogga þegar ég hef haft tímann í að gera það... Í 90% tilvika er þetta annað “að lesa fanfiction”. Jáh, ég er forfallinn aðdáandi Draco trílógíunnar eftir Cassöndru Claire. Þetta eru s.s. þrjár sögur (varúð: langar sögur) sem byggðar á HP bókunum og aðeins birtar á netinu. Þær gerast á 6. og 7. ári Harry’s í Hogwarts en athugið að þær eru aðeins byggðar á fyrstu fjórum bókunum (enda var byrjað að skrifa þær árið 2001) og það sem gerist í 5. og 6. bókinni er ekki “haft með” ef svo má segja. (S.s. Sirus og ákveðinnaðillisemégætlaekkiaðnefnaefeinhverrskildieigaeftiraðlesa6.bókina eru enn á lífi og fl.)

Það er til alveg ótrúlegur fjöldi af svona fanfiction sögum á netinu. Ég hef hins vegar bara lesið smá af HP fanfiction sögum (það er pottþétt til fanfics af öðrum bókum). Byrjaði að lesa svona sögur árið 2001 þegar ég vann á Bókasafni Kópavogs en nokkrir sem voru að vinna með mér voru að lesa þetta daginn út og daginn inn. Ég hætti hins vegar alveg að lesa þetta eftir sumarið, nema ég hélt áfram að lesa í Draco-sögunum þegar nýr kafli bættist við (það er sko ennþá verið að skrifa síðustu söguna) en missti þráðinn e-r tímann þegar margir mánuðir liðu á milli kafla.

Síðan bara núna í sumar ákvað ég að lesa þessar 3 sögur aftur og er á þeirri síðustu núna. Mæli með þessu ef ykkur vantar e-ð að lesa.. mér finnst þessar sögur persónlega vera alveg jafn góðar og bækurnar en það getur vel verið að e-r HP aðdáendur muni slátra mér fyrir að segja það :)

Annars er nú ekki mikið að frétta, fór reyndar í bíó á föstudaginn að sjá Charlie and the Chocolate Factory. Hún er frábær, mæli virkilega með henni :) Tim Burton tekst eins og venjulega að ljá myndinni virkilega súran blæ en eins og með allar hinar myndirnar hans þá á það bara virkilega vel við. Sem Roald Dahl aðdáanda fannst mér rosalega gaman að sjá hana :) Ég var tístandi eins og ég veit ekki hvað megnið af myndinni.... Fórum reyndar líka út að borða á undan bíóinu. Ég pantaði dýrasta réttin á staðnum, steik! Sem var svo ógeðslega vond!!! :S Var freeekar pirruð, en svona er þetta...

Á laugardaginn var svo Introfest, þeas. fyrsti og annar árgangur af molbio nemum að halda saman stórt party/veislu (það eru bara tveir árgangar eins og ég var búin að segja ykkur). “Matur, drykkja, live-tónlist og dans” lýsir þessu ágætlega held ég bara. Live tónlistin var flutt af þremur strákum úr eldri árgangnum, var bara virkilega vel heppnað hjá þeim. Tóku skemmtilegt sett, meðal annars AC/DC, CCR, Tenacious D, og e-ð fleira.. man ekki.. Ég fór nú svo reyndar snemma heim (rétt fyrir miðnætti, var þá samt búin að vera þarna í næstum 6 klst þar sem þetta byrjaði snemma) þar sem mér var alveg hræðilega illt í maganum :/

Btw þá var fyrsti þátturinn í annarri seríu af Lost var sýndur í Bandaríkjunum í síðustu viku. Íhh, spennandi sko! Þið sem fylgdust með fyrstu seríu.. ekki missa af annarri, lítur vel út :) Get varla beðið eftir að sjá næsta þátt...

Eitt sem mig langaði að minnast á er, að byggingin sem ég er að læra í þessa “önnina” (fram í nóvember), H. C. Ørsted Instituttet, er alveg örugglega ljótasta bygging í allri Kaupmannahöfn! Þetta eru svona þrjár risastórar foooorljótar blokkir, tengar saman með einni 2ja hæða byggingu sem liggur við hliðina á þeim. Þetta er s.s. eiginlega “efnafræðibyggingin” en ég held þarna sé meðal annars líka kennd stærðfræði.

Lækna og tannlæknabyggingin, Panum, er svo bygging sem ég verð að læra í seinna í vetur. Sú bygging lítur út eins og gömul, risastór, ljót verksmiðja; 70% rauðir múrsteinar, 30% grábrún steypa... en hún er eiginlega bara falleg ef maður ber hana saman við efnafræðibygginguna.

H. C. Ørsted byggingin er reyndar mismunandi slæm eftir því hvaðan er horft á hana. Þegar ég kem í skólann á morgnanna sé ég voða lítið af ljótleikanum. Ef maður tekur hins vegar strætó neðan úr bæ og þarna framhjá þá sér maður ljótleikann í allri sinni dýrð. Ég var búin að fara þarna nokkrum sinnum framhjá í strætó og velta fyrir mér ótrúlegum ljótleika byggingarinnar áður en ég fattaði að þetta væri byggingin sem ég er í tímum í 5 daga vikunar.


En jáh, ég ætla ekki að skrifa meira í bili, er með alveg dúndrandi hausverk. Vona að ég nái að setja færsluna inn, netið er með bölvuð leiðindi. Það er búið að vera niðri síðasta sólarhringinn hér á kollegíunni og síðan það kom inn núna seinnipartinn hefur það alltaf verið að detta út aftur. Helvítis rusl.

Btw húsnæðismál eru eins og venjulega í algjöru hakki, er bara of pirruð yfir því til að nenna um skrifa um það þannig ekki búast við fréttum af því hér... nema það séu loksins góðar fréttir... þá skal ég skrifa um það.

Btw2 þá eru plön í þessari viku að: fara og nöldra í kollegíufólki, fara hugsanlega á óperu (eða í bíó) með norskri stelpu sem ég kynntist hér og e-u fleira fólki og svo á föstudaginn eigum við Gúndi miða á tónleika með Stephen Malkmus and the Jicks (sem eru haldnir á e-m stað niðrí Kristjaníu)! :D

Hobbitakveðjur,
Linda Muddyfoot from Longbottom

3 ummæli:

Benedikta sagði...

Eins spurning systir góð:

Finnst þér MH, skólinn sem þú varst í í 2 ár, vera fallegur skóli?
öss, ég er 5 daga vikunnar að læra í stórum gráum steinkassa.... öss :D

En er skólinn ekki annars bara indæll? fyrir utan ljótleikann þ.e.a.s ;)

og já, netið hér heima sökkar líka.. eins og vanalega :D

Salóme Mist sagði...

Hehehe :D Nah, mér hefur reyndar alltaf fundist MH með eindæmum ljótur skóli.. jafnt að innan sem utan. H.C.Ö. er þó mun ljótari að utan finnst mér, en skárri að innan. Annars er þetta fínn skóli.. og það getur vel verið að hinar byggingarnar sem ég verð í á næstu önnum séu skárri. Svo er náttla verið að byggja nýja fína byggingu fyrir okkur sem ég held að verði tekin í notkun næst haust :D

Held það sé alveg málið að hringja niðrí þjónustuver OgVhoddafukk og spurja þá hvað sé málið með þetta netdrasl. Ég ætlaði alltaf að gera það en það bara gleymdist...

btw *knús*

Atli Sig sagði...

MH er fallegja ljótur, i love it!

Bið að heilsa Stephen Malkmus.