7.5.2008

Sukkar banat (2007)



Caramel, eða Sukkar banat eins og hún heitir á frummálinu, er líbönsk mynd sem fjallar um 5 konur. Í stuttu máli er hún bara um þeirra daglega líf. Yndisleg mynd en af sökum þess að það vantar allan hasar í hana þá höfðar hún eflaust meira til kvenna. Ég hafði rosalega gaman af að sjá hana, ekki síst vegna þess að ég sá hana með líbanskri vinkonu minni. Það er athyglisvert að sjá hvernig þetta samfélag er rosalega ólíkt okkar. Tæp 60% landsins eru múslimar og tæp 40 eru kristnir. Því verður þetta land eins og e-r rosalega flippuð blanda milli austurs og vesturs. Annars fannst mér líka rosa áhugavert bara að horfa á konurnar. Þeir eru kvenlegar á rosalega ýktan máta. Nota miiikinn farða, ganga með mikið af glingri (stórum armböndum sem hringlar í og þvílíku) og klæða sig mjög áberandi. Samkvæmt því sem vinkona mín segir er þetta bara svona í Líbanon. Fólk gerir rosalega mikið úr útliti sínu og er alltaf uppstrílað!

En já, held það sé ekki hægt að segja mikið frá þessari mynd. Hún er bara þannig. En ég get alveg mælt með henni, allavega fannst mér hún vel þess virði að sjá. Það má nefna að hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra og hefur síðan verið dreift í yfir 40 löndum. Þar með er hún orðin "þekktasta" líbanska mynd allra tíma.

2.5.2008

Irina Palm



Á miðvikudaginn kíkti ég á forsýningu á myndinni Irina Palm. Þessi mynd er gerð árið 2007 og er víst samstarfsverkefni milli Belgíu, Lúxemborgar, Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Hún var fyrst sýnd í febrúar í fyrra og hefur síðan þá verið á fjölmörgum kvikmyndahátíðum um allan heim.
Myndin gerist í London og nágrenni og fjallar um hina miðaldra Maggie. Hún er ekkja og á einn son. Eina barnabarn hennar liggur fyrir dauðanum og það eina sem gæti bjargað honum væri ef hann kæmist í læknismeðferð í Ástralíu. Því miður er það svo að aðstandendur þyrftu sjálfur að standa fyrir kostnaðinum við að komast þangað og því standa þau ekki undir. Barnið hefur verið veikt lengi og allir þeirra fjármunir og allt sem þau hafa getað fengið lánað hefur farið í að borga lækniskostnað. Maggie er á barmi örvæntingar og heldur til London til að reyna að fá vinnu - í fyrsta sinn á ævinni. En hver vill ráða miðaldra konu með enga menntun eða reynslu? Eftir dag fullan af vonbrigðum rambar Maggie inn í Soho og þá hefst áhugaverð atburðarás.



Þessi skemmtilega mynd skartar Marianne Faithfull í aðalhlutverki og skilar hún sínu verki vel. Myndin er fyndin án þess að það virðist sem það sé beinlínis ætlunin. Þó þessi mynd komist ekki alveg á lista með mínum uppáhalds þá hafði ég mjög gaman af henni og gæti alveg horft á hana einu sinni enn. Minnir svolítið á Saving Grace þó hún nái ekki að vera alveg jafn frábær og sá gullmoli. Svona, þegar ég skrifa það... þá minnir hún rosalega mikið á Saving Grace... hmmm. En já, kíkið á þessa. Er ekki oft sem ég nánast skræki af hlátri í bíó... sem og allir aðrir.