Dæmi um þetta eru:
Prison Break - sem mér finnst frábær.
Tru Calling - mjög skemmtileg.
The Wire - eh, veit ekki alveg.
Eftir að ég hafði horft á Tru Calling þættina fyrir nokkrum mánuðum síðan mælti vinkona mín með Medium. Ég keypti fyrstu seríuna af því og féll gjörsamlega fyrir henni. Keypti svo seríu 2 um leið og ég var búin með þá fyrstu! Þá mælti sama vinkona með Ghost Whisperer. Þeir þættir eru frekar mikið drasl. Alveg áhorfanlegir... en eftir að hafa horft á nokkra þá langar mann ekkert að sjá fleiri. Þeir eru allir eins, rosalega amerískir og væmnir og Jennifer Love Hewitt er langt því frá að vera nógu góð leikona til að geta haldið uppi seríu. Ghost whisperer mun því sitja upp í hillu við hliðina á X-files seríu 1 sem ég nenni heldur ekki að horfa á. Alveg alls ekki. Keypti hana reyndar af mjög ólíkum ástæðum...
Anyhow, tilgangur þessarar bloggfærslu átti að vera að skrifa um allt aðrar seríur. Ég hef heyrt nokkra tala um hversu æðislegir Ugly Betty þættirnir eru. Ég hef einning heyrt beint frá fólki að það mæli með Veronicu Mars þáttunum. Mikið svakalega er ég glöð að hafa ekki hlustað á það!! Þegar ég var í Lúxemborg í mars, sá ég fyrir tilviljun einn þátt af hvorri seríu. Persónulega finnst mér báðir þættir ömurlegir, í alvöru, VM lét mig fá klígju. Ekta amerískur húmor af vondu tegundinni. Rosalega mikið svona leggja fólki lífsreglurnar án þess að gera það beint og á velgjulegan hátt. Ugh ugh. Nei, ég bara fíla þetta ekki.
Sama má segja um Scrubs. Shit maður, ALLIR virðast eeeelska Scrubs... sem ég bara þoli ekki. Þrátt fyrir að venjulega elski ég allar læknaseríur. Nema kannski Dr. House, hef ekki náð þeirri seríu ennþá. Hef séð örfáa þætti (flesta af þeim reyndar á frönsku) og fannst þeir ekki heillandi. Dr. House fær samt annan séns við tækifæri - á ensku.
S.s. hreint og beint langaði mig að segja hér að mér þætti Ugly Betty, Veronika Mars, Ghost Whisperer, Scrubs og X-files ömurlegir þættir. Það var tilgangur þessarar færslu. Það og að skrifa um Riget.
Já, Riget. Dönsk sería frá 1994 og 1997. Mjög þekkt í Danmörku, gerist á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Í raun eru þetta 2 mini-seríur, ein frá '94 og hin frá '97. Hvor um sig eru fjórir ca. klukkustundalangir þættir. Þar sem vinkona mín er að læra læknisfræði hér í Kaupmannahöfn og mun mjög líklega verða e-ð að vinna á þessum spítala þá fannst okkur við verða að sjá þetta. Fyrst hélt ég að hvor sería fyrir sig væri sjálfstæð og keypti bara þessa fyrstu. Við tókum 2 þætti á kvöldi. Fyrstu tveir voru voða hægir, það gerðist ekki neitt. Seinni tveir, gerist fullt af undarlegum hlutum og svo er maður skilinn eftir í lausu lofti. Shit, þannig við urðum að redda 2. seríu bara til að sjá hvernig þetta myndi enda.
Fyrri tveir þættirnir í seinni seríunni voru ógeðslega leiðinlegir, tvær lengstu klukkustundir sem ég hef upplifað lengi. Okkur langaði ekki neitt að sjá fleiri þætti af þessu drasli en við ákváðum að við yrðum að sjá endan á þessu. Síðustu tveir voru svo skárri... en þessi sería endaði líka í lausu lofti og aldrei voru fleiri gerðar. Þannig við eyddum 8 klst af okkar lífi í þetta DRASL og sjáum mikið eftir því. Ég hata Lars von Trier. Þetta er bara sýra og það á köflum frekar leiðinleg sýra. Eins og sumir aðrir þættir frá þessum tíma (*hóst* X-files *hóst*) þá halda þeir að hlutir verði óhugnalegir og spennandi bara ef þeir gerast mjög hægt og eru mjög súrir. Sú hugmynd hefur ekki elst mjög vel.












