
Þetta hefur ekki endilega verið svo góð vika en hún hefur svo sannarlega átt sínar góðu stundir. Við Guðrún áttum frábært kvöld á þriðjudaginn. Byrjuðum á að gæða okkur á yummi burritos, fórum svo í Build a Bear búðina og tókum að lokum göngutúr í Tívolí. Garðurinn var yndislega jólalegur að venju og voru frosnar tær ásættanleg afleiðing þess að eyða þar klukkustund eða svo.
Á miðvikudaginn heimsótti ég sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn til þess að sækja um nýtt vegabréf. Nýja vegabréfsmyndin mín er vægast sagt hræðileg, ég lít út eins og zombie. Það bætti það hins vegar upp að sendiherrann sjálfur tók sér tíma í að sýna mér um sendiráðið og gaf mér meira að segja bók með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar á dönsku.
Húsnæði sendiráðsins er niðri við Christianshavn og það kom mér enn einu sinni á óvart hvað Kaupmannahöfn er fjölbreytt borg. Þetta hverfi líkist mínu ekki neitt.
Á fimmtudagskvöldið fór ég í matarboð með stelpunum úr dönskunáminu, það var voða huggulegt og maturinn var mjög góður.
The Golden CompassÁ föstudagskvöldið sá ég The Golden Compass með Josef. Við óttuðumst hið versta enda fórum við að sjá Narníu saman í fyrra (úff). Þessi mynd reyndist þó alveg ágætt, urðum alls ekki fyrir vonbrigðum en þess má þó geta að væntingarnar voru ekkert svakalegar heldur. Ég las bókina fyrir 8 árum síðan og var ekkert súper hrifin þó mér fyndist hún nægilega góð til að lesa líka næstu bók í seríunni. Finnst frekar töff að það sé trúleysingjaboðskapur í þessum bókum sem gerir þær að eins konar mótsvari við Narníu.
1408Á fimmtudaginn vaknaði ég við það að dyrabjöllunni var hringt hvað eftir annað. Þar var á ferðinni pósturinn með pakka til mín. Ég hafði s.s. unnið 2 miða á 1408 ásamt 10 dvd myndum úr "Masters of Horror" seríunni. Það er s.s. sería sem var gerð 2005/6 þar sem flestir bestu hryllingsmyndaleikstjórar samtímans voru fengnir til að gera hver sína 60 mínútna langa hryllingsmyndina. Ég er ekki mikið fyrir hryllingsmyndir og skil ekki afhverju ég tók þátt í þessum leik yfirhöfuð! Ég ákvað hins vegar að bjóða Isju vinkonu minni sem er mikið fyrir hryllingsmyndir að koma og sjá þessa mynd með mér. Gaf henni líka allar dvd myndirnar -langar ekki rass í bala að sjá þær. Finnst flestar hryllingmyndir lélegar og þær sem eru það ekki hræða úr mér líftóruna... og mér finnst ekkert skemmtilegt við það. 1408 var nú reyndar undantekningin sem sannaði þá reglu. Hún var hvorki slæm né hræddi úr mér líftóruna. Ágætlega leikin (enda góðir leikarar þarna á ferð), ekkert gífurlega ógnvekjandi en samt ekki svo slæm (bara ponsu kjánaleg).
Little Children (2006)Sá þessa hérna heima um daginn. Fannst hún mjög góð, gæti meira að segja alveg hugsað mér að sjá hana aftur. Eina sem ég vil kvarta yfir er endirinn, ég skil hann ekki :S
Morgundagurinn stefnir svo í að verða mega huggulegur en þar eru tvær heimsóknir á dagskránni =)