9.10.2005

Flutningar í vændum

Á föstudaginn er síðasti skóladagurinn minn í þessari "blokk". Þá tekur við viku vetrarfrí, síðan er upplestrarfrí og lokaprófið er svo ekki fyrr en 4. nóvember. Þetta kemur sér vel fyrir mig því að bæði þarf ég tíma til að ná að flytja inn á nýju kollegíuna mína og einnig þarf ég virkilega að fá tíma til að læra.

Föstudagsmorguninn er líka merkilegur fyrir þær sakir að þá mun ég fara og ná í lyklana að nýja heimilinu mínu. Beint eftir það ætla ég að drífa mig upp í skóla til að sjá síðasta fyrirlestur "blokkarinnar". Ekki það að fyrirlesturinn sem slíkur skipti mig einhverju máli heldur af því að þetta mun verða mjög sérstakur fyrirlestur :) Kennarinn sem heldur þennan fyrirlestur er mjög sérstakur. Fyrirlestrarnir hans eru ekki góðir, hann fer allt of hratt yfir, talar óskýrt og flestum finnst hann frekar flækja efnið en útskýra það. Hann talar líka á frekar skondinn hátt, mér finnst sérstaklega fyndið þegar hann segir "et eller andet" (sem hann segir mjög oft). Ég get því varla setið fyrirlestur hjá honum því ég þarf alltaf að vera að passa mig að flissa ekki upphátt. Það er hins vegar annað við þennan mann sem vekur mesta athygli og er það klæðaburður hans. Hér ætla ég að birta smá brot af fréttapósti af síðu molbiomed nema:
"som en stor hyldest til vores alles yndlings fysisk kemi-forelæser axel hunding har kom-som-axel-hunding-dag-udvalget taget initiativ til en kom-som-axel-hunding-dag. så det er bare med at finde den røde polo, de blå fløjlsbukser, de lyserøde truckersolbriller (eller briller??) og prikken over i'et: de TO nøglekæder (én til hver lomme) frem, så vi alle i fællesskab kan hylde HCØs modeguru".
Á föstudaginn ætlar hópurinn s.s. að heiðra þennan kennara með því að klæðast í rauða pólóboli, bláar flauelsbuxur og bleik sólgleraugu (bleikt gler í þeim). Svo má náttúrulega ekki gleyma lyklakeðjunum... Ég ætla reyndar ekki að taka þátt í þessu en það verður gaman að sjá þetta... :) Ef þið flettið nafni þessa kennara upp á google (myndaleit) kemur upp mynd af honum í einum af rauðu pólóbolunum sem hann er ALLTAF í. Var að pæla í að setja hana hér en hætti við það. En jáh, ég fæ s.s. lyklana að nýja herberginu á föstudaginn. Mamma og pabbi ætla að vera svo sæt að kíkja hingað út yfir helgina og hjálpa mér að kaupa húsgögn og flytja inn. Þau koma á föstudagskvöldinu og fara heim á mánudag/þriðjudag. Ég flutti ekkert af húsgögnunum mínum hingað út (nema auðvitað mína ástkæru geisladiskahillu) þannig að ég þarf að kaupa allt nýtt. Nýtt rúm, skrifborð, náttborð, hillur, borð, stóla, skrifborðstól... :P Þetta verður fjör... Ætli ég geri ekki eins og allir Íslendingar sem flytja erlendis virðast gera, fari og versli í IKEA! Hehe. Kassarnir mínir koma með skipi á mánudag/þriðjudag, þess vegna fer pabbi ekki aftur til Íslands fyrr en á þriðjudagskvöldið.

Þar sem að ég átti flugmiða til Íslands 15.október en kemst ekki (þar sem ég er að flytja) þá flutti ég miðann til 5.nóvember. Þannig þið getið átt von á mér til landsins þá (í nokkra daga), vona að ég nái að heilsa upp á flest ykkar í þeirri ferð :) (Hver ætlar að bjóða mér í SingStar partý? ;P ) Það mun samt hafa algjöran forgang að hitta fjölskylduna mína, Dominique og svo ömmur mínar og afa :)

Í gærkvöldið var ég boðin í partý hjá stelpu sem er með mér í námi. Var mjög forvitin að fara þangað þar sem hún býr á glænýrri kollegíu (eða nýuppgerðri?) sem á víst að vera mjög flott (sjá hér). Ég fór hins vegar ekki þar sem að eftir kvöldmat í gær fékk ég vondan hausverk og varð illt í hálsinum. Hélt að ég væri að vera veik þannig ég ákvað að vera heima. Hausverkurinn virðist vera að koma aftur núna... :S

Jæja, segja þetta gott í bili?? :) Er pottþétt eitthvað sem ég ætlaði að skrifa um sem ég er að gleyma... eeeen whatever.

P.S. Ég bætti við linkum hér til hliðar...

13 ummæli:

Inga Auðbjörg sagði...

Regnbogabirta... hét hún það já... Ég man bara pínulítið eftir henni... ég er að verða gömul...

Nafnlaus sagði...

Hvað er þetta regnbogabirta???
Ég skal mæta í singstar partý... svo lengi sem ég þarf ekki að halda það :)
Til hamingju með það að vera flytja...

Salóme Mist sagði...

Lúsína?? (Unnur?)

Regnboga Birta (Rainbow Brite) eru teiknimyndir (gerðar '84-'85). Þessar teiknimyndir voru sýndar í sjónvarpinu þegar við vorum litlar. Hægt að fá þær á amazon.co.uk á DVD fyrir 3 pund :D

http://www.rainbowbrite.net/

http://en.wikipedia.org/wiki/Rainbow_Brite

Nafnlaus sagði...

Hvað heitir þessi furðulegi kennari?:) Mig langar að sjá myndina af honum!;)

Salóme Mist sagði...

Kristrún: Það stendur þarna í danska textanum... Axel Hunding. :) (hann er samt ekki með bleiku sólgleraugun á þessari mynd, því miður :/ )

Nafnlaus sagði...

Nei.

Nei, þetta var ekki ég hér að ofan. Það eru í.þ.m. þrenn rök sem hefðu átt að útiloka það frá byrjun. Í fyrsta lagi þá veit ég hver Regnboga-Birta er, og þú veist vel af því. Við töluðum meira að segja einu sinni um hana heima hjá þér (ef þú trúir mér ekki spurðu þá Dómí, hún var viðstödd).

Í öðru lagi færi ég ekki að koma með svona fjálglegar yfirlýsingar um mætingu í Singstar partý. KARÓKÍ 4LIFE - spurðu bara Sölva.

Í þriðja lagi var ég þegar búin að koma hamingjuóskum til þín vegna flutninganna. Sé ekki af hverju ég hefði verið að endurtaka þær á opinberum vettvangi.

Og svo hefði líka ritháttur þessa umrædda komments (t.a.m. fjöldi greinarmerkja og broskalla) átt að gefa til kynna að þar væri önnur manneskja á ferð.

Takk og bless

Nafnlaus sagði...

Úff, hvernig meikaru danska tekstan eftir allan! ég skildi bara þetta "einfalda" í honum:S

Nafnlaus sagði...

úps...ætlaði ekki að skrifa "allan" heldur "allt saman"
er greinilega orðin alveg gasalega þreytt:S

Salóme Mist sagði...

Unnur:Sorry krúttið mitt :) Var nokkuð viss um að þú vissir hver Regnboga Birta væri, vildi bara koma með e-a ágiskun (til að reyna að friða mína hræðilegu forvitni) og þar sem það hefur einu sinni áður komið komment undir e-u skrítnu nafni og ég hélt alltaf að þú hefðir skrifað það... þá varst þú bara fyrsta manneskjan sem mér datt í hug :P

Lóa:Það er ekki hægt að skilja dönsku þegar maður er svona þreyttur :P Prófaðu aftur þegar þú ert ekki svona þreytt og ég er viss um að þú skilur þetta allt auðveldlega (reyndar 1-2 orð þarna sem ég skil ekki).

Nafnlaus sagði...

Hehe...það var rétt hjá þér...þetta rann í gegn:D

Nafnlaus sagði...

Lúsína er Lóa S. :) Það er ég... það er greinilega einhver annar sem þú þekkir sem heitir Lóa... þannig ég ákvað bara að kalla mig einhverju öðru :)
Vona að flutningarnir hafi gengið vel hjá þér !!

Benedikta sagði...

Jæja salóme mín... farðu nú að blogga stelpa!

ég veit að ég fékk góða lýsingu á nýju íbúðinni frá mömmu, en þín saga er eflaust líka skemmtileg ;)

Nafnlaus sagði...

þú hefur verið kitluð!:D kíktu á bloggið mitt og láttu kitlast ;)