27.9.2005

Ekkifréttir

Hæj og hó.

Nei, ég hef ekki gleymt að blogga, hef einfaldlega alltaf farið að gera e-ð annað en að blogga þegar ég hef haft tímann í að gera það... Í 90% tilvika er þetta annað “að lesa fanfiction”. Jáh, ég er forfallinn aðdáandi Draco trílógíunnar eftir Cassöndru Claire. Þetta eru s.s. þrjár sögur (varúð: langar sögur) sem byggðar á HP bókunum og aðeins birtar á netinu. Þær gerast á 6. og 7. ári Harry’s í Hogwarts en athugið að þær eru aðeins byggðar á fyrstu fjórum bókunum (enda var byrjað að skrifa þær árið 2001) og það sem gerist í 5. og 6. bókinni er ekki “haft með” ef svo má segja. (S.s. Sirus og ákveðinnaðillisemégætlaekkiaðnefnaefeinhverrskildieigaeftiraðlesa6.bókina eru enn á lífi og fl.)

Það er til alveg ótrúlegur fjöldi af svona fanfiction sögum á netinu. Ég hef hins vegar bara lesið smá af HP fanfiction sögum (það er pottþétt til fanfics af öðrum bókum). Byrjaði að lesa svona sögur árið 2001 þegar ég vann á Bókasafni Kópavogs en nokkrir sem voru að vinna með mér voru að lesa þetta daginn út og daginn inn. Ég hætti hins vegar alveg að lesa þetta eftir sumarið, nema ég hélt áfram að lesa í Draco-sögunum þegar nýr kafli bættist við (það er sko ennþá verið að skrifa síðustu söguna) en missti þráðinn e-r tímann þegar margir mánuðir liðu á milli kafla.

Síðan bara núna í sumar ákvað ég að lesa þessar 3 sögur aftur og er á þeirri síðustu núna. Mæli með þessu ef ykkur vantar e-ð að lesa.. mér finnst þessar sögur persónlega vera alveg jafn góðar og bækurnar en það getur vel verið að e-r HP aðdáendur muni slátra mér fyrir að segja það :)

Annars er nú ekki mikið að frétta, fór reyndar í bíó á föstudaginn að sjá Charlie and the Chocolate Factory. Hún er frábær, mæli virkilega með henni :) Tim Burton tekst eins og venjulega að ljá myndinni virkilega súran blæ en eins og með allar hinar myndirnar hans þá á það bara virkilega vel við. Sem Roald Dahl aðdáanda fannst mér rosalega gaman að sjá hana :) Ég var tístandi eins og ég veit ekki hvað megnið af myndinni.... Fórum reyndar líka út að borða á undan bíóinu. Ég pantaði dýrasta réttin á staðnum, steik! Sem var svo ógeðslega vond!!! :S Var freeekar pirruð, en svona er þetta...

Á laugardaginn var svo Introfest, þeas. fyrsti og annar árgangur af molbio nemum að halda saman stórt party/veislu (það eru bara tveir árgangar eins og ég var búin að segja ykkur). “Matur, drykkja, live-tónlist og dans” lýsir þessu ágætlega held ég bara. Live tónlistin var flutt af þremur strákum úr eldri árgangnum, var bara virkilega vel heppnað hjá þeim. Tóku skemmtilegt sett, meðal annars AC/DC, CCR, Tenacious D, og e-ð fleira.. man ekki.. Ég fór nú svo reyndar snemma heim (rétt fyrir miðnætti, var þá samt búin að vera þarna í næstum 6 klst þar sem þetta byrjaði snemma) þar sem mér var alveg hræðilega illt í maganum :/

Btw þá var fyrsti þátturinn í annarri seríu af Lost var sýndur í Bandaríkjunum í síðustu viku. Íhh, spennandi sko! Þið sem fylgdust með fyrstu seríu.. ekki missa af annarri, lítur vel út :) Get varla beðið eftir að sjá næsta þátt...

Eitt sem mig langaði að minnast á er, að byggingin sem ég er að læra í þessa “önnina” (fram í nóvember), H. C. Ørsted Instituttet, er alveg örugglega ljótasta bygging í allri Kaupmannahöfn! Þetta eru svona þrjár risastórar foooorljótar blokkir, tengar saman með einni 2ja hæða byggingu sem liggur við hliðina á þeim. Þetta er s.s. eiginlega “efnafræðibyggingin” en ég held þarna sé meðal annars líka kennd stærðfræði.

Lækna og tannlæknabyggingin, Panum, er svo bygging sem ég verð að læra í seinna í vetur. Sú bygging lítur út eins og gömul, risastór, ljót verksmiðja; 70% rauðir múrsteinar, 30% grábrún steypa... en hún er eiginlega bara falleg ef maður ber hana saman við efnafræðibygginguna.

H. C. Ørsted byggingin er reyndar mismunandi slæm eftir því hvaðan er horft á hana. Þegar ég kem í skólann á morgnanna sé ég voða lítið af ljótleikanum. Ef maður tekur hins vegar strætó neðan úr bæ og þarna framhjá þá sér maður ljótleikann í allri sinni dýrð. Ég var búin að fara þarna nokkrum sinnum framhjá í strætó og velta fyrir mér ótrúlegum ljótleika byggingarinnar áður en ég fattaði að þetta væri byggingin sem ég er í tímum í 5 daga vikunar.


En jáh, ég ætla ekki að skrifa meira í bili, er með alveg dúndrandi hausverk. Vona að ég nái að setja færsluna inn, netið er með bölvuð leiðindi. Það er búið að vera niðri síðasta sólarhringinn hér á kollegíunni og síðan það kom inn núna seinnipartinn hefur það alltaf verið að detta út aftur. Helvítis rusl.

Btw húsnæðismál eru eins og venjulega í algjöru hakki, er bara of pirruð yfir því til að nenna um skrifa um það þannig ekki búast við fréttum af því hér... nema það séu loksins góðar fréttir... þá skal ég skrifa um það.

Btw2 þá eru plön í þessari viku að: fara og nöldra í kollegíufólki, fara hugsanlega á óperu (eða í bíó) með norskri stelpu sem ég kynntist hér og e-u fleira fólki og svo á föstudaginn eigum við Gúndi miða á tónleika með Stephen Malkmus and the Jicks (sem eru haldnir á e-m stað niðrí Kristjaníu)! :D

Hobbitakveðjur,
Linda Muddyfoot from Longbottom

20.9.2005

Ég var klukkuð

Hæj hæj

Ég ætlaði nú ekki að blogga aftur fyrr en eftir nokkra daga þar sem það er frekar mikið að gera hjá mér. Hins vegar var hún Hulda svo ill að klukka mig þannig nú kemst ég ekki hjá því að blogga.

Ef ég skil þetta klukk dæmi rétt þá á ég núna að skrifa fimm hluti um sjálfa mig og svo klukka fimm aðrar manneskjur sem þá eiga að gera slíkt hið sama. Ég hef ekki ennþá ákveðið hvað ég ætla að skrifa... en ætla bara að byrja að skrifa.. og go with the flow... (eins og sjá má á lengd bloggfærslanna sem ég hef skrifað þá virkar sú aðferð ágætlega fyrir mig :P )

1. Nafnið mitt: Ég heiti Salóme Mist. Svo skemmtilega vill til að ég er eina manneskjan sem heitir þetta (þ.e.a.s. þessum tveim nöfnum saman, auðvitað eru margar aðrar sem heita Salóme og margar sem heita Mist en þessi samsetning er einstök :P). Ég var ekki sérlega hrifin af Salóme nafninu þegar ég var yngri, kannski af því að mér var oft strítt á því (Salómeeeeee!*jarm*) en ég vandist því. Nú orðið finnst mér frekar gaman að heita þessu nafni, bæði af því að ég fæ oft að heyra hvað nafnið mitt sé fallegt (alltaf jafn gaman að heyra fólk segja það) og líka því að mér er aldrei ruglað saman við neina aðra manneskju.
Langamma mín í föðurætt (mamma afa) hét Rannveig Salóme Sveinbjörnsdóttir og er ég skírð eftir henni og svo líka eftir systur langaafa míns (sem var s.s. systir pabba ömmu minnar í föðurætt) sem hét Salóme Kristjánsdóttir.
Salóme er nafn úr biblíunni, meira segja tvær með því nafni þar. Sú sem dansaði höfuðið af Jóhannesi skírara og svo önnur sem var fylgismaður(kona) Jesús. Nafnið er dregið af hebreska orðinu "Shalom" sem þýðir friður. Þetta nafn var lítið notað í margar aldir vegna þessa litla atviks með greyið Jóhannes en það fór að öðlast smá vinsældir aftur eftir að Oscar Wilde skrifaði leikrit með þessu nafni (seinna var líka gerð ópera og bíómynd...).
Mist er svo nafn úr norrænu goðafræðinni, Mist og Hrist bera Óðni veigar (held ég). Svo er þetta náttla orð á ensku, ekkert að því en ég mun vísast aldrei nota millinafnið mitt í Þýskalandi af sökum þess hvað það þýðir þar.

2. Safnaraáráttan: Ég hef alltaf verið mikið fyrir að safna hlutum. Þegar ég var yngri safnaði ég meðal annars frímerkjum í mörg ár. Einnig safnaði ég t.d. dúkkulísum og fullt af dóti sem mér er ekki að takast að rifja upp núna. Ég hef hins vegar fyrir löngu síðan snúið mér frá frímerkjunum og dúkkulísunum og annað komið í staðin. Það sem ég safna helst núna eru:
- Jókerar: Jáh, jókerar úr spilum. Ég byrjaði að safna jókerum fyrir þó nokkrum árum eftir að ég las Kapalgátuna eftir Jostein Gaarder í fyrsta skipti (það er enn í dag uppáhalds bókin mín). E-r tímann var mér sagt að langafi minn (sem lést þegar ég var 8 ára) hafi líka safnað jókerum en ég hef ekki getað fengið það staðfest. (Ef þið eigið jókera sem þið notið ekki þá megið þið endilega gefa mér þá :)
- Gamlar (80's) teiknimyndir á DVD: Jáh, þetta er fíkn. Datt fyrst í þetta fyrir svona mestalagi ári síðan. Nú á ég meðal annars: 3 seríur af Kærleiksbjörnunum, allar Tinna-myndirnar, alla þættina af Skófólkinu, Rainbow Brite þætti, The Super Mario Bros super show! þætti, Dennis the Menace þætti, Inspector Gadget þætti, Peter Pan þætti, Count Duckula þætti, (Teddy Ruxpin á VHS), 3 seríur af Bananaman, (Raggydolls á VHS), Stopit and Tidyup...
-Geisladiskar: Ólæknandi árátta, kaupi meira en ég næ að hlusta á... er að reyna að taka því rólega samt.
-Ýmislegt: Safna öllum gömlum tónleikamiðum, finnst voða gaman að kaupa bíómyndir á DVD og e-ð..

3. Málæði: Mér finnst voða gaman að tala en fæstir sem ekki þekkja mig vel vita það afþví að ég er frekar mikið feimin í kringum fólk sem ég þekki lítið. Aftur á móti finnst mér voða þægilegt stundum að bara þegja og ég skil ekki fólk sem finnst þagnir óþægilegar.

4. Partý: Ég er kannski skrítin en mér finnst partý oftast ekkert sérlega skemmtileg. Mér finnst heldur ekki spennandi að fara að "djamma" eða dansa. Þar er of mikið af fólki (mér líður ekki vel í kringum mikið af fólki) plús megnið af því er alltaf drukkið, vitlaust, sveitt og ógeðslegt. Ég vil miklu frekar vera í góðum og fámennum hópi í heimahúsi hjá e-m, sitja og spjalla eða spila (ég eeeelska að spila) eða bara hvað sem er. Uppgötvaði líka nýlega að SingStar partý eru snilld ;)

5. Það sem ég hata mest af öllu: Jáh, kæru lesendur það sem ég hata mest af öllu.. er.. þegar fólk heldur að ég sé með anorexíu. Því miður er það nú svo að örugglega meira en 90% af því fólki sem hefur hitt mig síðustu 10 árin heldur (allavega áður en það kynnist mér) að ég sé haldin þessum hræðilega geðsjúkdómi. Ég efast um að ég geti útskýrt almennilega fyrir ykkur hversu mikið bögg þetta er en ég ætla aðeins að reyna.
Ég hef haft það vandamál síðan ég var svona 8-9 ára að vera allt allt of grönn. Þó svo að svo virðist vera að flestir þurfi að berjast við aukakílóin þá hef ég alltaf þurft að berjast fyrir þeim. Ég get ekki talið hversu oft ég hef reynt að fara í "fitunarkúra" eða hversu margra lækna og næringarfræðinga ég hef leitað til gegnum árin en ég get sagt ykkur að ekkert af því hefur gert mikið gagn. Engin getur sagt mér afhverju þetta er svona þannig ég get ekki útskýrt það fyrir ykkur en ég vil gjarnan bara koma því á hreint að ég er ekki með átröskun.
Átraskanir eru geðsjúkdómur og ég er voða fegin að vera ekki haldin svoleiðis þar sem það er lífshættulegt og erfitt að berjast við. Ég hef hins vegar fengið að kynnast því gegnum árin hversu mikið baktal og fordóma fólk sem er haldið þessum sjúkdómi þarf að þola.
Í öllum skólum sem ég hef farið í hef ég verið baktöluð vegna þess að fólk hefur haldið að ég sé með anorexíu. Í MK frétti ég af því gegnum vini mína, í MH frétti ég af mjög svo skrítnum sögum sem gengu um mig (þær voru nú svo fáránlegar að það var bara hlægilegt en þetta var böggandi engu að síður) og ég er nokkuð viss um að það sama hefur verið upp á teningnum í grunnskólanum sem ég var í þó ég hafi ekki (svo ég muni) fengið staðfestingu á því.
Mikið af fólki starir á mig þegar ég er innan um fólk, ég sé fólk hvísla og benda og veit alveg hvað það er að segja svosem. Þegar ég fer í veislur þar sem eru hlaðborð er oft fólk sem segir við mig "fáðu þér nú meira, þú ert nú svo voðalega horuð". Verra er samt fólkið sem hefur alltaf þurft að berjast við aukakílóin og er geðveikt biturt út í mann þó maður hafi ekkert gert því (einu sinni langaði mig virkilega að kýla eina af þessum manneskjum fyrir það sem hún sagði en ég hélt aftur af mér þar sem þetta var kona sem mamma þekkir). Ókunnugur maður bauðst einu sinni til þess að gefa mér nokkur af sínum aukakílóum, það var nú reyndar bara sætt, hann var bara að vera vinalegur. Ég hef meira að segja lent í böggi frá litlum krökkum út á götu útaf þessu. Ég hef ekki farið í sund síðan í 7.bekk (eina ástæðan fyrir að ég fór fram að því var af því að ég neyddist til að mæta í skólasund) því að það er svo mikið starað á mig. Mér leið alltaf virkilega illa í skólasundi vegna þessa, kveið því og hataði það. Ég hef fyrir löngu losað mig við allar stuttbuxur sem ég átti, ég á engin stutt pils og ég fer helst ekki út í stuttermabol því ég vil ekki vekja meiri athygli á því hversu mjó ég er.
Foreldrar mínir hafa samt örugglega lent í alveg jafn mikið af böggi og ég útaf þessu. Fólk sem þau þekkja og ekki þekkja er alltaf að benda þeim á að ég sé örugglega með anorexíu, hafa áhyggjur af mér og hálf skamma þau fyrir að gera ekkert í þessu. Held þau séu lang-þreytt á því að útskýra fyrir fólki að það sé ekki málið.
Um daginn lenti ég svo í því að drukkinn strákur sem sjálfur er með anorexíu (sést sko ekki á honum núna) kom til mín og sagði mér sína sögu. Hann var svo að reyna að sína mér fram á að ég væri með anorexíu og var ekki að trúa því þegar ég var að reyna að útskýra fyrir honum að svo væri ekki. Hann varð bara hálf sár greyið enda ætlaði hann bara að hjálpa held ég. Ég varð nú samt svo pirruð á endanum að ég barði hann í hausinn.. hann lét mig í friði eftir það.... :P
Sem betur fer hef ég ekki þurft að útskýra þetta fyrir öllum sem ég þekki, fólk sem umgengst mig dags daglega sér alveg að það er ekki séns að ég gæti haft anorexíu (sko, það er víst best að hafa svo mikið af smjörva á harðfisknum að það er helmingi meira af smjöri en fiski, ég er ekki skrítin!)
Ég held þetta sé komið nóg í bili... bara.. plís... hættið að ákveða að allar manneskju sem þið sjáið og eru of mjóar séu að reyna að vera svoleiðis. Þetta er vandamál fyrir suma, ég veit um fleiri en mig sem eru svona. Hvort sem þetta er hröðum efnaskiptum að kenna eða hvað... það skiptir ekki máli. Þetta er ekki ykkar mál heldur, fólk er bara eins og það er.. hættið að skipta ykkur af því eða baktala fólk sem er öðruvísi. Hættið að ákveða fyrirfram að e-r sé haldinn átröskun bara útaf því að manneskjan er of grönn. Meina.. þið ákveðið ekki að manneskja sé offitusjúklingur þótt hún sé með nokkur aukakíló, afhverju er það öðruvísi þegar dæmið snýst við?
Btw þá vil ég benda á að það er áhugavert hvernig fólki finnst ekkert að því að segja við e-n "Djöfull ertu mjó" á meðan það þykir ógeðslegur dónaskapur að segja "Djöfull ertu feit". Hvort tveggja er alveg jafn böggandi og særandi, bara að benda á það. Voða margir sem virðast ekki fatta það.


Jæja, ég ætla svo að klukka Benediktu, Orra, Önnu Guðrúnu, Hauk og Kristrúnu.

Bless í bili

18.9.2005

Fleiri myndir úr rustur

Fleiri myndir komnar á netið úr rusturnum :) Ef ykkur langar að sjá þá setti ég eitthvað af þeim inn á myndasíðuna í möppu sem er merkt "Rustur 2".

15.9.2005

Ojbara haust!

Þá er haustið komið, það fer ekki á milli mála. Síðustu vikur er búið að vera geðveikt veður hér, sól og blíða alla daga. Maður kveið því að fara í strætó því að maður vissi að maður myndi vera við það að leka niður úr hita þar inni.. og so on... En núna í vikunni... er búin að vera gola.... alveg 16-19 stiga hiti.. en samt er manni kalt :S (sem er frekar skrítið, heima á Íslandi finnst manni vera geðveikt veður þegar það eru 16°C).
Skrítið að vera búin að venjast því að geta helst ekki farið út í síðerma peysu (nema hún sé mjög þunn) því þá verði manni alltof heitt... en svo núna... allt annað upp á teningnum. Í dag fór ég út í tveimur peysum en var samt of kalt.. og þarna er bara ein vika á milli... og örfáar gráður.... *sniff*

Það er samt allavega ein manneskja sem hefur ekki tekið eftir því að það er komið haust... manneskjan sem keyrir ísbílinn! Ég heyrði í honum í fyrradag! Jáh, hér uppá DTU háskólasvæðinu fyrir utan Lyngby... þar sem er nánast bara háskólabyggingar, kollegíur... og svo e-r smá íbúabyggð... keyrir alltaf um öðru hvoru ísbíll. Ég vissi ekki hvað ég átti að halda fyrst þegar ég heyrði í honum... ísbíll? hér? Fatta heldur ekki hvernig svona ísbíladót á að virka... meina... í svona íbúahverfi... fólk kannski heyrir e-ð ding ding ding frá götunni... En hvað á það að gera? Hlaupa út á götu? Ísbíllinn er löngu búinn að keyra framhjá áður en nokkur kemst út fyrir hússins dyr. Við erum t.d. hér upp á 3. hæð á kollegíu... það væri ekki séns að ná honum.
Þannig ég er komin með þá kenningu að ísbíllinn sé bara að keyra um til að svekkja mann. Maður situr inni í steikjandi hita, heyrir þetta seiðandi "dingdingding" hljóð og hugsar með sér: "Mmmm hvað mig langar í ís!". En eftir nokkrar sekúndur áttar maður sig á því að ísbíllinn er kominn framhjá og allar vonir um ís horfnar. Eftir situr maður vonsvikinn og íslaus :/

Ég fór á mánudaginn og keypti mér mánaðarkort í strætó/lestar. Þar með lýkur veseninu með klippikort í bili :) Sem betur fer, það var óþolandi að þurfa að fara og kaupa nýtt klippikort á viku fresti (sárt að þurfa að sjá eftir 2560kr á viku bara til að komast í og úr skólanum). Þetta kort er samt dýrt... þar sem ég þarf að fara yfir alveg 5 zone! þá kostar það mig.. 665 dkk (6.786 ísl kr), og það er bara kort fyrir einn mánuð!
Þegar ég fæ mitt eigið kollegíuherbergi, þá verður þar e-r staðar niðrí Köben og þá þarf ég aðeins að fara yfir 1-2 zone til að komast í skólann. Þá þarf ég ekki að borga svona rosalega mikið í samgöngur.. jeij.

Til að kaupa strætó/lestar-mánaðarkortið þurfti ég að fara niðrá lestarstöðina í Lyngby. Í leiðinni fór ég og verslaði í matinn. Keypti kjúklingabringur (25 dkk), nautahakk (30 dkk, óvenju dýrt) , snakk (6 dkk), mjólk (6 dkk), 5 litlar fernur af appelsínusafa (9,5 dkk), 2 pakka af besta súkkulaðibitakex í heimi, 37% súkkulaði! :D (2x10 dkk), 5 kitkat (4 dkk stk), bakka af nektarínum (10 dkk), lifrarkæfu (10 dkk), smjör (11 dkk), stóran poka af Matador Mix (18,4 dkk), skinku (4 dkk), 8 stk af Twix top (15 dkk) og samlokubrauð (9 dkk) .... Allt þetta kostaði samtals ekki nema 193 dkk (2000 kr ísl). Hversu nice er það? Munar frekar miklu að versla í matinn hér og á Íslandi. Finnst mér allavega...
En jáh.. hlammaði þessu öllu í bakpokann minn og einn innkaupapoka... og hélt út í strætóskýli. Var ýkt heppin, strætó að koma eftir 5 mín! En svo kemur strætó ekkert :S Fyrsta sinn ever sem ég lendi í því að strætó er seinn hér í DK! :o Venjulega er alveg ótrúlegt hvað þeir eru alltaf tímanlega, hef alveg treyst á það hingað til en þarna fór e-ð út af laginu. En jáh.. þetta var fyrsti dagurinn sem ég myndi formlega telja sem haust-dag, og mér varð frekar mikið kalt af því að standa þarna og bíða... heldur ekkert gaman að standa og bíða þegar maður þarf að halda á fullt af matvörum. En strætó kom loksins (eftir... 20-30 mín seinkun) og mér tókst að fara út úr honum á réttum stað þó ég hafi aldrei tekið þennan strætó ein áður! :D víj!

Annars ætlaði ég líka að minnast á að Íslendingar eru held ég IKEA óðir. Strætóinn sem ég tek alltaf til að komast í og úr skólanum fer fram hjá IKEA (2 stopp héðan, samt langt í burtu þar sem þetta er hraðbrautarstrætó). Í gær þegar ég var á leið heim... tók ég eftir því.. að það voru tveir frekar háværir Íslendingar sitjandi rétt fyrir aftan mig í strætó. Stuttu síðar tók ég eftir því að par sem sat aðeins framar í strætónum voru greinilega líka Íslendingar... og getiði hvar þetta fólk fór allt saman út? Núh, hjá IKEA! :P
Í síðustu viku þegar ég var á leið heim úr skólanum kom líka gaur inn í strætó á IKEA-stoppustöðinni... haldandi á IKEA poka og e-u drasli. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá hann var: "Þetta er Íslendingur!". Komst svo að því að það var rétt því að við fórum út úr strætó á sama stað.. og um leið og ég steig út úr strætónum spurði hann mig hvort ég væri Íslendingur (ég var að fara að opna munninn til þess að spurja hann að því sama en hann varð fyrri til). Komst að því að hann hafði líka verið í MH... Þó maður þekki ekki allt fólkið sem var með manni í MH og hafi heldur aldrei verið með því í tímum þá þekkir maður flest andlitin bara af göngunum...

Btw.. ef fólki leiðist... þá mæli ég með að þið tékkið á "The 4400". Áhugaverðir sjónvarpsþættir þó fyrsta serían (5 þættir) sé soldið... cheesy og illa leikin :P 2. serían er mun betri og ferlega spennandi :)

Annars var ég að panta flug áðan til Suður-Frakklands ( s.s. til minna gömlu heimkynna). Þar ætla ég að hitta fjölskyldu mína og vera yfir jólin. Fáum lánað hús hjá vinafólki okkar til að vera í (sundlaug út í garði og svona, sem því miður nýtist ekki þegar maður er þarna í desember). Málið er að mamma (sem er málari) fær gestavinnustofu þarna yfir bæði desember og janúar. Því ætlar restin af fjölskyldunni bara að elta hana þangað svo við getum eytt jólunum saman. Hlakka til að koma þangað aftur, ég lít ennþá á Frakkland sem annað heimaland mitt og finnst alltaf jafn gaman að koma þangað og fá að æfa frönskuna svolítið :) (hlakka líka til að fara að versla í matinn þar! svo margt þaðan sem ég sakna! :P) Og gaman að hitta fólkið sem maður þekkir þarna auðvitað líka... og og sjá alla staðina aftur... oh... *hlakk*

Jæja, shit.. ég ætti að vera farin að sofa... skóli snemma á morgunn... :S

Ble ble í bili! Vona að þessi færsla sé ekki of sundurlaus... var eiginlega of þreytt til að blogga núna í kvöld en ákvað að gera það samt...

10.9.2005

Partý og saltsýra í sár

Hæj og hó! :)

Í lok síðustu færslu minntist ég á að ég hataði papercut's. Ég hef nú fundið eitt sem ég hata meira og það er að fá 2 M saltsýru í papercut. Þannig vildi til að á miðvikudagskvöldið tókst mér e-n veginn að fá þetta væna papercut niðureftir öllum fingurgómnum á þumalfingri hægri handar. Daginn eftir var 4 klst verklegur tími þar sem við þurftum meðal annars að vinna með saltsýru.
Ég var búin að gera mér grein fyrir að það væri sniðugt að halda puttanum eins langt frá sýrunni og hægt væri og passaði mig alltaf að þurrka strax ef það fór e-r dropi útfyrir og alltaf halda á saltsýruflöskunni og mæliglösunum með vinstri hendi. Hins vegar, þegar ég var að blanda fjórðu saltsýrulausnina sem ég þurfti að gera þennan dag þá tók ég utan um flöskuna með vinstri hendinni eins og venjulega... en tók tappan af með hægri...
ugh..
E-m snillingi hafði e-n veginn tekist að koma saltýru á tappann! Efst á svona tappa þar sem efsti hlutinn er með tvöfallt þvermál á við neðri hlutann þannig hann getur ekki farið ofan í flöskuan og það ætti ekki að fara sýra þangað á. En nei... þar leyndist dropi.. og það sveið... helvíti mikið get ég sagt ykkur :S

En jáh... eftir tímann fór ég á e-n svona.. International day uppí hátíðarsal skólans... það var fínt. Mjög skemmtilegar ræður, svæfandi kórsöngur, matur og drykkur og fullt af fólki frá öllum heimsálfum nema Suðurskautinu... Húsið var tæmt kl. 9.. en þá hékk fólk bara áfram á torginu fyrir framan... ég fór samt heim... um hálf 11 eða e-ð... ég þurfti nefnilega að reikna út niðurstöðurnar úr verklega tímanum til þess að skila þeim daginn eftir. Jeij.

Gærdagurinn var svo skóli til hádegis.... þá komu nokkrir nemendur af eldra árinu... með bjórkassa... farið út á plan.. allir fengu bjór.. og síðan var haldið niður á
Øster Voldgade 3 þar sem skrifstofurnar fyrir raunvísindadeildina eru og okkur sýnt þar um. Síðan var bara setið í grasinu þar fyrir framan.. og eins og venjulega.. boðið upp á frían bjór :)

Fór heim uppúr tvö... með viðkomu í bakaríi... keypti fullt af sjúklega góðu dóti þar... nammi namm... og fór heim að hangsa..

Kl 7 mætti ég svo heim til Sophie sem er með mér í námi en þar vorum við nokkur.. uþb. 12 manns held ég... sem hittumst til að chilla og borða saman áður en haldið var í partýið til Anastasiu. Kemur mér á óvart aftur og aftur hvað þetta eru allt alveg yndislegt og ótrúlega skemmtilegt fólk sem er með mér í námi.. þau eru alveg frábær :) Allavega... héldum í partýið upp úr kl 9... þau voru flest á hjólum... og ég var plötuð til að setjast aftan á böglaberann hjá einni stelpu .... ái.... ég fór af eftir að hafa setið á niður tvær götur eða svo... kýs frekar að fara hægt yfir en að ferðast svona.. :P

Partýið var æðislegt.. og öfugt við í rusturnum þá var mjög góð tónlist spiluð mest allt kvöldið.. kom á óvart... kannski danir séu ekki allir með jafn glataðann tónlistarsmekk og ég var farin að halda... :D
Ég hélt heim... e-r tímann upp úr kl 3.. lítið frásagnarvert við það nema það að ég þurfti að labba eitt stk langa götu til að komast að strætóstoppistöðinni.... þessi gata lá upp við garð... þannig að tré slúttu á mörgum stöðum yfir gangstíginn... frekar creepy... Auk þess, var e-ð verið að gera við þarna.. þannig það voru svona.. grindverk... eitt sem afmarkaði mjóan göngustíg alveg upp við garðs-grindverkið... og hitt sem afmarkaði aðeins breiðari hjólastíg við götuna... Fáir bílar á ferð og allt frekar svona.. ugh...
Þegar ég var að byrja að labba þennan stíg... mætti ég e-m gaur á hjóli.... sem heilsaði þegar hann fór framhjá! Ég var smá ringluð í smá stund og var að pæla hvort þetta gæti mögulega verið e-r sem ég þekkti... ákvað að svo væri ekki.. og labbaði bara áfram...
Var það ekki gólað á eftir mér... gaurinn hafði stoppað í 10 metra fjarlægð og var e-ð að góla og spurja hvert ég væri að fara og e-ð :S Ég gólaði bara á móti... "Sorry, I don't speak danish" og hraðaði mér áfram!
Leit við stuttu seinna og sá hann hjóla í burtu.

Kaus samt eftir þetta að labba á hjólastígnum... þar var ekki jafn dimmt og maður þyrfti bara að forða sér gegnum eitt grindverk til að flýja út á götu en ekki tvö ef maður mætti e-m klikkhaus eða e-ð...
Voða fáir voru á ferli en þeir fáu sem ég mætti eftir þetta heilsuðu ekki.. sem betur fer :P Leið samt ekkert sérlega vel þarna og leit aftur fyrir mig við og við til að vera viss um að það væri enginn þar *hræðslupúki*
Hins vegar var e-r maður að labba svona 30 m fyrir framan mig... sem var greinilega drukkinn... og oft að stoppa e-ð.. skoða símann sinn eða e-ð álíka... og ég passaði mig að vera alltaf hæfilega langt fyrir aftan.. stoppaði bara líka.. því ég vildi ekki vera að díla við e-ð drukkið fólk útá götu um miðja nótt.

Allavega... þegar ég loksins kom að hinu horni garðsins... fegin mjög... sá ég... í birtu ljósastauranna.. (sem hafði vantað við garðinn) að drukkna manneskjan fyrir framan mig var skólafélagi minn sem hafði greinilega farið úr partýinu rétt á undan mér! :D Ég bölvaði sjálfri mér fyrir að hafa ekki þekkt hann fyrr en þar sem hann var farinn yfir götuna í átt að e-u strætóskýli hætti ég að hugsa um það í bili. Á sama tíma og ég var að koma þarna að tók ég eftir því að e-r manneskja á hjóli (kyrrstæð) var svona 15 m fyrir aftan mig.. pældi ekkert sérstaklega í því samt.
Ég hafði ekki tekið strætó frá þessum stað áður... og sá tvö strætóskýli þaðan sem ég stóð.. eitt þar sem "bekkjarbróðir" minn stóð nú... og eitt í hina áttina... Meðan ég stóð þarna og pældi hvort væri rétta skýlið sá ég allt í einu að hjólamanneskjuna út undan mér... hún var komin alveg að mér... þannig ég leit til hliðar... og getiði hver þetta var!

Gaurinn sem hafði heilsað mér! Hinum meginn við garðinn! Sem hafði verið að fara í hina áttina! Sem hafði greinilega verið að elta mig... langa leið.. (stór garður). Veit ekki hvernig hann fór að þessu.. því ég sá hann aldrei fyrir aftan mig... kannski fór hann gegnum garðinn...
En allavega.. hann fór e-ð að tjá sig... segjast hafa séð mig og haldið að ég væri skemmtileg manneskja að tala við og e-ð blablabla... spurja hvað ég væri að gera í danmörku og hvaðan ég kæmi...
Ég ákvað að reyna að forða mér bara í burtu sem fyrst.. meina.. það er ekki alveg eðlilegt að taka upp á því að elta e-a ókunna manneskju e-r hundruð metra um miðja nótt bara til þess að spjalla...
Ákvað að skjóta á að strætóskýlið þar sem bekkjarbróðir minn stóð væri örugglega rétta strætóskýlið... og um leið og það kom grænt gangbrautarljós flýtti ég mér að afsaka mig og hraða mér yfir götuna.. í burtu frá furðufuglinum. Sem betur fer var þetta rétta strætóskýlið og það var ekki neitt vesen við að komast heim eftir þetta :P

Allavega.. ég ætla að fara að koma mér í að læra :P

Skål!

7.9.2005

Jahm og jáh...

Jæja, í dag var 4-tíma verklegur tími.. eins og alla aðra miðvikudaga og fimmtudaga.. Það var geðveikt fjör... eða þannig. Þetta er þvílík nákvæmnisvinna... og ekkert sérlega auðvelt. Ef þú klúðrar smávegis... t.d. lætur óvart einn auka dropa af sýru falla ofan í basann þinn við lok títrunar... þá áttu á hættu að þurfa að endurtaka tilraunina enn einu sinni! :o Við þurfum alltaf að endurtaka hverja prófun í tilraun amk 4 sinnum. Á niðurstöðum þessarra prófanna má svo yfirleitt ekki muna nema 0,02%... ef það munar meira... þarfu að endurtaka amk einu sinni enn... og hver prófun tekur... allavega 25 mín (böh, örugglega lengur) því að þú þarft að blanda nýja lausn og svo framkvæma prófunina.
4 tímar af verklegum tíma með engri pásu, seinnipart dags í seinnipart viku... maður kemur heim ansi þreyttur :) Tíminn í dag var samt mun skárri en tímarnir í síðustu viku! Það var af nokkrum ástæðum. T.d. af því að nú vissi ég hverju ég ætti von á og var farin að kunna aðeins á þetta. Einnig er einn yndislegur aðstoðarkennari sem er núna alltaf að hjálpa mér og þýða fyrir mig vinnuleiðbeiningarnar (sem eru á dönsku). Verst hvað hann er slappur í ensku :) Hann er samt algjört krútt, ég væri alveg á bömmer ef ég hefði engan til að geta spurt hvað ég ætti að gera alltaf... efnafræði á dönsku er ekki alveg málið... allavega ekki í tilraunum þar sem mikilvægt er að misskilja ekki neitt. Aðstoðarkennarar eru bara eldri nemendur við skólann, topp-nemendur sem er borgað fyrir að taka að sér að vera aðstoðarkennarar í einum kúrs á önn.
Það hjálpaði líka að ég var ekki jafn þreytt í dag og ég var í síðustu viku.. það munar helling (erfitt að vera nákvæmur þegar maður er við það að sofna og hefur enga orku til þess að vera að þessu).

Efnin sem við vorum að vinna með í dag voru samt ponsu.. svona.. erfiðari en síðast ef það má orða það svo. Basinn var alveg dökk fjólublár... og ef dropi fór á puttana á manni eða bara á e-ð... þá oxaðist hann og maður fékk brúnan blett á húðina.... sem var ekki hægt að þvo af með vatni. Svo vorum við líka með saltsýru... sem við þurftum að hita upp í 60°C áður en við fórum að títra hana (lausnin hituð yfir gasbrennara, tekin af þegar flaskan er næstum orðin of heit til að halda á...). Það hefði ekki verið sérlega sniðugt að fá það yfir sig... (er farin að fatta afhverju við þurfum alltaf að vera í slopp og með þessi helvítis gleraugu...) :P

En jáh, ég er ennþá eftirá í skólanum. Ætlaði að vinna upp síðustu helgi en var veik í maganum (óglatt) alla helgina og gerði lítið sem ekkert af því sem ég ætlaði að gera. Svo er ég bara svo orkulítil þegar ég kem heim úr skólanum, hef mig ekki í það að læra... auk þess er það smá vesen hér... lítið næði og lítið pláss... ég þarf á hvoru tveggja að halda til að geta lært.
Þannig, stefni á að læra um helgina...

Ég ætti að vera komin með kollegíuherbergi eftir mánuð.... skv. því sem e-ð kollegíu-skrifstofufólk var að segja við mig á fundi sem ég átti með þeim á þriðjudaginn... nú er bara að bíða og sjá. Það væri mikill léttir skal ég segja ykkur... er ekkert gaman að eiga ekkert "heima". Eiga ekkert sitt pláss, hafa ekki nema 10% af öllu dótinu sínu, blablabla. Búa inná e-m og finnast maður alltaf vera fyrir.

Jæja... ég ætti eiginlega að vera farin að sofa... best að drífa í því. Aukatími kl. 9 í fyrramálið (veit ekki hvort ég mæti í það..), skóli alveg til kl. 5. Svo kl. 4... (já, ég veit þetta skarast) og fram á kvöld er ég boðin í e-a móttöku fyrir International students eða e-ð... rektor að halda ræðu, frír bjór og e-ð dæmi... veit ekki hvort ég fer.. sé ekki alveg fram á að hafa orkuna í það á morgunn.
Föstudagurinn verður líka mjög bisí, skóli 9-12... þá tekur við e-r kynningardagur... verið að sýna okkur e-n hluta af skólanum... held ég... og svo e-ð... hangs úti á e-u túni.. frír bjór... (danir og bjór...). Svo er partý um kvöldið hjá Anastasiu (stelpu sem er með mér í námi)... veit ekki hvort ég hef e-n tíma til að fara heim þarna á mili...

Jáh jáhm.. þetta var örugglega sundurlausasta og mesta þvaður bloggfærsla sem ég hef skrifað hingað til.. sorry about that... er þreytt... fékk btw papercut dauðans áðan, ég hata papercuts!!!!

Var líka að fatta... að ég er að borga 500kr íslenskar á dag í ferðir til og frá skóla... það er skrambi dýrt :S (strætó smætó)

Jæja.. sofa... bless smess.. vona að þið séuð hress... (það er víst kúl að láta orð ríma!!!... er það ekki annars? :S )

3.9.2005

Myndir

Jæja, ég setti inn nokkrar myndir úr dýragarðinum... Þarf eiginlega að fara að læra núna þannig Tívolí myndirnar fá að bíða smá. Á samt örugglega eftir að setja þær inn á eftir því ég nenni ekki að vera að læra.
Möguleiki á að húsnæðismál fari etv hugsanlega kannski að leysast á næstunni því ég á víst að mæta á fund á þriðjudaginn hjá einu félaginu sem sér um að útdeila kollegíuherbergjum. Það verður spennandi... Annars ef e-r veit um e-ð laust húsnæði e-r staðar í Köben: láta mig vita!!
Annars er ekki mikið að frétta... nema bara að þetta er allt saman meira vesen en ég átti von á :s
Gærkvöldið var reyndar ansi áhugavert... þeas það var mjög áhugavert að sjá ákveðna einstaklinga sem deila með okkur eldhúsi verða einstaklega ölvaða, brjóta tómatssósuflöskur, gera sig að fífli og so on...

Ah.. og jáh... myndirnar eru á http://photobucket.com/albums/b39/smist/


Bætt við kl. 22:30:
Búin að setja Tívolí myndirnar inná líka.. :D Nokkrar þeirra allavega...
Gleymdi líka að taka það fram áðan að Gúndi og nýja myndavélin hans eiga heiðurinn af öllum þessum myndum :) (ég á bara svona vesenismyndavél sem þarf filmu í...)