20.12.2007

Á Íslandi

Hæ hæ
Þetta verður ansi stutt blogg því ég er að nota hræðilega tölvu og er komin með hausverk bara eftir að tékka emailið mitt. Úfff.
Er s.s. komin til Íslands sem er æðislegt. Veðrið hér er reyndar ÓGEÐ, hvernig getið þið búið hérna? :S Búin að eyða mestu tímanum síðan ég kom hingað í fjölskyldusamveru og verslunarferðir með fjölskyldunni. Eiginlega allar jólagjafir bara keyptar og frágengnar held ég... sem er þægilegt. Útskrifting hennar Benediktu er svo á morgunn!
Uhm.. hvað annað? Já, hlakka til að hitta ykkur öll! Verið dugleg að hringja í mig! Er á landinu til 2.jan og langar til að sjá sem flest ykkar... en það er alltaf erfitt að pússla þessu og hafa samband við alla....

Heyrumst!

15.12.2007

Að mála skrattann á vegginn...











Svona lítur íbúðin mín út akkúrat núna!


13.12.2007

Back & Spine

Jólahjól?



Ef fólk vill gefa einhverjum skemmtilega jólagjöf í ár þá held ég að þetta tvennt sé alveg málið!
Hafið þið séð lagalistann á SingStar 90's?! Hafiði prófað að spila Party & co?! (Þetta er sko ný og endurbætt útgáfa).

8.12.2007

Vikan



Þetta hefur ekki endilega verið svo góð vika en hún hefur svo sannarlega átt sínar góðu stundir. Við Guðrún áttum frábært kvöld á þriðjudaginn. Byrjuðum á að gæða okkur á yummi burritos, fórum svo í Build a Bear búðina og tókum að lokum göngutúr í Tívolí. Garðurinn var yndislega jólalegur að venju og voru frosnar tær ásættanleg afleiðing þess að eyða þar klukkustund eða svo.

Á miðvikudaginn heimsótti ég sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn til þess að sækja um nýtt vegabréf. Nýja vegabréfsmyndin mín er vægast sagt hræðileg, ég lít út eins og zombie. Það bætti það hins vegar upp að sendiherrann sjálfur tók sér tíma í að sýna mér um sendiráðið og gaf mér meira að segja bók með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar á dönsku.
Húsnæði sendiráðsins er niðri við Christianshavn og það kom mér enn einu sinni á óvart hvað Kaupmannahöfn er fjölbreytt borg. Þetta hverfi líkist mínu ekki neitt.

Á fimmtudagskvöldið fór ég í matarboð með stelpunum úr dönskunáminu, það var voða huggulegt og maturinn var mjög góður.





The Golden Compass
Á föstudagskvöldið sá ég The Golden Compass með Josef. Við óttuðumst hið versta enda fórum við að sjá Narníu saman í fyrra (úff). Þessi mynd reyndist þó alveg ágætt, urðum alls ekki fyrir vonbrigðum en þess má þó geta að væntingarnar voru ekkert svakalegar heldur. Ég las bókina fyrir 8 árum síðan og var ekkert súper hrifin þó mér fyndist hún nægilega góð til að lesa líka næstu bók í seríunni. Finnst frekar töff að það sé trúleysingjaboðskapur í þessum bókum sem gerir þær að eins konar mótsvari við Narníu.




1408
Á fimmtudaginn vaknaði ég við það að dyrabjöllunni var hringt hvað eftir annað. Þar var á ferðinni pósturinn með pakka til mín. Ég hafði s.s. unnið 2 miða á 1408 ásamt 10 dvd myndum úr "Masters of Horror" seríunni. Það er s.s. sería sem var gerð 2005/6 þar sem flestir bestu hryllingsmyndaleikstjórar samtímans voru fengnir til að gera hver sína 60 mínútna langa hryllingsmyndina. Ég er ekki mikið fyrir hryllingsmyndir og skil ekki afhverju ég tók þátt í þessum leik yfirhöfuð! Ég ákvað hins vegar að bjóða Isju vinkonu minni sem er mikið fyrir hryllingsmyndir að koma og sjá þessa mynd með mér. Gaf henni líka allar dvd myndirnar -langar ekki rass í bala að sjá þær. Finnst flestar hryllingmyndir lélegar og þær sem eru það ekki hræða úr mér líftóruna... og mér finnst ekkert skemmtilegt við það. 1408 var nú reyndar undantekningin sem sannaði þá reglu. Hún var hvorki slæm né hræddi úr mér líftóruna. Ágætlega leikin (enda góðir leikarar þarna á ferð), ekkert gífurlega ógnvekjandi en samt ekki svo slæm (bara ponsu kjánaleg).




Little Children (2006)
Sá þessa hérna heima um daginn. Fannst hún mjög góð, gæti meira að segja alveg hugsað mér að sjá hana aftur. Eina sem ég vil kvarta yfir er endirinn, ég skil hann ekki :S


Morgundagurinn stefnir svo í að verða mega huggulegur en þar eru tvær heimsóknir á dagskránni =)

6.12.2007

My secret lover



Private er meira svona fyrir popparana. Hef bara heyrt tvö lög með þeim en ég líka eeeelska þetta lag sem er hér að ofan. Ekki við fyrstu hlustun reyndar en það vinnur mjög vel á. Gleymdi ég að nefna að þetta er dönsk hljómsveit?

4.12.2007

Child's Play charity



Nú nálgast jólin og þá er nauðsynlegt að hugsa til þeirra sem ekki eru jafn heppnir og við að geta notið jólanna skilyrðalaust. Ástæðurnar geta verið margar en hungur, fátækt og stríð eru eflaust þær stærstu. Önnur ástæða getur verið alvarleg veikindi. Það er eflaust ömurlegt að þurfa að eyða jólunum á spítala, ég tala nú ekki um þegar um barn er að ræða. Þess vegna finnst mér Child's Play svo frábært verkefni. Gerum jólin aðeins bærilegri fyrir börnin og sendum þeim eitthvað til að stytta þeim stundir.

Þetta er voða einfalt. Vefsíðan er opnuð og þar er kort með staðsetningu þeirra spítala sem taka þátt í verkefninu. Síðan velur viðkomandi einhvern spítala og klikkar á hann. Þá opnast amazon óskalisti viðkomandi spítala og maður getur valið eitthvað til að kaupa og senda þeim. Síðan fer maður bara í check out, veldur addressu óskalistans (kemur upp sem valmöguleiki þegar velja á delivery address), borgar og staðfestir.


3.12.2007

The Floor Is Made Of Lava



Þessi danska hljómsveit er með frábært sound, tékk it át! Á myspace síðunni þeirra má finna lagið "Do your sister" sem er nokkuð gott og svo mæli ég með að þið tékkið á lagi með þeim sem heitir "5-vice". Það og restina af plötunni þeirra (gáfu út fyrstu plötuna sína núna í ár) getið þið hlustað á á heimasíðunni þeirra.

2.12.2007

*HNERR*



Í dag hef ég nánast ekki gert annað en að hnerra. Afleiðingarnar eru að ég er þreytt í nefinu :S

Síðastliðinn mánudag var ég með dúndrandi hausverk allan daginn og gat ekkert gert. Það gerist svona öðru hvoru og tel ég það vera orsakað af mínum illgjarna hálsi. Um kvöldið hins vegar fór mér að líða undarlega í hálsinum, nánar tiltekið eins og ég hefði étið hálfan ullarvettling. Því miður hélt sú tilfinning áfram að versna á þriðjudeginum og undir kvöld var ekki bara eins og ég hefði étið heilt par af þeim heldur var mér líka illt í lungunum og hausnum og maganum og. Já. Þar byrjaði fjörið.

Á föstudagskvöldið ætlaði ég á julefroskost hjá nemendafélaginu. Á laugardeginum var ég búin að plana að mæta á julefroskost hjá FNU. Ég sleppti báðum vegna veikinda og nú er ég bitur.

Pirruð á að vera heima líka. Og pirruð á að hnerra og sjúga upp í nefið.

En svona á jákvæðu nótunum þá er ég í svo miklu jólaskapi að ég ræð varla við mig! =D Síðustu ár hef ég varla farið í jólaskap nema þá kannski svona rétt í kringum aðfangadag. Nú hef ég verið að laumulega raula jólalög í meira en tvær vikur! Búin að kaupa jólagjafir fyrir fjölskylduna og get EKKI BEÐIÐ eftir að fara til Íslands og halda jól með fjölskyldunni! Ef ég ætti jólaskraut þá myndi ég skreyta....

Er annars núna að hlusta á mixdisk með japanskri tónlist sem hin yndislega Miho setti saman fyrir mig... Spes tónlist.

1.12.2007

Kvikmyndir frá 2006

Fyrir rúmu hálfu ári síðan sá ég á stuttum tíma slatta af bíómyndum. Flestar þessara bíómynda voru frá 2006. Planið var að skrifa um þær og segja ykkur mitt álit á þeim. Ég byrjaði á að finna myndir sem tengdust kvikmyndunum til að nota í færsluna og setti þær í möppu. Síðan, tja... síðan ekkert. Ég kom því aldrei í verk að skrifa þessa blessuðu færslu og var bara að finna möppuna með myndunum aftur núna. Man ekki lengur nógu vel eftir kvikmyndunum til að geta skrifað ítarlega um þær en ætla þó að skrifa örfá orð um þær núna.




The Holiday (2006)
Hjartnæm. Bjóst við einhverjum væmnum hrylling en svo reyndist þessi mynd bara vera ágæt. Horfði meira að segja á hana aftur daginn eftir að ég sá hana fyrst. Passar rosa vel að horfa á þessa svona rétt fyrir jól. Feel good mynd.




The Departed (2006)
Fjögur Óskarsverðlaun, mynd ársins og ég veit ekki hvað og hvað. ERUÐ ÞIÐ EKKI AÐ GRÍNAST? Jeddúddamía. Þessi mynd er sko 2,5 klst af leiðindum eða því sem næst. Á meðan þessar blessuðu klukkustundir liðu hægt hægt fannst mér alltaf eins og ég hefði séð þessa mynd áður. Það er eins og þeir hafi tekið búta héðan og þaðan úr hinum ýmsu mafíu og löggu myndum og splæst þeim saman í eina langloku. Matt Damon er líka bara svo leiðinlegur leikari. Tímaeyðsla.




Children of men (2006)
Skemmtileg hugmynd. Mega skemmtileg hugmynd! Ég stóðst ekki mátið að sjá þessa þó ég væri búin að heyra dómana. Hún er hrikalega endasleppt. Byrjar ágætlega en svo er eins og þeir sem gerðu myndina hafi ekkert vitað hvert þeir vildu fara með þessa mynd... og eins og handritshöfundurinn hafi látist í miðju verki. Svekkjandi.




Hard Candy (2005)
Damn, þessi er rosaleg. Í byrjun myndarinnar skilur áhorfandinn ekkert hvað er að gerast. Myndin er gerð með alveg rosalega fáum leikurum og í frekar takmörkuðu umhverfi. Einnig er frekar óþægilegt að horfa á hana, sérstaklega fyrir karlkynið. En hún er góð, svakalega góð. Ég var ekki alveg viss fyrst eftir að ég horfði á hana. En svo gat ég ekki hætt að hugsa um þessa mynd í nokkra daga eftir að ég sá hana og langaði að sjá hana aftur. Þá hlýtur hún að vera góð. Sérstök pæling. Góður leikur. Vel útfært. Ekki fyrir alla en ég mæli með henni fyrir flesta. Ef þú ert viðkvæm sál eða/og með óþroskaðan kvikmyndasmekk, ekki sjá hana.




Jesus Camp (2006)
Mjög áhugaverð heimildarmynd um trúarlegar "sumarbúðir" fyrir börn í Bandaríkjunum. Frekar rosalegt að sjá hverning börnin eru heilaþvegin þannig þau m.a. fara að tala tungum. Ef ég man rétt voru þeim einnig innréttaðar ákveðnar pólitískar skoðanir sem var annað atriði sem gerði þetta ótrúlega óhuggnalegt...




Notes on a scandal (2006)
Góð, vel leikin og allt í lagi áhugaverð. Hins vegar fékk ég ekkert út úr því að horfa á hana ef svo má segja. Held ég hefði ekki misst af neinu ef ég hefði ekki séð hana. Man ekki nákvæmlega afhverju en ég held ég myndi ekki mæla með henni við fólk.




The Illusionist (2006)
Þessi kom skemmtilega á óvart! Hafði ekkert heyrt um hana áður en ég sá hana en það kom á daginn að hún er bara fjandi góð. Skemmtilegt plott, vel leikin, etc. Ekki endilega uppáhalds mynd en það er klárlega þess virði að eyða kvöldstund í að sjá þessa.


Ég vil svo enda á því að segja að ég þoli ekki Will Ferrell. Hann er leiðinlegasti leikari í heimi! Ojjjjbara hvað hann pirrar mig! Horfði á Stranger than fiction áðan og bara gat ekki notið hennar því hann leikur aðalhlutverið :S

30.11.2007

Sheep are fluffy

Ég vil nota tækifærið og benda á að mín ástkæra systir er byrjuð að blogga aftur á:
http://dikta.bloggar.is/

27.11.2007

New York, New York!




Á laugardaginn síðasta pöntuðum ég og vinur minn miða til New York! Já, ég sagði New York! =D
Ég er gríðarlega spennt því enda þótt ég hafi ferðast ansi mikið í gegnum árin með minni ástkæru fjölskyldu (og e-ð án hennar) þá hef ég aldrei komið út fyrir Evrópu.
Við stefnum að því að vera í stóra eplinu að kvöldi 26.janúar og halda heim á leið þann 1.febrúar. Að versla verður aðal markmið ferðarinnar (ég fæ litlu um það ráðið) en vonandi verður nóg skoðað í leiðinni líka. Ennþá er allt óráðið með gistingu en við ætlum að reyna að gerast sófadýr, þeas. sníkja gistingu í gegnum couchsurfing.com -Það ætti líka að verða spennandi... Gista heima hjá ókunnugu fólki í landi geðveika fólksins, víj :P

En já, kæru lesendur, ef svo vill til að þið hafið komið til New York og getið mælt með e-u þá endilega gerið það hér eða sendið mér email! Kaffihús, búðir, veitingastaðir, túristastaðir - hvað er must see? Við vitum ekki rass í bala um NY og þiggjum allar ábendingar með þökkum!
Líka ef svo ótrúlega vill til að þú eigir e-a sæta frænku eða frænda þarna sem ætlar akkúrat í skíðafrí þessa viku og vantar e-n til að passa íbúðina sína.... *blikk blikk*

Og svona smá til skemmtunar:

Best First Dance at a Wedding - Watch more free videos

Stóll



Þá er nýji stólinn minn kominn í hús, hvernig líst ykkur á? ;)

23.11.2007

Hittir í mark...




You're Adventures of Huckleberry Finn!

by Mark Twain

With an affinity for floating down the river, you see things in black
and white. The world is strange and new to you and the more you learn about it, the less
it makes sense. You probably speak with an accent and others have a hard time
understanding you and an even harder time taking you seriously. Nevertheless, your
adventurous spirit is admirable. You really like straw hats.



Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.

Dance!

20.11.2007

Maðurinn



Vá hvað mig langar í þessa bók eftir að hafa lesið um hana! Verst hvað hún er dýr :S

Maðurinn – Leiðsögn í máli og myndum

Einstakt og stórglæsilegt verk um manninn og tilveru hans

Hjá JPV útgáfu er komin út bókin Maðurinn – Leiðsögn í máli og myndum, afar stór og vönduð bók rituð af hópi fræðimanna og sérfræðinga á sviði mannfræði, líffræði, félagsfræði, sálfræði og fjölda annarra fræðigreina er snerta manninn og tilvist hans á einn eða annan hátt. Bókin er samstarfsverkefni Smithsonianstofnunarinnar í Bandaríkjunum og bresku bókaútgáfunnar Dorling Kindersley og er hún afar ríkulega skreytt litljósmyndum, skýringarteikningum og uppdráttum, sannkölluð veisla fyrir augað ekki síður en óþrjótandi fróðleiksnáma. Þau Karl Emil Gunnarsson, Ágúst H. Bjarnason og Anna María Hilmarsdóttir önnuðust íslenska þýðingu verksins undir ritstjórn Sigríðar Harðardóttur.

Maðurinn er einstakt verk í máli og myndum, fullt af fróðleik, snertir á öllu sem viðkemur manninum og eykur skilning okkar á því hver við erum. Aldrei áður hefur verið gefin út bók með jafn víðtækri umfjöllun um tilvist okkar. Hér er farið yfir afar vítt svið, allt frá margslunginni starfsemi líkamans og þroskaskeiðum á lífsferli okkar til hinnar undraverðu hæfni mannshugans. Dregin er fram hin stórkostlega fjölbreytni í menningarháttum mannsins eins og hún birtist í hefðum okkar og helgisiðum, listum og átrúnaði, tungu og tækni.

Í bókinni er jafnframt að finna mikinn fróðleik um þjóðir heims því að yfir 250 mismunandi þjóðum er lýst, frá Saramökum í Súrínam og Merínum á Madagaskar til Sama í Skandinavíu og Katalóna á Spáni; fádæma fjölskrúðugu mannlífi er lýst og gefin mynd af því hvernig fólk býr, vinnur, klæðist og mótar sjálfsmynd sína.


Maðurinn er 506 blaðsíður í stóru broti, afar vegleg bók um manninn og mannkynið, tilveru þess og umhverfi.

http://www.jpv.is/Forsida/Article.aspx?id=3489

19.11.2007

Október og nóvember so far







Klukkan er núna hálf eitt og ég á að vera á leiðinni í skólann. Ég er hins vegar með bakverk, hundþreytt (veit ekki afhverju þó) og e-ð illt í hálsinum þannig ég ætla ekkert að nenna því. Hefði áfanginn sem ég er í (lífeðlisfræði) verið eitthvað spennandi hefði ég ef til vill pínt mig í að fara en hann er það ekki.

Helgin var voða fín. Á föstudagskvöldið hélt ég smá partý í fyrsta skipti í langan tíma. Guðrún blandaði rosa góða cosmpolitans sem við bárum fram í nýju fínu glösunum mínum. Kvöldið endaði svo í SingStar keppni þannig ég hugsa að nágrannar mínir hafi ekkert verið himinlifandi.

Eftir tæplega 6 tíma slitróttan svefn vaknaði ég til að fara að hitta japanskan couchsurfara niðrá Hovedbanegård. Eftir morgunverðarstopp á Robert's Coffee héldum við á myndlistarsýningu í heimahúsi í Österbro. Þar var kona sem ég þekki að sýna verk sín og bjóða upp á jólaglögg og fleira. Ég endaði á að kaupa eftir hana bæði jólakort og STÓL! S.s. ósköp venjulegan tréstól nema hvað hún hefur málað á hann. Þar sem ég er ennþá að sjá eftir að hafa ekki keypt könnu sem mig langaði svo í á listasýningu fyrir rúmum 4 árum síðan þá ákvað ég að vera ekkert að hika við þessi kaup. Hann er voða sætur, set upp mynd af honum þegar ég er búin að fá hann.


Flakkaði svo um bæinn til kl. 17 með japananum þrátt fyrir þynnku og þreytu. Restinni af deginum og kvöldinu eyddi ég svo í rólegheitum með einum af vinum mínum sem var hundlasinn og vantaði félagsskap. Sunnudagurinn var svo frekar dapurlegur, var með hausverk allan daginn þannig ég gerði mest lítið nema taka til og sinna veikindagemlingnum í nokkrar klukkustundir.

Ég hef víst ekkert bloggað síðan ég kom heim frá Lúxemborg enda hefur síðasti mánuðurinn verið frekar brjálaður. Þegar ég kom aftur til Danmerkur tók við hrikaleg törn í skólanum. Í miðri þeirri törn fór ég svo á tékk upp á spítala í e-ð tékk. Í stað þess að vera þar í ca. klst eins og planlagt var þá var ég þar í tvo daga. Þetta var mjög viðburðarrík spítalavist skulum við segja og því miður var hún svo endurtekin tæplega viku síðar.
S.s. á miðvikudegi (24/10) skiluðum við inn stórri skýrslu (sem allur áfanginn gekk út á). Morguninn eftir fór ég upp á spítala og var innlögð í tvo daga. Kom heim á föstudagskvöldi (26/10) og var alla helgina bara að jafna mig eftir hremmingarnar á spítalanum (mamma flaug hingað á föstudeginum til að vera hjá mér og var fram á sunnudag). Fór í skólann á mánudeginum (29/10) til að undirbúa kynninguna á skýrslunni sem var síðan á þriðjudeginum. Eyddi öllu mánudagskvöldinu á slysó. Eyddi öllum þriðjudeginum í skólanum og við lukum kynningunni. Á miðvikudeginum átti ég svo að vera í munnlegu lokaprófi (sem ég hafði s.s. EKKERT haft tíma til að undirbúa mig fyrir) en fór í staðinn aftur á slysó og var innlögð í 3 daga. Að þessu sinni voru það Guðrún Ágústa, Guðný og Josef sem héldu mér félgaskap meðan á þessu veseni stóð og daganna eftir - það er gott að eiga góða að. Var líka svo heppin að kennararnir mínir voru sjúklega yndislegir og buðu mér að taka prófið í vikunni eftir.

Ég hef s.s. ágætis afsökun að þessu sinni fyrir að hafa ekkert bloggað.
Annars er nú margt sem mætti nefna frá þessum mánuði þarna. Til dæmis fór ég á Sigur Rósar kvöld sama dag og ég kom heim frá Lúxemborg. Þar spiluðu SR s.s. fyrst acoustic tónleika, síðan var sýnd heimildarmyndin "Heima" og því næst var langt viðtal og Q&A við SR, umboðsmann þeirra og leikstjóra myndarinnar. Þetta var hreint og beint frábært! Kvikmyndin var æðisleg, tónleikarnir undursamlegir og viðtalið skemmtilegt. Hef sjaldan verið jafn stolt af því að vera Íslendingur :P Annars var líka frekar skemmtilegt að sjá þetta af því að ég þekki þann sem var að taka viðtalið, hann kom einmitt heim til mín í kökuboð 2 dögum seinna með dóttur sinni og hálfbróður hennar :)



Ég smakkaði grænt te í fyrsta skipti núna fyrir 10 dögum síðan þegar vinur minn bauð mér á e-ð fancy tehús. Þetta var allt saman voða flott úr úrvals hráefnum, búið til eftir kúnstarinnar reglum en afgreiðslukonan hafði farið í teskóla í Tokyo. Við tvö vorum hins vegar sammála um að þetta væri eins og að drekka spínat. Með öðrum orðum vorum við ekki sérlega hrifin.



Í byrjun október ákváðum ég og einn af vinum mínum að elda graskerssúpu. Hvorugt okkar hafði nokkra reynslu af því að nota grasker í eldamennsku og þetta var hið mesta basl. Tókst þó vel eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Vil nota tækifærið og vara ykkur við tveimur kvikmyndum. Þær eiga það s.s. sameiginlegt að vera með þeim allra verstu myndum sem ég hef nokkur tímann séð. Sú fyrri kom út núna í ár og heitir Sunshine. Það er hreint og beint ótrúlegt hversu slæm þessi mynd er. Sú seinni er frá 2001 og er grínmynd sem ber heitið Rat Race. Ef þú fílar ógeðslega heimskulegan húmor þá er þetta ef til vill mynd fyrir þig en að mínu mati er hún hreint og beint hræðileg.

Ætla að fara núna og hvíla bakið. Má annars nefna að ég á von á mömmu og pabba hingað næstu helgi og það stefnir í að verða rosa skemmtilegt. Förum að sjá HK keppa í handbolta á móti Köben og svo á julefrokost (með fyrrum vinnufélögum pabba).

18.11.2007

Blogg restart?



Eins og venjulega er hrikalega langt frá síðustu færslu. Þar sem systir mín er farin að blogga aftur þá hins vegar finnst mér ekki annað hægt en að fara að taka mig á í bloggmálum.

Er samt ekki í bloggstuði akkúrat núna. Reyni kannski aftur seinna í dag?

Gamalt flipp

Þessar næstum ársgömlu myndir eru bara svo skemmtilegar...

15.10.2007

Haustfrí í Lúxemborg



Hæ elsku þið

Bloggið mitt er búið að vera ótrúlega leiðinlegt undanfarið. Næstum aldrei bloggað og þá sjaldan að það kemur fyrir er það um þetta leiðinda uppþota-/ungdomshus-mál. Geri mér alveg grein fyrir því að þetta er ekki til fyrirmyndar. Hins vegar er bara svo margt neikvætt búið að gerast síðustu mánuði að ég hef ekki getað hugsað mér að blogga. Mjög margt skemmtilegt líka! En mér finnst ég alltaf þurfa að blogga um allt... eða svona næstum... og þetta neikvæða hefur allt saman verið svona frekar stórtækt og erfitt að sleppa því að minnast á það ef maður ætlaði að blogga yfirhöfuð. Þannig ég bara kom mér aldrei í að blogga. Þá vitið þið það.




Í augnablikinu er ég í haustfríi í Lúxemborg. Veðrið hefur verið ótrúlega yndislegt og það er himneskt að fá svona nokkra daga með fjölskyldunni. Bróðir minn er að vísu fluttur til Íslands og er ekki í haustfríi fyrr en í lok mánaðarins og því ekki með okkur hér. Systir mín er hins vegar hér ásamt Arenu vinkonu sinni (sem átti afmæli í dag - til hamingju!) en þær fara strax á morgunn. Amma er svo hér í mánaðar langri heimsókn.
Við látum fara vel um okkur hérna í nýja húsinu þeirra mömmu og pabba sem er svona næstum ekki íbúðarhæft í augnablikinu! Gifsið á veggjunum á neðri hæðinni er að þorna og byrjað verður að mála húsið núna á miðvikudaginn! Ekki var hægt að kveikja á tölvunni í mesta allan dag því það var verið að leggja rafmagn á staði þar sem slíkt vantaði (ekki gott því ég þurfti eiginlega að læra og tók daginn í dag frá fyrir það).




Þetta er svolítið sérstakt hús. Það var byggt í kringum 1985 eða e-ð svoleiðis en það hefur aldrei neinn búið í því!! Maðurinn sem var að byggja það lést og þeir sem keyptu það vildu ekki selja fyrr en núna. Sumt var óklárað og stíllinn á öllu er mjög 80's. Garðurinn er í algjörri órækt eftir 20 ára vanrækslu. Við búum í herbergjunum á efri hæðinni (sem á þó eftir að mála og svona) en neðri hæðina getum við ekki notað mikið í augnablikinu. Háaloftið er líka stórt og kósí en Benedikta og Arena sofa þar. Þvottahúsið er notað sem eldhús og svo er eldavél út á miðju eldhúsgólfi og borð og stólar í stofunni. That's it.



Líst samt mega vel á húsið. Það er í mjög góðu hverfi og stutt frá öllu. Á neðri hæðinni er eitt svefnherbergi, bílskúr, kyndiherbergi, þvottahús, gangur og svo stórt rými sem er svona samvaxið eldhús, borðstofa og stofa (foreldrar mínir létu brjóta niður vegg sem var þarna á milli). Arinn og alles. Opið út í garð í næstum allar áttir en hann er ágætlega stór. Á efri hæðinni er hjónasvíta með sér baðherbergi, stórt herbergi sem mamma mun nota sem vinnustofu, tvö önnur svefnherbergi og svo baðherbergi. Á háaloftinu er líka baðherbergi (þar er 3ja sturta hússins) og svo verður það notað sem svona sjónvarps- og hugguleita-herbergi.



Anyway, ég ætla að fara að sofa. Set hér nokkrar myndir, eru fleiri inná Flickr síðunni minni. Set alltaf inn myndir þar öðru hvoru þó ég sé ekki að standa mig við bloggið.

Knús og kveðja,
-s

2.9.2007

Bakvið hús



Um kl. 5 í nótt var kveikt í fyrir aftan húsið mitt. Kveikt var í ruslagámunum hjá Netto (sem eru samt læstir inni í e-s konar búri). Þetta varð ágætlega stórt bál og náðu logarnir að minnsta kosti 3 metra hæð. Set að öllum líkindum vídeó af því hérna inn seinna. Ótrúlegt en satt sluppu ruslagámar okkar íbúanna heilir í gegnum þetta og ekki kviknaði í byggingunni heldur... Nýmálaða grindverkið okkar brann þó til kaldra kola ásamt ýmsu öðru. Það hefur ekki munað miklu að kviknað hafi í byggingunni því stór vifta sem er utan á henni þarna er hálf brunnin og hálf bráðnuð... Myndi ekki segja heldur að stiginn sem liggur upp úr kjallaranum okkar sé í nothæfu ástandi núna...



Ah, ég gleymdi að segja afhverju þetta gerðist. Í gær var hálfsárs niðurrifs-afmæli Ungdómshússins. Litlu lúsablesarnir mótmæltu allan daginn (getið séð sýnishorn af því hér fyrir neðan) og svo fór allt til helvítis skömmu eftir miðnætti. Sem fyrr fengu fyrirtæki og verslanir í götunni að finna fyrir því, Irma city var rústað og mér skilst að 7/11, Danske Bank, McDonalds, Kvickly og fleiri hafi ekki sloppið vel heldur. Eldhöf, ofbeldi gagnvart lögreglumönnum, skemmdarverk, brunnir lögreglubílar, etc.



Getið séð áhugaverð vídeó af þessu á http://ekstrabladet.tv/
og myndir á http://politiken.dk/ (fotoserie).

17.8.2007

i'm a banana

Bloggleysi eins og venjulega. Buid ad vera super mikid ad gera. Uff, hef ekki skrifad færslu sidan 10.juli. Well, sidan tha hef eg haft slatta af gestum, skroppid til Sudur-Sjalands eins og thid saud a myndunum, skroppid til Alaborgar, unnid, hostad og hitt sofadyr, bølvad danska rikinu og thessum nyja einkunnaskala i sand og øsku og nu er eg aftur i Alaborg (ad heimsækja Boggu frænku). Thad er svona thad helsta, skrifa betur um thad seinna kannski en vildi adallega lata vita ad eg væri a lifi :) Verdur mega mikid ad gera næstu vikurnar thannig eg ætla ekkert ad lofa bot og betrun i bloggskrifum nuna :P

29.7.2007

Alltaf fjör á Nörrebrogade...

Írak vann The Asian Cup seinnipartinn í dag og fagnaðarlætin voru mikil í Kaupmannahöfn. Greinilega slatti af Írökum sem búa hérna í hverfinu...



10.7.2007

Í rigningu ég syng....



Jæja, best að takast á við bloggletina!

Áfram um Spánarferðina: Eftir þrjá kvalafulla daga á sýklalyfjum hófst ferðin loks fyrir alvöru. (Fékk btw að vita seinna að þetta hafi verið alltof sterk sýklalyf og ekki þau sem á að gefa). Á laugardeginum (23.júní) héldum við Xibei til Girona til að hitta vini mína sem ég hef ekki séð árum saman. Sebastian tók á móti okkur á rútustöðinni, ég þekkti hann varla aftur enda ekki séð hann í 8 ár! Hann er samt ennþá jafn ótrúlega yndislegur! Hann fór með okkur í smá skoðunarferð um Girona. Fórum meðal annars að Girona ljóninu, sagan segir að ef maður kyssir rassinn á því muni maður einhver tímann snúa aftur til Girona. Á leiðinni keyptum við ís sem var alveg mega góður... ég er á því að Spánverjar séu meistarar í að gera ís!



Fórum síðan til að hitta Oriel systur hans (sem ég hef ekki heldur séð síðan 1999) og við fjögur héldum af stað út í þjóðgarðinn sem liggur nálægt borginni. Þar á mamma þeirra hús með auka íbúðum sem eru leigðar út til ferðamanna. Það er nú aðeins styttra síðan ég hitti hana en hún kom í heimsókn til Íslands fyrir nokkrum árum. Þau bjuggu til fyrir okkur sjúúúúklega gott gazpacho (köld tómat/grænmetissúpa) og salat. Xibei fékk reyndar að hjálpa til við matargerðina en mitt verkefni var að borða kirsuber... mmmm :)
Eftir það fórum við Xibei og Sebastian í sjúklega flottu sundlaugina sem þau eru með.... Tókum smá göngutúr um þjóðgarðinn... Átum ótrúlega góðan jarðaberja sorbet ís sem Sebastian bjó til.. Fórum tilbaka til Girona.... Fórum á e-ð festival og hlustuðum á flamenco rumba.... Eftir það tókum við Xibei rútuna tilbaka til Lloret.... gjörsamalega uppgefnar en mega ánægðar með daginn :)
Tókum svo einn hótel-sundlaugar-leti-sunnudag. Mánudeginum eyddum við í Barcelona.... mest megnis í túrista-útsýnis-strætóum en hittum svo Oriel um kvöldið. Hún sýndi okkur meðal annars BarcelonaReykjavik, íslenska bakaríið í Barcelona. Síðasta daginn ætluðum við loksins að fara á ströndina... en veðrið bara var ekki nógu gott... þannig við tókum bara letidag/pakka-niður-dag.... Þegar við héldum frá Spáni aðfaranótt 27.júní voru himnarnir að hrynja...



Það hefur ringt í Kaupmannahöfn nánast alveg síðan ég kom tilbaka. Hef samt haft það mega gott. Var með gesti hérna fyrir Hróarskeldu, fyrst Gunnar Anton og vin hans og síðan systur mína og Agga. Þau voru hér eina nótt áður en þau héldu á Hróarskeldu (það kvöld fórum við á Modest Mouse tónleika á Vega sem voru frábærir). Þau héldu út tvær nætur í drullunni, eða s.s. fram til fimmudagsins þegar hátíðin byrjaði, en þá flúðu þau tilbaka til mín. Þannig þau eru hér á næturna en hafa farið alla daga til Roskilde til að sjá e-ð af tónleikunum. Ég er svo glöð að hafa ekki keypt mér miða....
Ég eyddi helginni á Suður-Sjálandi og á Mön. Það var bara mega notalegt og þar var bara fínasta veður!

Bah, æj... nenni ekki meira bloggi í bili. Laters!

21.6.2007

So far.... different from what expected

Er a Spani. Ferdin gekk mega vel, komumst til Lloret an teljandi erfidleika. Reyndar var reynt ad raena mig i lestinni a leidinni fra flugvellinum en eg stod beljuna ad verki og kom i veg fyrir ad hun naedi e-u.
Erum mega mega anaegdar med hotelid, thad er rosa fint og barasta vel stadsett finnst okkur. Serstaklega midad vid hvad vid borgudum fyrir thad....

Daginn eftir ad eg kom hingad, s.s. i gaer, for eg til laeknis. Nanast allir sem eg umgekkst a medan eg var i Luxemborg fengu streptokokkasykingu i halsinn a medan eda eftir ad eg var thar.... og a manudaginn var eg ordin aum i halsinsum :S Gat ekki farid til laeknis i Koben a manudaginn. So, kemur i ljos.... ad eg hef nad mer i streptokokkasykingu lika. Aedi. Syklalyf, ogedsleg bolgueydandi lyf i vokvaformi... OG BANNDAD AD VERA I SOL! A solarstrond! WTF? Hvad gerir madur tha? Hef s.s. ekki enn komist a strond eda sundlaug... thad verdur ad bida til laugardags.... eda kannski sunnudags thvi ad a laugardag forum vid til Girona ad hitta gamla vini... Solbrunkan verdur lika ad bida :(

Ekki baetir ur skak ad i gaer var eg slopp vegna lyfjana og i dag... thegar vid vorum i verslunarmidstod i Barcelona (ad fordast sol - lyfin valda thvi ad eg fae utbrot ef eg verd i sol) gekk eg i gegnum magakrampahelviti. Var i svona klst ad engjast um og velta thvi fyrir mer hvort ég aetti ad aela a golfid eda leggjast a thad og grenja.... thetta var svo hrikalega sart :/ Thad tharf btw frekar mikid mikid til ad eg ihugi thad ad grenja af sarsauka.
Sjaldan lent svona illa i lyfjum adur... bara einu sinni.... eda kannski tvisvar.

So so, enntha allt eftir... Lobbudum reyndar i gaer (eftir kl 18 thegar ekki var svo sterk sol) nidur a strond og yfir i midbae Lloret. Vid erum nefnilega i rolega partinum sem er adeins utur. Komumst ad thvi ad okkar strond er betri en adalstrondin og ad vig erum ROSALEGA fegnar ad vera a thvi hoteli sem vid erum. Midbaer Lloret er thvileikt havaer, skitugur, fullur af drukknum ungum bretum og bara ospennandi yfir hofud. So so, ja.. og i dag var thjadst og verslad. Keypti mer stutt svart pils! Moi! Truidi thessu? Efast thad.
Ekki svo margt annad... enda veik... ju, eiturgraenan augnskugga (efast um ad thid truid thessu heldur), spaenskt simkort, naerfot... held thad se allt? Ju, og ad sjalfsogdu nokkur postkort, thvi aettu allir vel ad trua :P

En ja, haetta thessu kjaftaedi og fara og ga hvort Cecilia vann i billiard eda ekki... Ciao

17.6.2007

17.júní













Kl. 7:30 í morgun hringdi dyrabjallan en þar var Cecilia (Xibei) komin :)
Lögðum okkur til kl. 10 þar sem hún hafði lítinn sem engan svefn fengið... Uppúr hádegi var stefnan tekin á Tívolí þar sem byrjað var á því að svolgra niður fransk hot dog og kóki. Eftir það var farið beint í Dæmonen, stóra rússíbanann. Ekki svo sniðugt, okkur var báðum illt í maganum í margar klukkustundir á eftir.
Eftir fleiri tæki, fjör og notalegheit í ágætis veðri fórum við í Build a bear... og þá byrjaði að rigna! Og svo kom þrumuveður! En þá vorum við komnar í skjól á kaffihúsi Metropol bíósins (sem ég tilnefni hér með besta bíó Kaupmannahafnar). Sáum Becoming Jane sem mér fannst barasta vera ágætismynd. KFC og svo haldið heim. Læt fylgja með nokkrar myndir :)