Hverfið mitt er líka svo sætt. Gatan sem ég labba til að fara út í búð er æðisleg. Hún er svo sæt, svo margt að horfa á. Sumum finnst þetta kannski ekkert merkileg gata eða finnst hún etv ljót en mér finnst hún sæt. Rosalega sætur húsagarður í miðri götunni, hrikalega brattar trétröppur sem liggja niður að svona... kjallaradyrum... útflúrað/útskorið/e-ð í kringum margar hurðir þarna... frekar gömul ofboðslega sjarmerandi hús. Um daginn sá ég líka eitt í þessari götu sem mér fannst ofboðslega sætt... e-ð sem margir myndu líklega kalla skemmdarverk eða "veggjakrot" eða subbuskap. En það var s.s. búið að mála setningu á gangstéttina á einum stað. Setningin snýr að húsinu við gangstéttina og er s.s. beint á móti innganginum á þessu tiltekna húsi, beint þar sem tröppurnar enda. Þannig þegar e-r kemur út úr þessu húsi þá getur þessi setning, skrifuð með stórum hvítum stöfum, ekki farið framhjá henni... blasir beint við. En þarna s.s. stendur "I FUCKING LOVE YOU". Er það bara mér sem finnst þetta sætt? Okay okay, þetta er heldur langt gengið... en það að e-r hættir á það að vera handtekin fyrir á mála á gangstétt til þess að koma því til skila til manneskju (sem kannski neitar að tala við hann/hana) að viðkomandi elski hina manneskjuna... mér finnst það sætt. Þið dæmið sjálf hvað ykkur finnst...Anyhow... ég hef ekki svo mikið að segja :) Var að tæma síðasta kassann áðan.. s.s. af kössunum sem ég lét senda hingað frá Íslandi, allar mínar eigur nánast. Þessi var fullur af smádrasli, uppskriftum og e-u fleiru. Hef virkilega ekki nennt að tæma hann hingað til, vissi ekkert hvar ég átti að setja þetta drasl. En þar sem mér tókst að troða kössunum upp á vin minn sem er að fara að flytja líka og hann er að koma að sækja þá á þriðjudaginn þá neyddist ég til að tæma þann síðasta. Þannig eftir þriðudaginn.. verða kassarnir farnir út.. og herbergið mitt verður enn fínna! Nenni samt ekki að taka fleiri myndir! Tók betri myndir af því núna um daginn þegar Gúndi kom í heimsókn (með fínu myndavélina sína). Mér finnst hálf skrítið að vera e-ð að setja þær myndir hér inn á síðuna... þannig bara... þið sem hafið áhuga á því að sjá þær.. sendið mér e-mail eða potið í mig á msn.. skal senda ykkur þær í e-maili :)
Á morgunn ætla ég að þvo þvott... í annað skipti síðan ég kom hérna.. jibbí jeij... vona að það gangi jafn slysalaust og í fyrra skiptið! Líkar ekkert allt of vel við þessa blessuðu þeytivindu... en maður þarf held ég að setja þvottinn í hana áður en maður setur hann í þurrkarann.. bölvað vesen sko. En maður þarf víst að passa sig að gera það rétt... annars tætir hún fötin manns :S Finnst heldur ekkert gaman að fara með þvottinn upp og niður ekkert-of-skemmtilegan stiga tvær hæðir... ekki sniðugt þegar jafn klaufsk manneskja og ég er á ferð :D Passa mig á að taka símann alltaf með mér þegar ég fer þarna niður... ef mér skildi nú takast að slasa mig eða e-ð :DJæja... ég ætla að fara að koma mér að sofa bráðlega... er búin að vera að fara allt of seint í rúmið og seint á lappir undanfarið. Á... fimmtudaginn (held ég) skrapp ég niðrí bæ í bókabúð og ákvað þar.. að kaupa mér eitt stk bók. Bókin sem mig (mér? ég er vonlaus í málfræði) langaði mest í ("Veronika Decides to Die") virtist ekki vera til þarna þannig ég endaði á að kaupa "Darkly Dreaming Dexter". Ég byrjaði þó ekki strax á henni þar sem ég var að lesa "By the Pricking of My Thumbs" eftir Agöthu Christie. Á föstudagskvöldið... upp úr miðnætti.. kláraði ég svo þá bók... og byrjaði á Dexter. Á laugardagskvöldið... var ég komin svo langt í Dexter að ég ákvað að reyna að klára hana.. gafst upp kl. 3 en kláraði hana svo þegar ég vaknaði.
Það eru svona.. kjánalegheit sem eru að valda því að ég er að fara seint að sofa... ekki það að ég sé að hanga út á næsta bar öll kvöld eða e-ð :) I wish... Mér hálf leiðist þessa daganna.. vantar fólk til að hitta. Hef ekki haft tíma/tækifæri til að vera kynnast fólki hérna síðan ég flutti út, allt verið í of miklu rugli. Þannig núna er ég voða mikið ein og fá tækifæri gefast til að kynnast fólki. Enginn skóli síðan 15.okt... og verður enginn skóli fyrr en 14.nóv... og það eru engin partý því allir á brautinni eru að læra fyrir próf. Þannig ég verð víst bara að sætta mig við það. Ég kann ekki sniðugar leiðir til að kynnast nýju fólki, ég er feimin... þannig ég læt mér bara leiðast smá. Í bili. Í næstu viku (5.-10. nóv) er það Íslandsheimsókn og þegar ég kem til baka er stutt í að skólinn byrji aftur :)
En þarna.. eitt enn: http://www.peta2.com/takecharge/swf/dogcatfur.swf (VARÚÐ ÓGEÐSLEGT!) :/ Finnst bara að fólk eigi samt að vita hvernig er verið að fara með dýr og HUGSI SIG TVISVAR UM áður en það kaupir loðfeldi eða skinnhanska eða skó eða whatever. Oh, fólk er fífl! Fífl, fávitar, hálfvitar, kúkalabbar, ógeð... ! Stundum skammast ég mín virkilega mikið fyrir að vera manneskja, t.d. við það að horfa á þetta myndband. Við ættum að skammast okkar fyrir að láta þetta viðgangast.
Jæja, hætta þessu áður en ég held mikið áfram á þessum neikvæðu nótum... :) Vona að þið hafið það öll sem best og svo framvegis...
P.S. Ég lýsi hér með eftir Le Tigre disknum mínum. Hann er horfinn :/ Var reyndar horfinn áður en ég flutti út. Þannig hann er að öllum líkindum á Íslandi. Ég er með hulstrið en diskinn vantar :/ Diskurinn er vibbalega bleikur að lit (já mér finnst bleikur ekki fallegur litur) með grænum stöfum þar sem stendur Le Tigre. Ég lánaði hann held ég síðast til Sillu (í vor?) en ég held samt að hann hafi alveg verið í hulstrinu þegar ég fékk hann til baka (ég athuga það yfirleitt). Þannig... líklega er hann heima (týndur og tröllum gefinn?)... en ef e-r er með hann.. láta mig vita :)
P.S. Ég lýsi hér með eftir Le Tigre disknum mínum. Hann er horfinn :/ Var reyndar horfinn áður en ég flutti út. Þannig hann er að öllum líkindum á Íslandi. Ég er með hulstrið en diskinn vantar :/ Diskurinn er vibbalega bleikur að lit (já mér finnst bleikur ekki fallegur litur) með grænum stöfum þar sem stendur Le Tigre. Ég lánaði hann held ég síðast til Sillu (í vor?) en ég held samt að hann hafi alveg verið í hulstrinu þegar ég fékk hann til baka (ég athuga það yfirleitt). Þannig... líklega er hann heima (týndur og tröllum gefinn?)... en ef e-r er með hann.. láta mig vita :)












