Allavega, eins og ég nefndi í síðasta pósti þá var ég s.s. á tónleikum í gærkvöldi. Þeir voru haldnir á stað sem nefnist Loppen og er staðsettur í útjaðri Kristjaníu. Þetta er rosalega kósí staður sem rúmar 450 manns, skemmtilegur tónleikastaður finnst mér. Helsti gallinn er að það verður hrikalega heitt þarna inni og bjórinn þarna smakkast uuundarlega (virðist ekki skipta máli hvort maður kaupir kranabjór eða í gleri). Eftir að hafa smakkað hann ákvað ég að drekka bara vatn frekar.
Þeir sem voru að spila voru Stephen Malkmus and the Jicks (fyrir þá sem ekki vita þá var Stephen Malkmus áður söngvarinn, lagasmiðurinn og gítarleikarinn í Pavement). Eins og við var að búast voru tónleikarnir mjög skemmtilegir en ég verð þó að játa að ég þekkti ekki nema svona þrjú lög, þ.e.a.s. bara þau sem eru af fyrstu plötunni enda hef ég ekki heyrt hinar tvær. Upphitunarbandið, The Cribs, kom svo mjööög skemmtilega á óvart. Það band samanstendur af þremur breskum bræðrum og hefur verið starfandi í tvö ár. Mæli með að þið tékkið á þeim, vona allavega að þeir séu jafn góðir í stúdíói og þeir eru live.
Fyrr um daginn var ég niðrí miðbæ Lynby. Fór þangað til þess að fara á pósthúsið að sækja peysu sem ég var að panta af TshirtHell.com . Ég veit að flestir bolirnir sem eru seldir á þessari síðu eru frekar brútal en ég var ekki að kaupa mér neinn af þeim, vil ekki vera að ganga í e-u sem ég gæti verið lamin fyrir að ganga í :P
Þar sem ég nennti ekki að fara heim strax ákvað ég að kíkja aðeins í Lyngby Storcenter. Síðan ég kom hingað hef ég ekkert farið þangað nema til að kaupa í matinn, kaupa e-ð dót fyrir rus-túrinn (tuskur, vasaljós, handklæði og svoleiðis drasl) og kaupa lestarkort. Núna hins vegar endaði ég á að kaupa mér tvær peysur, aðra stóðst ég ekki því hún var svo mjúúúk og hlý.... og hina því hún var svo APPELSÍNUGUL! :D Ég veit ekki alveg hvað málið er með mig og appelsínugular peysur sko :/ Núna á ég fjórar... eða eiginlega fimm (ein er 50/50 grá og appelsínugul). Ég er bara svo hrikalega skotin í þessum lit... :P Mamma er held ég ofboðslega fegin samt að það sé e-ð komið í staðinn fyrir dökkbláan, í mörg ár var nánast allt í fataskápnum mínum dökkblátt... :PÉg er búin að vera rosalega dugleg síðustu 4 mánuðina (allavega) að vera ekki að panta neitt af geisladiskum eða dvd á netinu. Til þess þarf mikla sjálfstjórn af minni hálfu enda er ég hálfgerður amazon fíkill :P Þó ég hafi staðist freistinguna að panta e-ð þá hefur óskalistinn minn á síðunni lengst óstjórnlega á þessum tíma.. Held þar séu nálægt 200 hlutir núna... (bækur, cd, dvd, tölvuleikir og spil) og svona 50 til viðbótar í innkaupakörfunni (set stundum óvart þangað...)... En ég held áfram að vera þæg... allavega svona á meðan ég hef engað stað til þess að setja það sem ég myndi panta :P Svo þarf ég líka að vera dugleg að spara svona fyrst ég flutt út og farin að þurfa að borga allt sjálf...

En ég hef reyndar leyft mér eitt í staðinn... þ.e. að panta mér örfáar flíkur... Keypti þarna peysuna af t-shirthell og svo er ég að bíða eftir bol sem ég pantaði af questionablecontent.net (QC er uppáhalds myndasagan mín). Svo er ég að pæla í að panta einn bol í viðbót en á honum stendur að framan: "I solemnly swear that I am up to no good" og að aftan "Mischief Managed". Þetta ætti að hljóma kunnuglegta fyrir mörg ykkar... (jáh, ég er soldið nörd, ég veit). Svo stalst ég líka til að kaupa mér bol á tónleikunum í gær.. :P
Í dag er þjóðhátíðardagur kínverja. Í næsta herbergi við okkur býr kínverskt par og verða þau með partý hér í eldhúsinu fyrir alla kínversku vini sína af þessu tilefni. Ég er því farin að efast um að við getum eldað okkur mat í kvöld... Eldhúsið var þegar undirlagt fyrir undirbúning núna uppúr hádegi og þegar vinir þeirra koma... þá verður ekki hægt að komast þangað inn... Sem er frekar fúlt því að við náðum ekki að elda í gær heldur. Það var reyndar af því að sumir ákváðu að leggja sig og það var frekar erfitt að vekja suma þannig að við vorum frekar sein og höfðum ekki tíma til að elda... enduðum á því að borða e-n ógeðismat á McDonalds á hlaupum á leið á tónleikana :S ojbara!Jæja, ég er að pæla í að reyna að fara að læra e-ð. Btw þá er veðrið hérna í dag ömurlegt, rok og rigning :S
...og jáh, verið dugleg að kommenta þarna :P




8 ummæli:
Eyrnatappar eru ódýr vörn.....
Veðrið hérna er lítið skárra.
Erum komin med myndir af húsinu með garðinum í Berlín.
ERum að vinna í að komast yfir það...
Kær kv.
Ma og Pa
Var hjá ömmu og afa í Hafnarf., Þau voru þvílíkt spræk og hress á leið í Bolvíkingakaffi, mamma leit betur út en fyrir tíu árum síðan....Pabbi hressari en ég hef séð hann lengi.
Heimsækjum hin á eftir...
Ma
Xibei: ég hafði ekki getað heimsótt þennan síða í 2 vikur, einfaldlega vegna þess að ég man ekki netfangið, en svo var vinkona mín að blogga og ég man allt í einu hvað websitið var og kíkkti, þá ertu, Salóme barasta búin að fylla hana, og það á eftir að taka mig heila sólarhring til að geta klárað að skoða hana allan. úff.... : ). en Salóme, MÁ ég spurja þig, hvað MEINARÐU að setja mynd með þér og e-r Kall drukkin, hmmm.. og standur að hún sé fyrir mig, hmmm...hmm..hmm??? ef þú ert að reyna að koma e-u fram, viltu GGJJöru svo vel að segja það skýrt og klárt... ... ...
en svo vil ég koma því fram einnig að ég sakna þíns. tár...tár...tár,
knús frá mér til þín í lokin
WAHHHHHHHHHHHHH
Ma&Pa: Frábært að heyra að amma og afi séu svona hress :) Heimta að fá að sjá myndir af þessu húsi þarna!
Xibei: Haha :D Þér er nær að kíkja ekkert hérna inn á síðuna svona lengi :P Verður að setja síðuna mína í bookmarks hjá þér! :)
Með myndina... þá varst þú að kvarta yfir að það væru engar myndir af mér úr Rus-túrnum, bara af öðru fólki.. þannig að ég fann bara eina mynd af mér þaðan.. þessi mynd er tekin síðasta kvöldið þar :) Og þetta er enginn KALL! Þetta er bara hann Rasmus, mjög svo indæll strákur úr eldri árgangnum :)
Og ég sakna þín líka krútt, verður gaman að hitta þig aftur.. hvenær sem það verður :) *knús á móti*
Ég elska að vera með suð í eyrunum eftir góða og fullnægjandi tónleika. Ég nota samt oft eyrnatappa þegar ég fer á tónleika (fíla samt ekki að vera með eyrnatappa þegar ég spila sjálfur).
Ég fékk líka amazon fíknina fyrir stuttu. En í seinustu viku fékk ég ebay fíkn og eyddi fullt af pening.
Tíjh! Amazon-fíkill í afvötnun :D
En oh, mig langar að kunna að setja inn myndir :( Ég hef reynt það nokkrum sinnum, en bara tekst það ekki... share your secrets?
Og já, til hamingju (vonandi) með íbúðina!! ^.^ ég er alveg obboslega ánægð fyrir þina hönd, mamma var að segja mér það fyrir 5 mín :)
Benedikta: Hehe, takk fyrir það.. vona bara að ég fái herbergið/íbúðina.. kemst væntanlega að því í vikulok :)
Ekkert mál að setja inn myndir.. skal segja þér hvernig.. ef þú segir mér afhverju þú ert aldrei inná msn. Ekki ertu með þína eigin systur á block?? :o
Orri: Hvað varstu að kaupa á ebay?
æi bara eitthvað tónlistardrasl held ég. ógeðslega leiðinlegar og artí plötur með einhverjum indí hljómsveitum sem eru svo fáránlega underground að enginn hefur einusinni heyrt um þær áður. halló? leiðinlegt!!
annars las ég þetta um upphitunarbandið sem 'samanstendur af þremur breskum mæðrum' og sá fyrir mér eitthvað rosalegt konsept-band með lög um ok barnanna, stöðu móðurinnar í hinu nýja bretlandi og krakka að taka tennur. varð svo eiginlega fyrir smá vonbrigðum með bræðurna.
Skrifa ummæli