18.4.2006

Luxembourg

Ég hata blogger.com
Á miðvikudagskvöldinu síðasta skrifaði ég færsluna sem birtist hér að neðan. Hins vegar hef ég ekki getað sett hana inn fyrr en núna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Drasl síða. Er eiginlega kominn tími á að blogga aftur, margt búið að gerast en ég vil bara ekki setja inn tvær færslur í einu þannig hin kemur seinna. Annars má nefna að ég er orðin tvítug, takk fyrir afmæliskveðjurnar þið sem þær sendu :)

**********************************************

Í herberginu sem ég er í núna er ekkert nema tvær dýnur, sængur, koddar og svo þessi tölva. Það er ekki þægilegt að sitja bara á dýnu, með lyklaborðið á hnjánum og skrifa blogg, ég er gjörsamlega dofin í fótunum. Því mun þessi bloggfærlsla verða skrifuð í flýti...

Ég er s.s. stödd í húsinu sem mun verða heimili foreldra minna og bróður míns næsta árið og hugsanlega lengur. Þetta er voða huggulegt hús, það stendur við rólega, sæta götu og er með fallegan garð. Á þessari hæð (þeirri efstu fyrir utan háaloftið) eru 4 svefnherbergi og eitt stórt baðherbergi. Þau eru öll nánast tóm þar sem húsgögnin þeirra verða ekki flutt hingað fyrr en í sumar þegar mamma og Gísli flytja hingað. Ef gengið er niður hinn ofursnobblega marmarastiga sem liggur niður á næstu hæð þá er þar stórt hol/gangur, lítið baðherbergi, ágætlega stórt eldhús og stór stofa/borðstofa með arni. Þaðan er svo líka hægt að ganga út á verönd/garð. Í kjallaranum er svo enn eitt svefnherbergið, stórt þvottahús og stór bílskúr.

En jáh, ég ætla að renna smá yfir atburði helgarinnar og síðustu daga :) Þar sem ég verð í burtu frá Danaveldi í 3 vikur ákvað ég að reyna að hitta alla mína bestu vini þar fyrir brottför. Hef ekki séð svo mikið af þeim undanfarið þar sem þrjú þeirra eru molbio-fólk (molecular biomedicine) og eru búin að vera á fullu í próflestri (lokapróf í prótínefnafræði á föstudaginn síðasta) og breski vinur minn var erlendis.

Á föstudaginn fór ég s.s. að hitta þann breska og fullt af öðru fólki á e-m bar. Þegar ég kom þarna voru bara hann og danski vinur/meðleigjandi/meðeigandi (á fyrirtæki) hans komnir. Síðan kom sænsk vinkona bretans, æskuvinur danans, íslenskt par sem eru víst vinir sænsku stelpunnar og svo dönsk stelpa sem er framtíðar meðleigjandi bretans og danans :P S.s. jáh, bjórdrykkja og spjall á bar, bjórdrykkja og spjall heima hjá bretanum og dananum og svo bjórdrykkja og dans á öðrum bar/klúbb. Rölti heim e-r tímann rétt fyrir kl. 4.

Á laugardaginn fór ég svo með dönskum vini mínum á listasafn. Skoðuðum Highlights sýninguna (svona best of af því sem er búið að vera að gerast í myndlist síðustu 700 árin). Það var voða kózí og gaman. Síðan ætluðum við að fara út að borða en mér tókst að stíga í poll og var því ákveðið að kaupa frekar pizzu og taka með heim (til að komast sem fyrst í þurra sokka).
Sunnudagurinn fór að mestu í að taka til og pakka niður en um kvöldið kom annar vinur minn og varð úr hið besta hangs-/spjallkvöld.
Á hádegi á mánudeginum kom svo vinkona mín og dró mig niður í bæ. Eyddum 5 klst-um í ilmvatns-þefun, "versl", nachos-át, spjall og rölt. Hélt síðan heim og beið eftir mömmu og systkinum mínum. Við áttum skemmtilegt kvöld og svo snemma á þriðjudagsmorgninum héldum við til Lúxemborgar :)


Pabbi kom og sótti okkur á flugvöllinn og sýndi okkur nýja húsið en þurfti svo að fara aftur í vinnuna. Þar sem ekkert okkar svaf neitt sérlega vel þarna nóttina áður tókum við því bara rólega "heima" um daginn. Seinnipartinn fórum við svo í smá skoðunarferð og út að borða á mjög svo skemmtilegan stað. Góður matur og skemmtilegt umhverfi. Borðið okkar var holt að innan og í gegnum borðplötuna (gler) sá maður líkneski af geimveru (soldið ET-leg) sem var lýst upp með bláu ljósi. Mjög sérstakt... eins og allt þarna inni.... Seinna um kvöldið fórum við systkinin svo að sjá Ice Age 2 í frááábæru bíói. Ódýrara en á Íslandi og í DK, mergjað stór salur og skjár og mega góð sæti.

Arg, vont að sitja hérna... :/

Uhm.. jáh.. svo í dag var pabbi aftur að vinna en við hin fórum niðrí bæ að skoða og búðar-rápa. Um kl. 5 sótti pabbi okkur og við fórum að versla inn hluti sem bráðvantaði hérna eins og t.d. handklæði og sæng. Þar sem við fundum ekki sæng í búðinni sem við fórum í hér ákváðum við bara að skreppa yfir til Belgíu til að fara í IKEA. Tekur enga stund að keyra þangað. Stefnum á að kíkja líka til Þýskalands og Frakklands í vikunni... allt á nýja fína bílnum hennar mömmu :D

En en jáh.. ég bara geeet ekki setið hér mikið lengur... fæturnir mínir eru ekki sáttir...
Samt eitt.. ég er komin með Lúxemborgískt (errr... eða hvað maður segir) gsm-númer. Ég er því núna með gsm númer í 3 löndum... hversu leet er það? hehe :)

Ætla að skrifa seinna um Lúxemborg, tungumálið, snobbið og so on... en núna er ég að pæla í að joina fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið eða e-ð...

Au revoir!

4.4.2006

Sex on the beach




Beint fyrir utan gluggann minn er tré. Á föstudaginn tók ég eftir því að í þessu tré er hreiður. Það er í svona 4-5 metra fjarlægð frá umtöluðum glugga. Finnst yndislegt að hafa það þarna, sýnir að vorið er að koma :) Stend oft út við gluggann og fylgist með fuglinum, ótrúleg þolinmæði í þessum dýrum að liggja á eggjunum svona lengi. (Þetta er bara næstum eins og að hafa gæludýr!).

Helgin er búin að vera áhugaverð með meiru (í þetta sinn tel ég mánudaginn með helginni) :) Föstudagurinn var bara rólegur, vinur minn kom hérna seinnipartinn og var til miðnættis. Það var voða kósí; horfðum á bíómyndir og teiknimyndir, átum kebab og nammi og spjölluðum um daginn og veginn. Laugardagurinn var líka voða rólegur en mér til undrunar hringdi Hrafnhildur frænka í mig og sagði mér að hún væri stödd í Köben (ástæðan flugfreyjunámskeið á mánudeginum). Við ætluðum kannski að hittast til að borða saman en ákváðum svo að hittast frekar snemma á sunnudeginum til að fara saman að versla. Plönin breyttust svo aftur eftir miðnætti þegar hún ákvað bara að kíkja hingað og sátum við og spjölluðum e-ð fram á nótt.

*Varúð: Næstu línur fjalla um verslunarleiðangur, þeim sem halda að þeir muni deyja úr leiðindum við lestur slíks texta er bent á að "hoppa" niður að næstu greinaskilum.*
Vöknuðum seint á sunnudagsmorgninum og fórum beint niður í bæ. Komumst að því að það var kalt á Strikinu (gluggaveður!) og flestar búðir lokaðar þannig að við skelltum okkur bara í Fisketorvet. Vorum þarna frá hádegi og til ca. 17 (held ég). Ég keypti mér tvær peysur, jakka, gallabuxur og e-ð fleira og svo gaf Hrafnhildur mér aðrar gallabuxur í afmælisgjöf :) Venjulega haaaaata ég að versla buxur, það er ekkert smá mikið vesen fyrir mig að finna buxur sem passa :/ Við vorum hins vegar svo heppnar að lenda í Only-búðinni og komst ég að því mér til mikillar hamingju að þar er ekkert mál fyrir mig að finna buxur sem passa, jeij.

Héldum niðrá hótel (þar sem Hrafnhildur og allir af námskeiðinu dvöldu) og vorum svo uppgefnar að við enduðum á að leggja okkur í 2 tíma :P Fórum svo út og fengum okkur að borða á Jensen's Bøfhus. Eftir það skunduðum við í bíó á Pink Panther (hræðileg mynd) og enduðum á að fara á Café Norden um kl. 23 og fá okkur swiss mocca og gulrótaköku. Mmmmmm :D Það var samt frekar skondið fyrir þær sakir að þegar við komum inn var aðeins setið á tveimur öðrum borðum og eftir smá stund vorum við einu gestirnir þarna inni :) Venjulega er þessi staður svo troðinn að ekki er hægt að fá borð...


Anyways.. ég ákvað að gista á hótelinu þar sem að Hrafnhildur var hvort sem er ein í tveggja manna herbergi. E-ð varð okkur blaðurskjóðunum lítið um svefn og ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn mikið eins og zombie og þegar við þurfum að fara á fætur kl. 6:30 og ég hafði aðeins sofið í ca. klst. Hrafnhildur og allar hinar "freyjurnar" héldu á öryggisnámskeið upp á flugvelli beint eftir morgunmatinn en ég hélt heim (AÐ SOFA!)

Mánudagskvöldið/aðfaranótt þriðjudags... ég ætlaði að lýsa því.. en ég held þið mynduð ekki trúa mér hvort sem er. Set þetta hérna bara í stuttu máli: Hótel - aperitif. Besti ítalski veitingarstaðurinn í Kaupmannahöfn með ca. 10 rosa skemmtilegum flugfreyjunemum, æðislegum mat, daðrandi þjónum og fullt af víni. Kokteilbar/klúbbur með ca. 15 "freyjum" - dj, kokteilar, dansað þar til klúbburinn lokaði. Hótel - partý. Svefn á hóteli kl. 4:30. "Djamm" (váh, ég hef alltaf hatað þetta orð en finn bara ekkert betra) á mánudagskvöldi = málið ;) Komst að því að e-ð af partýgenunum frá mömmu og pabba hafa ratað í mig þrátt fyrir allt... þau eru bara voða oft í feluleik (þau og alvarleikinn/raunsæið eru ekki vinir) :P Kom heim á hádegi í dag.. bara búin að taka því rólega, ryksuga og svona... jeij.

Hvað ætlaði ég að segja ykkur fleira? Hmm jáh, ég er að fara á útitónleika með Sigur Rós í Lúxemborg í júlí! *hlakk* Er ekkert búin að plana sumarið en er bara að láta það ráðast af því hvenær tónleikar og aðrir viðburðir eru í hvaða landi hvar ég verð. Veit ég verð í DK í byrjun júní því þá fer ég með dönskum vini mínum að "heyra" Carmina Burana í tónleikasalnum í Tívolí. Svo greinilega í Lúx í byrjun Júlí og svo líklega brúðkaup hjá Boggu frænku á Norður-Jótlandi um miðjan júlí.

Jahm og já, tíminn líður svo hratt! Finnst þetta ár bara hafa flogið áfram so far. Það er kominn 4. apríl!!! :o Á morgun eiga þá bæði Gúndi og Kristrún afmæli, allir sem þau þekkja að muna að óska þeim til hamingju :) (Svo er 5.apríl náttla líka dánardagur Kurt Cobain's og Layne Staley's). Síðan er ég að verða gömul eftir 10 daga :S Omgs! :) Tæp vika í brottför til Lúxemborgar þannig ég er ekki viss um frá hvaða landi ég blogga næst dk, lu eða is.

Plata vikunnar er pottþétt: Daft Punk - Discovery


Yfir og út!