31.10.2005

Haaaaaaaalló! :)

Æj, það er æði að búa í borg :) Ég kann betur og betur við það með hverjum deginum! Það er stutt í allt og fjölbreytileikinn er mikill. Ég er meira að segja næstum því farin að kunna vel við þegar kirkjuklukkurnar hringja kl. 8 á morgnanna, BEINT fyrir utan gluggann minn :P Það er e-ð... kósí við það :) Þarf líka að fara að kíkja inn í þessa kirkju e-r tímann. Því að þó ég sé trúleysingi þá hefur mér alltaf fundist kirkjur rosalega fallegir staðir. Ég alveg elska að skoða gamlar-stórar- helst dimmar kirkjur. Minnir að það hafi verið ein sérstaklega flott í Granada og svo er auðvitað París full af þeim... En jáh.. út fyrir efnið. Ég hef nefnilega aðeins séð inn um gluggana á þessari kirkju og hún virðist vera ágætlega flott að innan.

Hverfið mitt er líka svo sætt. Gatan sem ég labba til að fara út í búð er æðisleg. Hún er svo sæt, svo margt að horfa á. Sumum finnst þetta kannski ekkert merkileg gata eða finnst hún etv ljót en mér finnst hún sæt. Rosalega sætur húsagarður í miðri götunni, hrikalega brattar trétröppur sem liggja niður að svona... kjallaradyrum... útflúrað/útskorið/e-ð í kringum margar hurðir þarna... frekar gömul ofboðslega sjarmerandi hús. Um daginn sá ég líka eitt í þessari götu sem mér fannst ofboðslega sætt... e-ð sem margir myndu líklega kalla skemmdarverk eða "veggjakrot" eða subbuskap. En það var s.s. búið að mála setningu á gangstéttina á einum stað. Setningin snýr að húsinu við gangstéttina og er s.s. beint á móti innganginum á þessu tiltekna húsi, beint þar sem tröppurnar enda. Þannig þegar e-r kemur út úr þessu húsi þá getur þessi setning, skrifuð með stórum hvítum stöfum, ekki farið framhjá henni... blasir beint við. En þarna s.s. stendur "I FUCKING LOVE YOU". Er það bara mér sem finnst þetta sætt? Okay okay, þetta er heldur langt gengið... en það að e-r hættir á það að vera handtekin fyrir á mála á gangstétt til þess að koma því til skila til manneskju (sem kannski neitar að tala við hann/hana) að viðkomandi elski hina manneskjuna... mér finnst það sætt. Þið dæmið sjálf hvað ykkur finnst...

Anyhow... ég hef ekki svo mikið að segja :) Var að tæma síðasta kassann áðan.. s.s. af kössunum sem ég lét senda hingað frá Íslandi, allar mínar eigur nánast. Þessi var fullur af smádrasli, uppskriftum og e-u fleiru. Hef virkilega ekki nennt að tæma hann hingað til, vissi ekkert hvar ég átti að setja þetta drasl. En þar sem mér tókst að troða kössunum upp á vin minn sem er að fara að flytja líka og hann er að koma að sækja þá á þriðjudaginn þá neyddist ég til að tæma þann síðasta. Þannig eftir þriðudaginn.. verða kassarnir farnir út.. og herbergið mitt verður enn fínna! Nenni samt ekki að taka fleiri myndir! Tók betri myndir af því núna um daginn þegar Gúndi kom í heimsókn (með fínu myndavélina sína). Mér finnst hálf skrítið að vera e-ð að setja þær myndir hér inn á síðuna... þannig bara... þið sem hafið áhuga á því að sjá þær.. sendið mér e-mail eða potið í mig á msn.. skal senda ykkur þær í e-maili :)

Á morgunn ætla ég að þvo þvott... í annað skipti síðan ég kom hérna.. jibbí jeij... vona að það gangi jafn slysalaust og í fyrra skiptið! Líkar ekkert allt of vel við þessa blessuðu þeytivindu... en maður þarf held ég að setja þvottinn í hana áður en maður setur hann í þurrkarann.. bölvað vesen sko. En maður þarf víst að passa sig að gera það rétt... annars tætir hún fötin manns :S Finnst heldur ekkert gaman að fara með þvottinn upp og niður ekkert-of-skemmtilegan stiga tvær hæðir... ekki sniðugt þegar jafn klaufsk manneskja og ég er á ferð :D Passa mig á að taka símann alltaf með mér þegar ég fer þarna niður... ef mér skildi nú takast að slasa mig eða e-ð :D

Jæja... ég ætla að fara að koma mér að sofa bráðlega... er búin að vera að fara allt of seint í rúmið og seint á lappir undanfarið. Á... fimmtudaginn (held ég) skrapp ég niðrí bæ í bókabúð og ákvað þar.. að kaupa mér eitt stk bók. Bókin sem mig (mér? ég er vonlaus í málfræði) langaði mest í ("Veronika Decides to Die") virtist ekki vera til þarna þannig ég endaði á að kaupa "Darkly Dreaming Dexter". Ég byrjaði þó ekki strax á henni þar sem ég var að lesa "By the Pricking of My Thumbs" eftir Agöthu Christie. Á föstudagskvöldið... upp úr miðnætti.. kláraði ég svo þá bók... og byrjaði á Dexter. Á laugardagskvöldið... var ég komin svo langt í Dexter að ég ákvað að reyna að klára hana.. gafst upp kl. 3 en kláraði hana svo þegar ég vaknaði.
Það eru svona.. kjánalegheit sem eru að valda því að ég er að fara seint að sofa... ekki það að ég sé að hanga út á næsta bar öll kvöld eða e-ð :) I wish... Mér hálf leiðist þessa daganna.. vantar fólk til að hitta. Hef ekki haft tíma/tækifæri til að vera kynnast fólki hérna síðan ég flutti út, allt verið í of miklu rugli. Þannig núna er ég voða mikið ein og fá tækifæri gefast til að kynnast fólki. Enginn skóli síðan 15.okt... og verður enginn skóli fyrr en 14.nóv... og það eru engin partý því allir á brautinni eru að læra fyrir próf. Þannig ég verð víst bara að sætta mig við það. Ég kann ekki sniðugar leiðir til að kynnast nýju fólki, ég er feimin... þannig ég læt mér bara leiðast smá. Í bili. Í næstu viku (5.-10. nóv) er það Íslandsheimsókn og þegar ég kem til baka er stutt í að skólinn byrji aftur :)

En þarna.. eitt enn: http://www.peta2.com/takecharge/swf/dogcatfur.swf (VARÚÐ ÓGEÐSLEGT!) :/ Finnst bara að fólk eigi samt að vita hvernig er verið að fara með dýr og HUGSI SIG TVISVAR UM áður en það kaupir loðfeldi eða skinnhanska eða skó eða whatever. Oh, fólk er fífl! Fífl, fávitar, hálfvitar, kúkalabbar, ógeð... ! Stundum skammast ég mín virkilega mikið fyrir að vera manneskja, t.d. við það að horfa á þetta myndband. Við ættum að skammast okkar fyrir að láta þetta viðgangast.




Jæja, hætta þessu áður en ég held mikið áfram á þessum neikvæðu nótum... :) Vona að þið hafið það öll sem best og svo framvegis...

P.S. Ég lýsi hér með eftir Le Tigre disknum mínum. Hann er horfinn :/ Var reyndar horfinn áður en ég flutti út. Þannig hann er að öllum líkindum á Íslandi. Ég er með hulstrið en diskinn vantar :/ Diskurinn er vibbalega bleikur að lit (já mér finnst bleikur ekki fallegur litur) með grænum stöfum þar sem stendur Le Tigre. Ég lánaði hann held ég síðast til Sillu (í vor?) en ég held samt að hann hafi alveg verið í hulstrinu þegar ég fékk hann til baka (ég athuga það yfirleitt). Þannig... líklega er hann heima (týndur og tröllum gefinn?)... en ef e-r er með hann.. láta mig vita :)

5 ummæli:

Benedikta sagði...

Jeij! Nýtt blogg :D Ég skil samt ekki hvernig þú nennir að skrifa svona löng blogg alltaf hreint!

En það er nú gott að þér líkar vel við hverfið þitt... en hvað er þetta? er enginn annar á þessari kollegíu eða hvað? ÞEtta hljómar svoldið eins og þú sért einbúi einhvers staðar úti á landi en ekki að búa í blogg með fullt af klikkuðum háskólanemum? ÞAð vantar kannski svona eldhús eins og er á kollegíunni hans Gúnda?

En allvega, sjáumst eftir 5 daga, og fylgstu með því hvort það séu einhverjir góðir tónleikar þarna á næstunni ;)

Nafnlaus sagði...

Húmm... ég skal tékka á því hvort diskurinn er heima... en ég hugsa samt að hann hafi verið í hulstrinu þegar ég skilaði því.
Ég er líka vön að tékka á svona.

Flott gata annars!
Mér finnst svona múrsteina hús alltaf svo kósí..
Skil vel hvað þú meinar að þér finnist gatan falleg.

og já.. ég er ekki bullukollur!

Nafnlaus sagði...

btw ég er búin að laga þig í kisur og hárboltar!

Salóme Mist sagði...

Benedikta: Hehe, ætla aldrei að skrifa svona löng blogg, gerist bara alveg óvart!
Þetta er svolítið öðru vísi uppbyggð kollegía... í staðinn fyrir að það sé bara einn langur gangur sem herbergin eru við (þannig að maður er alltaf að hitta alla á ganginum) þá liggur þessi gangur svona í kringum garð í miðju byggingarinnar... þannig frá minni hurð sé ég t.d. bara að 3 öðrum herbergjum. Plús allir eru með eldhúskrók inní herbergjunum sínum.. og koma þess vegna miklu sjaldnar fram á gang en á Gúnda-kollegíu. Það er alveg sameiginlegt eldhús hérna.. en ég hef bara einu sinni síðan ég kom hérna séð fólk vera að nota það...

Það eru alltaf góðir tónleikar hér... skoðum þetta bara saman þegar ég kem til Íslands :) See ya ;)

Silla: Okay, þætti samt vænt um að þú athugaðir það e-r tímann, þetta er svo mikill snilldar diskur! :)
Gaman að heyra að þú ert sammála mér með götuna :D Þú verður bara e-r tímann að koma í heimsókn og skoða hana betur! :)
Ah, takk fyrir að laga! :) Ég lagaði líka fyrir þig í staðinn... ert ekki lengur bullukollur ;D

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ, alltaf gaman að kíkja hingað annars lagið..
Það er alltaf viss hópur dana í öllum hverfum sem er einstaklega auðvelt að kynnast.. Komdu við eldsnemma í næsta Netto eða SuperBrugsen og keyptu kassa af Harbo, finndu bekkinn þeirra og svo skaltu bjóðast til að passa hundana þeirra það sem eftir er dags. Ég skal lofa þér að þú verður búin að eignast gommu af "bestu vinum" áður en þú ferð að sofa það kvöldið..
Annars til hamingju með nýja herbergið við sætu götuna.. Passaðu þig bara þegar að það byrjar að kólna.. Gatan verður kannski ekki jafn sæt þegar að frost + danskur raki hittast á miðri leið ;)