3.10.2005

Húsnæðismál leyst?

Komið þið sælir strumparnir mínir :)

Jæja, þá loksins get ég skrifað smá fréttir af húsnæðismálum. Hingað til hafa nánast eingöngu verið vondar fréttir af þeim og hef ég einfaldlega verið of pirruð á þessu drasli til að skrifa um það. Til að gera langa sögu stutta hefur þetta verið vesen... s.s. bréfaskrif, símtöl og þó nokkrar heimsóknir á kollegíu-úthlutunar-skrifstofur til að reyna að fá e-n stað til að búa á. Gefin loforð, svikin loforð... gífurlegt fjör. Allavega, í þetta sinn stóðu þau við það sem lofað var og í gær fékk ég tilboð um kollegíuherbergi. *strump*
Það var búið að segja mér að líklega myndi ég bara fá tilboð um að vera á ákveðinni kollegíu sem ég vil alls ekki búa á og því var það óvænt ánægja að fá tilboð á kollegíu sem ég vil gjarnan búa á. Hún er að vísu soldið dýr en það er allt í lagi. Hún er frekar stutt frá skólanum mínum og hefur ýmsa aðra kosti. Ég flýtti mér að segja já við tilboðinu um leið og það kom. Auðvitað var hængur þarna á... tveimur manneskjum var boðið þetta sama herbergi (og hin var á undan mér á listanum) þannig ef sú manneskja hefði sagt já við tilboðinu líka þá hefði hún fengið það en ekki ég... En en en! Í morgun fékk ég e-mail um að ég hefði fengið herbergið... og ég á von á að fá leigusamninginn í hendurnar á næstu dögum :) Skilst að ég geti svo flutt inn í herbergið um miðjan mánuðinn :) Það verður yndislegt að komast í eigin húsnæði, hafa pláss, geta farið að kaupa húsgögn og fá dótið mitt sent frá Íslandi :) *strump*

Á laugardagskvöldið síðasta fórum við í bíó að sjá "The 40 year old virgin". Hún var mjög fyndin og ágætis skemmtun. Hefði ég fengið að ráða hefðum við farið að sjá e-a aðra mynd samt. Ég er ekki vön að fara að sjá gamanmyndir í bíó, sé þær frekar á dvd ef ég sé þær yfir höfuð. Finnst meira varið í myndir sem skilja e-ð eftir sig.

Allavega, þar sem að ég stend líklega í flutningum um miðjan október og þar sem að ég fer í lokapróf fyrir þessa "blokk" 4. nóvember þá kem ég líklega ekki til Íslands 15. október eins og ég var að vonast til. Þá er nefnilega viku vetrarfrí sem ég ætlaði að nota til þess að heimsækja klakaland og knúsa allt fólkið þar sem ég sakna svo mikið. En því miður verður hitt að ganga fyrir, kannski kíki ég í staðinn til Íslands eftir lokaprófið í nóv., það er aldrei að vita :)

Held ég láti þetta duga í bili...
verið þið sælir strumparnir mínir :)

8 ummæli:

Ragnheiður Sturludóttir sagði...

Já.. þetta er bara óðelilegt þetta brak í hálsi..

En heyrðu.. varst þú ekki með mér í CISV í gamla daga?

Salóme Mist sagði...

Anna Guðrún: Takk fyrir það! :D Annars þarf ég ekki að taka próf í verklega hlutanum þannig ég efast um að ég fari að mæta í tilraunasloppnum í prófið :P

Ragnheiður maríuhæna: Jú, það passar, en bara í áramótabúðunum 2000/2001(?).

Nafnlaus sagði...

Húrra Húrra , til lukku með herbergið , ástarkveðjur frá okkur afa og Ingu

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með herbergið!:) Maður var bara hissa að sjá svona stutta bloggfærslu hjá þér!;)

Benedikta sagði...

Yaayyyyyy!!!! Og ef þú kemur ekki heim.. þá neiðist ég bara til þess að koma til þin einhvern tímann ;)

Benedikta sagði...

hey jámm, mig fýsir að vita, hvaða bol keyptir þú á T-shirt Hell, því að ég hef enn ekki fundið neinn sem ég myndi þora að ganga í :/

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera komin með húsnæði... verður örugglega gott að komast í burtu frá illa lyktandi brósanum mínum *híhí*

ég væri orðin nett pirruð að búa svona lengi með honum... kannski bara vegna þess að hann er bróðir minn...

Salóme Mist sagði...

Takk fyrir allar hamingjuóskirnar! :D

Benedikta: Þú kemur nú í heimsókn hvort sem ég kem til Íslands eða ekki. Kemst ekkert upp með annað! :D Spurning hvort þú viljir koma þegar það eru e-r skemmtilegir tónleikar hér? Þá getum við kíkt á tónleika saman :)

Lóa: Hahaha :D Sumir voru ekki hrifnir þegar ég las upp þetta komment þitt fyrir fyrir þá ;)