Jæja, ég setti inn nokkrar myndir úr dýragarðinum... Þarf eiginlega að fara að læra núna þannig Tívolí myndirnar fá að bíða smá. Á samt örugglega eftir að setja þær inn á eftir því ég nenni ekki að vera að læra.
Möguleiki á að húsnæðismál fari etv hugsanlega kannski að leysast á næstunni því ég á víst að mæta á fund á þriðjudaginn hjá einu félaginu sem sér um að útdeila kollegíuherbergjum. Það verður spennandi... Annars ef e-r veit um e-ð laust húsnæði e-r staðar í Köben: láta mig vita!!
Annars er ekki mikið að frétta... nema bara að þetta er allt saman meira vesen en ég átti von á :s
Gærkvöldið var reyndar ansi áhugavert... þeas það var mjög áhugavert að sjá ákveðna einstaklinga sem deila með okkur eldhúsi verða einstaklega ölvaða, brjóta tómatssósuflöskur, gera sig að fífli og so on...
Ah.. og jáh... myndirnar eru á http://photobucket.com/albums/b39/smist/
Bætt við kl. 22:30:
Búin að setja Tívolí myndirnar inná líka.. :D Nokkrar þeirra allavega...
Gleymdi líka að taka það fram áðan að Gúndi og nýja myndavélin hans eiga heiðurinn af öllum þessum myndum :) (ég á bara svona vesenismyndavél sem þarf filmu í...)
3.9.2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

7 ummæli:
ég fann nashyrninginn. hvað fæ ég í verðlaun?
haha, vá hvað ég var eitthvað sjúklega happíj í þessu parísarhjóli. Ég brosi eins og geðsjúklingur þarna...
hæhæh!!!
En gaman að hafa fundið bloggið þitt!! skemmtu þér ótrúlega vel í baunaveldinu!! híhí.. Vissirðu það að það eru fleiri svín heldur en danir í Danmörku? Þetta lærði ég á Ítalíu!! ;)
Knúz
Hah, ég hló þegar ég sá nöfnin með myndunum af lemúrunum og mörgæsunum... ég á aldrei eftir að geta farið í dýragarð með sama hugarfari aftur :]
Unnur: Ég skal gefa þér Guldbarre stykki í verðlaun næst þegar ég kem til Íslands ;) Minntu mig bara á það! :P
Benedikta: Mér finnst þetta svo sæt mynd af þér! :)
Edda: Takk takk :D Hahaha, er Ítölum illa við Dani eða er þetta satt? :D *knús á móti*
Haukur: Búinn að sjá Madagascar s.s.? :D Fannst hún ekkert svo rosalega skemmtileg í bíó heldur bara svona allt í lagi... fór svo núna um daginn að lesa quotes úr henni og uppgötvaði að það er alveg heill hellingur af ógeðslega fyndnum samtölum/atriðum :D Nú langar mig að sjá hana aftur... Varð líka oft hugsað til myndarinnar í dýragarðinum einmitt :D Lemúrarnir dönsuðu því miður ekkert fyrir mig samt :S
Btw þá er eitt annað quote úr myndinni "falið" á myndasíðunni... fannst það bara eiga svo skemmtilega við....
Hvernig fanns þér lyktin inni hjá górillunum? :)
En ég mæli eindregið með Kagså Kollegiet, þar eru bæði herbergi og einstaklingsíbúðir... Reyndar dáldið erfitt að komast inn, en stundum er maður heppin (þú myndir reyndar búa með ca 250 öðrum íslendingum)... Ca 15 hjólatúr og 5 mín strætóferð frá Lyngby :D
- Eða Kollegiet Solbakken, sem er rétt hjá Carlsberg verksmiðjunni... mmm, Carlsberg...
Górillur... hmm.. ég held mér hafi óvart tekist að sleppa þeim... man ekki eftir að hafa séð górillur :S Þarf greinilega að fara aftur í dýragarðinn!!
Hehe, Kagså er held ég ekki alveg málið fyrir mig... of langt í strætó... og þar sem ég hjóla ekki þá nenni ég því ekki :P (var búinn að tékka á henni e-r tímann).
Var að fletta upp Solbakken... er bara talað um íbúðir á síðunni þeirra og það virðist vera að maður þurfi helst að eiga krakka til að eiga möguleika á að komast þar inn... :P Takk samt fyrir ábendingarnar! :)
Skrifa ummæli