Hæj og hó! :)
Í lok síðustu færslu minntist ég á að ég hataði papercut's. Ég hef nú fundið eitt sem ég hata meira og það er að fá 2 M saltsýru í papercut. Þannig vildi til að á miðvikudagskvöldið tókst mér e-n veginn að fá þetta væna papercut niðureftir öllum fingurgómnum á þumalfingri hægri handar. Daginn eftir var 4 klst verklegur tími þar sem við þurftum meðal annars að vinna með saltsýru.
Ég var búin að gera mér grein fyrir að það væri sniðugt að halda puttanum eins langt frá sýrunni og hægt væri og passaði mig alltaf að þurrka strax ef það fór e-r dropi útfyrir og alltaf halda á saltsýruflöskunni og mæliglösunum með vinstri hendi. Hins vegar, þegar ég var að blanda fjórðu saltsýrulausnina sem ég þurfti að gera þennan dag þá tók ég utan um flöskuna með vinstri hendinni eins og venjulega... en tók tappan af með hægri...
ugh..
E-m snillingi hafði e-n veginn tekist að koma saltýru á tappann! Efst á svona tappa þar sem efsti hlutinn er með tvöfallt þvermál á við neðri hlutann þannig hann getur ekki farið ofan í flöskuan og það ætti ekki að fara sýra þangað á. En nei... þar leyndist dropi.. og það sveið... helvíti mikið get ég sagt ykkur :S
En jáh... eftir tímann fór ég á e-n svona.. International day uppí hátíðarsal skólans... það var fínt. Mjög skemmtilegar ræður, svæfandi kórsöngur, matur og drykkur og fullt af fólki frá öllum heimsálfum nema Suðurskautinu... Húsið var tæmt kl. 9.. en þá hékk fólk bara áfram á torginu fyrir framan... ég fór samt heim... um hálf 11 eða e-ð... ég þurfti nefnilega að reikna út niðurstöðurnar úr verklega tímanum til þess að skila þeim daginn eftir. Jeij.
Gærdagurinn var svo skóli til hádegis.... þá komu nokkrir nemendur af eldra árinu... með bjórkassa... farið út á plan.. allir fengu bjór.. og síðan var haldið niður á Øster Voldgade 3 þar sem skrifstofurnar fyrir raunvísindadeildina eru og okkur sýnt þar um. Síðan var bara setið í grasinu þar fyrir framan.. og eins og venjulega.. boðið upp á frían bjór :)
Fór heim uppúr tvö... með viðkomu í bakaríi... keypti fullt af sjúklega góðu dóti þar... nammi namm... og fór heim að hangsa..
Kl 7 mætti ég svo heim til Sophie sem er með mér í námi en þar vorum við nokkur.. uþb. 12 manns held ég... sem hittumst til að chilla og borða saman áður en haldið var í partýið til Anastasiu. Kemur mér á óvart aftur og aftur hvað þetta eru allt alveg yndislegt og ótrúlega skemmtilegt fólk sem er með mér í námi.. þau eru alveg frábær :) Allavega... héldum í partýið upp úr kl 9... þau voru flest á hjólum... og ég var plötuð til að setjast aftan á böglaberann hjá einni stelpu .... ái.... ég fór af eftir að hafa setið á niður tvær götur eða svo... kýs frekar að fara hægt yfir en að ferðast svona.. :P
Partýið var æðislegt.. og öfugt við í rusturnum þá var mjög góð tónlist spiluð mest allt kvöldið.. kom á óvart... kannski danir séu ekki allir með jafn glataðann tónlistarsmekk og ég var farin að halda... :D
Ég hélt heim... e-r tímann upp úr kl 3.. lítið frásagnarvert við það nema það að ég þurfti að labba eitt stk langa götu til að komast að strætóstoppistöðinni.... þessi gata lá upp við garð... þannig að tré slúttu á mörgum stöðum yfir gangstíginn... frekar creepy... Auk þess, var e-ð verið að gera við þarna.. þannig það voru svona.. grindverk... eitt sem afmarkaði mjóan göngustíg alveg upp við garðs-grindverkið... og hitt sem afmarkaði aðeins breiðari hjólastíg við götuna... Fáir bílar á ferð og allt frekar svona.. ugh...
Þegar ég var að byrja að labba þennan stíg... mætti ég e-m gaur á hjóli.... sem heilsaði þegar hann fór framhjá! Ég var smá ringluð í smá stund og var að pæla hvort þetta gæti mögulega verið e-r sem ég þekkti... ákvað að svo væri ekki.. og labbaði bara áfram...
Var það ekki gólað á eftir mér... gaurinn hafði stoppað í 10 metra fjarlægð og var e-ð að góla og spurja hvert ég væri að fara og e-ð :S Ég gólaði bara á móti... "Sorry, I don't speak danish" og hraðaði mér áfram!
Leit við stuttu seinna og sá hann hjóla í burtu.
Kaus samt eftir þetta að labba á hjólastígnum... þar var ekki jafn dimmt og maður þyrfti bara að forða sér gegnum eitt grindverk til að flýja út á götu en ekki tvö ef maður mætti e-m klikkhaus eða e-ð...
Voða fáir voru á ferli en þeir fáu sem ég mætti eftir þetta heilsuðu ekki.. sem betur fer :P Leið samt ekkert sérlega vel þarna og leit aftur fyrir mig við og við til að vera viss um að það væri enginn þar *hræðslupúki*
Hins vegar var e-r maður að labba svona 30 m fyrir framan mig... sem var greinilega drukkinn... og oft að stoppa e-ð.. skoða símann sinn eða e-ð álíka... og ég passaði mig að vera alltaf hæfilega langt fyrir aftan.. stoppaði bara líka.. því ég vildi ekki vera að díla við e-ð drukkið fólk útá götu um miðja nótt.
Allavega... þegar ég loksins kom að hinu horni garðsins... fegin mjög... sá ég... í birtu ljósastauranna.. (sem hafði vantað við garðinn) að drukkna manneskjan fyrir framan mig var skólafélagi minn sem hafði greinilega farið úr partýinu rétt á undan mér! :D Ég bölvaði sjálfri mér fyrir að hafa ekki þekkt hann fyrr en þar sem hann var farinn yfir götuna í átt að e-u strætóskýli hætti ég að hugsa um það í bili. Á sama tíma og ég var að koma þarna að tók ég eftir því að e-r manneskja á hjóli (kyrrstæð) var svona 15 m fyrir aftan mig.. pældi ekkert sérstaklega í því samt.
Ég hafði ekki tekið strætó frá þessum stað áður... og sá tvö strætóskýli þaðan sem ég stóð.. eitt þar sem "bekkjarbróðir" minn stóð nú... og eitt í hina áttina... Meðan ég stóð þarna og pældi hvort væri rétta skýlið sá ég allt í einu að hjólamanneskjuna út undan mér... hún var komin alveg að mér... þannig ég leit til hliðar... og getiði hver þetta var!
Gaurinn sem hafði heilsað mér! Hinum meginn við garðinn! Sem hafði verið að fara í hina áttina! Sem hafði greinilega verið að elta mig... langa leið.. (stór garður). Veit ekki hvernig hann fór að þessu.. því ég sá hann aldrei fyrir aftan mig... kannski fór hann gegnum garðinn...
En allavega.. hann fór e-ð að tjá sig... segjast hafa séð mig og haldið að ég væri skemmtileg manneskja að tala við og e-ð blablabla... spurja hvað ég væri að gera í danmörku og hvaðan ég kæmi...
Ég ákvað að reyna að forða mér bara í burtu sem fyrst.. meina.. það er ekki alveg eðlilegt að taka upp á því að elta e-a ókunna manneskju e-r hundruð metra um miðja nótt bara til þess að spjalla...
Ákvað að skjóta á að strætóskýlið þar sem bekkjarbróðir minn stóð væri örugglega rétta strætóskýlið... og um leið og það kom grænt gangbrautarljós flýtti ég mér að afsaka mig og hraða mér yfir götuna.. í burtu frá furðufuglinum. Sem betur fer var þetta rétta strætóskýlið og það var ekki neitt vesen við að komast heim eftir þetta :P
Allavega.. ég ætla að fara að koma mér í að læra :P
Skål!
10.9.2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

16 ummæli:
Harry Potter og Poisons hvað?
Hér eftir passar þú þig þegar þú sérð menn á hjólum!!!Kannski svolítið erfitt í Köben.
Reyni að finna netkaffi í Frakklandi til spara símakostnað,
ERum að reyna að grafa upp stuttbuxur og svoleiðis dót ég held að það sé ennþá yfir tuttugu stiga hiti þarna fyrir sunnar
jei, loksins smá "sumar"frí......
Koss og kveðjur
Ma
Af hverju settirðu ekki plástur eða e-ð yfir papercutið ? :D
Ég ætlaði að setja plástur á um morguninn áður en ég færi í skólann.... en ég svaf yfir mig og þurfti að drífa mig þvílíkt til að ná strætó... þannig... plástur varð eftir heima...
Salóme kjánaprik :P *kyss á bágt*
Elsku Salóme , indislegt að lesa dagbókina þína, þetta er eins og besta spennusaga, en farðu varlega !!
Elsku Salóme.
Það er gaman að heyra, nvað er gaman í Danska æfintýraheiminum
Takk fyrir öll commentin :)
Amma: ég lofa að fara varlega en ég veit ekki hvort ég geti farið eftir því sem mamma sagði :P Ef ég á að fara að passa mig á öllum mönnum á hjólum þá neyðist ég eiginlega til að hætta algjörlega að fara út úr húsi, líst ekkert á það!
Benedikta: Takk fylil að kyþþa bátti mitt! *knúþ* :)
Afi: Gaman að sjá þig commenta hér :) Vona að þú hafir það sem best!
jahérna jahérna. þú lifir greinilega á ystu nöf þarna úti í danmörku! við viljum helst fá þig heila heim um jólin. tja. þ.e. ef þú hefur hugsað þér að koma heim um jólin... en ég meina, dönsk jól eru pottþétt ömurleg.
ég veit ekki alveg afhverju ég fór að tala um dönsk jól.
en hvað um það.
kippis!
Ég mun koma heil heim.. en ekki um jólin :) Hyggst ekki halda dönsk jól né íslensk heldur frönsk. Ætla að hitta fjölskylduna á Rivíerunni (bara rétt hjá þar sem við bjuggum), fáum lánað hús hjá vinum okkar til að vera í. Verður gott að koma þangað aftur... :) *hlakka til*
Kippis! = skál! á finnsku?
Nei nei nei. kippis = kippi kanínus sagt rosalega hratt. það er mantran hennar örnu. og það eina sem hún hefur sagt við mig í margar vikur. svo liggur hún bara alltaf rangeygð uppí sófa þegar ég kem í heimsókn til hennar og endurtekur kippis í sífellu. helvítis kippis.
en til hamingju með jólin í frakklandi, og fjölskylduna þína - sem er sæt.
Unnur: Uh.. okei.. núna veit ég ekki hvort ég á að halda að þú sért búin að vera að borða e-a skuggalega sveppi eða hvort Arna hafi verið að því. :)
Awww, takk :) Mér finnst fjölskyldan mín líka obboslega sæt (sérstaklega svona þegar ég er í öðru landi en þau) :)
Takk fyrir að kvitta í gestabókina hjá mér:) Ég sé að þú ert eitthvað að ævintýrast í danmörku! Njóttu lífsins!;)
HAHAHAHAHAHHA
mér finnst unnur vera fyndin. og þetta var helber lygi. ussuss.
kippis er skál á finnsku. jújú. held það sé örugglega skrifað svona.
Kristrún: Takk sömuleiðis fyrir að kíkja á síðuna mína ;)
Arna: Ertu viss með það? Lofarðu að þú hafir látið sveppina í friði? :D
Yay!! Bara 95 dagar í Frakkland!! weeee! (já ég er komin með countdown timer á browserinn minn, og þú átt skrítna vini :P )
Benedikta: Híhí :) Var einmitt að enda við að ganga frá þessu með flugmiðana fyrir ykkur ;) Countdown timar "á" browserinn? Skondið :P Hvað meinarðu með skrítna?! :D Ég myndi nú bara segja léttgeggjaða :P
Skrifa ummæli