7.9.2005

Jahm og jáh...

Jæja, í dag var 4-tíma verklegur tími.. eins og alla aðra miðvikudaga og fimmtudaga.. Það var geðveikt fjör... eða þannig. Þetta er þvílík nákvæmnisvinna... og ekkert sérlega auðvelt. Ef þú klúðrar smávegis... t.d. lætur óvart einn auka dropa af sýru falla ofan í basann þinn við lok títrunar... þá áttu á hættu að þurfa að endurtaka tilraunina enn einu sinni! :o Við þurfum alltaf að endurtaka hverja prófun í tilraun amk 4 sinnum. Á niðurstöðum þessarra prófanna má svo yfirleitt ekki muna nema 0,02%... ef það munar meira... þarfu að endurtaka amk einu sinni enn... og hver prófun tekur... allavega 25 mín (böh, örugglega lengur) því að þú þarft að blanda nýja lausn og svo framkvæma prófunina.
4 tímar af verklegum tíma með engri pásu, seinnipart dags í seinnipart viku... maður kemur heim ansi þreyttur :) Tíminn í dag var samt mun skárri en tímarnir í síðustu viku! Það var af nokkrum ástæðum. T.d. af því að nú vissi ég hverju ég ætti von á og var farin að kunna aðeins á þetta. Einnig er einn yndislegur aðstoðarkennari sem er núna alltaf að hjálpa mér og þýða fyrir mig vinnuleiðbeiningarnar (sem eru á dönsku). Verst hvað hann er slappur í ensku :) Hann er samt algjört krútt, ég væri alveg á bömmer ef ég hefði engan til að geta spurt hvað ég ætti að gera alltaf... efnafræði á dönsku er ekki alveg málið... allavega ekki í tilraunum þar sem mikilvægt er að misskilja ekki neitt. Aðstoðarkennarar eru bara eldri nemendur við skólann, topp-nemendur sem er borgað fyrir að taka að sér að vera aðstoðarkennarar í einum kúrs á önn.
Það hjálpaði líka að ég var ekki jafn þreytt í dag og ég var í síðustu viku.. það munar helling (erfitt að vera nákvæmur þegar maður er við það að sofna og hefur enga orku til þess að vera að þessu).

Efnin sem við vorum að vinna með í dag voru samt ponsu.. svona.. erfiðari en síðast ef það má orða það svo. Basinn var alveg dökk fjólublár... og ef dropi fór á puttana á manni eða bara á e-ð... þá oxaðist hann og maður fékk brúnan blett á húðina.... sem var ekki hægt að þvo af með vatni. Svo vorum við líka með saltsýru... sem við þurftum að hita upp í 60°C áður en við fórum að títra hana (lausnin hituð yfir gasbrennara, tekin af þegar flaskan er næstum orðin of heit til að halda á...). Það hefði ekki verið sérlega sniðugt að fá það yfir sig... (er farin að fatta afhverju við þurfum alltaf að vera í slopp og með þessi helvítis gleraugu...) :P

En jáh, ég er ennþá eftirá í skólanum. Ætlaði að vinna upp síðustu helgi en var veik í maganum (óglatt) alla helgina og gerði lítið sem ekkert af því sem ég ætlaði að gera. Svo er ég bara svo orkulítil þegar ég kem heim úr skólanum, hef mig ekki í það að læra... auk þess er það smá vesen hér... lítið næði og lítið pláss... ég þarf á hvoru tveggja að halda til að geta lært.
Þannig, stefni á að læra um helgina...

Ég ætti að vera komin með kollegíuherbergi eftir mánuð.... skv. því sem e-ð kollegíu-skrifstofufólk var að segja við mig á fundi sem ég átti með þeim á þriðjudaginn... nú er bara að bíða og sjá. Það væri mikill léttir skal ég segja ykkur... er ekkert gaman að eiga ekkert "heima". Eiga ekkert sitt pláss, hafa ekki nema 10% af öllu dótinu sínu, blablabla. Búa inná e-m og finnast maður alltaf vera fyrir.

Jæja... ég ætti eiginlega að vera farin að sofa... best að drífa í því. Aukatími kl. 9 í fyrramálið (veit ekki hvort ég mæti í það..), skóli alveg til kl. 5. Svo kl. 4... (já, ég veit þetta skarast) og fram á kvöld er ég boðin í e-a móttöku fyrir International students eða e-ð... rektor að halda ræðu, frír bjór og e-ð dæmi... veit ekki hvort ég fer.. sé ekki alveg fram á að hafa orkuna í það á morgunn.
Föstudagurinn verður líka mjög bisí, skóli 9-12... þá tekur við e-r kynningardagur... verið að sýna okkur e-n hluta af skólanum... held ég... og svo e-ð... hangs úti á e-u túni.. frír bjór... (danir og bjór...). Svo er partý um kvöldið hjá Anastasiu (stelpu sem er með mér í námi)... veit ekki hvort ég hef e-n tíma til að fara heim þarna á mili...

Jáh jáhm.. þetta var örugglega sundurlausasta og mesta þvaður bloggfærsla sem ég hef skrifað hingað til.. sorry about that... er þreytt... fékk btw papercut dauðans áðan, ég hata papercuts!!!!

Var líka að fatta... að ég er að borga 500kr íslenskar á dag í ferðir til og frá skóla... það er skrambi dýrt :S (strætó smætó)

Jæja.. sofa... bless smess.. vona að þið séuð hress... (það er víst kúl að láta orð ríma!!!... er það ekki annars? :S )

4 ummæli:

Benedikta sagði...

Úff, þessir verklegu tímar hljóma eins og algjört helvíti :/ einu verklegu tímarnir sem ég er í eru líffræði... að greina plöntur... :P og þeir eru einungis 90 mín, en ég er samt að deyja úr leiðindum í þeim...

Það er gott að heyra að eitthvað er að birta til í þessum kollegíu-málum þínum, það er bráðnauðsynlegt að eiga heima einhversstaðar :D

og eitt i viðbót: 500 kall???? eru þessir danir klikkaðir?? ertu þá með klippekort eða? hmm... það er reyndar 220 aðra leið með strætó á íslandi, ef þú borgar með klinki og ert hvorki með miða né kort...

keep those blogs comin!

Salóme Mist sagði...

Kannski ekki helvíti... bara ponsu... erfiðir :)
Greina plöntur í líffræði?? Man ekki eftir að hafa þurft að gera það... nema bara að greina trjátegundir í vistfræðiáfanganum... það var... fjör... heh

Og jáh.. það verður gott að eiga "heima" aftur... farin að sakna þess mikið..

500 kall jáh... er með klippikort. Hvert klippikort er hægt að nota 10x og það kostar 245 dkk eða 2559 ísl kr. Þannig hver ferð er á ca. 256 kr ísl.. og ég þarf að fara í skólann og úr... s.s. rúmlega 500 kr á dag.

Auðvitað er hægt að kaupa mánaðarkort, sem er ponsu ódýrara (held ég spari andvirði eins klippikorts á því), en þar sem ég hef ekkert vitað hversu lengi ég myndi búa hérna þar sem ég er þá hef ég ekki gert það. Maður kaupir nefnilega mánaðarkort á ákveðin zone.
Samt frekar mikið bögg... allir danskir nemendur... þeas þeir sem eru með SU, fá miklu ódýrari strætó/lestarkort... ekki sanngjarnt að ég þurfi að borga meira en þau bara því ég er ekki dani... :S

Nafnlaus sagði...

Hmm þegar ég var úti þá keypti ég svona 2-zone kort, sem sagt klippikort með tíu skiptum (sem gilti í hálft ár) og það kostaði 110 dkk.

Salóme Mist sagði...

Hulda: Jáhm, en málið er að ég þarf að fara yfir 5 zone til að komast í skólann, það er heldur dýrara en að fara bara yfir 2 :) Ég er líka með 2ja zona klippikort en það nota ég bara til að komast héðan af kollegíunni og niðrí Downtown Lyngby eða þegar ég fer e-ð niðrí bæ eftir skóla.

Annars keypti ég mér mánaðarkort áðan þannig þessu helvítis klippikortaveseni er lokið í bili. Það var samt drullu dýrt, 665 dkk fyrir einn mánuð (6.887 kr ísl).