Þá er haustið komið, það fer ekki á milli mála. Síðustu vikur er búið að vera geðveikt veður hér, sól og blíða alla daga. Maður kveið því að fara í strætó því að maður vissi að maður myndi vera við það að leka niður úr hita þar inni.. og so on... En núna í vikunni... er búin að vera gola.... alveg 16-19 stiga hiti.. en samt er manni kalt :S (sem er frekar skrítið, heima á Íslandi finnst manni vera geðveikt veður þegar það eru 16°C).
Skrítið að vera búin að venjast því að geta helst ekki farið út í síðerma peysu (nema hún sé mjög þunn) því þá verði manni alltof heitt... en svo núna... allt annað upp á teningnum. Í dag fór ég út í tveimur peysum en var samt of kalt.. og þarna er bara ein vika á milli... og örfáar gráður.... *sniff*
Það er samt allavega ein manneskja sem hefur ekki tekið eftir því að það er komið haust... manneskjan sem keyrir ísbílinn! Ég heyrði í honum í fyrradag! Jáh, hér uppá DTU háskólasvæðinu fyrir utan Lyngby... þar sem er nánast bara háskólabyggingar, kollegíur... og svo e-r smá íbúabyggð... keyrir alltaf um öðru hvoru ísbíll. Ég vissi ekki hvað ég átti að halda fyrst þegar ég heyrði í honum... ísbíll? hér? Fatta heldur ekki hvernig svona ísbíladót á að virka... meina... í svona íbúahverfi... fólk kannski heyrir e-ð ding ding ding frá götunni... En hvað á það að gera? Hlaupa út á götu? Ísbíllinn er löngu búinn að keyra framhjá áður en nokkur kemst út fyrir hússins dyr. Við erum t.d. hér upp á 3. hæð á kollegíu... það væri ekki séns að ná honum.
Þannig ég er komin með þá kenningu að ísbíllinn sé bara að keyra um til að svekkja mann. Maður situr inni í steikjandi hita, heyrir þetta seiðandi "dingdingding" hljóð og hugsar með sér: "Mmmm hvað mig langar í ís!". En eftir nokkrar sekúndur áttar maður sig á því að ísbíllinn er kominn framhjá og allar vonir um ís horfnar. Eftir situr maður vonsvikinn og íslaus :/
Ég fór á mánudaginn og keypti mér mánaðarkort í strætó/lestar. Þar með lýkur veseninu með klippikort í bili :) Sem betur fer, það var óþolandi að þurfa að fara og kaupa nýtt klippikort á viku fresti (sárt að þurfa að sjá eftir 2560kr á viku bara til að komast í og úr skólanum). Þetta kort er samt dýrt... þar sem ég þarf að fara yfir alveg 5 zone! þá kostar það mig.. 665 dkk (6.786 ísl kr), og það er bara kort fyrir einn mánuð!
Þegar ég fæ mitt eigið kollegíuherbergi, þá verður þar e-r staðar niðrí Köben og þá þarf ég aðeins að fara yfir 1-2 zone til að komast í skólann. Þá þarf ég ekki að borga svona rosalega mikið í samgöngur.. jeij.
Til að kaupa strætó/lestar-mánaðarkortið þurfti ég að fara niðrá lestarstöðina í Lyngby. Í leiðinni fór ég og verslaði í matinn. Keypti kjúklingabringur (25 dkk), nautahakk (30 dkk, óvenju dýrt) , snakk (6 dkk), mjólk (6 dkk), 5 litlar fernur af appelsínusafa (9,5 dkk), 2 pakka af besta súkkulaðibitakex í heimi, 37% súkkulaði! :D (2x10 dkk), 5 kitkat (4 dkk stk), bakka af nektarínum (10 dkk), lifrarkæfu (10 dkk), smjör (11 dkk), stóran poka af Matador Mix (18,4 dkk), skinku (4 dkk), 8 stk af Twix top (15 dkk) og samlokubrauð (9 dkk) .... Allt þetta kostaði samtals ekki nema 193 dkk (2000 kr ísl). Hversu nice er það? Munar frekar miklu að versla í matinn hér og á Íslandi. Finnst mér allavega...
En jáh.. hlammaði þessu öllu í bakpokann minn og einn innkaupapoka... og hélt út í strætóskýli. Var ýkt heppin, strætó að koma eftir 5 mín! En svo kemur strætó ekkert :S Fyrsta sinn ever sem ég lendi í því að strætó er seinn hér í DK! :o Venjulega er alveg ótrúlegt hvað þeir eru alltaf tímanlega, hef alveg treyst á það hingað til en þarna fór e-ð út af laginu. En jáh.. þetta var fyrsti dagurinn sem ég myndi formlega telja sem haust-dag, og mér varð frekar mikið kalt af því að standa þarna og bíða... heldur ekkert gaman að standa og bíða þegar maður þarf að halda á fullt af matvörum. En strætó kom loksins (eftir... 20-30 mín seinkun) og mér tókst að fara út úr honum á réttum stað þó ég hafi aldrei tekið þennan strætó ein áður! :D víj!
Annars ætlaði ég líka að minnast á að Íslendingar eru held ég IKEA óðir. Strætóinn sem ég tek alltaf til að komast í og úr skólanum fer fram hjá IKEA (2 stopp héðan, samt langt í burtu þar sem þetta er hraðbrautarstrætó). Í gær þegar ég var á leið heim... tók ég eftir því.. að það voru tveir frekar háværir Íslendingar sitjandi rétt fyrir aftan mig í strætó. Stuttu síðar tók ég eftir því að par sem sat aðeins framar í strætónum voru greinilega líka Íslendingar... og getiði hvar þetta fólk fór allt saman út? Núh, hjá IKEA! :P
Í síðustu viku þegar ég var á leið heim úr skólanum kom líka gaur inn í strætó á IKEA-stoppustöðinni... haldandi á IKEA poka og e-u drasli. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá hann var: "Þetta er Íslendingur!". Komst svo að því að það var rétt því að við fórum út úr strætó á sama stað.. og um leið og ég steig út úr strætónum spurði hann mig hvort ég væri Íslendingur (ég var að fara að opna munninn til þess að spurja hann að því sama en hann varð fyrri til). Komst að því að hann hafði líka verið í MH... Þó maður þekki ekki allt fólkið sem var með manni í MH og hafi heldur aldrei verið með því í tímum þá þekkir maður flest andlitin bara af göngunum...
Btw.. ef fólki leiðist... þá mæli ég með að þið tékkið á "The 4400". Áhugaverðir sjónvarpsþættir þó fyrsta serían (5 þættir) sé soldið... cheesy og illa leikin :P 2. serían er mun betri og ferlega spennandi :)
Annars var ég að panta flug áðan til Suður-Frakklands ( s.s. til minna gömlu heimkynna). Þar ætla ég að hitta fjölskyldu mína og vera yfir jólin. Fáum lánað hús hjá vinafólki okkar til að vera í (sundlaug út í garði og svona, sem því miður nýtist ekki þegar maður er þarna í desember). Málið er að mamma (sem er málari) fær gestavinnustofu þarna yfir bæði desember og janúar. Því ætlar restin af fjölskyldunni bara að elta hana þangað svo við getum eytt jólunum saman. Hlakka til að koma þangað aftur, ég lít ennþá á Frakkland sem annað heimaland mitt og finnst alltaf jafn gaman að koma þangað og fá að æfa frönskuna svolítið :) (hlakka líka til að fara að versla í matinn þar! svo margt þaðan sem ég sakna! :P) Og gaman að hitta fólkið sem maður þekkir þarna auðvitað líka... og og sjá alla staðina aftur... oh... *hlakk*
Jæja, shit.. ég ætti að vera farin að sofa... skóli snemma á morgunn... :S
Ble ble í bili! Vona að þessi færsla sé ekki of sundurlaus... var eiginlega of þreytt til að blogga núna í kvöld en ákvað að gera það samt...
15.9.2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
Svei mér þú bloggar meir en ég kona !!!
Rosalega gaman að lesa og sjá hvernig danska lífið á við þig og auðvitað líka háskóla lífið :)
Skólafélagi minn var nýbúinn að fara yfir blogg allra fyrrum skólafélaga okkar sem útskrifuðust í vor og héldu burt í masters-nám (slatti fór í DTU). Allir voru að tala um þeir höfðu farið í IKEA.
Mig langar líka að fara til S-Frakklands og versla í matinn þar.
yayay! Ég hlakka svo til að fara!
sakna þín systir góð.... þetta verður tvöfaldur bónus þessi ferð: S-Frakkland, og að hitta þig aftur eftir helvíti langan tíma :P
haha. ég elska hvernig þið skrifið alltaf IKEA með stórum stöfum. það er auðvitað rétta (og eina) leiðin til þess að skrifa IKEA. lof sé IKEA.
Lóa: Er nú ekki viss um að það sé rétt að ég bloggi meira en þú, allavega ekki ef þú tekur til greina ferðasögufærslurnar þínar ;) Þær er ansi vænar!
Orri: Hahaha, þar með er sú kenning staðfest :P Íslendingar eru IKEA óðir! Ég mun örugglega vera týpískur Íslendingur þegar ég loksins fæ húsnæði og versla inn í herbergið í IKEA.
Ah, þú ert náttla líka fyrrum Frakklandsbúi og veist hvað ég er að tala um... Ef ég væri að koma til Íslands eftir för mína til Nice þá myndi ég nú bjóðast til að versla e-ð fyrir þig þar.
Benedikta: Híhí, sakna þín líka :) Við sjáumst nú samt að öllum líkindum í október ;)
Unnur: Það væri guðlast að skrifa IKEA með lágstöfum! Guðlast I tell you! Íslendingar myndu allir hópast gegn mér og grýta mig til dauða ef ég skrifaði það öðru vísi, það er ég alveg viss um!
Já ferðasögurnar voru náttúrulega einstakt dæmi. Ég var nú bara dugleg að blogga þá, annars er ég löt eins og anskotinn við það að blogga þessa dagana usss ussss :(
Vona nú samt að fara fá aðra færslu hjá þér kona!
Skrifa ummæli