Úffsí púffs segi ég nú bara. Skólinn fer hratt af stað og ég er strax farin að dragast aftur úr. Það eru aðeins búnir 3 dagar af skólanum!! Ég var ekki komin með bækurnar fyrir fyrsta skóladaginn þannig ég gat ekki lesið fyrir fyrsta daginn. Síðan gat ég ekki lesið fyrir annan daginn því ég var lasin, orkulítil og leið illa. Í gær reyndi ég svo að læra e-ð en þetta er bara svo tímafrekt að ég náði að klára voða lítið af þessu. Ég sit því uppi með haug af lesefni og dæmum til að reikna... verð bara að eyða allri helginni í að læra! Reyndar eru 2 skilaverkefni fyrir föstudaginn sem ég verð að reyna að gera í kvöld. Svo þarf ég líka að finna tíma til þess að setja inn efni á síðuna hennar mömmu sem er að fara að opna, tíma til þess að reyna að finna stað til að búa á og tíma til að fara læknis... íh!
Ég er búin að vera svo ónýt síðustu daga að ég ákvað að mæta ekki í dæmatímann og á fyrirlesturinn sem voru í dag fyrir hádegi. Þess í stað svaf ég örlítið lengur, reyndi ponsu að læra og tók því með ró. Mætti svo í skólann kl. 12:30 í verklegan tíma. Fékk þar að puða til rúmlega fimm við að blanda lausnir og títra og þannig skemmtilegheit. Fíla tilraunasloppinn í tætlur en get ekki sagt það sama um hlífðargleraugun sem maður þarf ALLTAF að hafa á sér. Ég hata gleraugu! Get ekki einu sinni haft sólgleraugu í meira en hálftíma venjulega og þarna er ég neydd til að hafa risa hlífðargleraugu í rúma 4 klst! :S Augun mín voru ekki sátt... þeim finnst þetta óþægilegt.
Allavega... fór dauðþreytt og banhungruð eftir tímann með strætó niðrí bæ þar sem ég þurfti að kaupa strætómiða til að eiga næstu daga. Gúndi hringdi líka og bað mig að fara í búð.... Ég í búð þegar ég er svöng = ekki sniðugt! Kaupi þá alltaf allt sem ég sé sem mér þykir gott :D Í þetta skiptið keypti ég (fyrir utan það sem ég átti að kaupa) ítalska skinku, heslihnetur, valhnetur, súkkulaðibitakökur... man ekki hvort það var fleira :D Hefði örugglega keypt ennþá meira ef ég hefði ekki keypt mér súkkulaðistykki 5 mínútum áður um leið og ég keypti strætómiðana :P mmmm orange knas Guldbarre! (Jói þú veist hvað ég er að tala um) ;)
Jæja, djö... ég á að vera að læra núna.. ekki blogga. Ætlaði ekkert að blogga í kvöld... en svo hringdi mamma rétt áðan og sagði mér að amma skoðaði alltaf bloggið mitt á hverjum degi :) Mér þótti svo vænt um að heyra það og vildi ekki valda ömmu vonbrigðum þannig ég ákvað að henda inn einni færslu :P En jáh.. nú er ég farin að læra... :D Eða svona.. næstum...
Myndirnar sem ég lofaði koma inn á föstudag eða laugardag (ef e-r hefur áhuga á að sjá þær?)
Goh.. ég nenni ekki að fara að læra efnafræði :S *þreytt*
Knús til ykkar allra (sérstaklega stórt knús til ömmu!) :)
31.8.2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

5 ummæli:
... ekki orange guldbar med knas... bara guldbar med knas.. þessi með fjólubláa borðanum... oooh.. ekki orange..
Takk fyrir bloggið þitt í dag elsku stelpan mín, mundu svo að hvíla þig líka því annars fer heilsan í flækju
Birna: mér finnst þessi með fjólubláa-borðanum ekki góð :S Finnst venjulega Guldbarre súkkulaðið ekki gott, bara þegar er búið að bæta appelsínubragði við það :P mmmm :)
Anonymous (amma? mamma?) Hvíla mig.... hefur ekki alveg verið möguleiki í dag, búinn að vera frekar hræðilegur dagur... blogga kannski um það á eftir...
Æjj, þú verður að passa þig að vera vel úthvíld systa mín, annars gætiru blandað þetta títra dót vitlaust og sprengja skólann í tætlur! 0_0
Vil endilega fá að sjá myndir, og mikið rosalega ertu góð við hana ömmu :)
Stórt knús til baka *sakn*
Hvað er þetta?
Maður getur hvílt sig þegar maður er dauður.
Hvíld og háskólanám eru ekki vinir.
Skrifa ummæli