18.4.2006

Luxembourg

Ég hata blogger.com
Á miðvikudagskvöldinu síðasta skrifaði ég færsluna sem birtist hér að neðan. Hins vegar hef ég ekki getað sett hana inn fyrr en núna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Drasl síða. Er eiginlega kominn tími á að blogga aftur, margt búið að gerast en ég vil bara ekki setja inn tvær færslur í einu þannig hin kemur seinna. Annars má nefna að ég er orðin tvítug, takk fyrir afmæliskveðjurnar þið sem þær sendu :)

**********************************************

Í herberginu sem ég er í núna er ekkert nema tvær dýnur, sængur, koddar og svo þessi tölva. Það er ekki þægilegt að sitja bara á dýnu, með lyklaborðið á hnjánum og skrifa blogg, ég er gjörsamlega dofin í fótunum. Því mun þessi bloggfærlsla verða skrifuð í flýti...

Ég er s.s. stödd í húsinu sem mun verða heimili foreldra minna og bróður míns næsta árið og hugsanlega lengur. Þetta er voða huggulegt hús, það stendur við rólega, sæta götu og er með fallegan garð. Á þessari hæð (þeirri efstu fyrir utan háaloftið) eru 4 svefnherbergi og eitt stórt baðherbergi. Þau eru öll nánast tóm þar sem húsgögnin þeirra verða ekki flutt hingað fyrr en í sumar þegar mamma og Gísli flytja hingað. Ef gengið er niður hinn ofursnobblega marmarastiga sem liggur niður á næstu hæð þá er þar stórt hol/gangur, lítið baðherbergi, ágætlega stórt eldhús og stór stofa/borðstofa með arni. Þaðan er svo líka hægt að ganga út á verönd/garð. Í kjallaranum er svo enn eitt svefnherbergið, stórt þvottahús og stór bílskúr.

En jáh, ég ætla að renna smá yfir atburði helgarinnar og síðustu daga :) Þar sem ég verð í burtu frá Danaveldi í 3 vikur ákvað ég að reyna að hitta alla mína bestu vini þar fyrir brottför. Hef ekki séð svo mikið af þeim undanfarið þar sem þrjú þeirra eru molbio-fólk (molecular biomedicine) og eru búin að vera á fullu í próflestri (lokapróf í prótínefnafræði á föstudaginn síðasta) og breski vinur minn var erlendis.

Á föstudaginn fór ég s.s. að hitta þann breska og fullt af öðru fólki á e-m bar. Þegar ég kom þarna voru bara hann og danski vinur/meðleigjandi/meðeigandi (á fyrirtæki) hans komnir. Síðan kom sænsk vinkona bretans, æskuvinur danans, íslenskt par sem eru víst vinir sænsku stelpunnar og svo dönsk stelpa sem er framtíðar meðleigjandi bretans og danans :P S.s. jáh, bjórdrykkja og spjall á bar, bjórdrykkja og spjall heima hjá bretanum og dananum og svo bjórdrykkja og dans á öðrum bar/klúbb. Rölti heim e-r tímann rétt fyrir kl. 4.

Á laugardaginn fór ég svo með dönskum vini mínum á listasafn. Skoðuðum Highlights sýninguna (svona best of af því sem er búið að vera að gerast í myndlist síðustu 700 árin). Það var voða kózí og gaman. Síðan ætluðum við að fara út að borða en mér tókst að stíga í poll og var því ákveðið að kaupa frekar pizzu og taka með heim (til að komast sem fyrst í þurra sokka).
Sunnudagurinn fór að mestu í að taka til og pakka niður en um kvöldið kom annar vinur minn og varð úr hið besta hangs-/spjallkvöld.
Á hádegi á mánudeginum kom svo vinkona mín og dró mig niður í bæ. Eyddum 5 klst-um í ilmvatns-þefun, "versl", nachos-át, spjall og rölt. Hélt síðan heim og beið eftir mömmu og systkinum mínum. Við áttum skemmtilegt kvöld og svo snemma á þriðjudagsmorgninum héldum við til Lúxemborgar :)


Pabbi kom og sótti okkur á flugvöllinn og sýndi okkur nýja húsið en þurfti svo að fara aftur í vinnuna. Þar sem ekkert okkar svaf neitt sérlega vel þarna nóttina áður tókum við því bara rólega "heima" um daginn. Seinnipartinn fórum við svo í smá skoðunarferð og út að borða á mjög svo skemmtilegan stað. Góður matur og skemmtilegt umhverfi. Borðið okkar var holt að innan og í gegnum borðplötuna (gler) sá maður líkneski af geimveru (soldið ET-leg) sem var lýst upp með bláu ljósi. Mjög sérstakt... eins og allt þarna inni.... Seinna um kvöldið fórum við systkinin svo að sjá Ice Age 2 í frááábæru bíói. Ódýrara en á Íslandi og í DK, mergjað stór salur og skjár og mega góð sæti.

Arg, vont að sitja hérna... :/

Uhm.. jáh.. svo í dag var pabbi aftur að vinna en við hin fórum niðrí bæ að skoða og búðar-rápa. Um kl. 5 sótti pabbi okkur og við fórum að versla inn hluti sem bráðvantaði hérna eins og t.d. handklæði og sæng. Þar sem við fundum ekki sæng í búðinni sem við fórum í hér ákváðum við bara að skreppa yfir til Belgíu til að fara í IKEA. Tekur enga stund að keyra þangað. Stefnum á að kíkja líka til Þýskalands og Frakklands í vikunni... allt á nýja fína bílnum hennar mömmu :D

En en jáh.. ég bara geeet ekki setið hér mikið lengur... fæturnir mínir eru ekki sáttir...
Samt eitt.. ég er komin með Lúxemborgískt (errr... eða hvað maður segir) gsm-númer. Ég er því núna með gsm númer í 3 löndum... hversu leet er það? hehe :)

Ætla að skrifa seinna um Lúxemborg, tungumálið, snobbið og so on... en núna er ég að pæla í að joina fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið eða e-ð...

Au revoir!

4.4.2006

Sex on the beach




Beint fyrir utan gluggann minn er tré. Á föstudaginn tók ég eftir því að í þessu tré er hreiður. Það er í svona 4-5 metra fjarlægð frá umtöluðum glugga. Finnst yndislegt að hafa það þarna, sýnir að vorið er að koma :) Stend oft út við gluggann og fylgist með fuglinum, ótrúleg þolinmæði í þessum dýrum að liggja á eggjunum svona lengi. (Þetta er bara næstum eins og að hafa gæludýr!).

Helgin er búin að vera áhugaverð með meiru (í þetta sinn tel ég mánudaginn með helginni) :) Föstudagurinn var bara rólegur, vinur minn kom hérna seinnipartinn og var til miðnættis. Það var voða kósí; horfðum á bíómyndir og teiknimyndir, átum kebab og nammi og spjölluðum um daginn og veginn. Laugardagurinn var líka voða rólegur en mér til undrunar hringdi Hrafnhildur frænka í mig og sagði mér að hún væri stödd í Köben (ástæðan flugfreyjunámskeið á mánudeginum). Við ætluðum kannski að hittast til að borða saman en ákváðum svo að hittast frekar snemma á sunnudeginum til að fara saman að versla. Plönin breyttust svo aftur eftir miðnætti þegar hún ákvað bara að kíkja hingað og sátum við og spjölluðum e-ð fram á nótt.

*Varúð: Næstu línur fjalla um verslunarleiðangur, þeim sem halda að þeir muni deyja úr leiðindum við lestur slíks texta er bent á að "hoppa" niður að næstu greinaskilum.*
Vöknuðum seint á sunnudagsmorgninum og fórum beint niður í bæ. Komumst að því að það var kalt á Strikinu (gluggaveður!) og flestar búðir lokaðar þannig að við skelltum okkur bara í Fisketorvet. Vorum þarna frá hádegi og til ca. 17 (held ég). Ég keypti mér tvær peysur, jakka, gallabuxur og e-ð fleira og svo gaf Hrafnhildur mér aðrar gallabuxur í afmælisgjöf :) Venjulega haaaaata ég að versla buxur, það er ekkert smá mikið vesen fyrir mig að finna buxur sem passa :/ Við vorum hins vegar svo heppnar að lenda í Only-búðinni og komst ég að því mér til mikillar hamingju að þar er ekkert mál fyrir mig að finna buxur sem passa, jeij.

Héldum niðrá hótel (þar sem Hrafnhildur og allir af námskeiðinu dvöldu) og vorum svo uppgefnar að við enduðum á að leggja okkur í 2 tíma :P Fórum svo út og fengum okkur að borða á Jensen's Bøfhus. Eftir það skunduðum við í bíó á Pink Panther (hræðileg mynd) og enduðum á að fara á Café Norden um kl. 23 og fá okkur swiss mocca og gulrótaköku. Mmmmmm :D Það var samt frekar skondið fyrir þær sakir að þegar við komum inn var aðeins setið á tveimur öðrum borðum og eftir smá stund vorum við einu gestirnir þarna inni :) Venjulega er þessi staður svo troðinn að ekki er hægt að fá borð...


Anyways.. ég ákvað að gista á hótelinu þar sem að Hrafnhildur var hvort sem er ein í tveggja manna herbergi. E-ð varð okkur blaðurskjóðunum lítið um svefn og ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn mikið eins og zombie og þegar við þurfum að fara á fætur kl. 6:30 og ég hafði aðeins sofið í ca. klst. Hrafnhildur og allar hinar "freyjurnar" héldu á öryggisnámskeið upp á flugvelli beint eftir morgunmatinn en ég hélt heim (AÐ SOFA!)

Mánudagskvöldið/aðfaranótt þriðjudags... ég ætlaði að lýsa því.. en ég held þið mynduð ekki trúa mér hvort sem er. Set þetta hérna bara í stuttu máli: Hótel - aperitif. Besti ítalski veitingarstaðurinn í Kaupmannahöfn með ca. 10 rosa skemmtilegum flugfreyjunemum, æðislegum mat, daðrandi þjónum og fullt af víni. Kokteilbar/klúbbur með ca. 15 "freyjum" - dj, kokteilar, dansað þar til klúbburinn lokaði. Hótel - partý. Svefn á hóteli kl. 4:30. "Djamm" (váh, ég hef alltaf hatað þetta orð en finn bara ekkert betra) á mánudagskvöldi = málið ;) Komst að því að e-ð af partýgenunum frá mömmu og pabba hafa ratað í mig þrátt fyrir allt... þau eru bara voða oft í feluleik (þau og alvarleikinn/raunsæið eru ekki vinir) :P Kom heim á hádegi í dag.. bara búin að taka því rólega, ryksuga og svona... jeij.

Hvað ætlaði ég að segja ykkur fleira? Hmm jáh, ég er að fara á útitónleika með Sigur Rós í Lúxemborg í júlí! *hlakk* Er ekkert búin að plana sumarið en er bara að láta það ráðast af því hvenær tónleikar og aðrir viðburðir eru í hvaða landi hvar ég verð. Veit ég verð í DK í byrjun júní því þá fer ég með dönskum vini mínum að "heyra" Carmina Burana í tónleikasalnum í Tívolí. Svo greinilega í Lúx í byrjun Júlí og svo líklega brúðkaup hjá Boggu frænku á Norður-Jótlandi um miðjan júlí.

Jahm og já, tíminn líður svo hratt! Finnst þetta ár bara hafa flogið áfram so far. Það er kominn 4. apríl!!! :o Á morgun eiga þá bæði Gúndi og Kristrún afmæli, allir sem þau þekkja að muna að óska þeim til hamingju :) (Svo er 5.apríl náttla líka dánardagur Kurt Cobain's og Layne Staley's). Síðan er ég að verða gömul eftir 10 daga :S Omgs! :) Tæp vika í brottför til Lúxemborgar þannig ég er ekki viss um frá hvaða landi ég blogga næst dk, lu eða is.

Plata vikunnar er pottþétt: Daft Punk - Discovery


Yfir og út!

27.3.2006

Move your feet

Jæja, fyrst frekjustelpan er byrjuð að orga þá neyðist ég víst til að blogga ;)


Héðan er bara allt fínt að frétta, ég er reyndar orðin frekar leið á því að bíða eftir að vorið láti sjá sig en það hlýtur nú að fara að gerast! Ætla ekkert að fara út í veðurlýsingar til að drepa ykkur nú ekki úr leiðindum :D

The Cardigans voru æði og við systurnar skemmtum okkur vel :) Reyndar fór mjöðmin mín í fokk (hún á það til að gera það, kenni öllu búðarrápinu um!) og það var rétt svo að ég kæmist heim (frekar sársaukafullt). Eftir að Benedikta fór heim til Íslands eyddi ég næstum viku í e-r frekar smávægileg veikindi. Fór svo í bólusetningu við mislingum, rauðum hundum og hettusótt. Er annars aðallega búin að eyða tíma mínum hér í chill, póstkortaskrif og hangs með vinum :P

Síðustu helgi var kíkt á bar-maraþon á kollegíu hjá vinkonu mi
nni og þessi helgi var bíóhelgi :) Á föstudaginn fór ég með breska vini mínum á jazzklúbb þar sem við sáum klukkustundarlanga, svarthvíta, danska bíómynd án hljóðs frá 1919 sem heitir "Mod Lyset". Undir spilaði jazz-pönk bandið Bugpowder á ansi skemmtilegan hátt :) Síðan var sýnd 15 mínútna stuttmynd sem kallast "Lövejagten" en hún er frá 1907 og því að sjálfsögðu hljóðlaus líka en tónlist spilaði undir að þessu sinni DJ sem kallar sig Track 72. Áhugaverð stuttmynd að mjög mörgu leiti, t.d. fyrir það að hún er tekin á danskri eyju í Hróarskeldufirði en í henni eru zebrahestur, apar og ljón. Ljónið er skotið í myndinni og það húðflett (áður en það gerðist hafði það líka ráðist á hest og bitið hestinn svo illa að hann þurfti að aflífa). Einnig voru veiðimennirnir tveir (sem voru aðalpersónur myndarinnar) með svartan þræl. Þannig, þrælahald og dýradráp... þessi mynd er ansi rosaleg, ekkert "no animals were harmed during the making of this movie". Ef PETA hefði verið á staðnum hefði örugglega verið slett málingu og fjör. Þessi mynd var ein fyrsta mynd Nordisk Films fyrirtækisins til þess að verða vinsæl en hún var hins vegar bönnuð í Danmörku þar til 1911 vegna slátruninnar á ljóninu. Þessi viðburður var hluti af NatFilmFestivalen sem byrjaði s.s. á föstudaginn síðasta og mun standa til 2. apríl. Vonandi mun ég ná að sjá fleiri myndir á hátíðinni, það er alveg þvílíkur fjöldi af spennandi myndum sem verður sýndur :)

Á laugardaginn fór ég svo að sjá "V for Vendetta" með strák sem var með mér í námi. Var frekar skondið að ég þekkti hann ekki þegar ég sá hann og brá ekkert smá þegar hann heilsaði! :) Hafði ekki séð hann síðan í desember og hann hafði breyst ansi mikið við að fara í klippingu (var áður með sítt hár). En já, þetta er sérstök mynd. Góð en frekar erfitt að fylgjast með öllu sem kemur fram og er gefið í skyn. Þarf að sjá hana aftur þegar hún kemur út á dvd en ég mæli með henni :)



Síðustu daga er ég búin að vera á fullu í íbúðarmálum, búin að skoða 10 íbúðir! Rosa spennandi! :)

Uhm.. jáh.. ég held ég hafi bara ekki öðru að segja frá í bili, ég er pottþétt að gleyma e-u sem ég ætlaði að skrifa um en það verður bara að hafa það. Hlakka til að sjá ykkur öll í apríl, kem til landsins 18.apríl (eftir viku dvöl í Lúxemborg). Reikna með að halda e-ð upp á tvítugsafmælið helgina eftir að ég kem... uh.. ákveðið betur seinna, læt vita...

Látið í ykkur heyra, les þetta e-r lengur? Ég vil comment takk :)

Hlustað á þessa dagana: Thievery Corporation, Dresden Dolls, Tool, Daft Punk, Hairdoctor, The Fiery Furnaces, Trabant.... ásamt því að ég tók kast í 90's poppi og danstónlist... og svo smá diskói... (já, ég þarf að panta mér tíma hjá geðlækni hið snarasta). Get annars ekki beðið eftir að Junior Senior diskurinn sem ég var að panta mér skili sér! Move your feet er skemmtilegasta lag í heimi! :D Fuck the pain away með Peaches og Coin-operated boy með Dresden Dolls og fullt af lögum með Daft Punk eru líka æði.... ég elska radioblogclub.com!!!!

18.3.2006

26.2.2006

The sound of music...

Fór að sjá Depeche Mode í gærkvöldi, alveg frábærir tónleikar :) Frekar magnaði líka að fara á svona tónleika í Parken, ekkert smááá mikið af fólki þarna! :D (40-50 þúsund manns?) Samt gekk allt eins og smurt, tók enga stund að komast inn etc. Danir kunna að skipuleggja :) Núna hefst bara biðin eftir næstu tónleikum! Fer að sjá The Cardigans með systur minni á miðvikudaginn :) Úh, og svo fer ég á Belle & Sebastian í maí!!! Svo er bara spurning, á maður að kaupa sér miða á Iron Maiden í nóvember? Salan hefst á morgun og það selst örugglega strax upp... Ætla bara að hafa þessa færslu stutta, er eiginlega bara alveg búin eftir þessa helgi, hún er búin að vera alveg mega sweet :) Í dag verður því bara tekið rólega og tekið til! Held herbergið mitt/íbúðin hafi aldrei verið jafn... ruslaraleg :P

18.2.2006

“My good opinion once lost is lost forever.”

Jæja, ég ætlaði nú ekkert að blogga á meðan dvöl minni stæði hér á Íslandi en hins vegar bjóst ég nú heldur ekki við að hún yrði svona löng. Nú hef ég verið hérna í þrjár vikur og það styttist óðum í heimferð. Ég ætla ekki að blogga neitt um það sem á daga mína hefur drifið hér á Klakalandi enda samræmist það ekki tilgangi þessa bloggs, það var stofnað til þess að leyfa fjölskyldu og vinum að fylgjast með lífi mínu í Baunaveldi.

Ef ég ætti þó að nefna það mér þykir merkilegast við þessa Íslandsheimsókn mína þá væri það:
- Mín mikla ást á hnífum hefur aðeins minnkað (eftir mín snilldarlegu tilþrif sem enduðu með heimsókn á slysó).
- Ég talaði meiri dönsku hér á einu kvöldi heldur en ég hef gert á 6 mánuðum í Kaupmannahöfn (allt spurning um að finna rétta fólkið að tala við?)
- Enduruppgötvun á því hversu heimurinn er lítill.
- Komst að því að partý geta verið mjög skemmtileg þó svo að það sé engin tónlist spiluð! Því hefði ég aldrei trúað.

Eins og margir vita þá hef ég undanfarið verið að reyna að ákveða hvort ég eigi að búa áfram í Köben, flytja til Íslands eða flytja til Lúxemborgar með fjölskyldunni. Ég hef valið Köben. Er bara að byrja að leita að íbúð þar (má ekki búa áfram á kollegínunni þar sem ég er ekki í námi). Spennandi spennandi :)

Það sem ég hlakka til í augnablikinu:
- Party í kvöld (ég er búin að vera að hlakka til þess að fara þarna í meira en viku! ég! sem hef aldrei verið mikil partý-manneskja. Það var bara svo rosalega gaman síðast þegar þessi hópur hittist).
- Skoða í póstkassann minn þegar ég kem út til dk! :D
- Hitta 2 bestu vini mína í .dk, þeir eru svo mikil æði. sakna þeirra :)
- Depeche Mode tónleikar 25.feb
- Heimsókn Benediktu og The Cardigans tónleikarnir sem við ætlum saman á 1.mars
- Finna íbúð
- Fara til Lúx og skoða húsið sem fjölskyldan mín er að fara að flytja í
- Halda upp á tvíttugsafmælið mitt í apríl? :D

Annars get ég mælt með bæði Munich og Walk the line. Kem kannski með umfjöllun um þær seinna. Endurhorfði svo á Calendar girls í gær, hún er yndisleg!

Dúddúdú! Læt þetta nóg í bili... nema, ég ætla að láta hérna textabrot úr lagi með Maus sem hefur setið svolítið í mér:

ég vil aldrei, aldrei aftur heimsækja þig.
og ég vil aldrei aftur að þú heimsækir mig.
því nú loksins, loksins á ég vin sem skilur mig.
og ég vil aldrei, aldrei aftur snerta þig.

24.1.2006

Góð byrjun á ári?

Nú eru rúmlega þrjár vikur liðnar af árinu 2006. Mér finnst þetta ár hafa byrjað bara nokkuð vel (tja, fyrir utan viku veikindin). Finnst í raun ótrúlegt að það séu bara liðnir 24 dagar af þessu ári því að mér finnst svo rosalega mikið hafa breyst síðan það byrjaði. Mér finnst sérstaklega að ég hafi breyst og mín viðhorf til margra hluta líka. Held að ég sé víðsýnni manneskja en ég var í fyrra, hversu skringilega sem það kann að hljóma.
Þrátt fyrir að mér finnist eins og ég eigi að vera skelfingu lostin eftir þá ákvörðun mína að hætta í háskólanum þá er ég það ekki. Mér líður vel og er bara ánægð með sjálfa mig og lífið. Þrátt fyrir að ég þurfi á næstunni að fara að finna út úr því í hvaða landi ég ætla að búa og hvað ég ætla að gera við líf mitt næstu árin þá er það ekki að stressa mig. Ég nenni ekki að fara í e-ð stress út af því, er komin með ógeð á stressi, veseni og leiðindum. Finnst eins og að nýr kafli sé að hefjast í mínu lífi, vona bara að hann verði góður.

Nóg af þessu... skiptum yfir í gelgjuskap. Ég "skulda" víst það að setja upp hinn yndislega keðjubloggleik "Kommentaðu með nafni og ég segi þér..."" eða hvað þetta drasl heitir. Hins vegar spyr ég ykkur kæru lesendur, eru ekki allir komnir með hundleið á því? Á ég nokkuð að vera að setja þetta inn? Hafið þið e-n áhuga á að vita hvað mér finnst um ykkur? :)

Ég ætla hins vegar að sleppa mér í gelgjuskap með öðrum bloggleik núna og setja þetta inn:

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


Annars ætlaði ég að nefna að ég hef séð nokkrar myndir síðan ég skrifaði síðustu færslu. Fór í bíó á "Don't come knocking". Hún er nokkuð skemmtileg að mínu mati, hafði mjög gaman af henni en ég er viss um að mörg ykkar væru ekki sama sinnis. Ef þið hafið ekki gaman af myndum sem ganga út á e-r pælingar eða eru ef til vill svolítið hægar, ekki sjá hana. Ef þið aftur á móti kunnið að meta myndir fyrir það sem þær eru, endilega sjáið hana.
Sá hana í bíói sem ég hef aldrei farið í áður, Grand Teatret. Það er rosalega töff bíó að mínu mati, lítið en ferlega kósí og sætt. Salurinn sem ég fór í var mjög lítill en hann var vel hannaður og ég get ekki kvartað yfir neinu þar (þess má geta að ég er mjög kröfuhörð á bíósali). Héðan í frá mega Palads og Dagmar Teatret fara í rass og rófu fyrir mér (nema salur 1 í Palads, hann er fínn). Imperial, Grand Teatret og Metropol eru mín bíó. CinemaX er svo sem ágætt og bíóið í Lyngby frábært en staðsetningin á þeim er ekki mér að skapi.
Sá einnig Deer Hunter með vini mínum. Ætla ekki að segja margt um hana nema bara það að hún var á sinn hátt mjög óhugnaleg og svo var hún svona klst of löng. Svo sá ég líka The Merchant of Venice með öðrum vini mínum. Held þið getið alveg sleppt því að sjá hana, hún er varla þess virði að eyða tíma sínum í þó hún sé ekkert slæm beint.

En jáh.. held ég láti þetta duga í bili :)

Ætla samt að benda ykkur á að þessi síða er ótrúlega krúttleg og gaman að skoða hana. Þessi er alltaf jafn ógeðslega fyndin. Á sunnudögum er svo PostSecret síðan uppfærð og mæli ég með að þið skoðið hana. Hún getur bæði verið fyndin, átakanleg eða sorgleg... allt eftir kortunum hverju sinni.



Lög vikunnar:
Ampop - Youth
Ampop - Eternal Bliss
Ted Leo & The Pharmacists - Dial up
Ted Leo & The Pharmacists - The gold finch and the red oak tree
Mew - Special
GusGus - Ladyshave

P.S. Ég kem til Klakalands á laugardaginn og verð þar e-ð fram í febrúar (á eftir að ákveða hversu lengi ég verð). Vonast til að hitta sem flest ykkar þá, endilega hringið í mig... ég verð með gamla gsm-númerið mitt. Spilakvöld, SingStarkeppnir, kaffihúsaspjöll, át á Culiacan og American style og fl. er e-ð sem ég vonast til að gera mikið af... þannig ef ykkur langar til að gera e-ð af þessu... eða e-ð allt annað... call me :D

10.1.2006

Kvikmyndir og líðandi stund

Hæj og hó. Jáh, nú er allt að fara fjandans til, bloggfærslurnar streyma inn og þið lesendur góðir (þótt ekki svo margir séuð) vitið örugglega ekkert hvað þið eigið að halda. Greyin :)

Ég ætla að reyna að hafa þetta ekki langt í þetta sinn, ég er þreytt og þarf eiginlega að fara að sofa fljótlega. Hins vegar, jáh. Eins og mörg ykkar vitið nú þegar hef ég ákveðið að hætta í náminu. Ég ætla ekki að fara út í ástæður þess hér, allavega ekki að sinni. Allavega, ég er aðallega að nefna þetta hérna "opinberlega" afþví að ég vil segja takk. Allir sem ég hef talað um þetta við, foreldrar mínir, ömmur mínar, vinir og kunningjar hafa verið alveg þvílíkt yndislegir og sýnt mér mikinn stuðning. Ég get ekki lýst með orðum hvað mér þykir vænt um það en ég get sagt ykkur að það yljar mér um hjartarætur. Mér líður betur núna en mér hefur liðið í marga mánuði. Samt er margt flókið. Ég veit ekki hvaða landi ég á að búa í, hvað ég á að gera, hvenær ég á að fara aftur í nám, hvað ég á þá að læra o.s.frv. Ég ætla mér hins vegar bara að komast að því smám saman, með aðstoð fjölskyldu og vina vonandi :) Þessi óvissutilfinning veldur vissri vanlíðan, sérstaklega fyrir skipulagsfíkil eins og mig en ég ætla að reyna að láta það ekki draga mig niður. Nóg um það í bili... en... *STóRT KNúS* til fjölskyldunnar minnar og allra þeirra vina sem eru búnir að vera svona yndislegir :)

Þá er það hitt málefni dagsins. Kvikmyndir. Síðasta vika er búin að vera bíóvika mikil og hef ég síðan á föstudaginn farið 3x í bíó auk þess að horfa á nokkrar myndir á dvd.
S.s. á föstudaginn síðasta sá ég Narniu. Fyrsti helmingur myndarinnar var allt í lagi. Allt "umhverfi" myndarinnar og búningar finnst mér skemmtilegir þó svo að svo virðist sem leikstjórinn hafi kannski verið frekar heltekinn af því að láta þetta líkjast Hringadróttinssögu. Ef það var það sem hann var að reyna (eins og það lítur út fyrir) þá mistekst honum hrapalega. Umhverfið er fallegt en mjög, eins og ég vil orða það, disneylegt (enda um disneymynd að ræða). Myndatakann hefði mátt vera betri og stundum fannst mér þetta vera of mikið eins og teiknimynd (svona eins og fyrstu tvær HP myndirnar, ógeðslega ýktir litir og so on). Leikurinn er frekar misjafn en þó er áberandi hversu yngri systkinin tvö standa sig lang best. Fáninn fannst mér líka rosalega heillandi karakter og vel leikinn. Húmorinn fannst mér skemmtilegur og hafði bara ansi gaman af myndinni... framan af. Hins vegar, þegar myndin er kannski svona hálfnuð... fer þetta allt að stefna í óefni. Hvað gerist, júh.. myndin verður væmin. Ekki bara smá, heldur svo mikið að það veldur manni nánast ógleði. Allur þessi blessaði faldi boðskapur fer vitanlega í taugarnar á mér en hann hefði alveg mátt vera þarna samt... ef þeir hefðu ekki þurft að blanda honum saman við þennan væmnis-hrylling. Æj, jáh.. s.s. allt í lagi mynd, ef þú ert með sterkan maga :)

Þá er það Pride & Prejudice. Hún var frekar slæm. Ég veit að það er verið að hrúga á hana lofi og góðum dómum í ansi mörgum blöðum en við því segi ég þetta: Ef þér líkar vel við myndina og ert ekki gjörsamlega smekklaus manneskja þá er eina útskýringin sú að þú hefur ekki lesið bókina (né séð bbc-seríuna sem gerð var eftir bókinni).
Ég þarf líklega að koma með rök fyrir þessari fullyrðingu. Ég er varla að nenna því þar sem ég hef nú þegar eytt heilu kvöldi í að ræða hana fram og tilbaka en mér ég finnst ég varla getað sleppt því að nefna allavega e-ð.
Í fyrsta lagi; leikaraval og leikur = Hræðilegt. Hverjum datt í hug að ráða Keiru Knightley í þetta hlutverk? Er fólk ekki að grínast? Hún er alveg langt frá því að vera "hentug í það" og hún veldur því ekki. Hún er hreint út sagt bara ekki nógu góð leikona. Mér fannst hún frábær í Pirates og hún er góð í hlutverkum sem hún ræður við, en í þetta snilldarverk Jane Austin á hún ekkert erindi. Þeir sem passa vel í sín hlutverk mynd ég segja að væru eldri systirin Jane, Lady Catherine og svo hugsanlega Mrs. Bennet. Einnig má nefna að Charlotte Lucas var ekki svo slæmt þó hún sé kannski ekki alveg það sem fólk hefði ímyndað sér í þetta hlutverk. Ég ætla ekki einu sinni að byrja á að tala um yngri systurnar...
Mr. Bingley er leikinn eins og hann sé vanviti. Hann fær aldrei að koma út úr sér heilli setningu án þess að segja hana vitlaust, stama, verða orðlaus og enda á að bara brosa eins og fífl. Í bókinn er hann hinn fullkomni ungi maður. Hann er kurteis, klár, vinalegur, yndislegur við allt og alla, etc. Þarna er hann látinn líta út fyrir að vera hálfgerður vitlaus asni.
Mr.Darcy er í bókinni frekar hranalegur og (að því virðist) hrokafullur. Hins vegar er hann mjög myndarlegur og fágaður herramaður enda kominn af mjög ríkri fjölskyldu. Í myndinn virðist hann hins vegar vera frekar slow, fúllyndur leiðindablesi sem er alveg einstaklega ómyndarlegur og yfirleitt illa til fara.
Reyndar er það nú ekki honum greyið að kenna, búningahönnuðir þessarar myndir hafa verið einstaklega hræðilegir. Gott dæmi um það er kjólinn sem Lizzy fer í á hið fína ball sem haldið er í Netherfield.
Allavega... það er svoo margt... ég veit varla hvað ég á að segja næst... reyna að hafa þetta stuttorðað samt. Handritið, leikstjórnin... hræðilegt hræðilegt. Sagan er frekar illa sett fram, rosalega rosalega mörg atriði (sérstaklega í sambandi við venjur og hefðir, orsök og afleiðingu, hneyksli og fjölskyldumál) geta ekki annað en farið framhjá þeim sem ekki hafa lesið bókina áður enda eru þau ýmist illa sett fram eða ekki.
Allur... þokki.. allt yfirbragð... allt það sem er heillandi við þessa bók... tekst þeim ekki að setja fram í þessari mynd. Hvað er btw málið með húsið þeirra? Látið líta út fyrir að þau séu e-ð fátæk? Sem þau eru ekki... það er e-r misskilningur hjá leikstjóranum myndi ég halda.
Texti bókarinn... einkennist frekar mikið af.. svona.. gáfulegum húmor, netri hæðni, þokka... ekki í myndinni. Þeir týna úr... eina og eina setningu héðan og þaðan úr bókinn og nota... reyndar oftast bara hálfar setningar.. og skeyta saman... kemur illa út.
Ég gæti haldið áfram með þetta... gert heila ritgerð um þessa mynd þess vegna (kannski þegar ég er ekki alveg svona þreytt) en ég ætla ekki að gera það nú. Vil samt bara segja eitt, ef þið viljið kynna ykkur þessa sögu og nennið ekki að lesa bókina, SJÁIÐ bbc seríuna frá '95 sem var gerð eftir bókinni. Hún er frábær og allt það sem þessi kvikmynd er ekki.

Svo jáh, Brokeback Mountain. Ást samkynhneigðra kúreka (kindreka more like it). Kynlíf samkynhneigðra manna í bíósal sem er nánast fullur af nánast eingöngu miðaldra fólki. Það var áhugavert. Þetta var áhugaverð mynd. Það sem meira er, þessi mynd er nokkuð góð. Ég mæli með henni. Þegar ljósin kviknuðu í salnum við lok myndarinnar sá ég marga sem sátu nálægt mér strjúka í burtu tár. Ég verð víst að játa að ég táraðist á einum stað líka. Litli harðnaglinn ég (haha). Ekki besta mynd sem ég hef séð, en lang best af þeim myndum sem ég hef séð í bíó þessa síðastliðnu viku. Nokkuð sérstök. (Sko, ég get víst skrifað stutt review um mynd þó það hafi ekki tekist með síðustu mynd).

Svo jáh, mæli ég líka með Girlfight, ykkur mun kannski finnast hún líkjast smá einni annarri (mjög góðri) mynd, en þessi kom langt á undan henni. L'Auberge espagnole, mjög skemmtileg mynd um líf nokkurra skiptinema í Barcelona. Heillandi og skemmtileg. Síðast og eiginlega síst þó hún sé fín, Family Guy myndinn. Nasty húmor, skemmtileg mynd :)

Jesús, þetta átti ekki að verða svona langt... og ég ætlaði að vera löngu farin að sofa. En þarna.. jáh, vídeógláp planað á morgun í góðum félagsskap, þannig ef þið eruð (ó?)heppin mun ég halda áfram þessari blessuðu kvikmyndagagnrýni. Því miður er ég of þreytt til að fara að lesa þetta yfir. Ég þarf líka virkilega að fara að sofa því ég þarf að vakna á morgunn frekar snemma. Þannig.. tata... :)