4.4.2006

Sex on the beach




Beint fyrir utan gluggann minn er tré. Á föstudaginn tók ég eftir því að í þessu tré er hreiður. Það er í svona 4-5 metra fjarlægð frá umtöluðum glugga. Finnst yndislegt að hafa það þarna, sýnir að vorið er að koma :) Stend oft út við gluggann og fylgist með fuglinum, ótrúleg þolinmæði í þessum dýrum að liggja á eggjunum svona lengi. (Þetta er bara næstum eins og að hafa gæludýr!).

Helgin er búin að vera áhugaverð með meiru (í þetta sinn tel ég mánudaginn með helginni) :) Föstudagurinn var bara rólegur, vinur minn kom hérna seinnipartinn og var til miðnættis. Það var voða kósí; horfðum á bíómyndir og teiknimyndir, átum kebab og nammi og spjölluðum um daginn og veginn. Laugardagurinn var líka voða rólegur en mér til undrunar hringdi Hrafnhildur frænka í mig og sagði mér að hún væri stödd í Köben (ástæðan flugfreyjunámskeið á mánudeginum). Við ætluðum kannski að hittast til að borða saman en ákváðum svo að hittast frekar snemma á sunnudeginum til að fara saman að versla. Plönin breyttust svo aftur eftir miðnætti þegar hún ákvað bara að kíkja hingað og sátum við og spjölluðum e-ð fram á nótt.

*Varúð: Næstu línur fjalla um verslunarleiðangur, þeim sem halda að þeir muni deyja úr leiðindum við lestur slíks texta er bent á að "hoppa" niður að næstu greinaskilum.*
Vöknuðum seint á sunnudagsmorgninum og fórum beint niður í bæ. Komumst að því að það var kalt á Strikinu (gluggaveður!) og flestar búðir lokaðar þannig að við skelltum okkur bara í Fisketorvet. Vorum þarna frá hádegi og til ca. 17 (held ég). Ég keypti mér tvær peysur, jakka, gallabuxur og e-ð fleira og svo gaf Hrafnhildur mér aðrar gallabuxur í afmælisgjöf :) Venjulega haaaaata ég að versla buxur, það er ekkert smá mikið vesen fyrir mig að finna buxur sem passa :/ Við vorum hins vegar svo heppnar að lenda í Only-búðinni og komst ég að því mér til mikillar hamingju að þar er ekkert mál fyrir mig að finna buxur sem passa, jeij.

Héldum niðrá hótel (þar sem Hrafnhildur og allir af námskeiðinu dvöldu) og vorum svo uppgefnar að við enduðum á að leggja okkur í 2 tíma :P Fórum svo út og fengum okkur að borða á Jensen's Bøfhus. Eftir það skunduðum við í bíó á Pink Panther (hræðileg mynd) og enduðum á að fara á Café Norden um kl. 23 og fá okkur swiss mocca og gulrótaköku. Mmmmmm :D Það var samt frekar skondið fyrir þær sakir að þegar við komum inn var aðeins setið á tveimur öðrum borðum og eftir smá stund vorum við einu gestirnir þarna inni :) Venjulega er þessi staður svo troðinn að ekki er hægt að fá borð...


Anyways.. ég ákvað að gista á hótelinu þar sem að Hrafnhildur var hvort sem er ein í tveggja manna herbergi. E-ð varð okkur blaðurskjóðunum lítið um svefn og ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn mikið eins og zombie og þegar við þurfum að fara á fætur kl. 6:30 og ég hafði aðeins sofið í ca. klst. Hrafnhildur og allar hinar "freyjurnar" héldu á öryggisnámskeið upp á flugvelli beint eftir morgunmatinn en ég hélt heim (AÐ SOFA!)

Mánudagskvöldið/aðfaranótt þriðjudags... ég ætlaði að lýsa því.. en ég held þið mynduð ekki trúa mér hvort sem er. Set þetta hérna bara í stuttu máli: Hótel - aperitif. Besti ítalski veitingarstaðurinn í Kaupmannahöfn með ca. 10 rosa skemmtilegum flugfreyjunemum, æðislegum mat, daðrandi þjónum og fullt af víni. Kokteilbar/klúbbur með ca. 15 "freyjum" - dj, kokteilar, dansað þar til klúbburinn lokaði. Hótel - partý. Svefn á hóteli kl. 4:30. "Djamm" (váh, ég hef alltaf hatað þetta orð en finn bara ekkert betra) á mánudagskvöldi = málið ;) Komst að því að e-ð af partýgenunum frá mömmu og pabba hafa ratað í mig þrátt fyrir allt... þau eru bara voða oft í feluleik (þau og alvarleikinn/raunsæið eru ekki vinir) :P Kom heim á hádegi í dag.. bara búin að taka því rólega, ryksuga og svona... jeij.

Hvað ætlaði ég að segja ykkur fleira? Hmm jáh, ég er að fara á útitónleika með Sigur Rós í Lúxemborg í júlí! *hlakk* Er ekkert búin að plana sumarið en er bara að láta það ráðast af því hvenær tónleikar og aðrir viðburðir eru í hvaða landi hvar ég verð. Veit ég verð í DK í byrjun júní því þá fer ég með dönskum vini mínum að "heyra" Carmina Burana í tónleikasalnum í Tívolí. Svo greinilega í Lúx í byrjun Júlí og svo líklega brúðkaup hjá Boggu frænku á Norður-Jótlandi um miðjan júlí.

Jahm og já, tíminn líður svo hratt! Finnst þetta ár bara hafa flogið áfram so far. Það er kominn 4. apríl!!! :o Á morgun eiga þá bæði Gúndi og Kristrún afmæli, allir sem þau þekkja að muna að óska þeim til hamingju :) (Svo er 5.apríl náttla líka dánardagur Kurt Cobain's og Layne Staley's). Síðan er ég að verða gömul eftir 10 daga :S Omgs! :) Tæp vika í brottför til Lúxemborgar þannig ég er ekki viss um frá hvaða landi ég blogga næst dk, lu eða is.

Plata vikunnar er pottþétt: Daft Punk - Discovery


Yfir og út!

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kreisí girl!

Haltu áfram að skemmta þín og ekki vera hrædd við að prófa nýja hluti :)

Nafnlaus sagði...

Vá, þetta hljómar eins og það sé mikið og þá meina ég MIKIÐ fjör hjá ykkur...
ohh ég væri til í að kaupa mér fullt fullt af fötum.. gefa Lóu pening

Benedikta sagði...

Vásí! I didn't know you had it in you!

Ánægð með hana Hröbbu að draga þig út, litli djammarinn þinn :P

þú hefur semsagt fengið þér nokkra sex on the beach-a? Ég kann að blanda svoleiðis, ógisslega klár :D

Hlakka til að sjá þig sis, er að spá í að kíkja jafnvel með ykkur á þessa sigur-rósar tónleika.

p.s. vorum að kíkja aftur á íbúðina, sem er öll að koma til, ekkert smá flott :D það verður sturta með nuddi og gufu og einhverju fleira sjitti *mont*

:)

Salóme Mist sagði...

Hehehe, já ég er líka mjög ánægð með að hún skildi draga mig með í þetta! Var ekkert smá gaman :D
Úúú, ég var búin að gleyma að litla systa væri trainaður barþjónn.. hey! kannski ég ráði þig í vinnu fyrir afmælið mitt! ;D Kanntu líka að blanda Strawberry Daiquiri?? Mmmmm, sá er jafnvel ennþá betri en Sex on the beach!
Gaman að heyra með íbúðina þína! Kíki sko pottþétt í heimsókn næsta haust og fæ að prófa þessa ofur-sturtu ;)
En jáh, sjáumst eftir hvað.. 5 daga? Hlakka til! Líst btw vel á að þú ætlir með á Sigur Rós í sumar, það verður geðveikt! :D

Nafnlaus sagði...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, dúllan mín :D!!!
nú geturðu farið í Ríkið fyrir mig næst, hehe...
ˆknúsˆ

Xibei

Atli Sig sagði...

Til hammó með ammó!

Salóme Mist sagði...

Takk Xibei og Atli :)