Nú eru rúmlega þrjár vikur liðnar af árinu 2006. Mér finnst þetta ár hafa byrjað bara nokkuð vel (tja, fyrir utan viku veikindin). Finnst í raun ótrúlegt að það séu bara liðnir 24 dagar af þessu ári því að mér finnst svo rosalega mikið hafa breyst síðan það byrjaði. Mér finnst sérstaklega að ég hafi breyst og mín viðhorf til margra hluta líka. Held að ég sé víðsýnni manneskja en ég var í fyrra, hversu skringilega sem það kann að hljóma.
Þrátt fyrir að mér finnist eins og ég eigi að vera skelfingu lostin eftir þá ákvörðun mína að hætta í háskólanum þá er ég það ekki. Mér líður vel og er bara ánægð með sjálfa mig og lífið. Þrátt fyrir að ég þurfi á næstunni að fara að finna út úr því í hvaða landi ég ætla að búa og hvað ég ætla að gera við líf mitt næstu árin þá er það ekki að stressa mig. Ég nenni ekki að fara í e-ð stress út af því, er komin með ógeð á stressi, veseni og leiðindum. Finnst eins og að nýr kafli sé að hefjast í mínu lífi, vona bara að hann verði góður.
Nóg af þessu... skiptum yfir í gelgjuskap. Ég "skulda" víst það að setja upp hinn yndislega keðjubloggleik "Kommentaðu með nafni og ég segi þér..."" eða hvað þetta drasl heitir. Hins vegar spyr ég ykkur kæru lesendur, eru ekki allir komnir með hundleið á því? Á ég nokkuð að vera að setja þetta inn? Hafið þið e-n áhuga á að vita hvað mér finnst um ykkur? :)
Ég ætla hins vegar að sleppa mér í gelgjuskap með öðrum bloggleik núna og setja þetta inn:
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Annars ætlaði ég að nefna að ég hef séð nokkrar myndir síðan ég skrifaði síðustu færslu. Fór í bíó á "Don't come knocking". Hún er nokkuð skemmtileg að mínu mati, hafði mjög gaman af henni en ég er viss um að mörg ykkar væru ekki sama sinnis. Ef þið hafið ekki gaman af myndum sem ganga út á e-r pælingar eða eru ef til vill svolítið hægar, ekki sjá hana. Ef þið aftur á móti kunnið að meta myndir fyrir það sem þær eru, endilega sjáið hana.
Sá hana í bíói sem ég hef aldrei farið í áður, Grand Teatret. Það er rosalega töff bíó að mínu mati, lítið en ferlega kósí og sætt. Salurinn sem ég fór í var mjög lítill en hann var vel hannaður og ég get ekki kvartað yfir neinu þar (þess má geta að ég er mjög kröfuhörð á bíósali). Héðan í frá mega Palads og Dagmar Teatret fara í rass og rófu fyrir mér (nema salur 1 í Palads, hann er fínn). Imperial, Grand Teatret og Metropol eru mín bíó. CinemaX er svo sem ágætt og bíóið í Lyngby frábært en staðsetningin á þeim er ekki mér að skapi.
Sá einnig Deer Hunter með vini mínum. Ætla ekki að segja margt um hana nema bara það að hún var á sinn hátt mjög óhugnaleg og svo var hún svona klst of löng. Svo sá ég líka The Merchant of Venice með öðrum vini mínum. Held þið getið alveg sleppt því að sjá hana, hún er varla þess virði að eyða tíma sínum í þó hún sé ekkert slæm beint.
En jáh.. held ég láti þetta duga í bili :)
Ætla samt að benda ykkur á að þessi síða er ótrúlega krúttleg og gaman að skoða hana. Þessi er alltaf jafn ógeðslega fyndin. Á sunnudögum er svo PostSecret síðan uppfærð og mæli ég með að þið skoðið hana. Hún getur bæði verið fyndin, átakanleg eða sorgleg... allt eftir kortunum hverju sinni.

Lög vikunnar:
Ampop - Youth
Ampop - Eternal Bliss
Ted Leo & The Pharmacists - Dial up
Ted Leo & The Pharmacists - The gold finch and the red oak tree
Mew - Special
GusGus - Ladyshave
P.S. Ég kem til Klakalands á laugardaginn og verð þar e-ð fram í febrúar (á eftir að ákveða hversu lengi ég verð). Vonast til að hitta sem flest ykkar þá, endilega hringið í mig... ég verð með gamla gsm-númerið mitt. Spilakvöld, SingStarkeppnir, kaffihúsaspjöll, át á Culiacan og American style og fl. er e-ð sem ég vonast til að gera mikið af... þannig ef ykkur langar til að gera e-ð af þessu... eða e-ð allt annað... call me :D

13 ummæli:
Það er eins og þú hafir verið að uppgötva kvikmyndahúsin. þú ert barasta alltaf í bíó...
En hringdu í mig um leið og þú kemur á fallega klakan. Ég er ekki í þessum auka kúrs þannig ég er nánast free as a bird...
(ohh nú er bítla lagið farið að hljóma í hausnum á mér).
En góða skemmtun svo að ákveða í hvaða landi þú ætlar að búa.
1. Hver ert þú?
Ég er ég, og tel það alrangt hjá fólki er það segir "Ég er Jói" eða "Ég er Soffía."
Ég er ég, en heiti Tómas Gabríel Benjamin.
2. Erum við vinir?
Ég myndi nú eiginlega vona það ^^
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
Við hittumst fyrst held ég á bg.is bíóferð eða eitthvað þannig.
Talaði samt fyrst við þig á hinu víðsfræga irc-i.
4. Ertu hrifinn af mér?
Þú ert alfa og ómega-ið mitt, ég get ekki lifað án þess að vita innst inni að ég elski þig af öllum mínum anda.
-ish.
Þú trúir mér alveg, ekki satt?
^^
5. Langar þig að kyssa mig?
Uhm...
Svika-myllu-spurning?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
Hmm...
-ish girl!
Því...
-ish!
7. Lýstu mér í einu orði.
42
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
Ég sá sterka stelpu sem hélt hún vissi hvað hún vildi.
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
Nú sé ég sterkari stelpu sem er að læra hvað henni langar.
10. Hvað minnir þig á mig?
Hmm...
Póstkort.
Ég hugsa til þín þegar ég sé póstkort!
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
Fullt af póstkortum :)
12. Hversu vel þekkiru mig?
Við höfum þekkst í vel rúmlega þrjú ár og tel ég mig þekkja þig ágætlega.
-ish
13. Hvenær sástu mig síðast?
Við hittumst seinast í Nóvember ef ég man rétt er þú komst á klakann. Fórum á ömmukaffi og spjölluðum og spjölluðum og spjölluðum.
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
Erm...
Þessi spurning á heima hjá einhverjum feimnari en mér.
Ég segi ávalt það sem ég hugsa ^^
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Tja...
Nahh.
Blogg er ekki minn miðill :)
En ef ég væri með blogg myndi ég láta þessar spurningar þangað!
Jæja.. ég lofaði víst að svara þessu því þú gerðir það hjá mér.
1. Ég er Dah Mastah of Teh Universe. (aka hann er í hárinu á mér)
2. Nei.. við erum vinkonur! mwhaha.
3. Við hittumst, eins og fyrr kom fram, í bíl sem hmm.. líklega Gúndi keyrði... fórum heim til Nonna og horfðum á Virgin Suicides.
4. Alveg svakalega.. langar að stökkva á þig og bara grr..
5. Eins og fyrr sagði... langar að stökkva á þig og bara grr...
6. Mister. HAHA. Út af því að ég skírði kisuna mína eftir þér, en svo breytti kisan mín sér í strák.. og við breyttum nafninu á honum úr Mist í Mister.
7. Æði.
8. Mér leist bara ágætlega á þig. Spennt að sjá þessa Smist sem hafði verið að þvælast svona mikið á bg.is. Fannst þú svolítið feimin kannski.
9. Mér lýst mjög vel á þig.. *blikk* Núna þegar ég hef kynnst þér betur sé ég að þú ert ekkert það feimin... meira svona bara ekkert að trana þér fram.
10. Hveragerði, hestahótelið þarna rétt hjá og franskar kvikmyndir.
11. Knús (Bíddu bara þangað til á sunnudaginn!)
12. Bara ágætlega held ég. Við höfum kannski ekki haft mörg tækifæri til að spjalla bara tvær, en við spjölluðum alveg heilmikið á leiðinni til Hveragerðis.
13. Bara... úff.. sumar?
14. Nei það held ég ekki. Ég tjái mig yfirleitt um allt held ég.
15. Nei sko.. þú fékkst þetta á mínu bloggi!
1. ég er sætasta sætasta stelpan í öllum heiminum (ef þú kveikir ekki á perunni við þetta þá byrjar fyrsta nafnið mitt á L og annað á S og eftirnafnið á ó.
2. Já ég myndi nú segja það, eða hvað? (sápuóperuspenningslag).
3.Hmmmmm, hittumst fyrst 15 ágúst 2003, nei hef ekki hugmynd með það, alla vegana áður en þú og g byrjuðuð að mixa saman reitina.
4. Ekki í smútsísmú skilningi en finnst þú nú samt ansi heillandi manneskja til að umgangast.
5. Hmmm... hef prófað það, það var alveg nóg (reyndar bara koss á kinn).
6.Tuskudúkkuan (hljómar voðalega asnalega I know en er bara út af myndinni af þeim hérna á blogginu þínu), alltaf þegar ég hugsa til þín kveiknar í huganum á mér lagið raggí dolls raggí dolls djust for jú and mí
7. Hress
8.hmmmm.. vel minnir mig. Minnir að ég hafði hugsað jii hún er voðalega hljóðlát og róleg.
Hitti þig samt í fyrsta skiptið HElD ég þegar G. var annað hvort ný dottin eða með risa frunsu í andlitinu og var mest hugað við hversu hryllilegt ástandið var á drengnum.
9. nahh hef tekið eftir því að þú átt það til að vera allt annað en róleg eða þá hljóðlát *tíhíhí*
10. tuskudúkkurnar og múmínálfarnir og og ohh man ekki hvað teiknimyndin heitir darn it!!
11. Íslenskt súkkulaði, appelsín, mix, harðfisk, lakkrís og og og og teiknimyndir!
12. svona meðal vel, en held að það eigi nú allt eftir að breytast með tímanum. verður orðið súper vel eftir heimsókn þína á klakan.
13. hmmmm, ömmmmh *hugs* *klór í haus* útskriftinni þinni??? nei nú lýg ég, í mat hjá mömmu og pabba..
14. ég er ekki viss á því, ég er alltaf svo fljót að gleyma spurningum eða öðru sem ég vil segja við fólk. Ef ég hef e-ð að segja þá segi ég það bara... :) Hefur örugglega kynnst því frá mér
15. piff er nú ekkert viss um að þú munir svara þessu á blogginu mínu :)
1. Hver ert þú? Hjalti
2. Erum við vinir? þarf að spyrja,, ójá
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? á Ormaborðinu, held ég áður enþú byrjaðir í MH, en varst í heimsókn... ekki viss samt
4. Ertu hrifinn af mér? sem vin.. (tugga í þessu drasli)
5. Langar þig að kyssa mig? Já með svona breskum aðalsmanna stíl, hneygja sig og kissa höndina... nei samt ekki...
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. Salómu, svo væri hægt að segja SalóMuuu hehe
7. Lýstu mér í einu orði. Sjálfstæð
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? Fannst þú vera skrítinn.
9. Lýst þér ennþá þannig á mig? Nei, annarrs væri ég ekki að svara þessu eða hvað það er hægt að vera skemmtilega skrítinn...??
10. Hvað minnir þig á mig? Sing Star, Foo figthers, stærðfræði..
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? Nýjan bíl með loðnu hanskahólfi.
12. Hversu vel þekkiru mig? Ekki of mikið held ég
13. Hvenær sástu mig síðast? Í sing star partý heima hjá þér, long long ago.
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? já kannski... en ekkert sem hefur leggið á mér svo ég muni það.
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? Aftur.. einu sinni var nóg!
ae tu, biobrjalaedingur, eg sa skemmtilega mynd i Gap med Domi sem heitir Je vous trouve tres beau
veit ekki hvort tu finnur hana i Koben en maeli med henni.
Kom med TGV fra Lyon um hadegi og tad var slydda tegar eg var a leidinni i straeto fra Cannes til Vallauris. Hver segir ad tad se betra vedur a Cote Azur en a Klakalandi? Eg bara spyr....
Hlakka til ad hitta tig tar
Kn...Ma
1. Hver ert þú? edda engill
2. Erum við vinir? jámz
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? hehe.. í skátunum! ;D eitt sinn skáti ávallt skáti ;) En svo aftur í MH, eða í einhverju MH partý..
4. Ertu hrifinn af mér? Þú ert frábær!
5. Langar þig að kyssa mig? tvo kossa á kinnina ala italiano ;)
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. hmm.. Frakkalingur?
7. Lýstu mér í einu orði. ákveðin
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? hmm.. man það ekki sko..
9. Lýst þér ennþá þannig á mig? örugglega mikið betur þar sem ég þekki þig meira núna :)
10. Hvað minnir þig á mig? frakkland.. fra213, þar sem systir þín er með mér í áfanganum og þá dettur mér alltaf þú í hug..
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? uu.. hvað viltu?
12. Hversu vel þekkiru mig? ágætlega.. en samt ekki nóg..
13. Hvenær sástu mig síðast? hmm.. heima hjá sölva einhvern tíman fyrir löööngu.
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? nei, ég held ekki!
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? búin að því! ég er líka gelgja! ;)
Hlakka til að sjá þig!! :)
í sambandi við víðsýni. ég fann fyrir þessu sama þegar ég var úti. Það að standa svona á eigin fótum og að þurfa að taka mikilvægar ákvarðanir gefur manni verulega aðra sín á lífið og tilveruna sem er bara til góðs :)
Haha.. þú hefur afrekað að fara í fleiri bíóhús en ég gerði á 5 árum í DK..
1. Atli Teh Már Erlendsson
2. feitast! ÁÚ!!!!!!!!!!!!!
3.það er góð spurning og get ekki svarað henni og þú verður að gera það :S
4. feitast hrifinn af þér en er með Ingunni! next time babe ÁÚ!!!!!!!!
5. Já já, það yrði hressandi( þeir sem svöruðu nei eða urðu vandaræðalegir eru fags og hálvitar, svarið já eða ég drep ykkur)
6.Ég á það til að finna gælunöfn á fólk einn, tveir og þrír en bara kalla þig bara Salóme eða Salamí eins og þarna kjötið...mmmmmmm saaaaalaaaaaammmmí *slef*
7. kúl
8. hún er svöl
9. þú ert ennþá svöl *thumbs up*
10. hummm...
11. hummm.....mynd af mér svo þegar þér liði illa gætir þú horft á hana og munnað að ég er frábær og alltaf til staða til að bjarga deginum!
12. huummm...finnst eins og ég ætti að þekkja þig betur!
13. shjjiiiiitttt það var langt síðan! missti af þér síðast í þessu "GRÍÐARLEGA" party sem var síðast liðinn laugardagar þegar ég var í london að kickinn it með Dragonforce
14. fökk já! (minntu mig að segja þér það þegar þú hittir mig næst!)
15. fökk nei! les ekki blogg
16. ég ætla ekkert að stoppa sko!
17. Mwahahahaha ég held ennþá áfram!
18. humm ætti kannksi að klæða mig?
19. ahh búinn að klæða mig
20. haha föööökk búinn að skrifa 20 liði!
21. ætti ég að ná 30? jafnvel 50? nahhh er að fara vinna soon
22. djók var ekkert búinn að klæða mig! er á brókinni og bol! amon amarth bol nóta bene!
23. kekkekekekekekekke Atla Rush
24. ok er að fara klæða mig núna
25. úúúúúúúúúúú kókó puffs á gólfinu!
26. *kjamms*
27. i am all out of ideas núna :S
28. HAHA FÖKK NEI! www.4chan.org hörku síðan með viðbjóði!
29. áttu ennþá kærasta salóme? ef ekki á ég að húkka þig upp? er með eðal karlmenn í línum hjá mér sem grátbiðja mig mig um að húkka þá upp! enda er ég kallaður "Matchmaker from hell"
30. jæja nenni ekki meir og ÉG ER ENNÞÁ Á BRÓKINNI! WHATS WITH THAT? anyway later stelpa!
Atli Out!
1. Einar V. Bj. Maack
2. Tja.. já er það ekki bara?
3. Eftir að hafa spjallað á Friendster komstí heimsókn og fékkst myndir og diska lánaða
4. sem manneskju, já - en ekkert svollis..
5. á kynnina
6. Branda - útaf litla sæta kettlingnum á MSN myndini þinni
7. Fersk
8. Ágætlega - var reyndar hneykslaður á því að þú hefðir ekki hlustað á T. Waits..
9. Þú hefur hlustað á Tom Waits og þú ert alveg hörkuhress
10. Ég man það ekki..
11. Einkaþotu þannig að þú festist ekki ytra.
12. Veit það ekki, en ég vil gjarnan kynnast þér betur
13. Fyrir langa löngu
14. erh... nei
15. Búinn..
1. frekar heimspekileg spurning, ég heiti orri ef þú ert að fiska eftir því
2. eru einhverjir vinir? tæplega erum við vinir en ég myndi gera þér vinagreiða ef til þess kæmi.
3. spurning hvað má kalla fyrst. fyrst varstu fyrir mér manneskja á bakvið nikk á huga.
4. tæplega
5. ef það væri viðeigandi
6. misty - eins og lagið annars hélt ég fyrst að huga nikkið smist stæði fyrir SM-ist = sadó masó-ist, mér fannst það smá krípí.
7. einsorðsólýsanleg
8. bara svona hlutlaust.
9. já já.
10. myndin 8 femmes, ég man að þú sagðist eiga hana á DVD einu sinni.
11. betra ónæmiskerfi, þú segist svo oft vera veik.
12. ekkert svo vel.
13. innipúkanum?
14. ekki svo ég muni
15. ég sé til.
blogga kona góð blogga :)
Verðum að plana annan hitting í þessari viku... :)
Vil bara segja TAKK til allra sem svöruðu gelgjuleiknum :D Var mjög gaman að lesa þetta!! Sérstaklega það sem Atli Már skrifaði, ég gjörsamlega grenjaði úr hlátri hérna yfir því svari :D Takk Atli, þetta er bara uppáhalds kommentið mitt á þessu bloggi EVER :D (og til þess að svara spurningunni þá: nauhauts! kærasta? hvað heldurðu að ég nenni að hafa svoleiðis? ;) hehe).
Erhm.. og Orri.. þetta með nickið mitt... SM-ist... hafði aldrei pælt í því :S Vona innilega það séu ekki fleiri sem hafa haldið þetta!! :)
Skrifa ummæli