18.2.2006

“My good opinion once lost is lost forever.”

Jæja, ég ætlaði nú ekkert að blogga á meðan dvöl minni stæði hér á Íslandi en hins vegar bjóst ég nú heldur ekki við að hún yrði svona löng. Nú hef ég verið hérna í þrjár vikur og það styttist óðum í heimferð. Ég ætla ekki að blogga neitt um það sem á daga mína hefur drifið hér á Klakalandi enda samræmist það ekki tilgangi þessa bloggs, það var stofnað til þess að leyfa fjölskyldu og vinum að fylgjast með lífi mínu í Baunaveldi.

Ef ég ætti þó að nefna það mér þykir merkilegast við þessa Íslandsheimsókn mína þá væri það:
- Mín mikla ást á hnífum hefur aðeins minnkað (eftir mín snilldarlegu tilþrif sem enduðu með heimsókn á slysó).
- Ég talaði meiri dönsku hér á einu kvöldi heldur en ég hef gert á 6 mánuðum í Kaupmannahöfn (allt spurning um að finna rétta fólkið að tala við?)
- Enduruppgötvun á því hversu heimurinn er lítill.
- Komst að því að partý geta verið mjög skemmtileg þó svo að það sé engin tónlist spiluð! Því hefði ég aldrei trúað.

Eins og margir vita þá hef ég undanfarið verið að reyna að ákveða hvort ég eigi að búa áfram í Köben, flytja til Íslands eða flytja til Lúxemborgar með fjölskyldunni. Ég hef valið Köben. Er bara að byrja að leita að íbúð þar (má ekki búa áfram á kollegínunni þar sem ég er ekki í námi). Spennandi spennandi :)

Það sem ég hlakka til í augnablikinu:
- Party í kvöld (ég er búin að vera að hlakka til þess að fara þarna í meira en viku! ég! sem hef aldrei verið mikil partý-manneskja. Það var bara svo rosalega gaman síðast þegar þessi hópur hittist).
- Skoða í póstkassann minn þegar ég kem út til dk! :D
- Hitta 2 bestu vini mína í .dk, þeir eru svo mikil æði. sakna þeirra :)
- Depeche Mode tónleikar 25.feb
- Heimsókn Benediktu og The Cardigans tónleikarnir sem við ætlum saman á 1.mars
- Finna íbúð
- Fara til Lúx og skoða húsið sem fjölskyldan mín er að fara að flytja í
- Halda upp á tvíttugsafmælið mitt í apríl? :D

Annars get ég mælt með bæði Munich og Walk the line. Kem kannski með umfjöllun um þær seinna. Endurhorfði svo á Calendar girls í gær, hún er yndisleg!

Dúddúdú! Læt þetta nóg í bili... nema, ég ætla að láta hérna textabrot úr lagi með Maus sem hefur setið svolítið í mér:

ég vil aldrei, aldrei aftur heimsækja þig.
og ég vil aldrei aftur að þú heimsækir mig.
því nú loksins, loksins á ég vin sem skilur mig.
og ég vil aldrei, aldrei aftur snerta þig.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohh... ég eiginlega öfunda þig fyrir að eiga eftir að opna póstkassan þinn :) Það er alltaf svo gaman eftir langa fjarveru!!!
En það er alla vegana nóg framundan til að hlakka til!

Benedikta sagði...

Ohh.. Maus.. helvítis Maus.. þú vaktir mig með þeim í morgun! *urr*

hmm.. fer kannski bara að horfa á calendar girls.. já, það hljómar vel... en samt: *urr*

Atli Sig sagði...

Calendar girls yndisleg? Ég á bágt með að trúa því. :D

Djöfull eru Depeche Mode sniðugir að halda tónleika á afmælisdaginn minn!

Nafnlaus sagði...

Ég vona bara að þú hafir skemmt þér vel á laugardaginn í partíinu. Það var gaman að sjá þig þar.

Það var gaman að sjá þig brosa :)

Hlakka til þess að sjá þig aftur :)

ps. var Miles Davis að meika það?

Salóme Mist sagði...

Benedikta: Tíhíhí :D Þú þurftir hvort sem er að vakna, það voru að koma gestir! :P
Atli: Fuss! Þú ert bara fordómafullur! ;P
Tommi: Sömuleiðis :) Miles fór nú eiginlega bara framhjá mér, var spilað svo lágt og það var svo mikið skvaldur. Af því litla sem ég heyrði þá var ég meira að fíla Supertramp ;)