27.3.2006

Move your feet

Jæja, fyrst frekjustelpan er byrjuð að orga þá neyðist ég víst til að blogga ;)


Héðan er bara allt fínt að frétta, ég er reyndar orðin frekar leið á því að bíða eftir að vorið láti sjá sig en það hlýtur nú að fara að gerast! Ætla ekkert að fara út í veðurlýsingar til að drepa ykkur nú ekki úr leiðindum :D

The Cardigans voru æði og við systurnar skemmtum okkur vel :) Reyndar fór mjöðmin mín í fokk (hún á það til að gera það, kenni öllu búðarrápinu um!) og það var rétt svo að ég kæmist heim (frekar sársaukafullt). Eftir að Benedikta fór heim til Íslands eyddi ég næstum viku í e-r frekar smávægileg veikindi. Fór svo í bólusetningu við mislingum, rauðum hundum og hettusótt. Er annars aðallega búin að eyða tíma mínum hér í chill, póstkortaskrif og hangs með vinum :P

Síðustu helgi var kíkt á bar-maraþon á kollegíu hjá vinkonu mi
nni og þessi helgi var bíóhelgi :) Á föstudaginn fór ég með breska vini mínum á jazzklúbb þar sem við sáum klukkustundarlanga, svarthvíta, danska bíómynd án hljóðs frá 1919 sem heitir "Mod Lyset". Undir spilaði jazz-pönk bandið Bugpowder á ansi skemmtilegan hátt :) Síðan var sýnd 15 mínútna stuttmynd sem kallast "Lövejagten" en hún er frá 1907 og því að sjálfsögðu hljóðlaus líka en tónlist spilaði undir að þessu sinni DJ sem kallar sig Track 72. Áhugaverð stuttmynd að mjög mörgu leiti, t.d. fyrir það að hún er tekin á danskri eyju í Hróarskeldufirði en í henni eru zebrahestur, apar og ljón. Ljónið er skotið í myndinni og það húðflett (áður en það gerðist hafði það líka ráðist á hest og bitið hestinn svo illa að hann þurfti að aflífa). Einnig voru veiðimennirnir tveir (sem voru aðalpersónur myndarinnar) með svartan þræl. Þannig, þrælahald og dýradráp... þessi mynd er ansi rosaleg, ekkert "no animals were harmed during the making of this movie". Ef PETA hefði verið á staðnum hefði örugglega verið slett málingu og fjör. Þessi mynd var ein fyrsta mynd Nordisk Films fyrirtækisins til þess að verða vinsæl en hún var hins vegar bönnuð í Danmörku þar til 1911 vegna slátruninnar á ljóninu. Þessi viðburður var hluti af NatFilmFestivalen sem byrjaði s.s. á föstudaginn síðasta og mun standa til 2. apríl. Vonandi mun ég ná að sjá fleiri myndir á hátíðinni, það er alveg þvílíkur fjöldi af spennandi myndum sem verður sýndur :)

Á laugardaginn fór ég svo að sjá "V for Vendetta" með strák sem var með mér í námi. Var frekar skondið að ég þekkti hann ekki þegar ég sá hann og brá ekkert smá þegar hann heilsaði! :) Hafði ekki séð hann síðan í desember og hann hafði breyst ansi mikið við að fara í klippingu (var áður með sítt hár). En já, þetta er sérstök mynd. Góð en frekar erfitt að fylgjast með öllu sem kemur fram og er gefið í skyn. Þarf að sjá hana aftur þegar hún kemur út á dvd en ég mæli með henni :)



Síðustu daga er ég búin að vera á fullu í íbúðarmálum, búin að skoða 10 íbúðir! Rosa spennandi! :)

Uhm.. jáh.. ég held ég hafi bara ekki öðru að segja frá í bili, ég er pottþétt að gleyma e-u sem ég ætlaði að skrifa um en það verður bara að hafa það. Hlakka til að sjá ykkur öll í apríl, kem til landsins 18.apríl (eftir viku dvöl í Lúxemborg). Reikna með að halda e-ð upp á tvítugsafmælið helgina eftir að ég kem... uh.. ákveðið betur seinna, læt vita...

Látið í ykkur heyra, les þetta e-r lengur? Ég vil comment takk :)

Hlustað á þessa dagana: Thievery Corporation, Dresden Dolls, Tool, Daft Punk, Hairdoctor, The Fiery Furnaces, Trabant.... ásamt því að ég tók kast í 90's poppi og danstónlist... og svo smá diskói... (já, ég þarf að panta mér tíma hjá geðlækni hið snarasta). Get annars ekki beðið eftir að Junior Senior diskurinn sem ég var að panta mér skili sér! Move your feet er skemmtilegasta lag í heimi! :D Fuck the pain away með Peaches og Coin-operated boy með Dresden Dolls og fullt af lögum með Daft Punk eru líka æði.... ég elska radioblogclub.com!!!!

7 ummæli:

Benedikta sagði...

Alveg sammála þér með radioblogclub.com... algjör lifesaver :D

Ég les alltaf bloggið þitt... verst hvað þú ert jafn löt við það að blogga og ég :P

hey já, tjekkaðu á mailinu þínu, ég var að senda þér myndir af afrakstri næturinnar í hernaðaraðgerðunum gegn MR. ^^

Salóme Mist sagði...

Hæj sæta systa!
Takk fyrir að kommenta! :D Og takk aftur fyrir að benda mér á radioblogclub! ;)
Jáh, bloggleti er faraldur virðist vera..
Sá myndirnar, þær eru snilld! Snilld snilld! Hló mig máttlausa hérna :D

Nafnlaus sagði...

það liggur nú bara við að þú flytjir í bíó borgarinnar!! :p

Nafnlaus sagði...

Jeiiii meme búin að blogga, jeiiiijjj *sjibbí*

Gaman gaman

Nafnlaus sagði...

Mjámm :)

Þú veist að ég les ávalt bloggið þitt :)

Ég hlakka til að fá þig á landið.

Sjáumst.

Atli Sig sagði...

Move Your Feet er hresst lag en það er líka, að mínu mati, eina virkilega góða lagið þeirra Junior Senior manna. Allaveganna fannst mér þeir ekkert spes fyrir utan það lag á Airwaves. Aðeins of hressir fyrir minn smekk.

Hjalti sagði...

Les líka... en á erfitt með að kommenta oft... en ef þetta kemur í gegn er ég að ná þessu!