10.1.2006

Kvikmyndir og líðandi stund

Hæj og hó. Jáh, nú er allt að fara fjandans til, bloggfærslurnar streyma inn og þið lesendur góðir (þótt ekki svo margir séuð) vitið örugglega ekkert hvað þið eigið að halda. Greyin :)

Ég ætla að reyna að hafa þetta ekki langt í þetta sinn, ég er þreytt og þarf eiginlega að fara að sofa fljótlega. Hins vegar, jáh. Eins og mörg ykkar vitið nú þegar hef ég ákveðið að hætta í náminu. Ég ætla ekki að fara út í ástæður þess hér, allavega ekki að sinni. Allavega, ég er aðallega að nefna þetta hérna "opinberlega" afþví að ég vil segja takk. Allir sem ég hef talað um þetta við, foreldrar mínir, ömmur mínar, vinir og kunningjar hafa verið alveg þvílíkt yndislegir og sýnt mér mikinn stuðning. Ég get ekki lýst með orðum hvað mér þykir vænt um það en ég get sagt ykkur að það yljar mér um hjartarætur. Mér líður betur núna en mér hefur liðið í marga mánuði. Samt er margt flókið. Ég veit ekki hvaða landi ég á að búa í, hvað ég á að gera, hvenær ég á að fara aftur í nám, hvað ég á þá að læra o.s.frv. Ég ætla mér hins vegar bara að komast að því smám saman, með aðstoð fjölskyldu og vina vonandi :) Þessi óvissutilfinning veldur vissri vanlíðan, sérstaklega fyrir skipulagsfíkil eins og mig en ég ætla að reyna að láta það ekki draga mig niður. Nóg um það í bili... en... *STóRT KNúS* til fjölskyldunnar minnar og allra þeirra vina sem eru búnir að vera svona yndislegir :)

Þá er það hitt málefni dagsins. Kvikmyndir. Síðasta vika er búin að vera bíóvika mikil og hef ég síðan á föstudaginn farið 3x í bíó auk þess að horfa á nokkrar myndir á dvd.
S.s. á föstudaginn síðasta sá ég Narniu. Fyrsti helmingur myndarinnar var allt í lagi. Allt "umhverfi" myndarinnar og búningar finnst mér skemmtilegir þó svo að svo virðist sem leikstjórinn hafi kannski verið frekar heltekinn af því að láta þetta líkjast Hringadróttinssögu. Ef það var það sem hann var að reyna (eins og það lítur út fyrir) þá mistekst honum hrapalega. Umhverfið er fallegt en mjög, eins og ég vil orða það, disneylegt (enda um disneymynd að ræða). Myndatakann hefði mátt vera betri og stundum fannst mér þetta vera of mikið eins og teiknimynd (svona eins og fyrstu tvær HP myndirnar, ógeðslega ýktir litir og so on). Leikurinn er frekar misjafn en þó er áberandi hversu yngri systkinin tvö standa sig lang best. Fáninn fannst mér líka rosalega heillandi karakter og vel leikinn. Húmorinn fannst mér skemmtilegur og hafði bara ansi gaman af myndinni... framan af. Hins vegar, þegar myndin er kannski svona hálfnuð... fer þetta allt að stefna í óefni. Hvað gerist, júh.. myndin verður væmin. Ekki bara smá, heldur svo mikið að það veldur manni nánast ógleði. Allur þessi blessaði faldi boðskapur fer vitanlega í taugarnar á mér en hann hefði alveg mátt vera þarna samt... ef þeir hefðu ekki þurft að blanda honum saman við þennan væmnis-hrylling. Æj, jáh.. s.s. allt í lagi mynd, ef þú ert með sterkan maga :)

Þá er það Pride & Prejudice. Hún var frekar slæm. Ég veit að það er verið að hrúga á hana lofi og góðum dómum í ansi mörgum blöðum en við því segi ég þetta: Ef þér líkar vel við myndina og ert ekki gjörsamlega smekklaus manneskja þá er eina útskýringin sú að þú hefur ekki lesið bókina (né séð bbc-seríuna sem gerð var eftir bókinni).
Ég þarf líklega að koma með rök fyrir þessari fullyrðingu. Ég er varla að nenna því þar sem ég hef nú þegar eytt heilu kvöldi í að ræða hana fram og tilbaka en mér ég finnst ég varla getað sleppt því að nefna allavega e-ð.
Í fyrsta lagi; leikaraval og leikur = Hræðilegt. Hverjum datt í hug að ráða Keiru Knightley í þetta hlutverk? Er fólk ekki að grínast? Hún er alveg langt frá því að vera "hentug í það" og hún veldur því ekki. Hún er hreint út sagt bara ekki nógu góð leikona. Mér fannst hún frábær í Pirates og hún er góð í hlutverkum sem hún ræður við, en í þetta snilldarverk Jane Austin á hún ekkert erindi. Þeir sem passa vel í sín hlutverk mynd ég segja að væru eldri systirin Jane, Lady Catherine og svo hugsanlega Mrs. Bennet. Einnig má nefna að Charlotte Lucas var ekki svo slæmt þó hún sé kannski ekki alveg það sem fólk hefði ímyndað sér í þetta hlutverk. Ég ætla ekki einu sinni að byrja á að tala um yngri systurnar...
Mr. Bingley er leikinn eins og hann sé vanviti. Hann fær aldrei að koma út úr sér heilli setningu án þess að segja hana vitlaust, stama, verða orðlaus og enda á að bara brosa eins og fífl. Í bókinn er hann hinn fullkomni ungi maður. Hann er kurteis, klár, vinalegur, yndislegur við allt og alla, etc. Þarna er hann látinn líta út fyrir að vera hálfgerður vitlaus asni.
Mr.Darcy er í bókinni frekar hranalegur og (að því virðist) hrokafullur. Hins vegar er hann mjög myndarlegur og fágaður herramaður enda kominn af mjög ríkri fjölskyldu. Í myndinn virðist hann hins vegar vera frekar slow, fúllyndur leiðindablesi sem er alveg einstaklega ómyndarlegur og yfirleitt illa til fara.
Reyndar er það nú ekki honum greyið að kenna, búningahönnuðir þessarar myndir hafa verið einstaklega hræðilegir. Gott dæmi um það er kjólinn sem Lizzy fer í á hið fína ball sem haldið er í Netherfield.
Allavega... það er svoo margt... ég veit varla hvað ég á að segja næst... reyna að hafa þetta stuttorðað samt. Handritið, leikstjórnin... hræðilegt hræðilegt. Sagan er frekar illa sett fram, rosalega rosalega mörg atriði (sérstaklega í sambandi við venjur og hefðir, orsök og afleiðingu, hneyksli og fjölskyldumál) geta ekki annað en farið framhjá þeim sem ekki hafa lesið bókina áður enda eru þau ýmist illa sett fram eða ekki.
Allur... þokki.. allt yfirbragð... allt það sem er heillandi við þessa bók... tekst þeim ekki að setja fram í þessari mynd. Hvað er btw málið með húsið þeirra? Látið líta út fyrir að þau séu e-ð fátæk? Sem þau eru ekki... það er e-r misskilningur hjá leikstjóranum myndi ég halda.
Texti bókarinn... einkennist frekar mikið af.. svona.. gáfulegum húmor, netri hæðni, þokka... ekki í myndinni. Þeir týna úr... eina og eina setningu héðan og þaðan úr bókinn og nota... reyndar oftast bara hálfar setningar.. og skeyta saman... kemur illa út.
Ég gæti haldið áfram með þetta... gert heila ritgerð um þessa mynd þess vegna (kannski þegar ég er ekki alveg svona þreytt) en ég ætla ekki að gera það nú. Vil samt bara segja eitt, ef þið viljið kynna ykkur þessa sögu og nennið ekki að lesa bókina, SJÁIÐ bbc seríuna frá '95 sem var gerð eftir bókinni. Hún er frábær og allt það sem þessi kvikmynd er ekki.

Svo jáh, Brokeback Mountain. Ást samkynhneigðra kúreka (kindreka more like it). Kynlíf samkynhneigðra manna í bíósal sem er nánast fullur af nánast eingöngu miðaldra fólki. Það var áhugavert. Þetta var áhugaverð mynd. Það sem meira er, þessi mynd er nokkuð góð. Ég mæli með henni. Þegar ljósin kviknuðu í salnum við lok myndarinnar sá ég marga sem sátu nálægt mér strjúka í burtu tár. Ég verð víst að játa að ég táraðist á einum stað líka. Litli harðnaglinn ég (haha). Ekki besta mynd sem ég hef séð, en lang best af þeim myndum sem ég hef séð í bíó þessa síðastliðnu viku. Nokkuð sérstök. (Sko, ég get víst skrifað stutt review um mynd þó það hafi ekki tekist með síðustu mynd).

Svo jáh, mæli ég líka með Girlfight, ykkur mun kannski finnast hún líkjast smá einni annarri (mjög góðri) mynd, en þessi kom langt á undan henni. L'Auberge espagnole, mjög skemmtileg mynd um líf nokkurra skiptinema í Barcelona. Heillandi og skemmtileg. Síðast og eiginlega síst þó hún sé fín, Family Guy myndinn. Nasty húmor, skemmtileg mynd :)

Jesús, þetta átti ekki að verða svona langt... og ég ætlaði að vera löngu farin að sofa. En þarna.. jáh, vídeógláp planað á morgun í góðum félagsskap, þannig ef þið eruð (ó?)heppin mun ég halda áfram þessari blessuðu kvikmyndagagnrýni. Því miður er ég of þreytt til að fara að lesa þetta yfir. Ég þarf líka virkilega að fara að sofa því ég þarf að vakna á morgunn frekar snemma. Þannig.. tata... :)

14 ummæli:

Nafnlaus sagði...

góður húmor að telja manni trú um að bloggfærslan eigi að vera stutt :) Ég las og las og las og las og aldrei ætlaði þetta að taka enda :)

en þetta var virkilega skemmtileg færsla, err kannski ekki alveg sammála þér með Narniu myndina, fannst hún mjög góð, en samt smá væmin.

En það er greinilegt að ég er að fara horfa á þessa pride and prejudice, verð að geta séð svona hræðilega mynd *tíhí*

En ég verð að óskipulagið þitt er þó komið með eitthvað skipulag, þú ert búin að taka einhverjar ákvarðanir sem munu leiða að því að þú verður komin með gott skipulag á hlutunum á innan við nokkrum vikum!!

En vonandi gengur þér óskaplega vel að taka allar ákvarðanir, og er alveg handviss um að þú munir gera það sem er þér er fyrir bestu, hvað sem það verður!!

En ég er örugglega komin með komment sem er jafnt langt og færslan þín þannig :)
bleble

Salóme Mist sagði...

Takk aftur fyrir gott og langt komment Lóa :) Löng komment eru bezt!

Jáh, eins og ég sagði, mér líður rosalega vel eftir að hafa loksins tekið þessa ákvörðun. Fyrsta skrefið er tekið, restin hlýtur að fylgja (sjálfkrafa?) í kjölfarið :P

Þykir fyrir því hvað færslan varð löng! Hún átti ekkert að verða það! :D :S Frekar en allar hinar :P Ég hef bara bloggræpu á háu stigi að því virðist! :) Þetta var ekki e-r skipulagður sálrænn blekkingarleikur til þess gerður að plata fólk til að lesa alla færsluna :D errr *hóst*

Og jáh, mér fannst Narnía líka þannig séð góð... átti bara erfitt með að.. jáh, njóta hennar fyrir klígju seinni helming hennar :)

Og Pride & Prejudice var ekki vond mynd, hún var bara ekki Pride & Prejudice og barasta ekkert í líkingu við það sem hún ætti að vera. Ef þetta ætti að vera bara e-r mynd, þá væri hún kannski.. sæmileg. En þar sem þetta Á AD VERA P&P og hún er svo langt frá því að vera það... þá er hún slæm sem slík.

P.S. Hvernig líst þér á spilakvöld eða e-ð meðan ég er á klakalandi? (kem 28.jan) Væri gaman að hitta þig :)

Nafnlaus sagði...

já ég er meir en til að hitta þig og hafa spila kvöld :) En þú verður að lofa mér að ég fái að vinna *tíhí* En hvað verðuru lengi á landinu? Ég er að fara taka kúrs sem líkur 9 feb. en ég ætti nú að geta tekið eitt kvöld í frí fyrir þig :) Bara segja mér hvar og hvenær :)

Löng comment og löng blogg eru alltaf í góðu lagi ef þau eru skemmtileg þannig lengdin hjá þér er en í lagi. Um leið og þú ferð að skrifa 3 bls langt blogg um litlu pödduna í herberginu þínu og hvernig þið hafið verið að tala saman um stjórnmála flokka!!

Salóme Mist sagði...

Frábært! Hehe, get ekki lofað að þú fáir að vinna, ég er svo mikil keppnismanneskja :P Að leyfa fólki að vinna er ekki til í mínum orðaforða :D
Ég á miða aftur til dk 5.feb en ég ætla mér að lengja ferðina.. veit ekki alveg hversu lengi en líklega til svona ca. 14.feb. Þannig ef það hentar þér betur að hittast eftir að þessum kúrs lýkur þá er það fine with me :) Heyrumst bara með þetta þegar nær dregur ;)
Og jáh, ég skal reyna að fara ekki út í að skrifa um e-ð svoleiðis á bloggið mitt :D Sem betur fer hef ég mjög takmarkaðan áhuga á stjórnmálum! :P

Nafnlaus sagði...

Held að litla paddan sem er í herberginu þínu væri alveg til í að tala um stjórnmál. Ég hef heyrt að hún sé með ansi fjörugt sjónarhorn á þeim að hver sem er myndi tala um þau við hana :)

Hvað heitir litla skordýrið ? Endilega skrifaðu blogg um hana *tíhí*

Salóme Mist sagði...

Litla? LITLA?!?! Hún er sko ekki sátt við að vera kölluð lítil!

Nafnlaus sagði...

nú fyrirgefðu stóra paddan, hvað heitir hún ?? Úhh vonandi einhverju flottu nafni. en það er langt síðan að mar hefur fengið fréttir af henni... hvað hefur hún verið að gera síðan síðast?

Salóme Mist sagði...

Ég má því miður ekki gefa það upp, stóra paddan er undir vitnavernd eftir að hafa verið hótað lífláti af meindýraeyði sem hafði andstyggð á stjórnmálum.

Nafnlaus sagði...

Þá áttu að senda pödduna til Tommalands!

Við erum með félagslegt hæli (social assylum?) fyrir þá sem hafa framið hina hræðilegustu glæpi sem pöddum getur hugsað sér!

Sérstaklega pólitíska glæpi!

Endinlega gefðu okkur góða og langa pólitíska grein, og flúðu síðan landið!

Nafnlaus sagði...

hæhæ, xibei hér. ég hef ekki getað klárað að lesa þessa færlsuna þína en ég ætla bara að láta þig vita að mynd eftir bókina ´´memoirs og a Geisha´´er að verða frumsýnd hér á íslandi sama dag og ´´Pride and Prejudice´´´ég er búin að hlakka til geðveikislega eftir þessar tvær myndir og ég sá að þér leist ekki vel á PP(pride and prejudice:D) en ég hef eiginlega aldrei séð Keira leika en mér einhvern veginn finnst hún frekar lík manneskjuna sem ég ímyndaði mér í hlutverkið en úff ég vona að ég verði ekki vonsvikin. en alla vega lestu memoirs of a Geisha ef þú hefur ekki núþegar gert það. ég elskaði þennan bók gat einfaldlega ekki látið hana frá mér þegar ég var lesa (reyndar hlusta:)
jæja, take care, þú sem ert alltaf veik og alltaf away, you know what i mean ;)

Nafnlaus sagði...

Ég fór einmitt á Brokeback Mountain í gærkvöldi, og líkaði mjög vel. Adda mínum fannst hún alls ekki nógu góð, helst vegna þess hve hæg hún var. Ég kunni vel að meta rólegheitin. Það fer samt alveg eftir skapinu sem ég er í hverju sinni hvort ég fíli hægar myndir.. En nóg um það..
Ég mæli líka með henni og ætla að mæla með henni við kærasta mömmu minnar og minnast bara á að hún sé um kúreka... =)

Nafnlaus sagði...

Hey...vissi ekki af þessu með námið:/ en það er gott að þú ert ekki ein af þessum sem heldur áfram í eitthverju sem er ekki skemmtilegt...vonandi geriru eitthvað sniðugt við tíman;)

Salóme Mist sagði...

Xibei: Jáh, ég er soldið forvitin að sjá Geishu myndina... Efast samt um að ég fari að sjá hana fyrr en kannski bara þegar ég kem til Íslands. Hef ekki lesið bókina en mun pottþétt gera það e-r tímann :) Mæli með að þú sjáir P&P BBC seríuna líka (get lánað þér hana á meðan ég er á íslandi ef þú vilt?) Take care too ;)

Tinna: Gaman að heyra að þér líkaði hún vel :) Fannst það.. hæfa henni að vera svona hæg :P Ég bíð spennt eftir að heyra hvað kærasti mömmu þinnar segir um hana ef hann fer að sjá hana... :D

Lóa Magga: Það er alls ekki það að námið sé ekki skemmtilegt. Þetta er pottþétt e-ð sem ég hef mjög gaman af að læra. Ég bara... get ekki staðið í þessu núna, ég þarf að taka smá hlé frá námi.

Atli Sig sagði...

Hafiði séð trailerinn fyrir Memoirs Of Geisha? Hún virkar alveg HRÆÐILEG. Bókin er eflaust fín en þessi mynd virðist ógeðslega mikið vera að rembast við að vera rosalega cool og töff sem svona mynd á ekki beint að vera. Svo er hún öll á bjagaðri ensku að því er virðist sem gerir hana eflaust enn bjánalegri. Ég held þetta sé bara e-ð sellout crap gert fyrir Bandarískan markað, svona mynd sem er gerð til að vinna óskarinn.