26.2.2006

The sound of music...

Fór að sjá Depeche Mode í gærkvöldi, alveg frábærir tónleikar :) Frekar magnaði líka að fara á svona tónleika í Parken, ekkert smááá mikið af fólki þarna! :D (40-50 þúsund manns?) Samt gekk allt eins og smurt, tók enga stund að komast inn etc. Danir kunna að skipuleggja :) Núna hefst bara biðin eftir næstu tónleikum! Fer að sjá The Cardigans með systur minni á miðvikudaginn :) Úh, og svo fer ég á Belle & Sebastian í maí!!! Svo er bara spurning, á maður að kaupa sér miða á Iron Maiden í nóvember? Salan hefst á morgun og það selst örugglega strax upp... Ætla bara að hafa þessa færslu stutta, er eiginlega bara alveg búin eftir þessa helgi, hún er búin að vera alveg mega sweet :) Í dag verður því bara tekið rólega og tekið til! Held herbergið mitt/íbúðin hafi aldrei verið jafn... ruslaraleg :P

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

lóa rosaleg gáfuð um tónlist.. hef ekki græna hvern nein af þessum hljómsveitum eru... veit bara af nafni hverjir iron maiden eru, en hef ekki græna hvaða lög þeir/þau/þær flytja :)

Benedikta sagði...

Öss... ruslaraleg íbúð, varstu að halda partí??

en jess, ég kem á morgun :D

og lóa, skamm... salóme, taktu hana í smá tónlistarnámskeið!

Nafnlaus sagði...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!

Nafnlaus sagði...

Langt síðan ég hef kommentað!!

En ég held að ég þurfi að mæta á þetta tónlistarnámskeið líka! ;op