26.2.2006
The sound of music...
18.2.2006
“My good opinion once lost is lost forever.”
Ef ég ætti þó að nefna það mér þykir merkilegast við þessa Íslandsheimsókn mína þá væri það:
- Mín mikla ást á hnífum hefur aðeins minnkað (eftir mín snilldarlegu tilþrif sem enduðu með heimsókn á slysó).
- Ég talaði meiri dönsku hér á einu kvöldi heldur en ég hef gert á 6 mánuðum í Kaupmannahöfn (allt spurning um að finna rétta fólkið að tala við?)
- Enduruppgötvun á því hversu heimurinn er lítill.
- Komst að því að partý geta verið mjög skemmtileg þó svo að það sé engin tónlist spiluð! Því hefði ég aldrei trúað.
Eins og margir vita þá hef ég undanfarið verið að reyna að ákveða hvort ég eigi að búa áfram í Köben, flytja til Íslands eða flytja til Lúxemborgar með fjölskyldunni. Ég hef valið Köben. Er bara að byrja að leita að íbúð þar (má ekki búa áfram á kollegínunni þar sem ég er ekki í námi). Spennandi spennandi :)
Það sem ég hlakka til í augnablikinu:
- Party í kvöld (ég er búin að vera að hlakka til þess að fara þarna í meira en viku! ég! sem hef aldrei verið mikil partý-manneskja. Það var bara svo rosalega gaman síðast þegar þessi hópur hittist).
- Skoða í póstkassann minn þegar ég kem út til dk! :D
- Hitta 2 bestu vini mína í .dk, þeir eru svo mikil æði. sakna þeirra :)
- Depeche Mode tónleikar 25.feb
- Heimsókn Benediktu og The Cardigans tónleikarnir sem við ætlum saman á 1.mars
- Finna íbúð
- Fara til Lúx og skoða húsið sem fjölskyldan mín er að fara að flytja í
- Halda upp á tvíttugsafmælið mitt í apríl? :D
Annars get ég mælt með bæði Munich og Walk the line. Kem kannski með umfjöllun um þær seinna. Endurhorfði svo á Calendar girls í gær, hún er yndisleg!
Dúddúdú! Læt þetta nóg í bili... nema, ég ætla að láta hérna textabrot úr lagi með Maus sem hefur setið svolítið í mér:
ég vil aldrei, aldrei aftur heimsækja þig.
og ég vil aldrei aftur að þú heimsækir mig.
því nú loksins, loksins á ég vin sem skilur mig.
og ég vil aldrei, aldrei aftur snerta þig.
24.1.2006
Góð byrjun á ári?
Þrátt fyrir að mér finnist eins og ég eigi að vera skelfingu lostin eftir þá ákvörðun mína að hætta í háskólanum þá er ég það ekki. Mér líður vel og er bara ánægð með sjálfa mig og lífið. Þrátt fyrir að ég þurfi á næstunni að fara að finna út úr því í hvaða landi ég ætla að búa og hvað ég ætla að gera við líf mitt næstu árin þá er það ekki að stressa mig. Ég nenni ekki að fara í e-ð stress út af því, er komin með ógeð á stressi, veseni og leiðindum. Finnst eins og að nýr kafli sé að hefjast í mínu lífi, vona bara að hann verði góður.
Nóg af þessu... skiptum yfir í gelgjuskap. Ég "skulda" víst það að setja upp hinn yndislega keðjubloggleik "Kommentaðu með nafni og ég segi þér..."" eða hvað þetta drasl heitir. Hins vegar spyr ég ykkur kæru lesendur, eru ekki allir komnir með hundleið á því? Á ég nokkuð að vera að setja þetta inn? Hafið þið e-n áhuga á að vita hvað mér finnst um ykkur? :)
Ég ætla hins vegar að sleppa mér í gelgjuskap með öðrum bloggleik núna og setja þetta inn:
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Annars ætlaði ég að nefna að ég hef séð nokkrar myndir síðan ég skrifaði síðustu færslu. Fór í bíó á "Don't come knocking". Hún er nokkuð skemmtileg að mínu mati, hafði mjög gaman af henni en ég er viss um að mörg ykkar væru ekki sama sinnis. Ef þið hafið ekki gaman af myndum sem ganga út á e-r pælingar eða eru ef til vill svolítið hægar, ekki sjá hana. Ef þið aftur á móti kunnið að meta myndir fyrir það sem þær eru, endilega sjáið hana.
Sá hana í bíói sem ég hef aldrei farið í áður, Grand Teatret. Það er rosalega töff bíó að mínu mati, lítið en ferlega kósí og sætt. Salurinn sem ég fór í var mjög lítill en hann var vel hannaður og ég get ekki kvartað yfir neinu þar (þess má geta að ég er mjög kröfuhörð á bíósali). Héðan í frá mega Palads og Dagmar Teatret fara í rass og rófu fyrir mér (nema salur 1 í Palads, hann er fínn). Imperial, Grand Teatret og Metropol eru mín bíó. CinemaX er svo sem ágætt og bíóið í Lyngby frábært en staðsetningin á þeim er ekki mér að skapi.
Sá einnig Deer Hunter með vini mínum. Ætla ekki að segja margt um hana nema bara það að hún var á sinn hátt mjög óhugnaleg og svo var hún svona klst of löng. Svo sá ég líka The Merchant of Venice með öðrum vini mínum. Held þið getið alveg sleppt því að sjá hana, hún er varla þess virði að eyða tíma sínum í þó hún sé ekkert slæm beint.
En jáh.. held ég láti þetta duga í bili :)
Ætla samt að benda ykkur á að þessi síða er ótrúlega krúttleg og gaman að skoða hana. Þessi er alltaf jafn ógeðslega fyndin. Á sunnudögum er svo PostSecret síðan uppfærð og mæli ég með að þið skoðið hana. Hún getur bæði verið fyndin, átakanleg eða sorgleg... allt eftir kortunum hverju sinni.

Lög vikunnar:
Ampop - Youth
Ampop - Eternal Bliss
Ted Leo & The Pharmacists - Dial up
Ted Leo & The Pharmacists - The gold finch and the red oak tree
Mew - Special
GusGus - Ladyshave
P.S. Ég kem til Klakalands á laugardaginn og verð þar e-ð fram í febrúar (á eftir að ákveða hversu lengi ég verð). Vonast til að hitta sem flest ykkar þá, endilega hringið í mig... ég verð með gamla gsm-númerið mitt. Spilakvöld, SingStarkeppnir, kaffihúsaspjöll, át á Culiacan og American style og fl. er e-ð sem ég vonast til að gera mikið af... þannig ef ykkur langar til að gera e-ð af þessu... eða e-ð allt annað... call me :D
10.1.2006
Kvikmyndir og líðandi stund
Ég ætla að reyna að hafa þetta ekki langt í þetta sinn, ég er þreytt og þarf eiginlega að fara að sofa fljótlega. Hins vegar, jáh. Eins og mörg ykkar vitið nú þegar hef ég ákveðið að hætta í náminu. Ég ætla ekki að fara út í ástæður þess hér, allavega ekki að sinni. Allavega, ég er aðallega að nefna þetta hérna "opinberlega" afþví að ég vil segja takk. Allir sem ég hef talað um þetta við, foreldrar mínir, ömmur mínar, vinir og kunningjar hafa verið alveg þvílíkt yndislegir og sýnt mér mikinn stuðning. Ég get ekki lýst með orðum hvað mér þykir vænt um það en ég get sagt ykkur að það yljar mér um hjartarætur. Mér líður betur núna en mér hefur liðið í marga mánuði. Samt er margt flókið. Ég veit ekki hvaða landi ég á að búa í, hvað ég á að gera, hvenær ég á að fara aftur í nám, hvað ég á þá að læra o.s.frv. Ég ætla mér hins vegar bara að komast að því smám saman, með aðstoð fjölskyldu og vina vonandi :) Þessi óvissutilfinning veldur vissri vanlíðan, sérstaklega fyrir skipulagsfíkil eins og mig en ég ætla að reyna að láta það ekki draga mig niður. Nóg um það í bili... en... *STóRT KNúS* til fjölskyldunnar minnar og allra þeirra vina sem eru búnir að vera svona yndislegir :)
Þá er það hitt málefni dagsins. Kvikmyndir. Síðasta vika er búin að vera bíóvika mikil og hef ég síðan á föstudaginn farið 3x í bíó auk þess að horfa á nokkrar myndir á dvd.
S.s. á föstudaginn síðasta sá ég Narniu. Fyrsti helmingur myndarinnar var allt í lagi. Allt "umhverfi" myndarinnar og búningar finnst mér skemmtilegir þó svo að svo virðist sem leikstjórinn hafi kannski verið frekar heltekinn af því að láta þetta líkjast Hringadróttinssögu. Ef það var það sem hann var að reyna (eins og það lítur út fyrir) þá mistekst honum hrapalega. Umhverfið er fallegt en mjög, eins og ég vil orða það, disneylegt (enda um disneymynd að ræða). Myndatakann hefði mátt vera betri og stundum fannst mér þetta vera of mikið eins og teiknimynd (svona eins og fyrstu tvær HP myndirnar, ógeðslega ýktir litir og so on). Leikurinn er frekar misjafn en þó er áberandi hversu yngri systkinin tvö standa sig lang best. Fáninn fannst mér líka rosalega heillandi karakter og vel leikinn. Húmorinn fannst mér skemmtilegur og hafði bara ansi gaman af myndinni... framan af. Hins vegar, þegar myndin er kannski svona hálfnuð... fer þetta allt að stefna í óefni. Hvað gerist, júh.. myndin verður væmin. Ekki bara smá, heldur svo mikið að það veldur manni nánast ógleði. Allur þessi blessaði faldi boðskapur fer vitanlega í taugarnar á mér en hann hefði alveg mátt vera þarna samt... ef þeir hefðu ekki þurft að blanda honum saman við þennan væmnis-hrylling. Æj, jáh.. s.s. allt í lagi mynd, ef þú ert með sterkan maga :)
Þá er það Pride & Prejudice. Hún var frekar slæm. Ég veit að það er verið að hrúga á hana lofi og góðum dómum í ansi mörgum blöðum en við því segi ég þetta: Ef þér líkar vel við myndina og ert ekki gjörsamlega smekklaus manneskja þá er eina útskýringin sú að þú hefur ekki lesið bókina (né séð bbc-seríuna sem gerð var eftir bókinni).
Ég þarf líklega að koma með rök fyrir þessari fullyrðingu. Ég er varla að nenna því þar sem ég hef nú þegar eytt heilu kvöldi í að ræða hana fram og tilbaka en mér ég finnst ég varla getað sleppt því að nefna allavega e-ð.
Í fyrsta lagi; leikaraval og leikur = Hræðilegt. Hverjum datt í hug að ráða Keiru Knightley í þetta hlutverk? Er fólk ekki að grínast? Hún er alveg langt frá því að vera "hentug í það" og hún veldur því ekki. Hún er hreint út sagt bara ekki nógu góð leikona. Mér fannst hún frábær í Pirates og hún er góð í hlutverkum sem hún ræður við, en í þetta snilldarverk Jane Austin á hún ekkert erindi. Þeir sem passa vel í sín hlutverk mynd ég segja að væru eldri systirin Jane, Lady Catherine og svo hugsanlega Mrs. Bennet. Einnig má nefna að Charlotte Lucas var ekki svo slæmt þó hún sé kannski ekki alveg það sem fólk hefði ímyndað sér í þetta hlutverk. Ég ætla ekki einu sinni að byrja á að tala um yngri systurnar...
Mr. Bingley er leikinn eins og hann sé vanviti. Hann fær aldrei að koma út úr sér heilli setningu án þess að segja hana vitlaust, stama, verða orðlaus og enda á að bara brosa eins og fífl. Í bókinn er hann hinn fullkomni ungi maður. Hann er kurteis, klár, vinalegur, yndislegur við allt og alla, etc. Þarna er hann látinn líta út fyrir að vera hálfgerður vitlaus asni.
Mr.Darcy er í bókinni frekar hranalegur og (að því virðist) hrokafullur. Hins vegar er hann mjög myndarlegur og fágaður herramaður enda kominn af mjög ríkri fjölskyldu. Í myndinn virðist hann hins vegar vera frekar slow, fúllyndur leiðindablesi sem er alveg einstaklega ómyndarlegur og yfirleitt illa til fara.
Reyndar er það nú ekki honum greyið að kenna, búningahönnuðir þessarar myndir hafa verið einstaklega hræðilegir. Gott dæmi um það er kjólinn sem Lizzy fer í á hið fína ball sem haldið er í Netherfield.
Allavega... það er svoo margt... ég veit varla hvað ég á að segja næst... reyna að hafa þetta stuttorðað samt. Handritið, leikstjórnin... hræðilegt hræðilegt. Sagan er frekar illa sett fram, rosalega rosalega mörg atriði (sérstaklega í sambandi við venjur og hefðir, orsök og afleiðingu, hneyksli og fjölskyldumál) geta ekki annað en farið framhjá þeim sem ekki hafa lesið bókina áður enda eru þau ýmist illa sett fram eða ekki.
Allur... þokki.. allt yfirbragð... allt það sem er heillandi við þessa bók... tekst þeim ekki að setja fram í þessari mynd. Hvað er btw málið með húsið þeirra? Látið líta út fyrir að þau séu e-ð fátæk? Sem þau eru ekki... það er e-r misskilningur hjá leikstjóranum myndi ég halda.
Texti bókarinn... einkennist frekar mikið af.. svona.. gáfulegum húmor, netri hæðni, þokka... ekki í myndinni. Þeir týna úr... eina og eina setningu héðan og þaðan úr bókinn og nota... reyndar oftast bara hálfar setningar.. og skeyta saman... kemur illa út.
Ég gæti haldið áfram með þetta... gert heila ritgerð um þessa mynd þess vegna (kannski þegar ég er ekki alveg svona þreytt) en ég ætla ekki að gera það nú. Vil samt bara segja eitt, ef þið viljið kynna ykkur þessa sögu og nennið ekki að lesa bókina, SJÁIÐ bbc seríuna frá '95 sem var gerð eftir bókinni. Hún er frábær og allt það sem þessi kvikmynd er ekki.
Svo jáh, Brokeback Mountain. Ást samkynhneigðra kúreka (kindreka more like it). Kynlíf samkynhneigðra manna í bíósal sem er nánast fullur af nánast eingöngu miðaldra fólki. Það var áhugavert. Þetta var áhugaverð mynd. Það sem meira er, þessi mynd er nokkuð góð. Ég mæli með henni. Þegar ljósin kviknuðu í salnum við lok myndarinnar sá ég marga sem sátu nálægt mér strjúka í burtu tár. Ég verð víst að játa að ég táraðist á einum stað líka. Litli harðnaglinn ég (haha). Ekki besta mynd sem ég hef séð, en lang best af þeim myndum sem ég hef séð í bíó þessa síðastliðnu viku. Nokkuð sérstök. (Sko, ég get víst skrifað stutt review um mynd þó það hafi ekki tekist með síðustu mynd).
Svo jáh, mæli ég líka með Girlfight, ykkur mun kannski finnast hún líkjast smá einni annarri (mjög góðri) mynd, en þessi kom langt á undan henni. L'Auberge espagnole, mjög skemmtileg mynd um líf nokkurra skiptinema í Barcelona. Heillandi og skemmtileg. Síðast og eiginlega síst þó hún sé fín, Family Guy myndinn. Nasty húmor, skemmtileg mynd :)
Jesús, þetta átti ekki að verða svona langt... og ég ætlaði að vera löngu farin að sofa. En þarna.. jáh, vídeógláp planað á morgun í góðum félagsskap, þannig ef þið eruð (ó?)heppin mun ég halda áfram þessari blessuðu kvikmyndagagnrýni. Því miður er ég of þreytt til að fara að lesa þetta yfir. Ég þarf líka virkilega að fara að sofa því ég þarf að vakna á morgunn frekar snemma. Þannig.. tata... :)
8.1.2006
2005?
Áramótabloggfærslan hans Steina Teague fannst mér merkileg. Þar sagði hann einfaldlega að hann hefði átt verri ár en 2005. Það vakti mig til umhugsunar um hvort ég hefði átt verri ár. Í fyrstu hugsaði ég um hvaða ár væru nú hæf til að keppa um þennan titil; versta árið. Mér datt í hug 4 ártöl: 1999, 2000, 2002 og 2003. Þó svo að 2002 og 2003 hafi verið leiðinleg og erfið að því leitinu til að ég eyddi stórum parti þeirra í MK og í rugl og vesen (sem ég ætla ekkert að fara að útskýra hér) þá komst ég fljótt að þeirri niðurstöðu að þau ár voru langt frá því að vera alslæm. Á þessum árum eignaðist ég rosalega mikið af góðum vinum, gerði margt skemmtilegt og byrjaði í MH.
Þá eru það 1999 og 2000. Jáh, þau voru erfið. Mjög erfið. Ég eyddi miklum tíma á spítala, þar af rúmum mánuði á gjörgæslu og í öndunarvél. Ég dó næstum. Ég var líka í frekar hræðilegum skóla þar sem ég skildi ekki stakt orð í tungumálinu og var lögð í hálfgert einelti af sumum. Þegar ég hugsa um þetta betur, þá gerðist líka margt gott. Ég flutti til yndislegs lands, þó skólinn hafi verið skítur og spítalavistin erfið þá var margt gott. Ég kynntist mikið af yndislegu fólki, sá rosalega marga nýja staði, slapp við snjó og ógeðslegt veður, naut lífsins og so on. Sumarið 2000 flutti ég svo aftur til Íslands og það var líka gott. Gott að sjá vini sína aftur og svona.
Ef ég lít á 2005 þá get ég rifjað upp fjarska fátt gott. Þetta ár hefur einkennst af stressi, erfiðleikum, meira stressi, þunglyndi og svoleiðis skemmtilegheitum. Langar ekki að fara nánar út í það en ég held ég geti sagt með vissu að þetta hefur verið versta ár ævi minnar hingað til. Lang versta barasta.
Váh hvað ég vona að 2006 verði betra!
3.1.2006
Nýtt ár
Síðast þegar ég tjáði mig á þessu blessaða bloggi voru 4 dagar í að ég héldi til Frakklands með fjölskyldunni. 20.des komu pabbi, systkini mín og kærasti systur minnar hingað til Köben. Við skruppum í Tívolí og héldum svo til Nice snemma morguninn eftir. Við lentum þar í sól og blíðu, reyndar var ekki nema svona 10°C kannski en það var alveg ótrúlega yndislegt að koma þarna og sjá allt baðað í sól og manni fannst bara vera komið sumar. Ekki skemmdi fyrir að á flestum trjám á svæðinu eru ennþá lauf (og öll pálmatréin líta náttúrulega eins út allan ársins hring).
En jáh, við s.s. fórum auðvitað beint og hittum mömmu en hún beið okkar í húsinu sem við höfðum fengið að láni hjá vinafólki okkar. Fyrstu dagar ferðarinnar fóru aðallega í að versla: mat, föt, afmælis- og jólagjafir. Það var gaman. Inn á milli gerðum við nú líka ýmislegt annað. Kíktum t.d. til Cannes að skoða jólaljósin, kíktum niðrá ströndina þar , fórum á veitingastað og röltum svo að lokum í kringum bygginguna þar sem kvikmyndahátíðin er alltaf haldin og skoðuðum handaförin.
Á Þorklásmessu héldum við íslenskt jólaboð fyrir; annars vegar fólkið sem með mömmu á gestavinnustofunni (bandarísk stelpa, ensk kona og uh.. e-r kall) og hins vegar kanadíska fjölskyldu (pabbinn var s.s. með pabba mínum í námi í Theseus og svo voru bæði systir mín og ég að passa elstu stelpuna þeirra sumarið 2001). Þau komu með krakkana sína þrjá, sú elsta er tæplega 6 ára og sá yngsti er 6 vikna. Þau tvö eldri líta út eins og algjörir englar, ljóshærð, bláeygð og alveg rosaleg krútt en reyndust verða alveg bandbrjáluð þegar líða tók á kvöldið :)
En jáh... aðfangadagur var alveg meeeega chill. Vaknaði ca. hálf 2, fór í sturtu (sem var ísköld því bróðir minn kláraði heitavatnið með því að fara í bað) og horfði með systkinum mínum og Agga á Galaxy Quest. Meðan jólamaturinn var borðaður og pakkar opnaðir var hlustað á The Doors og Bob Dylan (ég fékk að ráða tónlistinni, sumum fannst þetta hins vegar ekki sérlega jólalegt :D). Fékk fullt af fínum jólagjöfum. Nýja SOAD diskinn, slatta af dvd, bók, geðveika ullarpeysu sem amma prjónaði, föt (sem ég valdi sjálf),... og jáh.. fullt af dóti bara. Ah, verð reyndar að nefna líka "lyktar-lottóið" sem ég fékk, skrítnasta spil sem ég hef nokkur tímann prófað! :D Mjög skemmtilegt samt!
Jóladag eyddum við svo í Monaco. Röltum um e-n jólamarkað niðrá bryggju. Benedikta, Aggi, Gísli og mamma skelltu sér á skauta (búið að breyta sundlauginni sem er á bryggjunni í skautasvell). Við pabbi skemmtum okkur stórvel við að horfa á þau skauta. Það var sérstaklega áhugavert þar sem eitt þeirra skautaði niður lítinn krakka (eftir ýtrekaðar tilraunir) og öðru þeirra tókst næstum því að rota lítinn hund með snjóbolta. Síðan röltum við um bryggjuna og skoðuðum allar geeeeðveiku snekkjurnar. Eftir það keyrðum við upp að flottasta casinói Monaco og röltum um svæðið þar í kring. Skoðuðum flotta gosbrunna, geðveika bíla og snobbað fólk.
Á 2. í jólum keyrðum við upp í Alpana til þess að krakkarnir kæmust á bretti/skíði. Það var fínt, æðislegt veður og so on. Frekar skondið að fara úr +12°C (með sólskini, pálmatrjám og so on) og í -9°C (fjöll, snjó, skíðafólk og rosa kulda) á nokkrum klst.
Ég, mamma og pabbi eyddum deginum á veitingastaðnum þarna og síðan á barnum þar sem við sátum og spiluðum þangað til tími var kominn til að fara úr fjöllunum aftur.
Næstu tveim dögum eyddum við að mestu leiti í Nice, röltum um gamla bæinn, kíktum á ströndina og versluðum fullt. 28. átti systir mín svo líka afmæli og amma og afi komu frá Íslandi. Það kvöld fórum við út að borða á yndislegum veitingastað í Valbonne. Mmmm...
29. neyddist ég síðan til að halda aftur til Danmerkur. Þar sem flugið mitt átti ekki að vera fyrr en kl. 18:10 þá fórum við um morguninn niðrí Antibes. Þar röltum við um, kíktum á fleiri snekkjur, úti-matar-markað og fórum loks og fengum okkur crépes.
Annars var ferðin heim til DK frekar mikill horror. Kom á flugvöllinn um kl. 16, allt í góðu með það. Þegar kl. var að nálgast 18 var hins vegar tilkynnt að það yrði tveggja tíma seinkunn á fluginu. Þetta var vegna þess að það var ógeðslegt veður í mest allri Evrópu og Kastrup flugvöllur var lokaður í nokkrar klst vegna þess að flugbrautirnar voru á kafi í snjó. Þar sem það er voða lítið að gera á þessum flugvelli og ég var ekki í stuði til að lesa þá var þetta frekar leiðinleg bið. Get ekki talið þá hringi sem ég labbaði um þessa blessuðu flugstöð.
Lenti reyndar í því að e-r stórundarlegur breskur gaur fór að tala við mig. Það var undarlegt fyrir þær sakir að ég var s.s. ný sest niður eftir að labba svona 15 hringi um þessa litlu flugstöð þegar þessi gaur kemur þarna labbandi, svipast um og sest svo niður beint við hliðina á mér, þó það sé fuuuullt af lausum sætum. Ég ætlaði að fara að færa mig í burtu en nennti því ekki alveg því hælsærið mitt var e-ð að kvarta eftir hringina 15. Byrjar þá ekki gaurinn að tala við mig... á frönsku. Ég spyr hvort hann sé frakki og kemst að því að hann er frá Wales og skipti yfir í ensku. Anyhow... hann spjallar e-ð áfram blablabla... spyr hvað ég sé gömul.. og segist svo sjálfur vera 22 ára. HAHAHA! Yeah, right. Sagði honum nú bara beint út að hann liti út fyrir að vera eldri (vona að hann hafi verið það, annars er ég algjör dóni). En jáh.. þetta var s.s. e-r snobb gaur sem virtist ferðast geðveikt mikið en hafði ekki einu sinni klárað menntaskóla (fattaði ekki að spurja hvað hann væri að vinna við).
Svo kemur s.s. vinur hans þarna sem hann var búinn að segja mér að hann væri að ferðast með. Hann heilsar mér og þá hálf skammar sá fyrri hann og segir e-ð "I'm talking to her" og sendir hinn að kaupa bjór (þeir reyndu svona 15x að bjóða mér uppá drykk en mér leist ekki beint á það....) En jáh... allavega.. það var e-ð hálf krípi við þennan gaur og ég var frekar fegin þegar flugið mitt var kallað upp (og líka fegin að hann var ekki að fara í sama flug!).
Anyways... þessi tveggja tíma töf þarna varð ekki eina töfin. Þegar við vorum að koma að Kastrup og þeir voru á leið niður til lendingar reistu þeir allt í einu vélina upp aftur... settu upp hjólin... og sögðu að þeir þyrftu að fara auka hring því það væri önnur vél fyrir á flugbrautinni. Þeir gerðu það.. blablabla.. lentu svo 20-30 mín seinna.. blabla bla.. Síðan var töf að komast af flugbrautinni því það voru vélar að koma út á flugbrautina og það var bara pláss fyrir "einstefnu". Síðan komum við að flugstöðinni, þá var töf við að komast úr vélinni því það var e-ð vesen með landganginn (hann vildi ekki festast, var valtur eða e-ð og sækja þurfti sand til að setja undir hann or sth). Síðast... en ónei, ekki SÍST var töf á farangrinum... um svona tvær klukkustundir!!!!! Þá var ég nú orðin svo þreytt að ég gat varla staðið.... en hvergi var nú þarna neinn staður til að setjast niður... (helvítis andskotans servisair). Ekki bætti úr skák að allir sjálfsalar voru svo nánast tómir og því gat ég ekki keypt mér neitt að drekka. Þegar töskurnar loks komu.. þá var kl. orðin svona 01:15. Hélt ég út úr flugstöðinni.. loksins. Þá tók við... svona.. ég veit ekki...ca. 100m löng röð eftir leigubíl.... úti... í snjókomu... um nótt. Eftir næstum 10 klst ferðalag í allt. Yess! Kom heim til mín um kl. 2 um nóttina.. í stað ca. 9 um kvöldið eins og ég hefði átt að gera.
En jáh...gaman gaman :) Það var yndislegt að vera í Frakklandi og ég sakna þess gríðarlega. Þegar fór hérna út í matvöruverslun daginn eftir heimkomuna langaði mig mest að fara að grenja þegar ég kom að osta og skinkuhillunum! Í Frakklandi kemur maður að þessum hillum... og byrjar að slefa... og langar í ALLT nánast.... og úrvalið er GEÐVEIKT! Hér... æhj... það er reyndar ekki eins óspennandi og á Íslandi en næstum því.
Anyways... um áramótin fór ég í æðislegt partý með frábæru fólki sem ég hafði aaaaldrei hitt áður og skemmti mér vel :D Pabbi hafði gefið mér flösku af Black Death og ég fór með hana í partíið og gaf stelpunni sem hélt það. Hún varð ekkert smá hrifin vegna þess að hún hafði verið á Íslandi í október. Hún og vinkona hennar fóru s.s. til Íslands til að gera kvikmynd um Airwaves sem lokaverkefni í design náminu sem þær eru í. Þær ætluðu að sína mér e-ð vídeó ef e-i "icelandic whore" sem hafði víst staðið út á götu og öskrað og gólað... en því miður funduð þær ekki spóluna :D En mér er sagt að þetta sé víst drepfyndið... bömmer.
En jáh... núna er ég hundlasin....með hausverk og hálsbólgu og með verki á öllum stöðum í/á höfðinu sem hægt er að hafa verki á. Það sökkar. Er búin að vera veik núna síðan á kvöldi 1.jan. Amma og afi koma hérna til mín á morgunn og gista eina nótt (á leiðinni heim frá Frakklandi) og pabbi, aggi og systkini mín kíkja með þeim hingað í svona 2 tíma þar sem þau hafa smá tíma á milli flugferða.
En jáh.. ég ætla að fara að sofa.. mér líður illa. Verðið að fyrirgefa asnalega frásögn, stafsetninga- og málfræðivillur, ég er lasin.
17.12.2005
Andvaka
Það er ömurlegt að vera andvaka. Síðan á aðfaranótt mánudags hef ég átt ferlega erfitt með að ná að sofna :/ Þó ég fari uppí um miðnætti næ ég aldrei að sofna fyrr en svona 4-5 eða e-ð... óþolandi! Hef ekkert mætt í skólann alla vikuna út af þessu, ég bara geeet ekki vaknað eftir 3-4 klst svefn... ekki séns :/ Er líka búin að vera í vondu skapi síðan síðasta laugardag... er pirruð og fúl og nenni ekki að gera neitt... er orðin frekar leið á sjálfri mér satt að segja. En ég kenni vondaskapsálfinum um.. hann hlýtur að hafa bitið mig :P
Fyrir næstum tveimur mánuðum síðan var ég "kítluð" af henni Lóu Möggu. Svo var ég kítluð af henni aftur fyrir svona tveimur vikum síðan (held ég). Þar sem ég var komin með upp í kok af öllum þessum kítl og klukk færslum hjá fólki ákvað ég að látast ekki hafa séð þetta... Þar sem ég lá andvaka í nótt fór ég hins vegar að pæla í hvað ég gæti sett í svona "kítl-lista" og því er það andvökunóttum mínum að kenna/þakka að ég ætla loksins að bregðast við þessu kítli.
Og hér kemur það..:
7 staðir sem ég vil sjá:
- Egyptaland (pýramídar)
- Perú (Inka-pýramídar)
- Madrid (Prado safnið)
- Tokyo (Öðruvísi menning)
- Aþena (Byggingar)
- Nýja Sjáland (náttúra)
- Kambódía eða Víetnam (get ekki valið á milli)
7 hljómsveitir/tónlistarmenn sem ég held miiikið uppá:
- Blonde Redhead
- Supergrass
- The White Stripes
- The Cure
- System of a Down
- Led Zeppelin
- Marilyn Manson
7 hlutir sem ég ætla mér að gera:
- Verða betri í að tala frönsku og spænsku (og dönsku....)
- Eiga gæludýr
- Prófa að búa á Spáni og kannski í fleiri löndum
- Reyna að ferðast til amk einnar nýrrar borgar á hverju ári þar til ég drepst
- Muna alltaf eftir þeim sem eiga erfitt og styrkja góðgerðarmál
- Eignast marga nýja vini og reyna eftir bestu getu að halda þeim sem ég á nú þegar
- Verða hamingjusöm
7 hlutir sem ég vil ekki gera/vera:
- Gera hluti sem ég þarf að sjá eftir að hafa gert
- Koma illa fram við eða særa annað fólk (nema það eigi það fyllilega skilið)
- Vera fordómafull (en ég er það samt)
- Dæma fólk eftir útlitinu (en ég geri það samt eins og allir)
- Vera óheiðarleg
- Vera óhreinskilin
- Vera svartsýn (en ég er það samt stundum, fylgir því að vera raunsæ)
7 orð sem lýsa mér:
- Letihaugur
- Hugulsöm
- Raunsæ
- Skapstór
- Nörd
- Nautnaseggur
- Flippuð
7 leikarar sem mér finnst afsakanlegt að slefa yfir:
- Johnny Depp (!!!)
- Viggo Mortensen (t.d. sem Aragorn)
- Colin Firth (t.d. sem Mr Darcy)
- Hugh Jackman (t.d. sem Eddie Alden)
- Brad Pitt (t.d. sem Achilles)
- Naveen Andrews (sem Sayid Jarrah)
- Josh Holloway (sem Sawyer)
7 manneskjur sem ég ætla að kitla:
- Vil
- ekki
- gera
- neinum
- þann
- grikk
- !!!
Var að pæla í að skrifa "7 hlutir sem heilla mig í fari hins kynsins (eins og svo margir hafa gert) en e-n veginn fannst mér það of persónulegt. Hvað finnst ykkur? :P
Strax daginn eftir að ég skrifaði síðustu bloggfærslu varð ég vitni að svolitlu sem mig langaði að blogga um... en ákvað að gera það ekki þar sem ég var svo nýbúin að blogga. Ég varð vitni að slagsmálum. Það var frekar.. óhugnalegt.. ég á mjög erfitt með að horfa upp á ofbeldi (eins og örugglega flestir). Hef aldrei getað skilið hvernig fólk getur t.d. horft á box, mér líður svo illa ef ég horfi á e-ð svoleiðis :/
Allavega, ég var s.s. á leið heim úr skólanum og stend og bíð eftir strætó ásamt hóp af öðru fólki. Þetta er s.s. á gangstétt fyrir utan íbúðarhús. Eftir nokkrar mín koma tveir lögreglumenn út úr húsinu sem er þarna (dyrnar í svona 4 metra fjarlægð frá strætóstoppinu) og með þeim e-r maður sem þeir kveðja og svo labba þeir í burtu. Þegar þeir eru nýfarnir (komnir í svona 15 metra fjarlægð kannski) kemur út annar maður og fer e-ð að segja við hinn. Hann labbar alveg að honum... og allt í einu eru þeir farnir að slást! Sá sem kom út á eftir hinum lendir næstum því strax undir og sá sem er oná fer að berja hann aftur og aftur og aftur í andlitið.
Meðal þeirra sem biðu þarna eftir strætó var ung kona með tvö börn, strák og stelpu sem eru kannski svona 4 ára. Þeim er náttúrulega mjög brugðið og stelpan fer að hágráta. Lögreglumennirnir eru komnir svona 20-30 metra í burtu og taka ekki eftir neinu fyrr en móðir litlu krakkana fer að garga á mennina að hætta að slást, það séu lítil börn á staðnum og þeir séu að hræða þau. Þá snúa lögreglumennirnir sér við, sjá hvað er að gerast og hlaupa tilbaka. Þeir handtaka annan manninn en sleppa hinum...
Veit ekki hvað olli þessum slagsmálum en mig grunar að það hafi verið að henda öðrum hvorum út úr húsinu þar sem þeir voru með e-r ferðatöskur... Kannski ekki merkilegt en jáhm.. fannst þetta ekki skemmtilegt.
Annars er ekki svo mikið að frétta... allar krufningar búnar í skólanum í bili... síðustu vikuna sem krufið var krufði ég eðlu, frosk og mús. Músin var pottþétt ógeðslegust, var svo vond lykt af henni. Það var líka heldur óhugnalegt að kryfja froskinn, einfaldlega af þeirri ástæðu að við vorum með nokkra lifandi froska í búrum í stofunni líka, fannst hálf grimmt að kryfja "bræður" þeirra þar sem þeir gátu séð til :P
Svo fer ég að fylgjast með krufningu á líki í janúar á spítalanum í Gentofte. Hljómar spennandi ekki satt? Þetta er ekki beint hluti af kúrsinum... þetta er valfrjálst og utan skólatíma... en nánast allir í bekknum hafa skráð sig í þetta, þannig ég ákvað að fara líka. Þetta mun verða... áhugavert! Ætla að setja hérna tvo linka fyrir ykkur sem tengjast þessu umræðuefni svolítið. Hérna er einn og hér er annar.
Í síðustu viku var Julefrokost hjá "bekknum mínum". Ég var reyndar eiginlega veik þennan dag, með massa hausverk en ákvað að taka bara verkjalyf og fara samt. Sé alls ekkert eftir því! Þetta var mjög gaman! Ég dýrka dani, þeir eru svo skemmtilega flippaðir, opnir og yndislegir! :D
Þessi Julefrokost var frekar óvenjulegur að því leitinu til að það var búningakeppni í gangi þannig margir mættu í búningum :D Voru þarna nokkur jólatré, snjókarl, jólasveinar, jólasveinkur, bjórflaska, Rúdolfar,.. etc. Þetta skemmdi sko ekkert stemminguna ;) Þetta var svo haldið s.s. í sal á kollegíunni hjá einum strák í bekknum, ekki svo langt frá þar sem ég bý. Salurinn er á jarðhæð og snýr að götunni. Það eru gluggar frá gólfi til lofts þannig allir sem labba framhjá sjá inn... sem var frekar fyndið... sérstaklega þar sem þegar við vorum að borða þá komu þarna hópur af gaurum (svona 14-18 ára kannski) og fóru að horfa inn. Þeir héngu svo þarna heillengi og fóru að dansa fyrir utan gluggana og e-ð.. það var mega fyndið :D
Anyhow... allir áttu að mæta með e-ð á hlaðborðið og var það allt saman mjög vel heppnað. Það átu pottþétt allir á sig gat! :D Reyndar var ekki alltaf mikill friður til að borða.. af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi þá var fólk alltaf að skála! Hvort sem það var bara af því að e-m datt það í hug, fólk var að fá sér snafs eða e-r bankaði í "Skåle-kålet" (don't ask :D) þá var það oft... Í öðru lagi af því að ekki bara voru mistillteinar hengdir þarna út um allt heldur voru þau líka með kústskaft sem þau höfðu límt mistilltein á endan á. Þetta gengu þau með um á meðan við sátum og vorum að borða og settu fyrir ofan á hausinn á varnarlausu fólki sem sat þarna og borðaði í sakleysi sínu. Sama hversu fullan munninn fólk var með, engin vægð var sýnd og auðvitað var tekin mynd í hvert sinn... ;P (verður forvitnilegt að sjá myndirnar þaðan)
Anyhow... það vantaði ekki uppátækjasemina hjá þeim sem skipulögðu þennan julefrokost því fyrir utan það sem ég nefndi áðan þá var sérstakur leikur sem var til þess að finna út hvar maður ætti að sitja við borðið. Strákar og stelpur þurftu að draga miða úr sitthvorum pokanum... á miðanum stóð svo e-ð dýranafn og þurfti maður að finna borðherrann sinn/dömuna með því að ganga um og gefa frá sér það hljóð sem fylgir þessu dýri... Það var frekar... skrautlegt :D Ég var nú bara ágætlega heppin með borðherra... hann var allavega svo sætur að bjarga mér frá því að vera neydd til að drekka snafs (ákavíti), sem ég var mjööög þakklát fyrir! :)
Svo voru líka miðar undir diskunum manns... sem sögðu manni að gera e-ð. Þeas. sumir fengu miða um að þeir ættu að gera eða segja e-ð ákveðið meðan setið var til borðs, aðrir áttu að ganga frá eftir matinn... og sumir fengu miða sem stóð á VIP. Eftir matinn komumst við að því hvað VIP-ið þýddi... þau þurftu að setja upp leikrit um fæðingu krists... og þurftu þau að draga e-a miða... sem skýrðu hvernig leikrit það ætti að vera... og þau drógu söngleik... greyin.. það var frekar skrautlegt.
Allavega... eins og alltaf þegar danir eru annars vegar þá var drukkinn MIKILL bjór þarna og eins og siður er í þessum jólaboðum.. .mikið af snafs (ákavíti). Þetta leiddi til þess að fólk var orðið ansi skrautlegt þegar líða tók á kvöldið...
Annars finnst mér vert að minnast á að ég var þarna að spjalla helling við einn af bekkjarbræðrum mínum.. og komst þá að því að hann hefur skrifað 3 bækur og þær verið gefnar út! Fannst þetta reyndar hljóma soldið eins og e-ð fylleríis bull en daginn eftir fletti ég þessu upp... og viti menn! Hann var að segja satt... og það sem meira er.. hann var 17 ára þegar sú fyrsta kom út! (Hann er 20 núna). Hefði reyndar ekki komið mér á óvart þó hann hefði verið að bulla þar sem hann var ansi drukkinn greyið... stuttu eftir að ég hætti að tala við hann sá ég hann hlaupa í átt að klósettunum og æla í lófan á sér rétt áður en hann komst inn... geðslegt...
Eitt í viðbót sem þessir flipparar sem skipulögðu þetta tóku upp á... Þar sem þetta var nú jólapartý og hvað eru jól án snjós? Þau ákváðu að láta snjóa.... og hvað er betra að nota sem gervisnjó en.... fjaðrir! :S Þau höfðu greinilega keypt þónokkra dúnkodda í þeim eina tilgangi að klippa þá í sundur... og fleygja öllum fjöðrunum yfir fólk! Þegar fyrsti koddinn var opnaður vissi ég ekki hvað ég átti að halda.. fylgdist bara með þessu og pældi hvað í ósköpunum hún væri að gera.. þangað til að hún gekk yfir til okkar... tók upp lúku af fjöðrum og henti framan í okkur! :D Ég er nokkuð viss um að ég hafi gleypt eina litla... var hóstandi alltaf öðru hvoru eftir þetta :P Og ég var víst ekki sú eina... Hálftíma eftir þetta var allt gólfið þarna ÞAKIÐ í fjöðrum...
Josef vildi meina að þetta væru pottþétt lundafjaðrir... héld fyrirlestur fyrir mig um hvernig maður þekkti muninn á gæsafjöðrum og lundafjöðrum og sagði að danir keyptu rosa mikið af lundafiðri frá Íslandi? Er e-ð til í því? Treysti nú ekki alveg því sem hann var að segja þarna enda var hann freeeekar mikið drukkinn... hann og borðherrann minn og einn í viðbót höfðu byrjað bjórdrykkjuna strax kl. 3 um daginn og því voru þeir löngu orðnir drukknir áður en partýið byrjaði... Tókst næstum að láta hann æla með því að pota í magann á honum þegar hann var að kvarta yfir því að hafa drukkið of mikið *evil* :D
Anyhow.. nóg um þetta? Skil ekki hvernig þið nennið að lesa allt sem ég skrifa... þið hljótið öll að vera haldin sjálfspyntingaþörf... eða kannski eigið þið við svefnörðugleika að stríða eins og ég? og lesið bloggið mitt til þess að sofna?
Allavega... ég var búin að lofa að labba með einni stelpu þarna niður á Nörrebro torg þar sem hún gæti tekið strætó... og þar sem henni var farið að líða e-ð illa eftir mikla snafsdrykkju strax um tvöleitið þá var ég dregin út þá þó mig langaði lítið að fara strax...
Ég labbaði með henni þangað þar sem hún tók strætó og rölti svo heim (stutt að fara). Eftir að hún var farin tók ég eftir því að fólk horfði frekar mikið á mig... eftir smá umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að ástæðan fyrir því var að ég var ennþá með jólasveinahúfu á hausnum (skilda í julefrokostinn) og sú staðreynd að húfan var öll út í fjöðrum :) Ég ákvað því að labba húfulaus restina af leiðinni.... :P
Þegar heim var komið ákvað ég að kíkja aðeins í hinn julefrokostinn sem ég hafði verið boðin í þetta kvöld, þann sem var haldinn á kollegíunni minni. Þar var fámennt en góðmennt.
Nú eru bara nokkrir dagar í að ég fari til Suður-Frakklands þar sem ég mun halda upp á jólin ásamt fjölskyldunni, oh það á eftir að vera æði :D Hlakka svo til að koma á gömlu heimaslóðirnar aftur! *purrr*
Jæja.. ég nenni ekki meiru... enda komið miklu meira en nóg og ég orðin hræðilega þreytt. Ætlaði að vera löngu farin að sofa :/ Eitt samt... ég vil hvetja alla til þess að hugsa til þeirra sem minna mega sín núna um jólin (og bara alltaf). Gefið í góðgerðastarf eða e-ð... svona í anda jólana. Ykkur á eftir að líða svo vel eftirá ;)
T.d. getið þið styrkt þetta málefni. Ég gerði það allavega. Ég veit að það eru mörg önnur mikilvægari málefni sem hægt er að styrkja, fólk er að svelta og deyja úr kulda og vosbúð um heim allan núna... En ég valdi að styrkja Childsplay-verkefnið af því að ég veit hversu ömurlegt það er að vera sem barn vikum saman á spítala. Ég veit líka hvað það er ömurlegt að eyða nánast öllu jólafríinu á spítala... þannig mér fannst meira en sjálfsagt að styrkja þetta verkefni. Endilega tékkið á þessu.
28.11.2005
Long time no see!
Kvöldið í kvöld er búið að vera áhugavert... fyrst "sprengdi" ég pottlok... sem varð til þess að glerbrot og glerflísar fóru yfir allt matarborðið mitt... og svo tókst mér að skera mig nokkrum sinnum (smávægilega) á hníf þegar ég var að vesenast við að fjarlægja e-r festingar af kápunni minni (sem hafa farið í taugarnar á mér síðan ég keypti hana síðasta vetur). Ég er pottþétt brussa og klaufabárður dagsins! :D
Hmm, hmm.. hvað á ég að segja ykkur? Uh.. bíómyndir... jáh.. ok... Ekki sjá Serenity hún er frekar hræðileg (trust me). Ekki eyða pening í að fara að sjá A History of Violence heldur, hún er ágæt en ekkert meira en það og skilur ekkert eftir sig. Farið frekar að sjá nýju Harry Potter myndina, hún er bara helvíti skemmtileg. Ég var reyndar líka dregin með að sjá In her shoes (ég er ekki mikið fyrir svona myndir, taka það fram strax) en hún er ekki svo slæm. Pottþétt muuuuun skárri afþreying en helvítis Serenity ruslið sem allir litlir sci-fi nördar virðast vera að fá sáðlát yfir. Hafið þið séð hvað þessi mynd er að fá á IMDB?! Hún er að fá alveg fáránlega háa einkunn og er á topp 250 listanum. Samt minnir þessi mynd helst á ferlega lélegan Star Trek þátt eða e-ð... Samtölin eru svo hræðileg að fullt af fólki í salnum var sí-flissandi yfir atriðum sem áttu sko alls ekki að vera fyndin. Söguþráðurinn var svo götóttur, asnalegur og klisjukenndur að það hálfa væri nóg. Persónurnar voru ekki sérlega áhugaverðar og leikurinn.. tja... allt í lagi fyrir sjónvarpsþátt... en fyrir bíómynd.. ég veit ekki. Það getur vel verið að þessi mynd sé æði fyrir þá sem hafa séð þessa sjónvarpsþætti sem þetta er víst byggt á... en aðrir ættu að halda sig eins langt í burtu frá þessari mynd og þeir geta.
Hér er gagnrýni sem ég fann um þessa mynd og hér að neðan eru brot úr henni:
Suffering through, I mean watching SERENITY is like starting at the 84th episode of a convoluted and silly sci-fi soap opera.
The whole story is about as clear as mud, so please forgive me if I get some of this wrong.
Its clunky recycled dialog, which produced big laughs from my fellow viewers, includes, "She's torn up plenty, but she'll fly true," and that old-faithful, "We're not alone!"
"We'll get through this," Simon (Sean Maher) says to his sister, a psychic named River (Summer Glau). As River answered Simon, I felt like she was speaking directly to me when she said, "It's going to get much, much worse," which the movie certainly did. While SERENITY actually runs a minute shy of two full hours, it felt more like four.
Annar fór ég á Mugison tónleika á föstudaginn... það var ágætt. Nánast bara Íslendingar þarna.. að sjálfsögðu... Fannst þetta ekki nærri því jafn skemmtilegt hjá honum eins og þegar hann spilaði á Innipúkanum í sumar. Finnst hann yfirhöfuð ekkert svo rosalega áhugaverður tónlistarmaður... nenni ekki að hlusta á diskana hans... en.. hann er góður í að hrífa áhorfendaskarann með sér (þó svo að hann hafi ekki sýnt það neitt svakalega á þessum tónleikum) og þess vegna getur verið mjög gaman að sjá hann spila live.
Ég var að panta flug áðan. Til Íslands. Kem 28.jan og verð til 5.feb.
Tók eitt af þessum heimskulegu netprófum um daginn.. set niðurstöðurnar hér til gamans.
Your Brain is 53.33% Female, 46.67% Male |
Your brain is a healthy mix of male and female You are both sensitive and savvy Rational and reasonable, you tend to keep level headed But you also tend to wear your heart on your sleeve |
Get ekki sagt að þær komi mér mikið á óvart :D Ég hefði satt að segja orðið hissa ef ég hefði fengið hærri "female" prósentu. Hef aldrei getað skilið svona stelpu-stelpur... og ég get ekki gert tvennt í einu... og ég hata bleikt.. og pils... og farða.. Þetta kom mjög snemma fram... ég átti bara stráka fyrir vini á leikskóla. Átti ekkert sameiginlegt með stelpunum þar... svo þær lögðu mig bara í einelti. (Jáh, Herdís og Elísabet ég man ennþá hversu miklar beljur þið voruð strax á leikskólaaldri. Hrafnhildur... þú varst líka einstaklega leiðinlegur krakki og komst illa fram.. og Ragnhildur var ekki mikið skárri) :D (Æj, það væri nú gaman ef þær læsu þetta en það er víst frekar ólíklegt). Nóg um þetta! :D
Mér er barasta búið að takast að koma mér ansi vel fyrir hérna í litlu sætu "íbúðinni" minni. Reyndar vantar mig ennþá baðherbergisskápinn sem ég keypti fyrir meira en mánuði (helvítis IKEA, þarf að hringja á morgunn og kvarta AFTUR). Vantar líka ryksugu.. og ofn.. en það stendur til að kippa því í liðinn. Svo þarf ég reyndar líka núna að kaupa nýjan pott :/ Gengur ekki að hafa loklausan grjónapott...
Þarna.. jáh.. ég þarf bráðnauðsynlega að fara að sofa núna... til að vera hress á fyrirlestrinum og í krufningunni á morgunn :P Vona að þið hafið það sem best lömbin mín :)
Ah.. btw.. ég ætla hér með að tilnefna Unni sem krútt vikunnar (Takk fyrir bréfið og diskinn :* )
Svo mæli ég með því að þið prófið að spila Nation States, hlustið á Supergrass og tékkið á Shima.
Yfir og út!
(P.S. Þessi færsla var skrifuð í gærkvöldi en blogger var með bölvuð leiðindi. Vantaði e-ð html tag sem var ekki séns að finna út hvað var. Þannig ég þurfti að taka allan kóðan, hreinsa út allt html-ið, búa til nýjan póst, peista textann hingað og setja þetta upp á nýtt. Þannig það getur verið að það vanti búta í færsluna og þess vegna kemur hún ekki upp fyrr en núna).






