28.11.2005

Long time no see!

Jáhm, ég veit það er langt síðan ég hef bloggað... margar ástæður fyrir því sem ég nenni ekki að útskýra.

Kvöldið í kvöld er búið að vera áhugavert... fyrst "sprengdi" ég pottlok... sem varð til þess að glerbrot og glerflísar fóru yfir allt matarborðið mitt... og svo tókst mér að skera mig nokkrum sinnum (smávægilega) á hníf þegar ég var að vesenast við að fjarlægja e-r festingar af kápunni minni (sem hafa farið í taugarnar á mér síðan ég keypti hana síðasta vetur). Ég er pottþétt brussa og klaufabárður dagsins! :D

Hmm, hmm.. hvað á ég að segja ykkur? Uh.. bíómyndir... jáh.. ok... Ekki sjá Serenity hún er frekar hræðileg (trust me). Ekki eyða pening í að fara að sjá A History of Violence heldur, hún er ágæt en ekkert meira en það og skilur ekkert eftir sig. Farið frekar að sjá nýju Harry Potter myndina, hún er bara helvíti skemmtileg. Ég var reyndar líka dregin með að sjá In her shoes (ég er ekki mikið fyrir svona myndir, taka það fram strax) en hún er ekki svo slæm. Pottþétt muuuuun skárri afþreying en helvítis Serenity ruslið sem allir litlir sci-fi nördar virðast vera að fá sáðlát yfir. Hafið þið séð hvað þessi mynd er að fá á IMDB?! Hún er að fá alveg fáránlega háa einkunn og er á topp 250 listanum. Samt minnir þessi mynd helst á ferlega lélegan Star Trek þátt eða e-ð... Samtölin eru svo hræðileg að fullt af fólki í salnum var sí-flissandi yfir atriðum sem áttu sko alls ekki að vera fyndin. Söguþráðurinn var svo götóttur, asnalegur og klisjukenndur að það hálfa væri nóg. Persónurnar voru ekki sérlega áhugaverðar og leikurinn.. tja... allt í lagi fyrir sjónvarpsþátt... en fyrir bíómynd.. ég veit ekki. Það getur vel verið að þessi mynd sé æði fyrir þá sem hafa séð þessa sjónvarpsþætti sem þetta er víst byggt á... en aðrir ættu að halda sig eins langt í burtu frá þessari mynd og þeir geta.

Hér er gagnrýni sem ég fann um þessa mynd og hér að neðan eru brot úr henni:

Suffering through, I mean watching SERENITY is like starting at the 84th episode of a convoluted and silly sci-fi soap opera.

The whole story is about as clear as mud, so please forgive me if I get some of this wrong.

Its clunky recycled dialog, which produced big laughs from my fellow viewers, includes, "She's torn up plenty, but she'll fly true," and that old-faithful, "We're not alone!"
"We'll get through this," Simon (Sean Maher) says to his sister, a psychic named River (Summer Glau). As River answered Simon, I felt like she was speaking directly to me when she said, "It's going to get much, much worse," which the movie certainly did. While SERENITY actually runs a minute shy of two full hours, it felt more like four.
Okay, fjúff.. gott að koma þessu frá sér :P

Annar fór ég á Mugison tónleika á föstudaginn... það var ágætt. Nánast bara Íslendingar þarna.. að sjálfsögðu... Fannst þetta ekki nærri því jafn skemmtilegt hjá honum eins og þegar hann spilaði á Innipúkanum í sumar. Finnst hann yfirhöfuð ekkert svo rosalega áhugaverður tónlistarmaður... nenni ekki að hlusta á diskana hans... en.. hann er góður í að hrífa áhorfendaskarann með sér (þó svo að hann hafi ekki sýnt það neitt svakalega á þessum tónleikum) og þess vegna getur verið mjög gaman að sjá hann spila live.

Ég var að panta flug áðan. Til Íslands. Kem 28.jan og verð til 5.feb.

Tók eitt af þessum heimskulegu netprófum um daginn.. set niðurstöðurnar hér til gamans.




Your Brain is 53.33% Female, 46.67% Male



Your brain is a healthy mix of male and female


You are both sensitive and savvy

Rational and reasonable, you tend to keep level headed

But you also tend to wear your heart on your sleeve




Get ekki sagt að þær komi mér mikið á óvart :D Ég hefði satt að segja orðið hissa ef ég hefði fengið hærri "female" prósentu. Hef aldrei getað skilið svona stelpu-stelpur... og ég get ekki gert tvennt í einu... og ég hata bleikt.. og pils... og farða.. Þetta kom mjög snemma fram... ég átti bara stráka fyrir vini á leikskóla. Átti ekkert sameiginlegt með stelpunum þar... svo þær lögðu mig bara í einelti. (Jáh, Herdís og Elísabet ég man ennþá hversu miklar beljur þið voruð strax á leikskólaaldri. Hrafnhildur... þú varst líka einstaklega leiðinlegur krakki og komst illa fram.. og Ragnhildur var ekki mikið skárri) :D (Æj, það væri nú gaman ef þær læsu þetta en það er víst frekar ólíklegt). Nóg um þetta! :D

Mér er barasta búið að takast að koma mér ansi vel fyrir hérna í litlu sætu "íbúðinni" minni. Reyndar vantar mig ennþá baðherbergisskápinn sem ég keypti fyrir meira en mánuði (helvítis IKEA, þarf að hringja á morgunn og kvarta AFTUR). Vantar líka ryksugu.. og ofn.. en það stendur til að kippa því í liðinn. Svo þarf ég reyndar líka núna að kaupa nýjan pott :/ Gengur ekki að hafa loklausan grjónapott...

Þarna.. jáh.. ég þarf bráðnauðsynlega að fara að sofa núna... til að vera hress á fyrirlestrinum og í krufningunni á morgunn :P Vona að þið hafið það sem best lömbin mín :)

Ah.. btw.. ég ætla hér með að tilnefna Unni sem krútt vikunnar (Takk fyrir bréfið og diskinn :* )

Svo mæli ég með því að þið prófið að spila Nation States, hlustið á Supergrass og tékkið á Shima.
Yfir og út!

(P.S. Þessi færsla var skrifuð í gærkvöldi en blogger var með bölvuð leiðindi. Vantaði e-ð html tag sem var ekki séns að finna út hvað var. Þannig ég þurfti að taka allan kóðan, hreinsa út allt html-ið, búa til nýjan póst, peista textann hingað og setja þetta upp á nýtt. Þannig það getur verið að það vanti búta í færsluna og þess vegna kemur hún ekki upp fyrr en núna).



18 ummæli:

Benedikta sagði...

OHhh, Harry potter var æði æði æði! :D éG er samt ekki að digga nýja dumbledore-inn... fannst þessi sem var á undan standa sig mun betur...

en já, ég er líklega að fara á hp aftur á morgun... Edda var að nöldrast yfir því að ég er búin að sjá hana en ekki hún og að núna hafi hún engan til að fara með á hana... þannig að... jamms..

Jæja, ég þarf að fara að koma mér í að klára að læra, og fara í vinnuna (jíha...)

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir innlitið! Veistu ég segi alltaf "um daginn", sama hversu langt er síðan þetta "um daginn" var.. :) Já, það var mjög gaman að rekast á þig! Hvernig er nýja húsnæðið annars??

En veistu..ég fór á Serenity í gærkvöldi.. og mér fannst hún ofboðslega skemmtileg. Ég á þó eftir að sjá Harry Potter, en ég á pottþétt eftir að elska hana. Hafðu það gott! :)

Nafnlaus sagði...

..svo kláraði ég að lesa færsluna og sá að það gengur vel með íbúðina. Gott að heyra! Kjánalegt að skrifa komment áður en maður les færsluna..
Obbs, kjánaprik =)

Salóme Mist sagði...

Benedikta: Jáh, ég er reyndar sammála með Dumbledore... Það böggar mig hins vegar ekki svo mikið.. sá sem leikur Harry Potter pirrar mig hins vegar helling... og ég var ekki sérlega hrifin af þessum Cedric heldur.. hann var asnalegur!
Eeeen.. það skiptir ekki máli, myndin er samt æði! :) Ekkert smá skemmtileg!
Öfunda þig af því að vera að fara að sjá hana aftur! Mig langar á hana aftur!

Skemmtu þér í vinnunni ;P

Tinna: Takk fyrir innlitið sömuleiðis ;) Ég skil vel að þú hafir commentað án þess að klára að lesa færsluna... bloggin mín eru alltaf svo hræðilega löng :P Er hálf hissa að þú hafir yfir höfuð svo nennt að klára að lesa alla færsluna :)
Jáh, okay.. þá verðum við bara að vera ósammála um gæði Serenety :P Væri ekkert gaman ef allir væru með sama smekk á bíómyndum.. þá væru allar myndir eins... Held það séu líka fleiri sammála þér en mér með þetta...

Endilega drífðu þig í að sjá Harry Potter... hún er rosa skemmtileg :)

Atli Sig sagði...

Vá hvað ég er ósammála þér með Serenity. Mér fannst hún geðveikt góð og ég hef ekki séð þættina og er ekki mega Star Trek fan eða neitt þannig. Í fyrsta lagi fílaði ég hvað hún tók sig ekki of alvarlega og var með góðan húmor, í öðru lagi er hún mjög skemmtilega tekin og klippt og svo fannst mér leikurinn fínn. Þetta er svosem engin snilld en ég hafði mjög gaman af henni og ég skil vel það lof sem hún fær. History Of Violence fannst mér líka helvíti góð, mjög áhugaverð og sniðug mynd.

Steini sagði...

Mig minnir að heilinn í mér hafi verið svona 60% kvenkyns. Sem er spúkí. Kannski ætti ég að íhuga aðgerð.

Atli Sig sagði...

Steini: Þú ert soddan kelling :D

Hvað er urlið á þessu prófi ?

Salóme Mist sagði...

Atli: Jáhm, þá verðum við bara að vera ósammála um þessa mynd... :P
Setti html kóðan fyrir þetta quiz inn í færsluna (blogger aftur með vesen en tókst samt) þannig nú geturðu séð linkinn á það þar :) (endilega láttu okkur vita með niðurstöðurnar!)

Steini: Víj, gaman að sjá nýjan lesanda hér á blogginu! :) og btw þar sem svona aðgerð og ferlið í kringum það tekur allavega svona 2-3 ár þá mæli ég með að þú sér ekki að láta eitt lítið netquiz ýta þér út í það ;) hehe :P

Atli Sig sagði...

Ég er 60% karlkyns

You have a total boy brain
Logical and detailed, you tend to look at the facts
And while your emotions do sway you sometimes...
You never like to get feelings too involved

Gaman að þessu!

Nafnlaus sagði...

Úff hvað ég er ekki sammála þér með Serenity. Leyfist mér að giska á að þú hafir ekki séð einn einasta af þáttunum? Stærsti hlutinn af myndinni byggir á þáttunum svo að ég held að það geti verið erfitt að skilja allt sem er að gerast án þess að hafa séð þá. :)

Ég mæli eindregið með þattunum ef þið eigið eftir að sjá þá

Nafnlaus sagði...

Og þetta seinasta comment var f´ra mér, gleymdi bara að skrifa nafn :þ

Atli Sig sagði...

Ég hef ekki séð einn einasta þátt og ég skildi fullkomlega hvað var að gerast og fílaði myndina mjög vel.

Nafnlaus sagði...

Hvad er serenity? Er ég alveg graen ad vita tad ekki? ég veit alla veganna hvad harry potter er! fór á hana í gaer og skemmti mér konunglega!

Nafnlaus sagði...

...fyndið hvað prósentutölurnar með heila dæmið er akkúrat þau sömu og þínar nema öfugt, þ.e. 53.33% karl og restina kven :D

Inga Auðbjörg sagði...

Ehhh... ég er 63% strákur...

Nafnlaus sagði...

Eg er ekki viss um ad thu viljir vita thetta en eg profadi heila dotid og vid erum med nakvaemlega somu tolur....
Gengur vel ad mala og er ad venjast einsemdinni...
Kv
MA i Vallauris med handonyta tolvu..

Nafnlaus sagði...

Hvernig sprengir maður eiginlega pottlok?

Ég spyr sko fyrir.. vin minn...sem vill vita þetta fyrir tilraun. sem hann ætlar að gera. Já.

Einmitt. Tilraun. Sem vinur minn ætlar að gera. Já.

RSVP

Orri sagði...

ég er 60% kona.