8.1.2006

2005?

Áramótabloggfærslan hans Steina Teague fannst mér merkileg. Þar sagði hann einfaldlega að hann hefði átt verri ár en 2005. Það vakti mig til umhugsunar um hvort ég hefði átt verri ár. Í fyrstu hugsaði ég um hvaða ár væru nú hæf til að keppa um þennan titil; versta árið. Mér datt í hug 4 ártöl: 1999, 2000, 2002 og 2003. Þó svo að 2002 og 2003 hafi verið leiðinleg og erfið að því leitinu til að ég eyddi stórum parti þeirra í MK og í rugl og vesen (sem ég ætla ekkert að fara að útskýra hér) þá komst ég fljótt að þeirri niðurstöðu að þau ár voru langt frá því að vera alslæm. Á þessum árum eignaðist ég rosalega mikið af góðum vinum, gerði margt skemmtilegt og byrjaði í MH.

Þá eru það 1999 og 2000. Jáh, þau voru erfið. Mjög erfið. Ég eyddi miklum tíma á spítala, þar af rúmum mánuði á gjörgæslu og í öndunarvél. Ég dó næstum. Ég var líka í frekar hræðilegum skóla þar sem ég skildi ekki stakt orð í tungumálinu og var lögð í hálfgert einelti af sumum. Þegar ég hugsa um þetta betur, þá gerðist líka margt gott. Ég flutti til yndislegs lands, þó skólinn hafi verið skítur og spítalavistin erfið þá var margt gott. Ég kynntist mikið af yndislegu fólki, sá rosalega marga nýja staði, slapp við snjó og ógeðslegt veður, naut lífsins og so on. Sumarið 2000 flutti ég svo aftur til Íslands og það var líka gott. Gott að sjá vini sína aftur og svona.

Ef ég lít á 2005 þá get ég rifjað upp fjarska fátt gott. Þetta ár hefur einkennst af stressi, erfiðleikum, meira stressi, þunglyndi og svoleiðis skemmtilegheitum. Langar ekki að fara nánar út í það en ég held ég geti sagt með vissu að þetta hefur verið versta ár ævi minnar hingað til. Lang versta barasta.

Váh hvað ég vona að 2006 verði betra!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Síðasta árið hefur verið þér erfitt, en 2006 gæti koma þér á óvart (og vonandi gert þig hamingjusamari). Þú ert með mikið af valkostum og hefur frelsið til að ákveða hvað þú vilt gera.

Ekki vera hrædd við að prófa nýja hluti. Þú átt mikið af vinum sem vildu mjög mikið vera hjá þér að styðja þig og skapa góðar minningar á nýju ári.

Þú þarft ekki að stressa þig yfir hlutum, þú þarft ekki að vera hetja og klára allt á mettíma.

Það eina sem við höfum í þessu lífi er tími.

Afhverju ekki að njóta honum :)

Salóme Mist sagði...

Æhj, elsku Tommakrútt :) Veist ekki hvað mér þykir vænt um þetta komment, takk :*

Nafnlaus sagði...

Hæ Meme
mér finnst það alveg vera hræðilega leiðinlegt hvernig síðustu ár hafa verið leiðinleg hjá þér og erfið. En það hlýtur alltaf að sitja e-ð gott í þér í lok hvers árs.

núna síðasta ár hefur verið erfitt hjá þér, en þú kláraðir framhaldsskóla og hafðir frábæra veislu með vinum og fjölskyldu.

Annað gott sem var á síðasta ári, var að þú fluttir erlendis og sýndir sjálfri þér og öðrum hversu hugrökk þú ert og getur staðið ein á þínum tveimur fótum. Ert virkilega sjálfstæð og dugleg!!

ég held að þrátt fyrir neikvæða hluti þá hefur margt gott gerst upp á móti.

Þú hefur staðið þig vel í skólanum og settir æðislega pressu á þig síðasta vor og stóðst vel undir þeirri pressu. Bara ekki hækka múrana sem eru í kringum þig, það gerir það bara enn erfiðara fyrir þig að klífa yfir þá. Ekki segja að allt sé of erfitt og ekki hægt að komast í gegnum. Heldur hlutirnir geta verið erfiðir en vel hægt að vinna sig í gegnum!!

Mundu bara slá aðeins undir hökuna, höfuðið hærra upp, meir á móts við sólu en jörð :) Ég veit að þegar þú kemst í gegnum þennan skóla leiða mun allt lagast og þú munt rokka feitt í skólanum.

en hugsaðu vel um þig :)

lóa

Salóme Mist sagði...

Takk Lóa :) Mér þykir virkilega vænt um þessi orð og lofa því að ég skal reyna að vera aðeins bjartsýnari ;) Stundum virðist bara þurfa e-n annan til að benda á góðu hliðarnar fyrir mann...
Ég er svo sannarlega búin að komast að því síðasta sólarhringinn hvað þú getur verið yndisleg, hugulsöm og hjálpsöm :) (vissi það nú reyndar fyrir en segjum að ég hafi enduruppgötvað það) *stórt knús*

Nafnlaus sagði...

Elsku yndid mitt, mikid er gaman ad sja hvad thu att frabaera vini, tu tekur bara nyja stefnu ef thu tarf tess og enginn finnur neitt ad tvi...
Tu ert alltaf hetja i minum augum og eg held ad flestir seu sammala tvi.
Tu lendir allta nidur i bada faetur, sterkur karakter og fair sem hefdu meikad sum af thinum arum....
Tad liggur ekkert a.
Kossar og kvedjur
Ma

Nafnlaus sagði...

pottþétt að 2006 verður betra nú fer hægt og rólega að birta til , ekki bara himintungl.
amma