17.12.2005

Andvaka



Það er ömurlegt að vera andvaka. Síðan á aðfaranótt mánudags hef ég átt ferlega erfitt með að ná að sofna :/ Þó ég fari uppí um miðnætti næ ég aldrei að sofna fyrr en svona 4-5 eða e-ð... óþolandi! Hef ekkert mætt í skólann alla vikuna út af þessu, ég bara geeet ekki vaknað eftir 3-4 klst svefn... ekki séns :/ Er líka búin að vera í vondu skapi síðan síðasta laugardag... er pirruð og fúl og nenni ekki að gera neitt... er orðin frekar leið á sjálfri mér satt að segja. En ég kenni vondaskapsálfinum um.. hann hlýtur að hafa bitið mig :P


Fyrir næstum tveimur mánuðum síðan var ég "kítluð" af henni Lóu Möggu. Svo var ég kítluð af henni aftur fyrir svona tveimur vikum síðan (held ég). Þar sem ég var komin með upp í kok af öllum þessum kítl og klukk færslum hjá fólki ákvað ég að látast ekki hafa séð þetta... Þar sem ég lá andvaka í nótt fór ég hins vegar að pæla í hvað ég gæti sett í svona "kítl-lista" og því er það andvökunóttum mínum að kenna/þakka að ég ætla loksins að bregðast við þessu kítli.

Og hér kemur það..:

7 staðir sem ég vil sjá:
- Egyptaland (pýramídar)
- Perú (Inka-pýramídar)
- Madrid (Prado safnið)
- Tokyo (Öðruvísi menning)
- Aþena (Byggingar)
- Nýja Sjáland (náttúra)
- Kambódía eða Víetnam (get ekki valið á milli)

7 hljómsveitir/tónlistarmenn sem ég held miiikið uppá:
- Blonde Redhead
- Supergrass
- The White Stripes
- The Cure
- System of a Down
- Led Zeppelin
- Marilyn Manson

7 hlutir sem ég ætla mér að gera:
- Verða betri í að tala frönsku og spænsku (og dönsku....)
- Eiga gæludýr
- Prófa að búa á Spáni og kannski í fleiri löndum
- Reyna að ferðast til amk einnar nýrrar borgar á hverju ári þar til ég drepst
- Muna alltaf eftir þeim sem eiga erfitt og styrkja góðgerðarmál
- Eignast marga nýja vini og reyna eftir bestu getu að halda þeim sem ég á nú þegar
- Verða hamingjusöm

7 hlutir sem ég vil ekki gera/vera:
- Gera hluti sem ég þarf að sjá eftir að hafa gert
- Koma illa fram við eða særa annað fólk (nema það eigi það fyllilega skilið)
- Vera fordómafull (en ég er það samt)
- Dæma fólk eftir útlitinu (en ég geri það samt eins og allir)
- Vera óheiðarleg
- Vera óhreinskilin
- Vera svartsýn (en ég er það samt stundum, fylgir því að vera raunsæ)

7 orð sem lýsa mér:
- Letihaugur
- Hugulsöm
- Raunsæ
- Skapstór
- Nörd
- Nautnaseggur
- Flippuð

7 leikarar sem mér finnst afsakanlegt að slefa yfir:
- Johnny Depp (!!!)
- Viggo Mortensen (t.d. sem Aragorn)
- Colin Firth (t.d. sem Mr Darcy)
- Hugh Jackman (t.d. sem Eddie Alden)
- Brad Pitt (t.d. sem Achilles)
- Naveen Andrews (sem Sayid Jarrah)
- Josh Holloway (sem Sawyer)

7 manneskjur sem ég ætla að kitla:
- Vil
- ekki
- gera
- neinum
- þann
- grikk
- !!!

Var að pæla í að skrifa "7 hlutir sem heilla mig í fari hins kynsins (eins og svo margir hafa gert) en e-n veginn fannst mér það of persónulegt. Hvað finnst ykkur? :P

Strax daginn eftir að ég skrifaði síðustu bloggfærslu varð ég vitni að svolitlu sem mig langaði að blogga um... en ákvað að gera það ekki þar sem ég var svo nýbúin að blogga. Ég varð vitni að slagsmálum. Það var frekar.. óhugnalegt.. ég á mjög erfitt með að horfa upp á ofbeldi (eins og örugglega flestir). Hef aldrei getað skilið hvernig fólk getur t.d. horft á box, mér líður svo illa ef ég horfi á e-ð svoleiðis :/
Allavega, ég var s.s. á leið heim úr skólanum og stend og bíð eftir strætó ásamt hóp af öðru fólki. Þetta er s.s. á gangstétt fyrir utan íbúðarhús. Eftir nokkrar mín koma tveir lögreglumenn út úr húsinu sem er þarna (dyrnar í svona 4 metra fjarlægð frá strætóstoppinu) og með þeim e-r maður sem þeir kveðja og svo labba þeir í burtu. Þegar þeir eru nýfarnir (komnir í svona 15 metra fjarlægð kannski) kemur út annar maður og fer e-ð að segja við hinn. Hann labbar alveg að honum... og allt í einu eru þeir farnir að slást! Sá sem kom út á eftir hinum lendir næstum því strax undir og sá sem er oná fer að berja hann aftur og aftur og aftur í andlitið.
Meðal þeirra sem biðu þarna eftir strætó var ung kona með tvö börn, strák og stelpu sem eru kannski svona 4 ára. Þeim er náttúrulega mjög brugðið og stelpan fer að hágráta. Lögreglumennirnir eru komnir svona 20-30 metra í burtu og taka ekki eftir neinu fyrr en móðir litlu krakkana fer að garga á mennina að hætta að slást, það séu lítil börn á staðnum og þeir séu að hræða þau. Þá snúa lögreglumennirnir sér við, sjá hvað er að gerast og hlaupa tilbaka. Þeir handtaka annan manninn en sleppa hinum...
Veit ekki hvað olli þessum slagsmálum en mig grunar að það hafi verið að henda öðrum hvorum út úr húsinu þar sem þeir voru með e-r ferðatöskur... Kannski ekki merkilegt en jáhm.. fannst þetta ekki skemmtilegt.

Annars er ekki svo mikið að frétta... allar krufningar búnar í skólanum í bili... síðustu vikuna sem krufið var krufði ég eðlu, frosk og mús. Músin var pottþétt ógeðslegust, var svo vond lykt af henni. Það var líka heldur óhugnalegt að kryfja froskinn, einfaldlega af þeirri ástæðu að við vorum með nokkra lifandi froska í búrum í stofunni líka, fannst hálf grimmt að kryfja "bræður" þeirra þar sem þeir gátu séð til :P

Svo fer ég að fylgjast með krufningu á líki í janúar á spítalanum í Gentofte. Hljómar spennandi ekki satt? Þetta er ekki beint hluti af kúrsinum... þetta er valfrjálst og utan skólatíma... en nánast allir í bekknum hafa skráð sig í þetta, þannig ég ákvað að fara líka. Þetta mun verða... áhugavert! Ætla að setja hérna tvo linka fyrir ykkur sem tengjast þessu umræðuefni svolítið. Hérna er einn og hér er annar.

Í síðustu viku var Julefrokost hjá "bekknum mínum". Ég var reyndar eiginlega veik þennan dag, með massa hausverk en ákvað að taka bara verkjalyf og fara samt. Sé alls ekkert eftir því! Þetta var mjög gaman! Ég dýrka dani, þeir eru svo skemmtilega flippaðir, opnir og yndislegir! :D
Þessi Julefrokost var frekar óvenjulegur að því leitinu til að það var búningakeppni í gangi þannig margir mættu í búningum :D Voru þarna nokkur jólatré, snjókarl, jólasveinar, jólasveinkur, bjórflaska, Rúdolfar,.. etc. Þetta skemmdi sko ekkert stemminguna ;) Þetta var svo haldið s.s. í sal á kollegíunni hjá einum strák í bekknum, ekki svo langt frá þar sem ég bý. Salurinn er á jarðhæð og snýr að götunni. Það eru gluggar frá gólfi til lofts þannig allir sem labba framhjá sjá inn... sem var frekar fyndið... sérstaklega þar sem þegar við vorum að borða þá komu þarna hópur af gaurum (svona 14-18 ára kannski) og fóru að horfa inn. Þeir héngu svo þarna heillengi og fóru að dansa fyrir utan gluggana og e-ð.. það var mega fyndið :D
Anyhow... allir áttu að mæta með e-ð á hlaðborðið og var það allt saman mjög vel heppnað. Það átu pottþétt allir á sig gat! :D Reyndar var ekki alltaf mikill friður til að borða.. af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi þá var fólk alltaf að skála! Hvort sem það var bara af því að e-m datt það í hug, fólk var að fá sér snafs eða e-r bankaði í "Skåle-kålet" (don't ask :D) þá var það oft... Í öðru lagi af því að ekki bara voru mistillteinar hengdir þarna út um allt heldur voru þau líka með kústskaft sem þau höfðu límt mistilltein á endan á. Þetta gengu þau með um á meðan við sátum og vorum að borða og settu fyrir ofan á hausinn á varnarlausu fólki sem sat þarna og borðaði í sakleysi sínu. Sama hversu fullan munninn fólk var með, engin vægð var sýnd og auðvitað var tekin mynd í hvert sinn... ;P (verður forvitnilegt að sjá myndirnar þaðan)

Anyhow... það vantaði ekki uppátækjasemina hjá þeim sem skipulögðu þennan julefrokost því fyrir utan það sem ég nefndi áðan þá var sérstakur leikur sem var til þess að finna út hvar maður ætti að sitja við borðið. Strákar og stelpur þurftu að draga miða úr sitthvorum pokanum... á miðanum stóð svo e-ð dýranafn og þurfti maður að finna borðherrann sinn/dömuna með því að ganga um og gefa frá sér það hljóð sem fylgir þessu dýri... Það var frekar... skrautlegt :D Ég var nú bara ágætlega heppin með borðherra... hann var allavega svo sætur að bjarga mér frá því að vera neydd til að drekka snafs (ákavíti), sem ég var mjööög þakklát fyrir! :)

Svo voru líka miðar undir diskunum manns... sem sögðu manni að gera e-ð. Þeas. sumir fengu miða um að þeir ættu að gera eða segja e-ð ákveðið meðan setið var til borðs, aðrir áttu að ganga frá eftir matinn... og sumir fengu miða sem stóð á VIP. Eftir matinn komumst við að því hvað VIP-ið þýddi... þau þurftu að setja upp leikrit um fæðingu krists... og þurftu þau að draga e-a miða... sem skýrðu hvernig leikrit það ætti að vera... og þau drógu söngleik... greyin.. það var frekar skrautlegt.

Allavega... eins og alltaf þegar danir eru annars vegar þá var drukkinn MIKILL bjór þarna og eins og siður er í þessum jólaboðum.. .mikið af snafs (ákavíti). Þetta leiddi til þess að fólk var orðið ansi skrautlegt þegar líða tók á kvöldið...

Annars finnst mér vert að minnast á að ég var þarna að spjalla helling við einn af bekkjarbræðrum mínum.. og komst þá að því að hann hefur skrifað 3 bækur og þær verið gefnar út! Fannst þetta reyndar hljóma soldið eins og e-ð fylleríis bull en daginn eftir fletti ég þessu upp... og viti menn! Hann var að segja satt... og það sem meira er.. hann var 17 ára þegar sú fyrsta kom út! (Hann er 20 núna). Hefði reyndar ekki komið mér á óvart þó hann hefði verið að bulla þar sem hann var ansi drukkinn greyið... stuttu eftir að ég hætti að tala við hann sá ég hann hlaupa í átt að klósettunum og æla í lófan á sér rétt áður en hann komst inn... geðslegt...

Eitt í viðbót sem þessir flipparar sem skipulögðu þetta tóku upp á... Þar sem þetta var nú jólapartý og hvað eru jól án snjós? Þau ákváðu að láta snjóa.... og hvað er betra að nota sem gervisnjó en.... fjaðrir! :S Þau höfðu greinilega keypt þónokkra dúnkodda í þeim eina tilgangi að klippa þá í sundur... og fleygja öllum fjöðrunum yfir fólk! Þegar fyrsti koddinn var opnaður vissi ég ekki hvað ég átti að halda.. fylgdist bara með þessu og pældi hvað í ósköpunum hún væri að gera.. þangað til að hún gekk yfir til okkar... tók upp lúku af fjöðrum og henti framan í okkur! :D Ég er nokkuð viss um að ég hafi gleypt eina litla... var hóstandi alltaf öðru hvoru eftir þetta :P Og ég var víst ekki sú eina... Hálftíma eftir þetta var allt gólfið þarna ÞAKIÐ í fjöðrum...
Josef vildi meina að þetta væru pottþétt lundafjaðrir... héld fyrirlestur fyrir mig um hvernig maður þekkti muninn á gæsafjöðrum og lundafjöðrum og sagði að danir keyptu rosa mikið af lundafiðri frá Íslandi? Er e-ð til í því? Treysti nú ekki alveg því sem hann var að segja þarna enda var hann freeeekar mikið drukkinn... hann og borðherrann minn og einn í viðbót höfðu byrjað bjórdrykkjuna strax kl. 3 um daginn og því voru þeir löngu orðnir drukknir áður en partýið byrjaði... Tókst næstum að láta hann æla með því að pota í magann á honum þegar hann var að kvarta yfir því að hafa drukkið of mikið *evil* :D

Anyhow.. nóg um þetta? Skil ekki hvernig þið nennið að lesa allt sem ég skrifa... þið hljótið öll að vera haldin sjálfspyntingaþörf... eða kannski eigið þið við svefnörðugleika að stríða eins og ég? og lesið bloggið mitt til þess að sofna?

Allavega... ég var búin að lofa að labba með einni stelpu þarna niður á Nörrebro torg þar sem hún gæti tekið strætó... og þar sem henni var farið að líða e-ð illa eftir mikla snafsdrykkju strax um tvöleitið þá var ég dregin út þá þó mig langaði lítið að fara strax...

Ég labbaði með henni þangað þar sem hún tók strætó og rölti svo heim (stutt að fara). Eftir að hún var farin tók ég eftir því að fólk horfði frekar mikið á mig... eftir smá umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að ástæðan fyrir því var að ég var ennþá með jólasveinahúfu á hausnum (skilda í julefrokostinn) og sú staðreynd að húfan var öll út í fjöðrum :) Ég ákvað því að labba húfulaus restina af leiðinni.... :P

Þegar heim var komið ákvað ég að kíkja aðeins í hinn julefrokostinn sem ég hafði verið boðin í þetta kvöld, þann sem var haldinn á kollegíunni minni. Þar var fámennt en góðmennt.


Nú eru bara nokkrir dagar í að ég fari til Suður-Frakklands þar sem ég mun halda upp á jólin ásamt fjölskyldunni, oh það á eftir að vera æði :D Hlakka svo til að koma á gömlu heimaslóðirnar aftur! *purrr*

Jæja.. ég nenni ekki meiru... enda komið miklu meira en nóg og ég orðin hræðilega þreytt. Ætlaði að vera löngu farin að sofa :/ Eitt samt... ég vil hvetja alla til þess að hugsa til þeirra sem minna mega sín núna um jólin (og bara alltaf). Gefið í góðgerðastarf eða e-ð... svona í anda jólana. Ykkur á eftir að líða svo vel eftirá ;)
T.d. getið þið styrkt þetta málefni. Ég gerði það allavega. Ég veit að það eru mörg önnur mikilvægari málefni sem hægt er að styrkja, fólk er að svelta og deyja úr kulda og vosbúð um heim allan núna... En ég valdi að styrkja Childsplay-verkefnið af því að ég veit hversu ömurlegt það er að vera sem barn vikum saman á spítala. Ég veit líka hvað það er ömurlegt að eyða nánast öllu jólafríinu á spítala... þannig mér fannst meira en sjálfsagt að styrkja þetta verkefni. Endilega tékkið á þessu.



28.11.2005

Long time no see!

Jáhm, ég veit það er langt síðan ég hef bloggað... margar ástæður fyrir því sem ég nenni ekki að útskýra.

Kvöldið í kvöld er búið að vera áhugavert... fyrst "sprengdi" ég pottlok... sem varð til þess að glerbrot og glerflísar fóru yfir allt matarborðið mitt... og svo tókst mér að skera mig nokkrum sinnum (smávægilega) á hníf þegar ég var að vesenast við að fjarlægja e-r festingar af kápunni minni (sem hafa farið í taugarnar á mér síðan ég keypti hana síðasta vetur). Ég er pottþétt brussa og klaufabárður dagsins! :D

Hmm, hmm.. hvað á ég að segja ykkur? Uh.. bíómyndir... jáh.. ok... Ekki sjá Serenity hún er frekar hræðileg (trust me). Ekki eyða pening í að fara að sjá A History of Violence heldur, hún er ágæt en ekkert meira en það og skilur ekkert eftir sig. Farið frekar að sjá nýju Harry Potter myndina, hún er bara helvíti skemmtileg. Ég var reyndar líka dregin með að sjá In her shoes (ég er ekki mikið fyrir svona myndir, taka það fram strax) en hún er ekki svo slæm. Pottþétt muuuuun skárri afþreying en helvítis Serenity ruslið sem allir litlir sci-fi nördar virðast vera að fá sáðlát yfir. Hafið þið séð hvað þessi mynd er að fá á IMDB?! Hún er að fá alveg fáránlega háa einkunn og er á topp 250 listanum. Samt minnir þessi mynd helst á ferlega lélegan Star Trek þátt eða e-ð... Samtölin eru svo hræðileg að fullt af fólki í salnum var sí-flissandi yfir atriðum sem áttu sko alls ekki að vera fyndin. Söguþráðurinn var svo götóttur, asnalegur og klisjukenndur að það hálfa væri nóg. Persónurnar voru ekki sérlega áhugaverðar og leikurinn.. tja... allt í lagi fyrir sjónvarpsþátt... en fyrir bíómynd.. ég veit ekki. Það getur vel verið að þessi mynd sé æði fyrir þá sem hafa séð þessa sjónvarpsþætti sem þetta er víst byggt á... en aðrir ættu að halda sig eins langt í burtu frá þessari mynd og þeir geta.

Hér er gagnrýni sem ég fann um þessa mynd og hér að neðan eru brot úr henni:

Suffering through, I mean watching SERENITY is like starting at the 84th episode of a convoluted and silly sci-fi soap opera.

The whole story is about as clear as mud, so please forgive me if I get some of this wrong.

Its clunky recycled dialog, which produced big laughs from my fellow viewers, includes, "She's torn up plenty, but she'll fly true," and that old-faithful, "We're not alone!"
"We'll get through this," Simon (Sean Maher) says to his sister, a psychic named River (Summer Glau). As River answered Simon, I felt like she was speaking directly to me when she said, "It's going to get much, much worse," which the movie certainly did. While SERENITY actually runs a minute shy of two full hours, it felt more like four.
Okay, fjúff.. gott að koma þessu frá sér :P

Annar fór ég á Mugison tónleika á föstudaginn... það var ágætt. Nánast bara Íslendingar þarna.. að sjálfsögðu... Fannst þetta ekki nærri því jafn skemmtilegt hjá honum eins og þegar hann spilaði á Innipúkanum í sumar. Finnst hann yfirhöfuð ekkert svo rosalega áhugaverður tónlistarmaður... nenni ekki að hlusta á diskana hans... en.. hann er góður í að hrífa áhorfendaskarann með sér (þó svo að hann hafi ekki sýnt það neitt svakalega á þessum tónleikum) og þess vegna getur verið mjög gaman að sjá hann spila live.

Ég var að panta flug áðan. Til Íslands. Kem 28.jan og verð til 5.feb.

Tók eitt af þessum heimskulegu netprófum um daginn.. set niðurstöðurnar hér til gamans.




Your Brain is 53.33% Female, 46.67% Male



Your brain is a healthy mix of male and female


You are both sensitive and savvy

Rational and reasonable, you tend to keep level headed

But you also tend to wear your heart on your sleeve




Get ekki sagt að þær komi mér mikið á óvart :D Ég hefði satt að segja orðið hissa ef ég hefði fengið hærri "female" prósentu. Hef aldrei getað skilið svona stelpu-stelpur... og ég get ekki gert tvennt í einu... og ég hata bleikt.. og pils... og farða.. Þetta kom mjög snemma fram... ég átti bara stráka fyrir vini á leikskóla. Átti ekkert sameiginlegt með stelpunum þar... svo þær lögðu mig bara í einelti. (Jáh, Herdís og Elísabet ég man ennþá hversu miklar beljur þið voruð strax á leikskólaaldri. Hrafnhildur... þú varst líka einstaklega leiðinlegur krakki og komst illa fram.. og Ragnhildur var ekki mikið skárri) :D (Æj, það væri nú gaman ef þær læsu þetta en það er víst frekar ólíklegt). Nóg um þetta! :D

Mér er barasta búið að takast að koma mér ansi vel fyrir hérna í litlu sætu "íbúðinni" minni. Reyndar vantar mig ennþá baðherbergisskápinn sem ég keypti fyrir meira en mánuði (helvítis IKEA, þarf að hringja á morgunn og kvarta AFTUR). Vantar líka ryksugu.. og ofn.. en það stendur til að kippa því í liðinn. Svo þarf ég reyndar líka núna að kaupa nýjan pott :/ Gengur ekki að hafa loklausan grjónapott...

Þarna.. jáh.. ég þarf bráðnauðsynlega að fara að sofa núna... til að vera hress á fyrirlestrinum og í krufningunni á morgunn :P Vona að þið hafið það sem best lömbin mín :)

Ah.. btw.. ég ætla hér með að tilnefna Unni sem krútt vikunnar (Takk fyrir bréfið og diskinn :* )

Svo mæli ég með því að þið prófið að spila Nation States, hlustið á Supergrass og tékkið á Shima.
Yfir og út!

(P.S. Þessi færsla var skrifuð í gærkvöldi en blogger var með bölvuð leiðindi. Vantaði e-ð html tag sem var ekki séns að finna út hvað var. Þannig ég þurfti að taka allan kóðan, hreinsa út allt html-ið, búa til nýjan póst, peista textann hingað og setja þetta upp á nýtt. Þannig það getur verið að það vanti búta í færsluna og þess vegna kemur hún ekki upp fyrr en núna).



14.11.2005

Jáh...

Í dag byrjaði ný önn í skólanum hjá mér. Rosalega skrítið að mæta svona aftur eftir langa fjarveru. Þetta er bara eins og að vera að byrja í þessum skóla aftur þar sem núna er ég í öðrum áföngum, með aðra kennara, í öðrum byggingum,... etc.
Fékk svo hrikalegt stresskast í gærkvöldi (allt of mikið að gera) að ég gat ekkert sofnað og var því hrikalega þreytt í dag. Ekki skemmtilegt svona fyrsta skóladaginn.
Stundaskráin mín er frekar beygluð... útskýri það kannski fyrir ykkur seinna, hef ekki beint tíma í þetta núna.
Annars held ég að það merkilegasta sem ég gerði í dag hafi verið að skoða múslingasæði í 10 milljón króna rafeindasmásjá,
spennandi ekki satt? :) Fram til loka janúar mun ég kryfja dýr þrisvar sinnum í viku. Meðal annars fiska, fugla, skordýr, mús... æj.. man ekki og er of löt til að fletta þessu upp. Er þreytt.
Annars var árekstur hérna útá horni áðan... og rosa slagsmál í kjölfarið víst... fullt af lögreglu og slökkvuliði kallað á staðinn og e-ð... ég var reyndar ekki vitni að þessu sjálf þannig...


Uhm uhm.. hvað ætlaði ég að segja fleira?? Jáh.. það var yndislegt að vera á Íslandi í síðustu viku, rosalega gaman að hitta alla sem ég náði að hitta. Því miður var ekki tími til að hitta alla, tæpir fimm dagar er aðeins of stuttur tími fyrir það. Uhm uhm.. ég var búin að lofa að senda e-r email og e-ð... það getur verið að það tefjist um nokkra daga, það er allt í einu geðveikt mikið að gera hjá mér.

Eitt að lokum.. í gær fór ég í bíó seinnipartinn með norskri stelpu sem er skiptinemi hér. Þar sem tívolíið blasti við okkur þegar við komum út úr bíóinu ákváðum við að kíkja þangað inn (kostar ekkert að kíkja ef maður er með árskort ;) ) Það opnaði nefnilega aftur á föstudaginn. Og váh! váh! váh! hvað það er yndislegt að koma þarna! Þetta er svo allt annað en að koma þarna en á sumrin! Þetta eru bara jólin, þú kemur þarna inn... og þér finnst þú bara vera 7 ára og það sé komið aðfangadagskvöld. Jólaskap, almennilegt jólaskap.. hef ekki komist í svoleiðis í e-r ár... en bara við að labba þarna inn... æj, þið verðið bara að prófa að fara þarna :)



4.11.2005

Klakaland here I come!

Í þessari viku fékk ég loksins danska kennitölu, það þýðir að það hefur verið mikið að gera hjá mér. Vesenast með að stofna bankareikning, kaupa tryggingar, breyta skráningunni minni hjá skólanum og svona ýmisleg skemmtilegheit. En jáh, ég er eiginlega of þreytt til þess að vera að skrifa e-a langa færslu núna (yesss! heyrist í sumum....???) plús það að ég þarf að fara að sofa sem fyrst þar sem ég þarf að vakna á morgunn til að fara í flug. Jáhm, það er loksins komið að því að heimsækja Klakaland aftur :) Stutt heimsókn... bara í 5 daga... en það er allavega e-ð :) Dugir til að hitta fjölskyldu og vini og það er það sem skiptir máli.
Annars fór ég og keypi hluta af því sem ég þarf fyrir næstu "blokk" um daginn. S.s. aðra af bókunum sem ég þarf, bók í lífefnafræði sem er næstum 3 kg á þyngd. Og.... krufningasett! :D Svona lítil sæt dolla... svona eins og pennastokkur að stærð.. og lítur eins út.. en í staðinn fyrir blýant, strokleður og reglustiku inniheldur boxið tangir, skæri, nál og h
níf :D :D Hinn áfanginn er s.s. komparativ anatomy... þar mun ég vera að skera í sundur fullt af litlum sætum dýrum.... víj?
Btw Animal planet er orðin uppáhalds sjónvarpsrásin mín! Dýrka suma þættina þar :D

Uhm.. uhm.. í gær... sá ég löggu í nammibúð að vera að velja sér nammi í poka. Í dag labbaði ég framhjá Rundetaarnen og fattaði að mér hafði tekist að fara fram hjá honum áður ÁN þess að fatta að þetta væri hann. Böh, ég ætla að fara að sofa... er alveg óhugnalega þreytt.. og mér er illt í maganum. Nýbúin að borða á kebab staðnum hérna útá horni (max 2 klst síðan), vona að ég sé ekki að vera e-ð veik af því :S Allavega, vonast til að hitta ykkur sem flest núna á næstu 5 dögum... endilega hringið í mig, verð með gamla númerið mitt :) Adios!


31.10.2005

Haaaaaaaalló! :)

Æj, það er æði að búa í borg :) Ég kann betur og betur við það með hverjum deginum! Það er stutt í allt og fjölbreytileikinn er mikill. Ég er meira að segja næstum því farin að kunna vel við þegar kirkjuklukkurnar hringja kl. 8 á morgnanna, BEINT fyrir utan gluggann minn :P Það er e-ð... kósí við það :) Þarf líka að fara að kíkja inn í þessa kirkju e-r tímann. Því að þó ég sé trúleysingi þá hefur mér alltaf fundist kirkjur rosalega fallegir staðir. Ég alveg elska að skoða gamlar-stórar- helst dimmar kirkjur. Minnir að það hafi verið ein sérstaklega flott í Granada og svo er auðvitað París full af þeim... En jáh.. út fyrir efnið. Ég hef nefnilega aðeins séð inn um gluggana á þessari kirkju og hún virðist vera ágætlega flott að innan.

Hverfið mitt er líka svo sætt. Gatan sem ég labba til að fara út í búð er æðisleg. Hún er svo sæt, svo margt að horfa á. Sumum finnst þetta kannski ekkert merkileg gata eða finnst hún etv ljót en mér finnst hún sæt. Rosalega sætur húsagarður í miðri götunni, hrikalega brattar trétröppur sem liggja niður að svona... kjallaradyrum... útflúrað/útskorið/e-ð í kringum margar hurðir þarna... frekar gömul ofboðslega sjarmerandi hús. Um daginn sá ég líka eitt í þessari götu sem mér fannst ofboðslega sætt... e-ð sem margir myndu líklega kalla skemmdarverk eða "veggjakrot" eða subbuskap. En það var s.s. búið að mála setningu á gangstéttina á einum stað. Setningin snýr að húsinu við gangstéttina og er s.s. beint á móti innganginum á þessu tiltekna húsi, beint þar sem tröppurnar enda. Þannig þegar e-r kemur út úr þessu húsi þá getur þessi setning, skrifuð með stórum hvítum stöfum, ekki farið framhjá henni... blasir beint við. En þarna s.s. stendur "I FUCKING LOVE YOU". Er það bara mér sem finnst þetta sætt? Okay okay, þetta er heldur langt gengið... en það að e-r hættir á það að vera handtekin fyrir á mála á gangstétt til þess að koma því til skila til manneskju (sem kannski neitar að tala við hann/hana) að viðkomandi elski hina manneskjuna... mér finnst það sætt. Þið dæmið sjálf hvað ykkur finnst...

Anyhow... ég hef ekki svo mikið að segja :) Var að tæma síðasta kassann áðan.. s.s. af kössunum sem ég lét senda hingað frá Íslandi, allar mínar eigur nánast. Þessi var fullur af smádrasli, uppskriftum og e-u fleiru. Hef virkilega ekki nennt að tæma hann hingað til, vissi ekkert hvar ég átti að setja þetta drasl. En þar sem mér tókst að troða kössunum upp á vin minn sem er að fara að flytja líka og hann er að koma að sækja þá á þriðjudaginn þá neyddist ég til að tæma þann síðasta. Þannig eftir þriðudaginn.. verða kassarnir farnir út.. og herbergið mitt verður enn fínna! Nenni samt ekki að taka fleiri myndir! Tók betri myndir af því núna um daginn þegar Gúndi kom í heimsókn (með fínu myndavélina sína). Mér finnst hálf skrítið að vera e-ð að setja þær myndir hér inn á síðuna... þannig bara... þið sem hafið áhuga á því að sjá þær.. sendið mér e-mail eða potið í mig á msn.. skal senda ykkur þær í e-maili :)

Á morgunn ætla ég að þvo þvott... í annað skipti síðan ég kom hérna.. jibbí jeij... vona að það gangi jafn slysalaust og í fyrra skiptið! Líkar ekkert allt of vel við þessa blessuðu þeytivindu... en maður þarf held ég að setja þvottinn í hana áður en maður setur hann í þurrkarann.. bölvað vesen sko. En maður þarf víst að passa sig að gera það rétt... annars tætir hún fötin manns :S Finnst heldur ekkert gaman að fara með þvottinn upp og niður ekkert-of-skemmtilegan stiga tvær hæðir... ekki sniðugt þegar jafn klaufsk manneskja og ég er á ferð :D Passa mig á að taka símann alltaf með mér þegar ég fer þarna niður... ef mér skildi nú takast að slasa mig eða e-ð :D

Jæja... ég ætla að fara að koma mér að sofa bráðlega... er búin að vera að fara allt of seint í rúmið og seint á lappir undanfarið. Á... fimmtudaginn (held ég) skrapp ég niðrí bæ í bókabúð og ákvað þar.. að kaupa mér eitt stk bók. Bókin sem mig (mér? ég er vonlaus í málfræði) langaði mest í ("Veronika Decides to Die") virtist ekki vera til þarna þannig ég endaði á að kaupa "Darkly Dreaming Dexter". Ég byrjaði þó ekki strax á henni þar sem ég var að lesa "By the Pricking of My Thumbs" eftir Agöthu Christie. Á föstudagskvöldið... upp úr miðnætti.. kláraði ég svo þá bók... og byrjaði á Dexter. Á laugardagskvöldið... var ég komin svo langt í Dexter að ég ákvað að reyna að klára hana.. gafst upp kl. 3 en kláraði hana svo þegar ég vaknaði.
Það eru svona.. kjánalegheit sem eru að valda því að ég er að fara seint að sofa... ekki það að ég sé að hanga út á næsta bar öll kvöld eða e-ð :) I wish... Mér hálf leiðist þessa daganna.. vantar fólk til að hitta. Hef ekki haft tíma/tækifæri til að vera kynnast fólki hérna síðan ég flutti út, allt verið í of miklu rugli. Þannig núna er ég voða mikið ein og fá tækifæri gefast til að kynnast fólki. Enginn skóli síðan 15.okt... og verður enginn skóli fyrr en 14.nóv... og það eru engin partý því allir á brautinni eru að læra fyrir próf. Þannig ég verð víst bara að sætta mig við það. Ég kann ekki sniðugar leiðir til að kynnast nýju fólki, ég er feimin... þannig ég læt mér bara leiðast smá. Í bili. Í næstu viku (5.-10. nóv) er það Íslandsheimsókn og þegar ég kem til baka er stutt í að skólinn byrji aftur :)

En þarna.. eitt enn: http://www.peta2.com/takecharge/swf/dogcatfur.swf (VARÚÐ ÓGEÐSLEGT!) :/ Finnst bara að fólk eigi samt að vita hvernig er verið að fara með dýr og HUGSI SIG TVISVAR UM áður en það kaupir loðfeldi eða skinnhanska eða skó eða whatever. Oh, fólk er fífl! Fífl, fávitar, hálfvitar, kúkalabbar, ógeð... ! Stundum skammast ég mín virkilega mikið fyrir að vera manneskja, t.d. við það að horfa á þetta myndband. Við ættum að skammast okkar fyrir að láta þetta viðgangast.




Jæja, hætta þessu áður en ég held mikið áfram á þessum neikvæðu nótum... :) Vona að þið hafið það öll sem best og svo framvegis...

P.S. Ég lýsi hér með eftir Le Tigre disknum mínum. Hann er horfinn :/ Var reyndar horfinn áður en ég flutti út. Þannig hann er að öllum líkindum á Íslandi. Ég er með hulstrið en diskinn vantar :/ Diskurinn er vibbalega bleikur að lit (já mér finnst bleikur ekki fallegur litur) með grænum stöfum þar sem stendur Le Tigre. Ég lánaði hann held ég síðast til Sillu (í vor?) en ég held samt að hann hafi alveg verið í hulstrinu þegar ég fékk hann til baka (ég athuga það yfirleitt). Þannig... líklega er hann heima (týndur og tröllum gefinn?)... en ef e-r er með hann.. láta mig vita :)

22.10.2005

Langt síðan síðast...



Jæja, nú hef ég loksins tíma og er í nógu góðu skapi til að blogga :)

Ætla að renna yfir hvernig síðasta vikan hefur verið.... Þessi færsla verður líklega frekar löng, sé ekki alveg hvernig hjá því verður komist. Skil vel ef enginn nennir að lesa hana til enda! :D

Ég vaknaði snemma á föstudagsmorguninn og eftir morgunmat í flýti hélt ég af stað niðrá Nörrebrogade að sækja lyklana að nýja kollegíuherberginu mínu. Þar sem ég var nývöknuð og hausinn ekki alveg kominn í gang þá gleymdi ég því á miðri leið að ég væri á leið niðrá Nörrebrogade þar sem umsjónarmaðurinn er með skrifstofu og fannst ég vera að fara beint á kollegíuna :) Ég fór því út úr strætó á vitlausum stað og var búin að labba að götunni sem kollegían er við þegar ég fattaði að ég væri á leið á vitlausan stað :) Ég þurfti því að taka auka strætó til að leiðrétta mistökin... Eftir að sækja lyklana fór ég beint uppí skóla til þess að missa ekki af síðasta fyrirlestri blokkarinnar þar sem fólk ætlaði að klæðast eins og Axel Hunding eins og ég var búin að segja ykkur frá :) Sumir tóku þetta meira alvarlega en aðrir og voru í allri A.H. múnderingunni... það var frekar kostulegt að sjá :) Fyrsta korterið af fyrirlestrinum fór í fliss, bæði hjá nemendum og kennara. Í lok fyrirlestrarins var honum svo færður rauður pólóbolur með e-i áletrun sem ég sá reyndar ekki hver var.

Eftir þetta hélt ég gangandi að nýju kollegíunni minni (komin með nóg af strætóferðum eftir þessar 5 um morguninn). Ég verð að játa að við fyrstu sýn af kollegínunni og herberginu fékk ég algjört áfall. Mér leist ekkert á þetta! :S Ég fór út í sjokki og labbaði bara í e-a átt... endaði á e-u strætóstoppi og tók bara næsta strætó sem kom... komst að því eftir nokkur stopp að ég var á leið í bandvitlausa átt.... fór þá úr strætónum og tók næsta sem lá í hina áttina... uppá Nörreport.. og þaðan annan strætó "heim". 8 strætóar og klukkan ekki orðin 2... ojoj.

Um kvöldið var svo menningarnótt í Kaupmannahöfn. Það voru alveg hundruðir viðburða af öllu tagi í gangi. Ég hins vegar fór ekki á neina af þeim atburðum sem voru yfir daginn og kvöldið (fyrir utan eitt, minnist á það á eftir) þar sem ég var upptekin af öðru. Mamma og pabbi voru nefnilega að koma til Kaupmannahafnar þetta kvöld til þess að hjálpa mér að flytja og kaupa húsgögn (sætt af þeim ekki satt?). Ég hitti þau á Hovedbanegård um kl. 10. Skrapp reyndar aðeins fyrst niður á Rådhuspladsen með Gúnda og Einari þar sem við horfðum á litla krakka fara í bjórkassaklifur. Þar sem þau s.s. fá einn bjórkassa, klifra upp á hann, fá svo annan... og eiga s.s. að reyna að komast eins hátt upp og þau geta og mega s.s. bara standa upp á kössunum, ekki snerta jörðina (held ég). Á staðnum var svo svona krani sem krakkinn var hengdur í svo hann myndi ekki slasa sig. Við horfðum á litla stelpu, ca. 9-10 ára kannski, klifra svona upp... marga metra... (ég er ekki góð í að meta hæðir... en hún var næstum komin upp að toppi kranans allavega og það voru nánast engir kassar eftir þegar kassastaflinn hennar fór að riða til og féll). Hún var þvílíkt köld sko, alveg ligeglad á svipinn, tuggði bara sitt tyggjó og virtist þykja þetta jafn mikið mál og að glápa á sjónvarpið. Það var ekki fyrr en staflinn hennar var farinn að sveigjast ískyggilega til að hún greyp í öryggislínuna.
Við röltum síðan aðeins niður Strikið, mauluðum brenndar möndlur og fórum í dótabúð. Síðan hélt ég uppá lestarstöð að hitta foreldra mína og aðstoða þau með farangurinn þeirra (ekkert smá magn) upp á hótel. Síðan hófst leit að veitingastað sem væri opinn á þessum tíma. Enduðum á Vesuvio á Ráðhústorginu, það var ágætt.
Ég var síðan samferða Gúnda og Einari tilbaka uppí Lyngby aftur... Ég ætlaði nú bara beint að sofa þar sem ég vissi að laugardagurinn yrði langur og erfiður... Það varð hins vegar ekki mikið úr því, ég hafði gleymt að það var TDC kvöld á kollegíuganginum (Tour de Chambres). Það er s.s. bara... mesta fyllerí annarinnar skilst mér. Ég hef allavega aldrei séð ganginn jafn subbulegan og fólkið.. sjaldan.. jafn drukkið :)
Gerði þau mistök að kíkja fram í eldhús... sá mjög fljótlega eftir því.... Fólkið þarna sem flest hefur lítið sem ekkert talað við mig þennnan tvo og hálfa mánuð sem ég hef dvalið þarna.. verður alveg voða ræðið þegar það er svona drukkið. Og sumir.... ansi uppáþrengjandi og óþolandi.... Sem betur fer tókst Gúnda að hjálpa mér að flýja þaðan eftir e-n tíma... það var samt ekkert sérlega auðvelt... (hefði örugglega verið skárra ef það hefðu verið aðrar stelpur þarna sem þeir gætu böggast í en svo var ekki, sú eina sem ég sá þarna lét sig hverfa fljótlega). Reyndi að fara að sofa en gat það ekki fyrir háværri tónlist... sofnaði ekki fyrr en um 3...

Vaknaði snemma á laugardeginum því við þurftum að nýta tímann vel, mikið af húsgögnum og drasli að kaupa :) Það var hins vegar hellings vesen með að fá líkið okkar... eða bílinn s.s. sem við leigðum af bílaleigunni Lej et lig. Það tafði okkur um nokkra tíma :S
Það var forgangsatriði að finna svefnsófa (fyrir mömmu og pabba til að hafa í íbúðinni minni) og rúm (fyrir mig) svo við gætum sofið í nýja herberginu um nóttina. Ég gæti alveg farið út í nákvæmar lýsingar á helginni.. alveg þónokkuð sem er vert að minnast á... en ég ætla að hlífa ykkur við því og gefa ykkur hér samanþjappaða útgáfu:
- Við komumst af því að gatnaskipulag í Lyngby er 30x verra en í Kópavogi.
- Ég keypti mikið af húsgögnum.
- Ég keypti mikið af drasli.
- Við eyddum miklum tíma í að skrúfa saman húsgögn.
- Við borðuðum hádegismat í IKEA þrjá daga í röð.
- Við fengum lítinn svefn og soldið leið á húsgögnum sem þarf að skrúfa saman.
- Mér fór mikið fram sem kortalesara og leiðsögumanni.
- Mér fór smám saman að lítast betur og betur á herbergið mitt.
- Fólk horfir mikið á mann ef maður keyrir um á stórum ógeðslega ljótum sendiferðabíl sem er málaður svartur og á stendur "Lej et lig".
- ILVA er æðisleg húsgagnaverslun með frábæra þjónustu.
- Það er mjög góður pizzastaður hérna í hverfinu.
- Ef maður er mjög óheppinn fylgir alltaf heppni í kjölfarið.
- Mamma og pabbi eru húsgagna-skrúfi-saman-meistarar.

Mamma fór svo heim á mánudagsmorguninn en pabbi ekki fyrr en á þriðjudagskvöldið því á þriðjudaginn þurfti að sækja kassana mína niðrá höfn. Það gekk fínt...

Síðan þau fóru er ég bara búin að vera að ganga frá, taka til, reyna að læra og svoleiðis fjör :)

Í gær fór ég í fyrsta sinn út í búð hér í hverfinu... komst þá að tvennu... Í fyrsta lagi eru mjög svo sætar götur hér í kring (og gatan mín er ferlega krúttleg) og í öðru lagi er stutt í allt :) Hér við hliðiná er kirkja sem gluggarnir mínir snúa útað. Næsta hús við hana er svo síðasta hefðbundna baðhús Kaupmannahafnar :) Við hliðiná því er svo grunnskóli.. hinum megin við götuna er svo leikskóli...
Niðrá horni er þvottahús... og þar við hliðinaá er bakarí. Næsta gata við er svo Nörrebrogade. Sú gata er FULL af Kebab-stöðum og Persneskum veitingastöðum... og svona litlum araba-búðum :) Og þar er plötubúð!!!! Ef maður labbar aðeins eftir þeirri götu kemur maður niður á Nörrebros Rundell en þar eru 3 matvöruverslanir, 7-11 búð, apótek, McDonalds (OJJBARA), Sunset, gæludýrabúð... name it. Pósthús í sjónmáli nokkrum metrum ofar við götuna...

Birgði mig meðal annars upp af kryddi, átti bara salt og pipar fyrir :D Hver kryddstaukur kostaði tæpar 40 isk. Smá munur á verðum hér og heima...

Dagurinn í dag var ágætur... vaknaði kl. hálf 9, dreif mig í sturtu, sturtaði í mig skál af kornflexi og dreif mig niður í þvottahús (tvær ferðir í að flytja þvottin niðrí kjallara, jeij). Svo önnur ferð til að setja draslið í skilvindu og í þurrkarann og enn önnur að sækja þetta.... jeij . Tók líka helling til og svona... voða lítið merkilegt... Seinni part dags fékk ég svo skemmtilega heimsókn, minn fyrsti gestur hér á nýja heimilið mitt (fyrir utan mömmu og pabba sem teljast nú varla með). Gesturinn var s.s. strákur sem er með mér í námi, hann ætlaði rétt að kíkja en það endaði með að hann fór ekki fyrr en um hálf 11 leitið eftir að við höfum fengið okkur að borða á veitingastað hérna útá horni. Voða nice.

En þarna.. ég er alveg að farast úr þreytu... ætla að hætta þessu rugli. Þessi færsla er pottþétt hræðilega skrifuð, full af stafsetningavillum og so on... en í þetta sinn.. verðið þið bara að sætta ykkur við það. Ég er í engu ástandi til að leiðrétta þetta núna! *Geisp-geisp-geispedí geisp*

Eitt sem ég vil bæta við: Takk til mömmu og pabba fyrir að vera svona yndisleg að koma út og vesenast þetta með mér (og fyrir hnífapörin) :D Takk til ömmu og afa fyrir samlokugrillið (og sæta viskustyttið), hinna ömmu og afa fyrir hraðsuðuketilinn, takk til Nonna frænda fyrir pönnurnar, og so on... úff.. ég er of þreytt til að hugsa. núna.. En allavega, takk :) Þetta hjálpar allt við að gera heimilislegra hér... :)

9.10.2005

Flutningar í vændum

Á föstudaginn er síðasti skóladagurinn minn í þessari "blokk". Þá tekur við viku vetrarfrí, síðan er upplestrarfrí og lokaprófið er svo ekki fyrr en 4. nóvember. Þetta kemur sér vel fyrir mig því að bæði þarf ég tíma til að ná að flytja inn á nýju kollegíuna mína og einnig þarf ég virkilega að fá tíma til að læra.

Föstudagsmorguninn er líka merkilegur fyrir þær sakir að þá mun ég fara og ná í lyklana að nýja heimilinu mínu. Beint eftir það ætla ég að drífa mig upp í skóla til að sjá síðasta fyrirlestur "blokkarinnar". Ekki það að fyrirlesturinn sem slíkur skipti mig einhverju máli heldur af því að þetta mun verða mjög sérstakur fyrirlestur :) Kennarinn sem heldur þennan fyrirlestur er mjög sérstakur. Fyrirlestrarnir hans eru ekki góðir, hann fer allt of hratt yfir, talar óskýrt og flestum finnst hann frekar flækja efnið en útskýra það. Hann talar líka á frekar skondinn hátt, mér finnst sérstaklega fyndið þegar hann segir "et eller andet" (sem hann segir mjög oft). Ég get því varla setið fyrirlestur hjá honum því ég þarf alltaf að vera að passa mig að flissa ekki upphátt. Það er hins vegar annað við þennan mann sem vekur mesta athygli og er það klæðaburður hans. Hér ætla ég að birta smá brot af fréttapósti af síðu molbiomed nema:
"som en stor hyldest til vores alles yndlings fysisk kemi-forelæser axel hunding har kom-som-axel-hunding-dag-udvalget taget initiativ til en kom-som-axel-hunding-dag. så det er bare med at finde den røde polo, de blå fløjlsbukser, de lyserøde truckersolbriller (eller briller??) og prikken over i'et: de TO nøglekæder (én til hver lomme) frem, så vi alle i fællesskab kan hylde HCØs modeguru".
Á föstudaginn ætlar hópurinn s.s. að heiðra þennan kennara með því að klæðast í rauða pólóboli, bláar flauelsbuxur og bleik sólgleraugu (bleikt gler í þeim). Svo má náttúrulega ekki gleyma lyklakeðjunum... Ég ætla reyndar ekki að taka þátt í þessu en það verður gaman að sjá þetta... :) Ef þið flettið nafni þessa kennara upp á google (myndaleit) kemur upp mynd af honum í einum af rauðu pólóbolunum sem hann er ALLTAF í. Var að pæla í að setja hana hér en hætti við það. En jáh, ég fæ s.s. lyklana að nýja herberginu á föstudaginn. Mamma og pabbi ætla að vera svo sæt að kíkja hingað út yfir helgina og hjálpa mér að kaupa húsgögn og flytja inn. Þau koma á föstudagskvöldinu og fara heim á mánudag/þriðjudag. Ég flutti ekkert af húsgögnunum mínum hingað út (nema auðvitað mína ástkæru geisladiskahillu) þannig að ég þarf að kaupa allt nýtt. Nýtt rúm, skrifborð, náttborð, hillur, borð, stóla, skrifborðstól... :P Þetta verður fjör... Ætli ég geri ekki eins og allir Íslendingar sem flytja erlendis virðast gera, fari og versli í IKEA! Hehe. Kassarnir mínir koma með skipi á mánudag/þriðjudag, þess vegna fer pabbi ekki aftur til Íslands fyrr en á þriðjudagskvöldið.

Þar sem að ég átti flugmiða til Íslands 15.október en kemst ekki (þar sem ég er að flytja) þá flutti ég miðann til 5.nóvember. Þannig þið getið átt von á mér til landsins þá (í nokkra daga), vona að ég nái að heilsa upp á flest ykkar í þeirri ferð :) (Hver ætlar að bjóða mér í SingStar partý? ;P ) Það mun samt hafa algjöran forgang að hitta fjölskylduna mína, Dominique og svo ömmur mínar og afa :)

Í gærkvöldið var ég boðin í partý hjá stelpu sem er með mér í námi. Var mjög forvitin að fara þangað þar sem hún býr á glænýrri kollegíu (eða nýuppgerðri?) sem á víst að vera mjög flott (sjá hér). Ég fór hins vegar ekki þar sem að eftir kvöldmat í gær fékk ég vondan hausverk og varð illt í hálsinum. Hélt að ég væri að vera veik þannig ég ákvað að vera heima. Hausverkurinn virðist vera að koma aftur núna... :S

Jæja, segja þetta gott í bili?? :) Er pottþétt eitthvað sem ég ætlaði að skrifa um sem ég er að gleyma... eeeen whatever.

P.S. Ég bætti við linkum hér til hliðar...

3.10.2005

Húsnæðismál leyst?

Komið þið sælir strumparnir mínir :)

Jæja, þá loksins get ég skrifað smá fréttir af húsnæðismálum. Hingað til hafa nánast eingöngu verið vondar fréttir af þeim og hef ég einfaldlega verið of pirruð á þessu drasli til að skrifa um það. Til að gera langa sögu stutta hefur þetta verið vesen... s.s. bréfaskrif, símtöl og þó nokkrar heimsóknir á kollegíu-úthlutunar-skrifstofur til að reyna að fá e-n stað til að búa á. Gefin loforð, svikin loforð... gífurlegt fjör. Allavega, í þetta sinn stóðu þau við það sem lofað var og í gær fékk ég tilboð um kollegíuherbergi. *strump*
Það var búið að segja mér að líklega myndi ég bara fá tilboð um að vera á ákveðinni kollegíu sem ég vil alls ekki búa á og því var það óvænt ánægja að fá tilboð á kollegíu sem ég vil gjarnan búa á. Hún er að vísu soldið dýr en það er allt í lagi. Hún er frekar stutt frá skólanum mínum og hefur ýmsa aðra kosti. Ég flýtti mér að segja já við tilboðinu um leið og það kom. Auðvitað var hængur þarna á... tveimur manneskjum var boðið þetta sama herbergi (og hin var á undan mér á listanum) þannig ef sú manneskja hefði sagt já við tilboðinu líka þá hefði hún fengið það en ekki ég... En en en! Í morgun fékk ég e-mail um að ég hefði fengið herbergið... og ég á von á að fá leigusamninginn í hendurnar á næstu dögum :) Skilst að ég geti svo flutt inn í herbergið um miðjan mánuðinn :) Það verður yndislegt að komast í eigin húsnæði, hafa pláss, geta farið að kaupa húsgögn og fá dótið mitt sent frá Íslandi :) *strump*

Á laugardagskvöldið síðasta fórum við í bíó að sjá "The 40 year old virgin". Hún var mjög fyndin og ágætis skemmtun. Hefði ég fengið að ráða hefðum við farið að sjá e-a aðra mynd samt. Ég er ekki vön að fara að sjá gamanmyndir í bíó, sé þær frekar á dvd ef ég sé þær yfir höfuð. Finnst meira varið í myndir sem skilja e-ð eftir sig.

Allavega, þar sem að ég stend líklega í flutningum um miðjan október og þar sem að ég fer í lokapróf fyrir þessa "blokk" 4. nóvember þá kem ég líklega ekki til Íslands 15. október eins og ég var að vonast til. Þá er nefnilega viku vetrarfrí sem ég ætlaði að nota til þess að heimsækja klakaland og knúsa allt fólkið þar sem ég sakna svo mikið. En því miður verður hitt að ganga fyrir, kannski kíki ég í staðinn til Íslands eftir lokaprófið í nóv., það er aldrei að vita :)

Held ég láti þetta duga í bili...
verið þið sælir strumparnir mínir :)