15.5.2007

Íslandsskrepp og fleira



Blogga oftar sagði ég?
Hmm, er ekki alveg að standa við það.
Ekki mikið að frétta svosem. Var á Íslandi frá kvöldi 27.apríl og til 6.maí vegna jarðarfararinnar hans afa sem var 30.apríl. Að sjálfsöguðu fóru nokkrir dagar bara í það að vera með fjölskyldunni og var það ósköp notalegt. Náði nú líka að hitta e-ð af vinum þó auðvitað hafi ekki verið nokkur leið að hafa tíma til að hitta allt þetta yndislega fólk sem mér þykir svo vænt um.



Dæmi um það sem brallað var:
- Fór með Huldu, Ingunni og Atla á Hressó eitthvert kvöldið, það var ótrúlega gaman enda eru þau ótrúlega frábært fólk :)
- Spilaði Risk 2210 A.D. (sem ég er nýbúin að kaupa mér) með Jóa og Sölku, það var æðislega skemmtilegt og verður pottþétt endurtekið við fyrsta tækifæri!
- Fór á kaffihús með Xibei og við létum okkur detta í hug að kíkja kannski á e-a sólarströnd saman í lok júní, vonandi verður e-ð af því! Rakst líka á Þorgils frænda sem var óvænt ánægja, hef ekki séð hann í áraraðir!
- Heimsótti Fanney Sísí en heim til hennar finnst mér alltaf ótrúlega kósí að koma, næstum eins og að koma heim bara :)

- Hitti Örnu, svo Tomma og loks Séamus á kaffihúsinu Vor. Frábært að hitta þau að sjálfsögðu.

- Sigga bauð mér út að borða í hádeginu einn daginn á Culiacan, takk fyrir það ;* Alltaf svo gaman og kósí að hanga með henni :)

- Fór í stutta heimsókn til Nonna og Siggu Maju og fékk að sjá litlu sætu stelpuna þeirra sem fæddist í apríl. Er ekki frá því að það fari Nonna bara vel að vera pabbi ;P

- Hitti Guðrúnu Ágústu niðrí bæ og við tókum langt spjall inni á Quiznos. (Sakna þess rosalega að hafa hana ekki í Danmörku núna!)




Svo var líka ýmislegt skemmtilegt brallað með fjölskyldunni:
- Matarboð hjá Önnu og Ragga. Svuntan hans Ragga sló í gegn og það var gott að hitta Ingeri aftur.

- Matarboð hjá Sollu og Gylfa. Litlum frænda sem ég hef aldrei hitt áður leist svo rosalega vel á mig að ég slapp ekkert frá því að eyða mestu af boðinu í að leika við hann :)

- Afmæli hjá Sigurbjörgu litlu frænku. Fékk loksins að sjá hinn ofursmáa Lúkas!

- Út að borða á Hornið með Benediktu og ömmu Boggu í boði þeirrar síðarnefndu. Frábær matur! Þær mæla með pítsunum þar og ég get óhikað mælt með lasagna-inu!! Fórum síðan á söngleikinn Leg sem er frábær! Hugleikur Dagsson er snilli :) Amma og Benedikta bókstaflega grétu af hlátri. Kvöldið endaði svo á hangsi heima hjá Benediktu og Agga en við vorum í félagsskap Gutta og Söndru (eh, ég er léleg með nöfn en ég held ég muni þetta rétt) en þau komu að sækja hinn fjöruga Plútó sem er ofursæti svarti labradorhvolpurinn þeirra :) Einnig voru Dóri og Hannes þarna.... Ástæðan fyrir að ég fór þangað var að það átti víst að skora á mig í SingStar en viðkomandi beilaði e-ð á því ;)

- Tónleikar með Emilíönu Torrini og kór Kársnesskóla. Jiiiii hvað þetta voru flottir tónleikar! Æði gæði! Gat ekki annað en dáðst mikið af þessum krökkum.. og að sjálfsögðu hinni frábæru og fallegu Emilíönu. Naut tónleikanna í botn með ömmu og Sædísi frænku.




Síðan ég kom til Danmerkur hef ég voða lítið gert af viti;
- Bölvað rigningunni sem var hérna mán, þri, mið, fim og fös í síðustu viku.
- Bjó til scrapbook úr gömlum tónleikamiðum og fleiru (gaman að eiga en tók endalausan tíma).
- Unnsteinn frændi kom og var í sólarhring, fór með honum í jarðarför en svo eftir það höfðum við það bara kósí og fórum út af borða og versluðum vínylplötur ;P

- Var pyntuð í tvær nætur uppá spítala, e-ð rannsóknardæmi sem ég nenni ekki að útskýra. Eyðilagði mest alla helgina fyrir mér.
- Fór á fótboltaleik í Parken, FC Köbenhavn - Randers FC. Óspennandi leikur en gaman að hafa prófað þetta :)

Núna er ég bara að reyna að plana sumarið, það er ERFITT! Þetta púzzl er ekki alveg að fitta saman... Þið sem eruð að koma til Köben megið gjarnan segja mér aftur hvenær það var sem þið verðið hér. Svo ég geti s.s. fittað því inn í púzzlið að geta hitt ykkur. Eða já, reynt það.

Ætlað að skirfa e-ð meira.... eeeeen látum þetta nægja í bili!
Yfir og út

26.4.2007

Flakk



Eins og ég nefndi um daginn þá skrapp ég til Englands um miðjan mánuðinn.
Ég flaug til Stansted flugvallar að morgni afmælisdagsins míns, get ekki beint sagt að ég hafi verið yfir mig hrifin af EasyJet eftir það ferðalag. Þegar á Standsted var komið biðu foreldrar mínir og bróðir minn eftir mér þar og ókum við beint til Cambridge. Þar eyddum við fjölskyldan saman tveimur dögum ásamt vinafjölskyldu okkar sem býr í borginni. Við gistum á litlu fyndnu hóteli og notuðum þessa daga í að rölta um borgina og skoða auk þess að fara út á ánna í bát (spes litlum flatbotna bátum sem maður ýtir áfram með stöng).



Veðrið var frekar undarlegt, alltaf kalt og þoka á morgnanna en svo sólskin og frábært veður eftir hádegi. Cambridge finnst mér alveg dásamlega falleg, hún er full af ævagömlum háskólabyggingum og kirkjum. Engin bygging í borginni má vera hærri en e-r ákveðinn kirkjuturn sem er þarna þannig maður sleppur alveg við að sjá ljót háhýsi. Háskólinn á allt landið þarna og getur því ákveðið nákvæmlega hvernig allt á að vera. Mikið er um svæði (jafnvel þó það séu bara tún með engu á nema grasi) sem eingöngu nemendur mega vera á. Frekar fyndið.
En já, ég var s.s. yfir mig hrifin af byggingunum og fannst heldur ekki verra hvað það var ótrúlega mikið af spennandi bókabúðum þarna. Þar til að ég áttaði mig að ég gat ekki keypt neitt þar sem ég ferðaðist bara með lítinn bakpoka og það komst ekkert aukalega í hann... :S



Við héldum smá upp á afmælið mitt á laugardeginum, Andy og Nicola keyptu súkkulaðiköku, jarðaber og cookies með súkkulaðibitum og karamellu. Við sátum úti í garði hjá þeim í sólinni og jöpluðum á þessu góðgæti og sötruðum freyðivínið sem mamma og pabbi komu með frá Lúxemborg. Voða huggulegt :)
Smákökurnar sem ég minntist á..... BESTAR Í HEIMI!!! Þeas. allar kökurnar frá þessu fyritæki. Ef þið eruð stödd í Englandi (eða París, Berlín, Frankfurt eða Hong Kong) þá skuluð þið tékka á Millie's Cookies. MMM MMM MMM!



Á sunnudagskvöldinu þurftu foreldrar mínir og Gísli að halda aftur til Lúxemborgar því afi var þar á spítalanum. Ég var áfram í Cambridge og dvaldi hjá Nicolu og Andy fram á þriðjudagsmorgun. Þá tók ég lestina til London þar sem ég dvaldi eina nótt hjá Anne og Rob. Þriðjudagurinn var frekar mikið stress, af mörgum ástæðum. Það var alveg frábært að hitta þau þó svo að það hafi hitt frekar illa á. Miðvikudagurinn var líka frekar mikið stress, en eins og þriðjudagurinn þá átti hann sínar góðu stundir.
Ég hélt til norðurhluta London, í úthverfi þar sem sonur Andy og Nicolu býr í stóru húsi ásamt 5 vinum sínum. Það var mjög gaman að hitta þessa rugludalla þó svo að ég viti núna að ég gæti aldrei búið í húsi með svona mörgum strákum....



Tók síðan metróið þaðan og ætlaði á Liverpool Street station til að taka Standsted Express lestina. Það reyndist hægara sagt en gert. Rétt áður en við komum á Angel stöðina stoppað lestin. Svo var drepið á henni. Svo slökknuðu ljósin og neyðarljósin komu á. Síðan kom mjög skrítin rödd í kallkerfið og sagði "There has been a serious accident" og e-ð með að hjálp væri á leiðinni og við ættum að sitja kyrr.
Ég fann bara hvernig ég náfölnaði þegar ég áttaði mig á því að ég myndi að öllum líkindum missa að fluginu. Leist heldur ekkert á þetta þegar gaurarnir sem sátu í sama vagni og ég fóru að tala um að við yrðum þarna örugglega endalaust lengi. Það var nú þegar byrjað að vera heldur heitt þarna og ég var þvílíkt þyrst með ekkert að drekka meðferðis. Auk þess var ég ógeðslega þreytt og með þungan bakpoka og var dauðhrædd um að þurfa að labba eftir lestargöngunum þegar hjálp bærist. Ég einfaldlega vissi að ég hefði ekki orkuna í það.
Sem betur fer.... nokkrum mínútum síðar.... fór fólk í vagninum fyrir framan okkur að standa upp og labba frameftir vagninum. Við rukum á fætur og gerðum slíkt hið sama (ég og hinir í vagninum þ.e.). Komumst að því að fyrstu vagnarnir höfðu náð inná stöðina og því komumst við út!! :D



Ég held að lestin hafi keyrt yfir e-n. Allavega var fólk á hnjánum með vasaljós að kíkja undur lestina auk þess sem verið var að loka stöðinni og okkur skipað að fara út. Sírenur voru á fullu í efri hluta stöðvarinnar og þegar út var komið sá ég flokk af sjúkra-, lögreglu- og slökkviliðsbílum auk þess sem þyrla kom á svæðið rétt á eftir. Megastress. Ég hafði ekki rass hugmynd um hvar ég væri eða hvað ég ætti að gera. Tókst sem betur fer fyrir einskæra heppni að hóa í leigubíl og komast þannig niður á lestarstöð. Lestarferðin til Standsted tók lengri tíma en ég átti von á og það mátti ekki muna miklu til að ég hefði misst af fluginu.
Ég var heldur pirruð á öryggiseftirlitinu á flugvellinum. Ég veit ég lít ógnvænlega út en er algjör nauðsyn að gegnumlýsa skónna mína???!!!? (Nei, það er ekki gert hjá öllum). Það eftir að allt hitt öryggisdótið er búið... urg...



Allavega. Ég fer til Íslands annað kvöld. Jarðaförin hans afa er á mánudaginn. Aðra daga en mánudaginn megið þið endilega hringja í mig. Verð á Íslandi til 6.maí. Fullvissa ykkur að ég tek ekkert illa í það að vera boðið í mat eða heimabakaðar kökur ;D Það er líka langt frá því að vera út úr myndinni að ykkur takist að draga mig með á Culiacan, KFC, American Style eða e-ð kózí kaffihús. Og já, ég tek með mér Risk 2010 AD sem ég var að kaupa mér (loksins!!) og vonast til að geta spilað það með einhverjum af mínum yndislegu vinum e-t kvöldið.
Má líka nefna að ef þið hafið tíma á daginn þá er frábært ef þið hafið samband þá. Það vill vera þannig þegar maður kíkir til landsins að öll kvöld eru "fullbókuð" (og endar yfirleitt í smá bömmer að hafa ekki fleiri kvöld) en svo hangir maður á daginn og hefur ekkert að gera.


P.S. Komin með Flickr myndasíðu. Þar er að finna myndir bæði frá Lúxemborg og Cambridge.

22.4.2007

Elías Jón Jónsson


Elsku besti afi minn lést á föstudagskvöldið, 77 ára að aldri.

Afi gat lagað allt. Ef einhver slasaði sig og þurfti að láta búa um sár þá sá afi um það. Ef e-r braut e-ð og þurfti að láta púsla því aftur saman þá sá afi um það. Skór, kafarabúningar, styttur, stólar – afi lagaði það. Man alltaf hvað ég var hissa e-r tímann þegar úlpan mín var rifin og ég ætlaði að fá ömmu til að hjálpa mér að sauma hana saman eftir að hafa reynt það árangurslaust sjálf. Afi hins vegar tók að sér að laga hana og ég hef barasta aldrei séð jafn vandaðan saumaskap :)

Afi var lögga og sagði okkur oft ótrúlegustu sögur úr starfinu, í raun er algjört kraftaverk að hann hafi lifað svona lengi miðað við allt sem hann hafði upplifað. Afi var líka kafari –lögreglukafari. Hann átti það til að heilla vini mína upp úr skónum þegar ég var yngri með því að segja þeim söguna af því þegar hann rakst á hákarlinn :)

Afi sá líka e-r tímann um háhyrning sem var fluttur frá Íslandi í Marineland garðinn í Antibes í Frakklandi. Hann ferðaðist með háhyrningnum til að sjá um hann. Fyndið svo að mörgum árum seinna skildum við fjölskyldan flytja í nágrenni Antibes. Við fórum í garðinn til að sjá hvort háhyrningurinn væri þar ennþá en hann var dáinn, afkvæmi hans voru þó ennþá þar.

Þegar ég var yngri átti afi jeppa. Okkur krökkunum þótti rosalega gaman að fara með afa og ömmu í jeppatúra, sérstaklega ef keyrt var um Vigdísarvelli! Einn jeppatúr er mér sérstaklega minnisstæður en þá keyrðum við um Suðurnesin og á leiðinni sömdum við vísur um alla í bílnum og sungum þær svo saman. Þessar vísur kann ég enn í dag. Sú fyrsta var um mig. Afi tók eftir því að mér var kalt á höndunum (eins og alltaf) og byrjaði þá fyrstu: “Salóme með kalda kló, kroppar í minn lófa....”. Síðan komu vísur um systur mína, bróður minn, ömmu og loks sú um afa –hún hljóðaði svona:

Afi hann er alveg snar,

út um móa ekur.

Alla polla yfir þar

og æðarfugla rekur,

argar kríur vekur.

“Úmbarassa, úmbarrassa, úmbarrassasa....”


Afi orti mikið af ljóðum. Afi söng í kór. Man eftir að hafa einhver tímann farið í kirkju með afa og ömmu. Þegar byrjað var að syngja fyrsta sálminn söng afi hærra en allir aðrir. Var frekar fyndið því allir í kirkjunni horfðu á hann :)

Garðurinn hjá ömmu og afa er rosalega fallegur. Þó svo að amma sjái vísast um allar plönturnar þá er stór hluti af því afa að þakka. Hann lagði t.d. rosalega flottan stíg úr hraunhellum í gegnum hann (það þurfti nauðsynlega stíg því að er brött brekka í garðinum vegna vörðuhólsins – auðvitað lagaði hann svo líka vörðuna þegar hún var skemmd). Hvernig í ósköpunum honum tókst að lyfta þessum hellum get ég samt ómögulega skilið....

Afi átti alltaf suðusúkkulaði og harðfisk. Það kunnu barnabörnin alltaf vel að meta og oft var stór hópur í kringum hann meðan við biðum eftir að hann brenndi harðfiskroð fyrir okkur (mmm, mmm! Ekki dæma það fyrr en þið hafið smakkað!). Reyndar virtust barasta öll börn elska afa. Krakkar úr nágrenninu komu oft og bönkuðu uppá til að sníkja kex og spjalla við afa. Á tímabili var hann líka eftirlæti allra barna vegna sjóræningjaleppsins sem hann þurfti að ganga með.

Hann var alltaf að kenna okkur alls konar fingra og magaæfingar... en magaæfingarnar voru þær sömu og hann lét þá gera sem hann var að kenna köfun. Afi var með bumbu en með rosalega magavöðva og oft var hann í því að kenna strákunum í ættinni að kýla og var þá sjálfur boxpúðinn. Gaman fyrir þá en mér fannst sjálfri alltaf óþægilegt að horfa upp á það.

Afi kunni rosalega mikið af vísum, ljóðum og lögum sem hann fór oft með upp úr þurru og söng fyrir okkur. Afi var algjör húmoristi og alltaf að gantast í fólki og það var aldrei leiðinlegt að vera í kringum hann.



***

Þessi færsla er aðallega skrifuð bara fyrir mig, langaði að minnast aðeins í orðum þessa merkilega manns sem ég mun ávallt sakna.

9.4.2007

Færslan sem tók viku að koma á netið >(

Ég er búin að vera að reyna að koma bloggi á síðuna í meira en viku. Ekkert gengið (blogger síðan bara virkar ekki), kannski hefur internet-tengingin heima hjá mömmu og pabba í Lúx e-ð á móti blogger.com? Sjáum hvort þetta kemst á bloggið núna (kom heim til Danmerkur í dag). Þetta er færslan eins og ég skrifaði hana fyrir viku síðan, aðeins löguð til 2-3 dögum seinna og svo bætt við hana núna í kvöld.
--->


Vúhú!! Ég á afmæli bráðum! Er þá ekki kominn tími á hinn árlega gelgjulega niðurteljara? :D






Ojjj, það hefur ekkert verið á blogginu mínu síðastliðinn mánuð nema þessar leiðinda óeirðir, sorry sorry! :S Er alltaf á leiðinni að blogga en kem mér aldrei í það... leti í manni. Stefni á það núna að skrifa oftar og styttra... sjáum hvað verður úr því, errrrh :P





Í augnablikinu er ég í Lúxemborg, kom hingað þann 28.mars og verð til 9. apríl. Tilgangurinn með ferðinni er að eyða páskunum í faðmi fjölskyldunnar - eins og flest ykkar vita þá búa foreldrar mínir og bróðir í Lúxuslandi. Svo eru amma og afi líka hérna í heimsókn til 5.apríl og systir mín kom í gærkvöldi frá Íslandi. Gaman gaman! Reyndar er afi uppá spítala og hefur verið síðan síðasta fimmtudag - ekki svo gaman :/
Reyndar er ástæðan fyrir því að ég fór svona snemma í páskafrí sú að mamma var með myndlistaropnun þann 28.mars sem ég vildi fyrir alla muni ekki missa af! Sýningin er haldin á e-u rosa fínu hóteli hér í miðborg Lúxemborgar og er stórglæsileg að mínu mati. Rosalega skemmtilegt sýningarrými en sýningin er s.s. í einni af svítunum, í mótökunni, í matsalnum og svo í "vínkjallara" sem bara nýlega fannst þegar farið var að grafa e-ð undir hótelinu til að stækka.
Ekkert búið að vera neitt æðislegt veður síðan ég kom hingað en í gær var sól og 18°C þannig þetta er allt á réttri leið :) (Ágætt í dag svo sem líka). Lúxemborg er alveg ótrúlega falleg á vorin, tré í blóma út um allt! Annars höfum við ekki gert svo mikið af viti síðustu daga ef frá er talið að fara á tónleika í Fílharmóníunni og versla föt og mótorhjól!








Marsmánuður leið annars nokkuð hratt. Ég hætti á dönskunámskeiðnu sem ég var á e-r tímann í byrjun mánaðarins vegna þess að það og nýi kennarinn var alveg óhemju leiðinlegt!
Þann 12.mars skilaði ég inn umsókn í Kaupmannahafnarháskóla fyrir næsta haust (í lýðheilsufræði) og var þar þungri byrði af mér létt! Ég hef kviðið því í meira en ár að þurfa að velja annað nám og var þetta allt annað en auðveld ákvörðun. Þið getið því ímyndað ykkur hversu kát ég var þennan dag, úti að spóka mig niðrí miðbæ í frábæru vorveðri með Guðrúnu Ágústu... frábær dagur.... þar til ég kom heim. Þá fékk ég skilaboð frá vini mínum sem skýrðu frá því að sameiginleg vinkona okkar, ein besta vinkona mín í Danmörku - hefði framið sjálfsmorð. Vikan sem fylgdi á eftir hvarf eiginlega í ekki neitt - kannski þess vegna sem mánuðurinn leið svona fljótt? Jarðaförin hennar var fyrsta jarðaförin sem ég hef farið í, vona innilega að það séu allavega svona 40 til 50 ár í að ég þurfi að kveðja næsta vin því það að fara í jarðaför ungrar manneskju er alveg ótrúlega... rangt?





Annars er ekki margt frásagnarvert úr marsmánuði, allavega ekki sem fer á internetið ;P Jú, ég fór í alveg yndislegt matarboð hjá pólskri vinkonu minni í byrjun mánaðarins - set inn hérna eina mynd úr því! =) Svo hélt ég kökuboð í lok mars fyrir sama vinahóp... það var rosalega notalegt. Hmm, hmm.. var e-ð annað merkilegt? Já! Ég sá geimverur.... þær vinna í fiskbúð á Nörrebrogade (rétt hjá þar sem ég bý) og eru frekar scary. Svo gaf e-r ókunnugur maður mér pening á e-m skemmtistað í Köben (alveg out of the blue) -okkur stelpunum fannst það smá skondið.




Ég fer til Englands þann 14.apríl (á afmælinu mínu!!) og verð til 18.apríl. 3 daga í Cambridge og svo endað í London. Svo langar mig að kíkja til Íslands í maí. Sumarið er ennþá nokkuð óráðið, því miður :S Veit bara að ég verð í Lúxemborg þann 11.júní því ég ætla að sjá Marilyn Manson á tónleikum :D (Dreg mömmu, pabba og bróður minn með, hehehe!) Svo eru nokkrar hugmyndir uppi en ekkert ákveðið... hvað ætlið þið að gera? E-ð skemmtilegt þar sem ég get slegist í hópinn?? :D Langar að ferðast!!

Bætt við þann 9.apríl:
Loksins loksins! Það var greinilega internet-tengingin sem var vesenið.
Er svona eiginlega of syfjuð til að vera að þessu núna og er varla að nenna þessu heldur... (enda búin að reyna að setja þessa færslu inn svona 10x áður, alltaf e-ð helvítis vesen).... ætla að bæta inn nokkrum myndum og segja þetta svo gott í bili.

Endilega kommentið og segið mér hvað þið ætlið að gera í sumar! Er forvitin :)

10.3.2007

Ground 69



Nú er Ungdomshuset fyrrverandi orðið að Ground 69.
Á mánudaginn síðasta var byrjað að rífa húsið og var verkið klárað 2 eða 3 dögum síðar. Á föstudaginn var gatan fyrir framan það (Jagtvej - með stærri umferðagötum hverfisins) loksins opnuð aftur. Þar með er málinu því miður EKKI lokið.


Á hverjum einasta degi vikunnar hafa verið haldin einhver mótmæli og e-r verið handteknir. Ekki hefur þó komið til jafn mikils brjálæðis og síðustu helgi. Hins vegar hafa "ungmennin" hótað fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra fyrirtækja sem unnu við niðurrifið. Verkamennirnir voru svo hræddir að þeir huldu andlit sín allan þann tíma sem þeir unnu við að rífa húsið. Fyrirtæki sem voru ráðin til verks þarna reyndu að dylja hver þau væru en ekki gekk það svo vel.
Fljótlega voru fífl frá ungdomshúsinu búin að birta á netinu nöfn fyrirtækjanna og lista yfir starfsmenn þeirra og myndir.
Í byrjun vikunnar var kveikt í tveimur fluttningabílum fluttningafyrirtækis sem hafði verið ráðið til að flytja rusl frá grunninum. Þeir neituðu þá að taka lengur þátt í þessu verkefni. Samt sem áður var enn einn af fluttningabílum þeirra brenndur síðar í vikunni.

Mótmælagöngur vikunnar hafa verið nokkuð friðsælar og margvíslegar. Hávaðagöngur og bangsabúningagöngur og blablabla. Ég er komin svo mikið ógeð á þessum fávitahætti að ég fylgist takmarkað með. Í gegnum vikuna hefur samt ósjaldan heyrst í sírenum og þyrlan góða á það til að vera ekki langt undan.
Í byrjun vikunnar voru handteknir ca. 17 á dag en ég held það hafi farið minnkandi út vikuna... þar til síðustu nótt. Þá ákváðu 1.000 fávitar að halda partý á grunni hússins. Þau voru látin í friði þótt þau kveiktu þar stór bál (3-4m háir logar), gerðu graffítí á nýmálaðann vegg nágrannabyggingar og væru með þvílíkan hávaða. Þegar löggan bað þau um að láta gott heita um kl. 2 í nótt (eftir 4 tíma partý) var e-r mótþrói og endaði það með að 37 voru handteknir. Geta þessir asnar ekki haldið sig á mottunni?

Alls hafa btw 732 verið handteknir frá því 1.mars vegna þessa máls og þar af sitja nú 197 manns í gæsluvarðhaldi.


Löggan er búin að vera frekar nice myndi ég segja miðað við allt kjaftæðið sem þeir hafa mátt þola frá þessu pakki. Þeir deildu út múrsteinum frá húsinu til fólks sem vildi eiga þá til minningar (á svoleiðis að vera í verkjahring lögreglunnar?) og áður en grunnurinn var opnaður færðu þeir öll blómin (það var sko miiiiikið af þeim) frá torginu og lögðu þau á grunninn (annars hefði bara verið keyrt yfir þau öll). Auk þess hafa þeir yngstu sem voru handteknir (undir 18) verið fluttir í e-ð sérstakt fangelsi þar sem þau geta verið öll saman í hóp og þurfa ekki að umgangast aðra fanga.


Búist er við ólátum í dag/kvöld/nótt.


P.s. Fyndið

3.3.2007

Haaaalelúja

Myndir teknar út um gluggann hjá mér milli kl. 22:45 og miðnættis þann 3.mars 2007:




Tengist fréttinni sem er linkað á hjá extra bladet hér að neðan.






Fyrir framan bygginguna hér við hliðiná. Þeir handtóku e-n mann með skalla. Voru þarna í óratíma.




Þessir 4 hvítu bílar innihalda 6 lögregluhunda hver.




Götunni lokað
____________________________________________________
kl. 3:51 aðfaranótt 3.maí
Núna síðustu tvo tímana er búið að vera action hér beint fyrir utan. Stúkusæti í íbúðinni minni. Missti reyndar af stærsta lögregluáhlaupinu því ég var dregin út í göngutúr.... bömmer! Sá samt lögregluna reyna að keyra e-n upp að vegg... á bíl.. hefði getað endað mjög subbulega en hálfvitinn slapp með naumindum. Búið að brenna tvo ruslagáma niður fyrir framan kirkjuna (sem ég sé beint út um stofugluggann minn) og svo var reynt að gera götuvígi hér beint fyrir utan - með brauðkössum úr Netto og reiðhjólum mestmegnis... einnig stöku ruslafötu. Löggan kom fyrir korteri síðan og fjarlægði þetta... og handtóku einn beint fyrir utan gluggann minn. Nánar á morgunn plús myndir sem ég tók.


UPDATE kl.21:44:

Ætlaði að vera löngu búin að uppfæra en það fórst fyrir þar sem ég var lítið heima í dag.
Nóttin var áhugaverð, eins og færslan frá því í nótt gaf líklega í skyn. Það var allt í háalofti út um allt hverfið, svo margir eldar að lögreglan og slökkviliðið höfðu ekki við (langt frá því). Það voru ólæti hér fyrir utan en þau voru nú samt bara mjög lítilvæg miðað við hvað var að gerast í öðrum hlutum hverfisins. Var samt heldur óhugnanlegt að sjá strákinn þarna vera næstum smassaðan upp við vegg af lögreglubílunum (einum af þessum stóru sendibílum).
Eitt sem ég gleymdi að minnast á í nótt líka var að það kom alveg rosalega mikill sótsvartur reykur upp frá kirkjugarðinum (alveg við Runddelen) hef ekki hugmynd um hvað það var samt. Reyndi að taka mynd af því en það tókst ekki.
S.s. allt brjálað í nótt, komst ekki að sofa fyrr en rétt fyrir fimm. Í dag hefur verið friðsælt, fávitarnir voru með e-a göngu sem endaði hérna rétt hjá en það var allt á friðsömu nótunum. Búist við óspektum í kvöld og það getur verið að e-ð sé byrjað nú þegar því nú óma sírenur hér fyrir utan og það er búin að vera sveimandi yfir hérna þyrla alltaf öðru hverju síðustu 1-2 klukkustundirnar. Vona að þeir haldi sig frá þessum hluta götunnar í nótt samt - langar að geta sofið. Vil heldur ekki að lögreglan fari að skjóta táragasi hér fyrir utan.

Annars handtók löggan líka ca. 130 manns í morgunn, þeas. réðust inn og handtóku fólkið þar sem það hélt til (svaf). Farnir að snúa smá vörn í sókn greinilega.... ekki veitir af segi ég! (Ég vil ekki hljóma eins og fasisti en þið vitið ekki hvernig þetta búið að vera hérna...). Ég verð fegin þegar þetta er búið. Það var ömurlegt í gærkvöldi að horfa upp á öll þessi eignarspjöll og geta ekkert gert.
Æj, þetta er ömurleg bloggfærsla en ég er massa syfjuð, sorry :S

Ætla að deila með ykkur smá af útsýninu út um gluggann hjá mér í gærkvöldi. (Ekki létt að ná nothæfum myndum með svona myndavél við þessar aðstæður... enda eru þetta langt frá því að vera góðar myndir... Farið inná pol.dk til að sjá almennilegar myndir af rugli næturinnar).


Lögreglan að fjarlægja "vegatálmann" (var nú frekar aumingjalegur þessi) sem var beint fyrir framan húsið mitt um kl. 3:30 í nótt. Var að mestu úr plastkössum sem eru notaðir undir brauð í Netto (stálu þessu úr bakgarðinum á húsinu sem ég bý í), auk reiðhjóla og stöku ruslafata og umferðaskilta.


Farið að skíðloga í gámunum sem sjást á myndinni hér að neðan.


Kveikt var í tveimur gámum á torginu fyrir framan kirkjuna á Stefansgade - séð beint út um stofugluggann hjá mér. Í þeim logaði í allavega 2 tíma eða þar til þeir og allt ruslið var bráðnað/brennt.


Fullt af lögreglubílum komu til að fjarlægja vegatálma sem hópur af fávitum gerði (að mestu úr reiðhjólum) aðeins ofar í götunni. (Horft til vinstri út um svefnherbergisgluggann minn)


Sænsku lögreglubílarnir sem danska lögreglan fékk að láni að fara framhjá húsinu mínu (eitt af grilljón skiptum í nótt)

UPPFÆRSLA KL. 23:15

Læti hafin á ný! Gatan er búin að vera haf af bláum ljósum síðustu 30 mínúturnar eða svo. M.a. vegna þessa. Ég hélt ekki að það væri mögulegt að sjá svona margar lögreglubíla í einu (öll hafa verið slegin á síðustu dögum) en svo virðist vera. Þetta var s.s. í áttina að Nörrebro st (ofar í götunni en húsið mitt) en núna er allt búið að færast að Nörrebro's Runddell (torgið sem er næstum alveg við Ungdómshúsið... get séð glitta í það ef ég sting hausnum út um svefnherbergisgluggann). Það er líka gríðarlega mikið af ungu fólki í götunni sem allt stefnir í átt að Runddelen.
Svo eru búnar að heyrast allavega 3 háar sprengingar og ég frétti frá vini mínum að hann hafi séð að fávitarnir væru að reyna að blinda þyrluflugmennina með grænum laserum. Og að lögreglan sé fyrir utan þar sem hann býr í e-u stórundarlegu ökutæki og allir með gasgrímur... meira táragas á leiðinni! Og hmm.. enn frekar fréttir frá Jagtvej - þar voru að fara framhjá tveir lögreglubílar hvor um sig með 6 lögregluhunda. Díddídím... var að opna gluggann.. megn brunalykt úti... og núna... sírenukór.... ó, þetta á eftir að vera hávær og löng nótt. Aumingja lögreglan :/
Reyksprengja?

Meira

4. maí kl.00:23
Það eru 5 lögreglusendibílar kyrrstæðir fyrir framan húsið mitt og þar með hellingur af lögreglumönnum. 3 löggur fóru rétt áðan í portið fyrir aftan húsið... Ég kunni betur við það þegar átökin voru bara hinum megin í hverfinu.

00:40
Rétt í þessu var maður handtekinn fyrir utan húsið mitt. Hann öskraði og sparkaði og það tók 5 lögreglumenn ágætis tíma að koma honum inn.

01:22
Haahahahahahah!
En læser skriver til ekstrabladet.dk: 'I Møllegade har nogle aktivister fået tæsk, samt fjernet deres bukser at lokale beboere, som ikke vil finde sig i mere vold og ballade. Nørrebro har fået nok af ballademagere.'
Djöfull er löggan að standa sig vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður!

02:51
Haha, frábær leiðari! :D
Allt virðist friðsælt núna, góða nótt!

2.3.2007

Dagur 2



Í morgunn hefur víst allt verið rólegt. Lögreglan býst þó við helling af mótmælum í dag og hefur kallað inn liðsauka frá öllum landshlutum. Rétt í þessu ók einn af þessum blessuðu brynvörðu bílum -með sírenurnar á- hérna framhjá. Skyldu ólætin vera að byrja?
Held annars að mestu lætin verði í kvöld um ca. 8 leitið en fávitarnir ætla að safnast saman kl. 7 og halda fund á Stengade (sem er gata hér í Nörrebro).


Af fréttasíðu Politiken:
Afbrændt affald på gaden
Fra Kapelvej op mod Nørrebros Runddel ligger strimler af afbrændt affald, massevis af cykler og forskellige effekter, der øjensynligt er hentet fra baggårdene omkring Nørrebrogade.

På Kapelvej ligger en udbrændt Mercedes, og bydelen emmer af røg.

Alt er roligt, og børn på vej til skole tager billeder med mobiltelefoner af ødelæggelserne.

Nørrebrogade er spærret ved Dronning Louises Bro og Hillerødgade, mens størstedelen af Jagtvej er lukket for trafik. En række buslinjer er derfor omlagt.


Af síðu Ungdómshússins:

I de kommende dage fortsætter protesterne efter den kalender, der længe har været fastlagt fra Ungdomshusets side. Fredag d. 2. marts er ”dag 2”, hvor der er lagt op til aktioner og happenings efter fri fantasi. Lørdag d. 3., ”dag 3”, hvor det overordnede tema er trafikdag.

Lørdag er der også demonstration af Borgergruppen for Ungdomshuset. Det er klokken 15 fra Rådhuspladsen og klokken 14 fra henholdsvis Christiania og Vesterbro.

Hvordan protesterne kommer til at udvikle sig er endnu uvist, men mange er naturligvis stadig rasende, så der er bestemt sandsynlighed for, at der igen vil blusse kampe op.


Fyrir þá sem vita ekkert um hvað þetta mál snýst þá bendi ég á þessa bloggfærslu. Auðvitað hefur meira gerst síðan í desember en þið verðið bara að lesa ykkur til um það, t.d. á síðu Politiken. Þar er, meðfram öllum greinum um ungdómshúsið, dálkur ("Fra start til slut") þar sem er farið í mjög fáum orðum um sögu málsins frá 1982 og til gærdagsins. Mjög góð yfirsýn þar sem staðreyndirnar tala fyrir sig í stað þess að verið sé að mata mann með frásögn blandaða skoðunum.

P.S. ...


3. mars kl. 00:53
Allt í klessu aftur - eldsprengjur, steinakast og táragas. Að þessu sinni við Skt Hans Torv ---> pol.dk

1.3.2007

Ungdomshuset rutt



Kl. 7 í morgun lét lögreglan til skarar skríða. Ég vaknaði við hávaðann í þyrlunum. Allt gekk vel en þetta er langt frá því að vera búið. Búðir og bankar í hverfinu eru í óða önn að setja tréplötur fyrir alla glugga, búist er við heljarinnar látum kl. 17 og svo áfram næstu daga.

Myndir frá því í dag.

Vídeó á móti Ungdómshúsinu:
http://www.youtube.com/watch?v=7jci3w3zzEk

Getið fylgst með fréttum á síðu Politiken.

Kl. 20:21 Viðbót:

videó:

http://politiken.dk/poltv/?ExtID=1349


Einnig er inná pol.dk mikið af myndum, þar af slatti frá því núna eftir að fór að dimma.
Ég hef aldrei séð jafn mikið af brynvörðum lögreglubílum (eða hvað þessi fyrirbæri kallast) á einum degi (allavega búin að sjá nokkra tugi). Vitleysingarnir hafa verið að kasta götusteinum, flöskum, málningarsprengjum og fleira auk þess að kveikja elda og velta bílum. Lögreglan hefur m.a. svarað með því að nota táragas. Þetta er s.s. allt hérna á Nörrebro -ef þið skoðið videóið eða lesið fréttir af Politiken sjáið þið (minnst á) Sjællandsgade, gömlu götuna mína! Mesta fjörið er á því svæði (4 mín labb héðan?) en við hér hinum megin við Runddelen höfum alveg sloppið hingað til. Svo eru líka læti niðri við Christianshavn og e-r sagði mér að mestu lætin í kvöld ættu að vera við Ráðhústorgið.
Btw seinnipartinn í dag voru negldar plötur fyrir alla glugga á jarðhæð hússins sem ég bý í.


Kl. 23:40 - Update:
Það er víst útgöngubann á Nörrebro. Þeas ef þú ferð út hefur lögreglan rétt til að handtaka þig án nokkurar ástæðu. Er samt alveg slatti af fólki úti.
"Minn" hluti Nörrebrogade er sem fyrr í ró en ég heyrði brothljóð fyrr í kvöld... er nokkuð viss um að það hafi verið brotnar tvær stórar rúður e-r staðar hér nálægt en ég gat ekki séð út um gluggann hvar það var. Neðar í götunni (nær miðbænum) voru ennþá logandi eldar um kl. 22 (var sýnt beint í fréttunum) enda eru alltaf að koma hópar og bæta á bálkestina - lögreglan getur ekki verið alls staðar í einu. Á sama tíma voru ennþá læti á Christianshavn og var sagt að þeir væru farnir að nota táragas þar líka enda er búið að kveikja í e-m bílum þar og vesen. Síðan var e-r sorgarganga, held það hafi verið um 1000 manns sem gengu frá Ráðhústorginu og að Folkets Park þar sem hlutirnir byrjuðu að fara úr böndunum (eru að valda veseni á Elmegade - milli Skt Hans Torv's og Nörrebrogade). Það eru líka eldar á Blågards plads (þar sem mótmælagangan byrjaði kl. 17:00) og vitleysingarnir eru víst búnir að yfirtaka e-ð hús þar. Sjá nánar hér.

Bendi líka á að það er fullt af góðum myndaseríum inná pol.dk, m.a. myndir innan úr Ungdómshúsinu.

Farin að sofa, yfir og út ;)