1.3.2007

Ungdomshuset rutt



Kl. 7 í morgun lét lögreglan til skarar skríða. Ég vaknaði við hávaðann í þyrlunum. Allt gekk vel en þetta er langt frá því að vera búið. Búðir og bankar í hverfinu eru í óða önn að setja tréplötur fyrir alla glugga, búist er við heljarinnar látum kl. 17 og svo áfram næstu daga.

Myndir frá því í dag.

Vídeó á móti Ungdómshúsinu:
http://www.youtube.com/watch?v=7jci3w3zzEk

Getið fylgst með fréttum á síðu Politiken.

Kl. 20:21 Viðbót:

videó:

http://politiken.dk/poltv/?ExtID=1349


Einnig er inná pol.dk mikið af myndum, þar af slatti frá því núna eftir að fór að dimma.
Ég hef aldrei séð jafn mikið af brynvörðum lögreglubílum (eða hvað þessi fyrirbæri kallast) á einum degi (allavega búin að sjá nokkra tugi). Vitleysingarnir hafa verið að kasta götusteinum, flöskum, málningarsprengjum og fleira auk þess að kveikja elda og velta bílum. Lögreglan hefur m.a. svarað með því að nota táragas. Þetta er s.s. allt hérna á Nörrebro -ef þið skoðið videóið eða lesið fréttir af Politiken sjáið þið (minnst á) Sjællandsgade, gömlu götuna mína! Mesta fjörið er á því svæði (4 mín labb héðan?) en við hér hinum megin við Runddelen höfum alveg sloppið hingað til. Svo eru líka læti niðri við Christianshavn og e-r sagði mér að mestu lætin í kvöld ættu að vera við Ráðhústorgið.
Btw seinnipartinn í dag voru negldar plötur fyrir alla glugga á jarðhæð hússins sem ég bý í.


Kl. 23:40 - Update:
Það er víst útgöngubann á Nörrebro. Þeas ef þú ferð út hefur lögreglan rétt til að handtaka þig án nokkurar ástæðu. Er samt alveg slatti af fólki úti.
"Minn" hluti Nörrebrogade er sem fyrr í ró en ég heyrði brothljóð fyrr í kvöld... er nokkuð viss um að það hafi verið brotnar tvær stórar rúður e-r staðar hér nálægt en ég gat ekki séð út um gluggann hvar það var. Neðar í götunni (nær miðbænum) voru ennþá logandi eldar um kl. 22 (var sýnt beint í fréttunum) enda eru alltaf að koma hópar og bæta á bálkestina - lögreglan getur ekki verið alls staðar í einu. Á sama tíma voru ennþá læti á Christianshavn og var sagt að þeir væru farnir að nota táragas þar líka enda er búið að kveikja í e-m bílum þar og vesen. Síðan var e-r sorgarganga, held það hafi verið um 1000 manns sem gengu frá Ráðhústorginu og að Folkets Park þar sem hlutirnir byrjuðu að fara úr böndunum (eru að valda veseni á Elmegade - milli Skt Hans Torv's og Nörrebrogade). Það eru líka eldar á Blågards plads (þar sem mótmælagangan byrjaði kl. 17:00) og vitleysingarnir eru víst búnir að yfirtaka e-ð hús þar. Sjá nánar hér.

Bendi líka á að það er fullt af góðum myndaseríum inná pol.dk, m.a. myndir innan úr Ungdómshúsinu.

Farin að sofa, yfir og út ;)

5 ummæli:

Unknown sagði...

Vonandi verður allt með kyrrum kjörum þarna í stúkusætinu áfram :)
MA

Nafnlaus sagði...

Þetta er alveg farið úr böndunum.. En ég hef litla skoðun á þessu öllu saman, ég veit ekkert um hvað þetta snýst:S

Nafnlaus sagði...

Úlala er þetta ég?
Og hvað er þessi stelpa í stuttbuxum að gera þarna?

Annars finnst mér þetta helvíti leiðinlegt og allt saman hið versta mál. Ég segi nú bara eins og Schwarzenegger: getum við ekki öll verið vinir?

Sölvi sagði...

Gott að heyra að það sé allt í lagi hjá þér! Ég er búinn að hafa miklar áhyggjur, og ábyggilega fleiri.

Og ég er sammála Schwarzenegger!

Salóme Mist sagði...

Takk fyrir kommentin krúttin mín :)

Ég er sammála Schwarzenegger, Unni, Sölva og dýrunum í Hálsaskógi.

Unnur: Held þetta sé Sui...
Tók einmitt líka eftir stelpunni í stuttbuxunum... þú'st.. wtf?