Nú er Ungdomshuset fyrrverandi orðið að Ground 69.
Á mánudaginn síðasta var byrjað að rífa húsið og var verkið klárað 2 eða 3 dögum síðar. Á föstudaginn var gatan fyrir framan það (Jagtvej - með stærri umferðagötum hverfisins) loksins opnuð aftur. Þar með er málinu því miður EKKI lokið.
Á hverjum einasta degi vikunnar hafa verið haldin einhver mótmæli og e-r verið handteknir. Ekki hefur þó komið til jafn mikils brjálæðis og síðustu helgi. Hins vegar hafa "ungmennin" hótað fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra fyrirtækja sem unnu við niðurrifið. Verkamennirnir voru svo hræddir að þeir huldu andlit sín allan þann tíma sem þeir unnu við að rífa húsið. Fyrirtæki sem voru ráðin til verks þarna reyndu að dylja hver þau væru en ekki gekk það svo vel.
Fljótlega voru fífl frá ungdomshúsinu búin að birta á netinu nöfn fyrirtækjanna og lista yfir starfsmenn þeirra og myndir. Í byrjun vikunnar var kveikt í tveimur fluttningabílum fluttningafyrirtækis sem hafði verið ráðið til að flytja rusl frá grunninum. Þeir neituðu þá að taka lengur þátt í þessu verkefni. Samt sem áður var enn einn af fluttningabílum þeirra brenndur síðar í vikunni.
Mótmælagöngur vikunnar hafa verið nokkuð friðsælar og margvíslegar. Hávaðagöngur og bangsabúningagöngur og blablabla. Ég er komin svo mikið ógeð á þessum fávitahætti að ég fylgist takmarkað með. Í gegnum vikuna hefur samt ósjaldan heyrst í sírenum og þyrlan góða á það til að vera ekki langt undan.
Í byrjun vikunnar voru handteknir ca. 17 á dag en ég held það hafi farið minnkandi út vikuna... þar til síðustu nótt. Þá ákváðu 1.000 fávitar að halda partý á grunni hússins. Þau voru látin í friði þótt þau kveiktu þar stór bál (3-4m háir logar), gerðu graffítí á nýmálaðann vegg nágrannabyggingar og væru með þvílíkan hávaða. Þegar löggan bað þau um að láta gott heita um kl. 2 í nótt (eftir 4 tíma partý) var e-r mótþrói og endaði það með að 37 voru handteknir. Geta þessir asnar ekki haldið sig á mottunni?
Alls hafa btw 732 verið handteknir frá því 1.mars vegna þessa máls og þar af sitja nú 197 manns í gæsluvarðhaldi.
Löggan er búin að vera frekar nice myndi ég segja miðað við allt kjaftæðið sem þeir hafa mátt þola frá þessu pakki. Þeir deildu út múrsteinum frá húsinu til fólks sem vildi eiga þá til minningar (á svoleiðis að vera í verkjahring lögreglunnar?) og áður en grunnurinn var opnaður færðu þeir öll blómin (það var sko miiiiikið af þeim) frá torginu og lögðu þau á grunninn (annars hefði bara verið keyrt yfir þau öll). Auk þess hafa þeir yngstu sem voru handteknir (undir 18) verið fluttir í e-ð sérstakt fangelsi þar sem þau geta verið öll saman í hóp og þurfa ekki að umgangast aðra fanga.
Búist er við ólátum í dag/kvöld/nótt.
P.s. Fyndið

1 ummæli:
Hvað varð um öll kommentin?
Ég setti reyndar inn komment daginn sem þú skrifaðir þetta en einhvernveginn hefur það klúðrast og kom ekki inn....mér fannst svo snjallt hjá löggunni að gefa þeim að borða, fólk er miklu betra í skapinu það er ný búið að borða :)
Skrifa ummæli