9.4.2007

Færslan sem tók viku að koma á netið >(

Ég er búin að vera að reyna að koma bloggi á síðuna í meira en viku. Ekkert gengið (blogger síðan bara virkar ekki), kannski hefur internet-tengingin heima hjá mömmu og pabba í Lúx e-ð á móti blogger.com? Sjáum hvort þetta kemst á bloggið núna (kom heim til Danmerkur í dag). Þetta er færslan eins og ég skrifaði hana fyrir viku síðan, aðeins löguð til 2-3 dögum seinna og svo bætt við hana núna í kvöld.
--->


Vúhú!! Ég á afmæli bráðum! Er þá ekki kominn tími á hinn árlega gelgjulega niðurteljara? :D






Ojjj, það hefur ekkert verið á blogginu mínu síðastliðinn mánuð nema þessar leiðinda óeirðir, sorry sorry! :S Er alltaf á leiðinni að blogga en kem mér aldrei í það... leti í manni. Stefni á það núna að skrifa oftar og styttra... sjáum hvað verður úr því, errrrh :P





Í augnablikinu er ég í Lúxemborg, kom hingað þann 28.mars og verð til 9. apríl. Tilgangurinn með ferðinni er að eyða páskunum í faðmi fjölskyldunnar - eins og flest ykkar vita þá búa foreldrar mínir og bróðir í Lúxuslandi. Svo eru amma og afi líka hérna í heimsókn til 5.apríl og systir mín kom í gærkvöldi frá Íslandi. Gaman gaman! Reyndar er afi uppá spítala og hefur verið síðan síðasta fimmtudag - ekki svo gaman :/
Reyndar er ástæðan fyrir því að ég fór svona snemma í páskafrí sú að mamma var með myndlistaropnun þann 28.mars sem ég vildi fyrir alla muni ekki missa af! Sýningin er haldin á e-u rosa fínu hóteli hér í miðborg Lúxemborgar og er stórglæsileg að mínu mati. Rosalega skemmtilegt sýningarrými en sýningin er s.s. í einni af svítunum, í mótökunni, í matsalnum og svo í "vínkjallara" sem bara nýlega fannst þegar farið var að grafa e-ð undir hótelinu til að stækka.
Ekkert búið að vera neitt æðislegt veður síðan ég kom hingað en í gær var sól og 18°C þannig þetta er allt á réttri leið :) (Ágætt í dag svo sem líka). Lúxemborg er alveg ótrúlega falleg á vorin, tré í blóma út um allt! Annars höfum við ekki gert svo mikið af viti síðustu daga ef frá er talið að fara á tónleika í Fílharmóníunni og versla föt og mótorhjól!








Marsmánuður leið annars nokkuð hratt. Ég hætti á dönskunámskeiðnu sem ég var á e-r tímann í byrjun mánaðarins vegna þess að það og nýi kennarinn var alveg óhemju leiðinlegt!
Þann 12.mars skilaði ég inn umsókn í Kaupmannahafnarháskóla fyrir næsta haust (í lýðheilsufræði) og var þar þungri byrði af mér létt! Ég hef kviðið því í meira en ár að þurfa að velja annað nám og var þetta allt annað en auðveld ákvörðun. Þið getið því ímyndað ykkur hversu kát ég var þennan dag, úti að spóka mig niðrí miðbæ í frábæru vorveðri með Guðrúnu Ágústu... frábær dagur.... þar til ég kom heim. Þá fékk ég skilaboð frá vini mínum sem skýrðu frá því að sameiginleg vinkona okkar, ein besta vinkona mín í Danmörku - hefði framið sjálfsmorð. Vikan sem fylgdi á eftir hvarf eiginlega í ekki neitt - kannski þess vegna sem mánuðurinn leið svona fljótt? Jarðaförin hennar var fyrsta jarðaförin sem ég hef farið í, vona innilega að það séu allavega svona 40 til 50 ár í að ég þurfi að kveðja næsta vin því það að fara í jarðaför ungrar manneskju er alveg ótrúlega... rangt?





Annars er ekki margt frásagnarvert úr marsmánuði, allavega ekki sem fer á internetið ;P Jú, ég fór í alveg yndislegt matarboð hjá pólskri vinkonu minni í byrjun mánaðarins - set inn hérna eina mynd úr því! =) Svo hélt ég kökuboð í lok mars fyrir sama vinahóp... það var rosalega notalegt. Hmm, hmm.. var e-ð annað merkilegt? Já! Ég sá geimverur.... þær vinna í fiskbúð á Nörrebrogade (rétt hjá þar sem ég bý) og eru frekar scary. Svo gaf e-r ókunnugur maður mér pening á e-m skemmtistað í Köben (alveg out of the blue) -okkur stelpunum fannst það smá skondið.




Ég fer til Englands þann 14.apríl (á afmælinu mínu!!) og verð til 18.apríl. 3 daga í Cambridge og svo endað í London. Svo langar mig að kíkja til Íslands í maí. Sumarið er ennþá nokkuð óráðið, því miður :S Veit bara að ég verð í Lúxemborg þann 11.júní því ég ætla að sjá Marilyn Manson á tónleikum :D (Dreg mömmu, pabba og bróður minn með, hehehe!) Svo eru nokkrar hugmyndir uppi en ekkert ákveðið... hvað ætlið þið að gera? E-ð skemmtilegt þar sem ég get slegist í hópinn?? :D Langar að ferðast!!

Bætt við þann 9.apríl:
Loksins loksins! Það var greinilega internet-tengingin sem var vesenið.
Er svona eiginlega of syfjuð til að vera að þessu núna og er varla að nenna þessu heldur... (enda búin að reyna að setja þessa færslu inn svona 10x áður, alltaf e-ð helvítis vesen).... ætla að bæta inn nokkrum myndum og segja þetta svo gott í bili.

Endilega kommentið og segið mér hvað þið ætlið að gera í sumar! Er forvitin :)

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ skvís. Ég ætla að byrja á að hrósa myndunum hennar móður þinnar, þær eru algjört æði!!!
Ég samhryggist þér með vinkonu þína.
En já semsagt þá legg ég til að þú komir heim fyrir 19.maí :) Þá á ég afmæli og Ásgeir útskrifast svo að ég reikna með að það verði einhver veisla hjá Ásgeiri og já ég lofa allavega að það verður veisla ef að þú kemur :D :D :D
Ha í sumar? Við Geiri förum til Tælands þann 21.maí og annars er eiginlega ekkert ákveðið nema það að ferðast og hafa gaman :) Er ekki einusinni búin að fá vinnu, en það bjargast nú :)

Úppps ætlaði ekki að skrifa neina ritgerð hérna, er að læra á fullu :)

Hafðu það súper gott Salóme mín :)
Knús Sigga

Nafnlaus sagði...

Hey þú.

Enn og aftur samhryggst ég missi þínum. Ég get varla ýmindað mér hversu slæmt það er að missa vin svona.

En gott að heyra að þú sért enn lifandi og ennþá að blogga. Maður var farinn að halda að þessi síða væri niðri.

Farðu vel með þig.

Sérstaklega á afmælinu þínu.

Atli Sig sagði...

Ég fer á Roskilde í sumar, en þú?

Hjalti sagði...

Samhryggist. Sammála hve rangt er að kveðja svo unga vini.
Húrra yfir nýju bloggi

Atli Viðar sagði...

Fleeting glimpse dagsins.
Efsta myndin frá myndlistarsýningu móður þinnar er alveg eins og screenshot úr Quake 3. Geggjað!

Salóme Mist sagði...

Sigga: Takk fyrir langt komment sæta =) Er viss um að mamma verður rosa glöð að lesa það ;)
Ég mun alvarlega íhuga þetta með 19.maí, læt þig vita um leið og ég ákveð e-ð!
Vó, Taílands? Hvað kemur til? =) Er ekki hrikalega heitt þar á þessum árstíma?? Hljómar ekkert smá spennandi! :D
Vona að þér gangi vel að finna vinnu og hafðu það sem best *knús*


Gabríel: Takk Tommi :) Síðan var niðri... aka. virkaði ekki í Lúxemborg. Farðu vel með þig líka =)

Atli Sig: Bara veitiggi! Er ekkert rosa spennt fyrir Roskilde -finnst vera meira um spennandi bönd á öðrum tónlistarhátíðum sem ég hef verið að pæla í. Auk þess sem ég fíla ekki tjöld... Maður veit þó aldrei...

Hjalti: Takk fyrir kommentið.

Atli: Hehehe, uh.. okay! :D Btw ég þekki of marga Atla en miðað við hversu nördalegt þetta komment var þá giska ég á að þetta sé Atli Freyr ;P

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju með afmælið í gær elsku Salóme mín :)
Betra seint en aldrei ;)
Þú verður nú að fara að blogga aftur og segja okkur hvað þú gerðir á afmælisdaginn :)
Heyrumst....

Helga sagði...

Hæ hæ, gaman að fá að sjá myndir af sýningunni hjá mömmu þinni, frábærar myndir (eins og þær eru nú allar að mínu mati) en þessar eru alveg í uppáhaldi. Ofboðslega flott sýning og töff hótelið.

Til hamingju með afmælið! Vonandi áttiru frábæran afmælisdag :) (betra seint en aldrei ekki satt?)

Í sumar ætla ég (vonandi) að fara til Danmerkur í júni til Ragnhildar frænku. Við erum saman í skokk-átaki núna og ætlum að toppa það með því að taka saman þátt í dönsku kvennahlaupi :D ótrúlega spennandi ;)

Að lokum vil ég svo votta þér innilega samúð mína. Skil svo vel hvað þú meinar með að það sé svoldið "rangt" að vera í jarðarför hjá svona ungri stelpu.

Með bestu kveðja frá kalda íslandi, þín vinkona Helga

Salóme Mist sagði...

Takk kærlega fyrir afmæliskveðjurnar stelpur! =D Betra er seint en aldrei hefur einmitt alltaf verið mitt mottó :P
Mömmu þykir áræðanlega mjög vænt um að heyra að þér lítis vel á sýninguna Helga :)
Líst vel á að þú ætlir að kíkja til Danmerkur, ég veit reyndar ekkert ennþá hvernig júní verður hjá mér en við verðum bara í bandi... vonandi verður við í DK á sama tíma ;) Rosalega eruð þið frænkurnar duglegar btw!

Nafnlaus sagði...

Xibei:
Vá hvað það er langt síðan ég las bloggið þitt eeeennnn....það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa það :)

Nafnlaus sagði...

Xibei:
Vá hvað það er langt síðan ég las bloggið þitt eeeennnn....það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa það :)

Nafnlaus sagði...

Xibei:
Vá hvað það er langt síðan ég las bloggið þitt eeeennnn....það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa það :)

Nafnlaus sagði...

Xibei:
Vá hvað það er langt síðan ég las bloggið þitt eeeennnn....það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa það :)