18.5.2006

Rokk og rigning / Rock & Rain

Jæja! Eftir næstum því tvær vikur af geðveiku veðri, aka. hita, sól og sælu.... kom ekki jafn geðveikt veður. Þvílíka rigningin í dag! Ojbara! (Búið að vera heldur leiðinlegt frá síðasta laugardegi en ekki svona slæmt!) Ég þurfti að mæta á fund í dag... og á leiðinni rigndi eins og hellt væri úr fötu :( Sem þýddi að þrátt fyrir fínu regnhlífina mína þá urðu gallabuxurnar mínar gjörsamlega blautar í gegn... og það voru ekki margir þurrir þræðir í restinni... Þannig ég sat s.s. gegnblaut... á fundi í rúma klst... og svo tók það næstum því klst að komast heim því einn strætó bilaði og blokkaði leiðina fyrir öllum hinum... þannig mér var ískalt í næstum þrjár klst... og líður núna eins og ég sé að verða veik :( Vona að það sé bara vitleysa því á morgun er ég að fara á; *TaTa* BELLE & SEBASTIAN tónleika!!!!!! Omgsí. Týpískt að ég verði svo bara hundlasin og geti ekki farið. Ugh.. vona ekki :/

Annars er svo sem ekki mikið í fréttum... Húsið í Víðihvamminum verður afhent 15.júní og þá flytja mamma og Gísli til Lúxemborgar. Benedikta er nú þegar flutt í íbúðina sem hún mun leigja í gamla góða Kópavogi.. og jáh. Hmm hmm... Ég held til Lúxemborgar þann 23.júní til að hitta fjölskylduna og fara á tónleika :)
- 25. júní er það Rock-A-Field þar sem meðal annars Placebo og Franz Ferdinand spila
- 10. júlí er það svo Ziggy Marley
..og
- 12. júlí útitónleikar með Sigur Rós

*hlakk hlakk*



Síðan verður líklega haldið í brúðkaup frænku minnar á Jótlandi... þannig jáh.. sumarið mitt er allt að skýrast svona smám saman :)

Húsnæðisbrask er ennþá í fullum gangi.. voðalega flókið allt saman.. nenni ennþá ekkert að skrifa um það fyrr en það er allt komið á hreint.

Dúddúrú..

Jáh.. held ég láti þetta duga í bili.. ætla að fara að sofa!
*snúll* til þín frá Danaveld!

EDIT:
P.S. Omgsa deisí! Hvernig gat ég gleymt...! Á einum af ljósmyndaflippdögunum mínum hérna á meðan góða veðrið var fór ég í Botanisk Have og eyddi þar e-m 2 klst í að rölta, taka myndir og lesa "Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð". Allavega, ein myndin var tekin sérstaklega fyrir einn af vinum mínum. Jubb jubb, Atli Már, þessi mynd er fyrir þig ;) (Híhí!)

4.5.2006

The Flaming Lips

Hæj krúttin mín

Ég ætlaði að vera búin að blogga fyrir löngu síðan en síðustu vikurnar hafa bara verið crazy og ég hef einnig haft aðeins takmarkaðan aðgang að interneti (á meðan ég var á Íslandi). Það væri enginn vandi fyrir mig að skrifa heila bók um þessar 3 vikur sem eru síðan ég bloggaði síðast (þó síðasta færsla hafi verið póstuð 18. apríl var hún skrifuð 12.) en þar sem ég einfaldlega tými ekki tímanum í það þá ætla ég að stikkla á stóru.

Restin af Lúxemborgarferðinni var mjög fín. Við kíktum yfir til Þýskalands tvisvar sinnum (til borgarinnar Trier) og einu sinni yfir til Frakklands (til Metz). Ég varð tvítug og var haldið upp á það með því að fara á æðislegan og mjög nýstárlegan veitingastað í Lúx sem heitir Apoteca. Þar borðuðum við mjög svo áhugaverðan mat og drukkum vín sem var jafn gamalt mér :) Annars var afmælisdagurinn furðulegur að öðru leiti. Mamma og pabbi sátu föst (lasin) í umferðarteppu á leiðinni til/frá Belgíu mest allan daginn. Ég og Benedikta eyddum þó nokkrum klst niður í miðbæ Lúx að versla en ég fann ekkert til að kaupa mér :/ Um fimmleitið vorum við þó öll komin heim og vorum því öll heima þegar 3 lögregluþjónar bönkuðu upp á hjá okkur (þeir voru sko alls ekki kátir). Þannig já, áhugaverður dagur í meira lagi.



Þann 18. apríl héldum við systurnar til Íslands með margra klst stoppi í Köben sem við notuðum í að skreppa heim til mín og svo niður í bæ. Héldum snemma upp á flugvöll (já, þetta var ansi langt stopp) þar sem ég sóaði fullt af pening og svo ákváðum við að skella okkur á Hereford og sátum þar og átum á okkur gat þar til tími var kominn til að halda út í flugvél. Þegar til Keflavíkur var komið þurfti ég að keyra í bæinn, þess má geta að ég hef ekki keyrt í 9 mánuði og fannst frekar óþægilegt að þurfa að fara beint á Keflavíkurveginn.


Íslandsdvölin var í meira lagi ánægjuleg og einkenndist aðallega af partíum/veislum og kaffihúsahangsi :) 4 afmælispartí, 1 fermingarveisla og 1 fjölskylduafmælisboð. Missti svo af einni afmælisveislu (hjá afa) þar sem hún var á sama tíma og fermingin. Hey, og eitt míní partý. Allavega... tvö af þessum afmælispartíum voru mín eigin og ég var barasta mjög ánægð með hvernig þau heppnuðust :D Eina sem ég get kvartað yfir er að fólk í því seinna var ekki nógu duglegt að drekka og að ég steingleymdi að taka myndir fyrr en seint í veislunni og missti því af að ná myndum af mörgum sem voru þá þegar farnir. Tvítugsafmælið hans Jóa var skemmtilegt og ég held ég hafi sjaldan skemmt mér jafn vel og í 21-árs partýinu hans Geira!



Ég fékk margt sniðugt og skemmtilegt í afmælisgjöf :) Æðislega digital myndavél (sem ég valdi sjálf í Þýskalandi) frá mömmu og pabba. Ótrúlegt magn súkkulaðis, m.a. 1 kg stykki af Cadburry súkkulaði frá Ingeri og Ástu en þær gáfu mér líka bók með spakmælum og wiskey smokka! (Var ætlast til þess að þetta væri allt notað saman stelpur? :D Ef svo, þá gæti útkoman orðið nokkuð áhugaverð...). Ég fékk svo fullt fullt af áhugaverðum bókum, frumsamda sögu, geisladiska, SingStar Rocks! (nú verð ég að kaupa mér PS2!!), DVD, sjúkrakassa, súrar gúrkur og ýmislegt fleira skemmtilegt. Vil minnast sérstaklega á bókina sem Guðný gaf mér en sú bók inniheldur einungis ljósmyndir af garðálfum!


Ég kom heim til Danmerkur á mánudagskvöldinu og hafa síðustu dagar verið ÆÐISLEGIR! :D Þriðjudagurinn fór nú bara í að afpakka og letihaugast (ég er alltaf svo þreytt eftir flug) en kvöldið var skemmtilegt. Á miðvikudeginum var svo ekkert smá gott veður og eyddi ég seinnipartinum í félagsskap Lalla frænda, Ingu og krakkanna. Röltum um Strikið (fram og til baka), fórum á kaffihús, í dótabúð og heilsuðum upp á Silvíu Nótt!! Það var alveg yndislegt! Síðan hélt ég á The Flaming Lips tónleika sem voru haldnir í tónleikasalnum í Tívolí. Þeir voru hreint út sagt ótrúlegir. "Magical" svo ég vitni nú í snillinginn Wayne Coyne!
Frábær tónlist (Yoshimi!!) og mergjað show! Risastórar appelsínugular blöðrur fylltu salinn um leið og þeir byrjuðu að spila auk þess sem niður rigndi milljónum marglitra pappírssnifsa. Unaðslegir tónar bárust úr öllum áttum á meðan fram á sviðið hlupu hinar ýmsu ofurhetur auk hóps geimvera og jólasveina! Þetta hefði ekki getað verið betra! Það ættu allir að hlusta á þann boðskap sem þessi hljómsveit hefur fram að færa. M.a: -að það sé kominn tími til að við hættum að trúa á e-n æðri guð og förum að trúa á hvort annað, -séum betri við hvort annað, -áttum okkur á að lífið sé stutt og maður eigi ekki að sóa því í rugl, etc.
Tónleikarnir enduðu svo á alveg svakalegan hátt! Wayne (sem spjallaði mikið við áhorfendur gegnum alla tónleikana) beindi orðum sínum að Bush.... og síðan hófu þeir að spila War Pigs eftir Black Sabbath!!!!!!!!! Omg hvað það var FLOTT! Got weak in the knees ... Á bakvið var svo sýnt myndband frá voðaverkum hans (þið vitið hvað átt er við hér) og af Bush sjálfum og öðrum "góðum" mönnum.



Í dag vaknaði ég snemma og var komin í Tívolí kl. 11:30 og hitti þar Lalla & co. Áttum þar yndislegan dag saman í ótrúlega yndislegu veðri (ég var allt of vel klædd fyrir þetta veður). Sókskin og amk 19°C... mmmmmm :D Vorum þarna til 19:00 en þá þurftu þau að halda út á flugvöll en ég hélt heim, þreytt og sæl :)

Tvennt að lokum. Í fyrsta lagi, kíkið á myndasíðuna mína! Síðan ég fékk myndavél hef ég verið dugleg við að taka myndir og reyni eftir besta megni að henda þeim inn á netið. Þar eru myndir frá afmælispartíunum mínum (merkt BG og Mitt ammli), afmælinu hans Jóa, afmælinu hans Geira (BG-2), gærdeginum (Strikið, Silvía Nótt, THE FLAMING LIPS - merkt 3mai2006) og svo frá Tívolí ferðinni í dag (Tivoli 040506).
Í öðru lagi: Rosalega margir sögðu mér, þegar ég var á Íslandi, að þeir væru að koma til Köben í sumar. Ég get ómögulega munað nákvæmlega hvenær hverjir eru að koma og vil ég því biðja þá vini, kunningja og fjölskyldumeðlimi sem verða e-ð í Köben í sumar að senda mér email og láta mig vita með dagsetningar og svona. Langar alveg rosalega að ná að hitta ykkur sem flest nefnilega. Ég þarf að fara að skipuleggja mitt sumar fljótlega, ákveða hvenær ég fer til Lúxemborgar og svo framvegis og því væri best að fá að vita svona sem fyrst svo ég geti allavega reynt að skipuleggja e-ð í kringum það hvenær fólk verður hér.



Kveð nú ykkur bumbulínur og bumbulinga í bili *knús*

18.4.2006

Luxembourg

Ég hata blogger.com
Á miðvikudagskvöldinu síðasta skrifaði ég færsluna sem birtist hér að neðan. Hins vegar hef ég ekki getað sett hana inn fyrr en núna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Drasl síða. Er eiginlega kominn tími á að blogga aftur, margt búið að gerast en ég vil bara ekki setja inn tvær færslur í einu þannig hin kemur seinna. Annars má nefna að ég er orðin tvítug, takk fyrir afmæliskveðjurnar þið sem þær sendu :)

**********************************************

Í herberginu sem ég er í núna er ekkert nema tvær dýnur, sængur, koddar og svo þessi tölva. Það er ekki þægilegt að sitja bara á dýnu, með lyklaborðið á hnjánum og skrifa blogg, ég er gjörsamlega dofin í fótunum. Því mun þessi bloggfærlsla verða skrifuð í flýti...

Ég er s.s. stödd í húsinu sem mun verða heimili foreldra minna og bróður míns næsta árið og hugsanlega lengur. Þetta er voða huggulegt hús, það stendur við rólega, sæta götu og er með fallegan garð. Á þessari hæð (þeirri efstu fyrir utan háaloftið) eru 4 svefnherbergi og eitt stórt baðherbergi. Þau eru öll nánast tóm þar sem húsgögnin þeirra verða ekki flutt hingað fyrr en í sumar þegar mamma og Gísli flytja hingað. Ef gengið er niður hinn ofursnobblega marmarastiga sem liggur niður á næstu hæð þá er þar stórt hol/gangur, lítið baðherbergi, ágætlega stórt eldhús og stór stofa/borðstofa með arni. Þaðan er svo líka hægt að ganga út á verönd/garð. Í kjallaranum er svo enn eitt svefnherbergið, stórt þvottahús og stór bílskúr.

En jáh, ég ætla að renna smá yfir atburði helgarinnar og síðustu daga :) Þar sem ég verð í burtu frá Danaveldi í 3 vikur ákvað ég að reyna að hitta alla mína bestu vini þar fyrir brottför. Hef ekki séð svo mikið af þeim undanfarið þar sem þrjú þeirra eru molbio-fólk (molecular biomedicine) og eru búin að vera á fullu í próflestri (lokapróf í prótínefnafræði á föstudaginn síðasta) og breski vinur minn var erlendis.

Á föstudaginn fór ég s.s. að hitta þann breska og fullt af öðru fólki á e-m bar. Þegar ég kom þarna voru bara hann og danski vinur/meðleigjandi/meðeigandi (á fyrirtæki) hans komnir. Síðan kom sænsk vinkona bretans, æskuvinur danans, íslenskt par sem eru víst vinir sænsku stelpunnar og svo dönsk stelpa sem er framtíðar meðleigjandi bretans og danans :P S.s. jáh, bjórdrykkja og spjall á bar, bjórdrykkja og spjall heima hjá bretanum og dananum og svo bjórdrykkja og dans á öðrum bar/klúbb. Rölti heim e-r tímann rétt fyrir kl. 4.

Á laugardaginn fór ég svo með dönskum vini mínum á listasafn. Skoðuðum Highlights sýninguna (svona best of af því sem er búið að vera að gerast í myndlist síðustu 700 árin). Það var voða kózí og gaman. Síðan ætluðum við að fara út að borða en mér tókst að stíga í poll og var því ákveðið að kaupa frekar pizzu og taka með heim (til að komast sem fyrst í þurra sokka).
Sunnudagurinn fór að mestu í að taka til og pakka niður en um kvöldið kom annar vinur minn og varð úr hið besta hangs-/spjallkvöld.
Á hádegi á mánudeginum kom svo vinkona mín og dró mig niður í bæ. Eyddum 5 klst-um í ilmvatns-þefun, "versl", nachos-át, spjall og rölt. Hélt síðan heim og beið eftir mömmu og systkinum mínum. Við áttum skemmtilegt kvöld og svo snemma á þriðjudagsmorgninum héldum við til Lúxemborgar :)


Pabbi kom og sótti okkur á flugvöllinn og sýndi okkur nýja húsið en þurfti svo að fara aftur í vinnuna. Þar sem ekkert okkar svaf neitt sérlega vel þarna nóttina áður tókum við því bara rólega "heima" um daginn. Seinnipartinn fórum við svo í smá skoðunarferð og út að borða á mjög svo skemmtilegan stað. Góður matur og skemmtilegt umhverfi. Borðið okkar var holt að innan og í gegnum borðplötuna (gler) sá maður líkneski af geimveru (soldið ET-leg) sem var lýst upp með bláu ljósi. Mjög sérstakt... eins og allt þarna inni.... Seinna um kvöldið fórum við systkinin svo að sjá Ice Age 2 í frááábæru bíói. Ódýrara en á Íslandi og í DK, mergjað stór salur og skjár og mega góð sæti.

Arg, vont að sitja hérna... :/

Uhm.. jáh.. svo í dag var pabbi aftur að vinna en við hin fórum niðrí bæ að skoða og búðar-rápa. Um kl. 5 sótti pabbi okkur og við fórum að versla inn hluti sem bráðvantaði hérna eins og t.d. handklæði og sæng. Þar sem við fundum ekki sæng í búðinni sem við fórum í hér ákváðum við bara að skreppa yfir til Belgíu til að fara í IKEA. Tekur enga stund að keyra þangað. Stefnum á að kíkja líka til Þýskalands og Frakklands í vikunni... allt á nýja fína bílnum hennar mömmu :D

En en jáh.. ég bara geeet ekki setið hér mikið lengur... fæturnir mínir eru ekki sáttir...
Samt eitt.. ég er komin með Lúxemborgískt (errr... eða hvað maður segir) gsm-númer. Ég er því núna með gsm númer í 3 löndum... hversu leet er það? hehe :)

Ætla að skrifa seinna um Lúxemborg, tungumálið, snobbið og so on... en núna er ég að pæla í að joina fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið eða e-ð...

Au revoir!

4.4.2006

Sex on the beach




Beint fyrir utan gluggann minn er tré. Á föstudaginn tók ég eftir því að í þessu tré er hreiður. Það er í svona 4-5 metra fjarlægð frá umtöluðum glugga. Finnst yndislegt að hafa það þarna, sýnir að vorið er að koma :) Stend oft út við gluggann og fylgist með fuglinum, ótrúleg þolinmæði í þessum dýrum að liggja á eggjunum svona lengi. (Þetta er bara næstum eins og að hafa gæludýr!).

Helgin er búin að vera áhugaverð með meiru (í þetta sinn tel ég mánudaginn með helginni) :) Föstudagurinn var bara rólegur, vinur minn kom hérna seinnipartinn og var til miðnættis. Það var voða kósí; horfðum á bíómyndir og teiknimyndir, átum kebab og nammi og spjölluðum um daginn og veginn. Laugardagurinn var líka voða rólegur en mér til undrunar hringdi Hrafnhildur frænka í mig og sagði mér að hún væri stödd í Köben (ástæðan flugfreyjunámskeið á mánudeginum). Við ætluðum kannski að hittast til að borða saman en ákváðum svo að hittast frekar snemma á sunnudeginum til að fara saman að versla. Plönin breyttust svo aftur eftir miðnætti þegar hún ákvað bara að kíkja hingað og sátum við og spjölluðum e-ð fram á nótt.

*Varúð: Næstu línur fjalla um verslunarleiðangur, þeim sem halda að þeir muni deyja úr leiðindum við lestur slíks texta er bent á að "hoppa" niður að næstu greinaskilum.*
Vöknuðum seint á sunnudagsmorgninum og fórum beint niður í bæ. Komumst að því að það var kalt á Strikinu (gluggaveður!) og flestar búðir lokaðar þannig að við skelltum okkur bara í Fisketorvet. Vorum þarna frá hádegi og til ca. 17 (held ég). Ég keypti mér tvær peysur, jakka, gallabuxur og e-ð fleira og svo gaf Hrafnhildur mér aðrar gallabuxur í afmælisgjöf :) Venjulega haaaaata ég að versla buxur, það er ekkert smá mikið vesen fyrir mig að finna buxur sem passa :/ Við vorum hins vegar svo heppnar að lenda í Only-búðinni og komst ég að því mér til mikillar hamingju að þar er ekkert mál fyrir mig að finna buxur sem passa, jeij.

Héldum niðrá hótel (þar sem Hrafnhildur og allir af námskeiðinu dvöldu) og vorum svo uppgefnar að við enduðum á að leggja okkur í 2 tíma :P Fórum svo út og fengum okkur að borða á Jensen's Bøfhus. Eftir það skunduðum við í bíó á Pink Panther (hræðileg mynd) og enduðum á að fara á Café Norden um kl. 23 og fá okkur swiss mocca og gulrótaköku. Mmmmmm :D Það var samt frekar skondið fyrir þær sakir að þegar við komum inn var aðeins setið á tveimur öðrum borðum og eftir smá stund vorum við einu gestirnir þarna inni :) Venjulega er þessi staður svo troðinn að ekki er hægt að fá borð...


Anyways.. ég ákvað að gista á hótelinu þar sem að Hrafnhildur var hvort sem er ein í tveggja manna herbergi. E-ð varð okkur blaðurskjóðunum lítið um svefn og ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn mikið eins og zombie og þegar við þurfum að fara á fætur kl. 6:30 og ég hafði aðeins sofið í ca. klst. Hrafnhildur og allar hinar "freyjurnar" héldu á öryggisnámskeið upp á flugvelli beint eftir morgunmatinn en ég hélt heim (AÐ SOFA!)

Mánudagskvöldið/aðfaranótt þriðjudags... ég ætlaði að lýsa því.. en ég held þið mynduð ekki trúa mér hvort sem er. Set þetta hérna bara í stuttu máli: Hótel - aperitif. Besti ítalski veitingarstaðurinn í Kaupmannahöfn með ca. 10 rosa skemmtilegum flugfreyjunemum, æðislegum mat, daðrandi þjónum og fullt af víni. Kokteilbar/klúbbur með ca. 15 "freyjum" - dj, kokteilar, dansað þar til klúbburinn lokaði. Hótel - partý. Svefn á hóteli kl. 4:30. "Djamm" (váh, ég hef alltaf hatað þetta orð en finn bara ekkert betra) á mánudagskvöldi = málið ;) Komst að því að e-ð af partýgenunum frá mömmu og pabba hafa ratað í mig þrátt fyrir allt... þau eru bara voða oft í feluleik (þau og alvarleikinn/raunsæið eru ekki vinir) :P Kom heim á hádegi í dag.. bara búin að taka því rólega, ryksuga og svona... jeij.

Hvað ætlaði ég að segja ykkur fleira? Hmm jáh, ég er að fara á útitónleika með Sigur Rós í Lúxemborg í júlí! *hlakk* Er ekkert búin að plana sumarið en er bara að láta það ráðast af því hvenær tónleikar og aðrir viðburðir eru í hvaða landi hvar ég verð. Veit ég verð í DK í byrjun júní því þá fer ég með dönskum vini mínum að "heyra" Carmina Burana í tónleikasalnum í Tívolí. Svo greinilega í Lúx í byrjun Júlí og svo líklega brúðkaup hjá Boggu frænku á Norður-Jótlandi um miðjan júlí.

Jahm og já, tíminn líður svo hratt! Finnst þetta ár bara hafa flogið áfram so far. Það er kominn 4. apríl!!! :o Á morgun eiga þá bæði Gúndi og Kristrún afmæli, allir sem þau þekkja að muna að óska þeim til hamingju :) (Svo er 5.apríl náttla líka dánardagur Kurt Cobain's og Layne Staley's). Síðan er ég að verða gömul eftir 10 daga :S Omgs! :) Tæp vika í brottför til Lúxemborgar þannig ég er ekki viss um frá hvaða landi ég blogga næst dk, lu eða is.

Plata vikunnar er pottþétt: Daft Punk - Discovery


Yfir og út!

27.3.2006

Move your feet

Jæja, fyrst frekjustelpan er byrjuð að orga þá neyðist ég víst til að blogga ;)


Héðan er bara allt fínt að frétta, ég er reyndar orðin frekar leið á því að bíða eftir að vorið láti sjá sig en það hlýtur nú að fara að gerast! Ætla ekkert að fara út í veðurlýsingar til að drepa ykkur nú ekki úr leiðindum :D

The Cardigans voru æði og við systurnar skemmtum okkur vel :) Reyndar fór mjöðmin mín í fokk (hún á það til að gera það, kenni öllu búðarrápinu um!) og það var rétt svo að ég kæmist heim (frekar sársaukafullt). Eftir að Benedikta fór heim til Íslands eyddi ég næstum viku í e-r frekar smávægileg veikindi. Fór svo í bólusetningu við mislingum, rauðum hundum og hettusótt. Er annars aðallega búin að eyða tíma mínum hér í chill, póstkortaskrif og hangs með vinum :P

Síðustu helgi var kíkt á bar-maraþon á kollegíu hjá vinkonu mi
nni og þessi helgi var bíóhelgi :) Á föstudaginn fór ég með breska vini mínum á jazzklúbb þar sem við sáum klukkustundarlanga, svarthvíta, danska bíómynd án hljóðs frá 1919 sem heitir "Mod Lyset". Undir spilaði jazz-pönk bandið Bugpowder á ansi skemmtilegan hátt :) Síðan var sýnd 15 mínútna stuttmynd sem kallast "Lövejagten" en hún er frá 1907 og því að sjálfsögðu hljóðlaus líka en tónlist spilaði undir að þessu sinni DJ sem kallar sig Track 72. Áhugaverð stuttmynd að mjög mörgu leiti, t.d. fyrir það að hún er tekin á danskri eyju í Hróarskeldufirði en í henni eru zebrahestur, apar og ljón. Ljónið er skotið í myndinni og það húðflett (áður en það gerðist hafði það líka ráðist á hest og bitið hestinn svo illa að hann þurfti að aflífa). Einnig voru veiðimennirnir tveir (sem voru aðalpersónur myndarinnar) með svartan þræl. Þannig, þrælahald og dýradráp... þessi mynd er ansi rosaleg, ekkert "no animals were harmed during the making of this movie". Ef PETA hefði verið á staðnum hefði örugglega verið slett málingu og fjör. Þessi mynd var ein fyrsta mynd Nordisk Films fyrirtækisins til þess að verða vinsæl en hún var hins vegar bönnuð í Danmörku þar til 1911 vegna slátruninnar á ljóninu. Þessi viðburður var hluti af NatFilmFestivalen sem byrjaði s.s. á föstudaginn síðasta og mun standa til 2. apríl. Vonandi mun ég ná að sjá fleiri myndir á hátíðinni, það er alveg þvílíkur fjöldi af spennandi myndum sem verður sýndur :)

Á laugardaginn fór ég svo að sjá "V for Vendetta" með strák sem var með mér í námi. Var frekar skondið að ég þekkti hann ekki þegar ég sá hann og brá ekkert smá þegar hann heilsaði! :) Hafði ekki séð hann síðan í desember og hann hafði breyst ansi mikið við að fara í klippingu (var áður með sítt hár). En já, þetta er sérstök mynd. Góð en frekar erfitt að fylgjast með öllu sem kemur fram og er gefið í skyn. Þarf að sjá hana aftur þegar hún kemur út á dvd en ég mæli með henni :)



Síðustu daga er ég búin að vera á fullu í íbúðarmálum, búin að skoða 10 íbúðir! Rosa spennandi! :)

Uhm.. jáh.. ég held ég hafi bara ekki öðru að segja frá í bili, ég er pottþétt að gleyma e-u sem ég ætlaði að skrifa um en það verður bara að hafa það. Hlakka til að sjá ykkur öll í apríl, kem til landsins 18.apríl (eftir viku dvöl í Lúxemborg). Reikna með að halda e-ð upp á tvítugsafmælið helgina eftir að ég kem... uh.. ákveðið betur seinna, læt vita...

Látið í ykkur heyra, les þetta e-r lengur? Ég vil comment takk :)

Hlustað á þessa dagana: Thievery Corporation, Dresden Dolls, Tool, Daft Punk, Hairdoctor, The Fiery Furnaces, Trabant.... ásamt því að ég tók kast í 90's poppi og danstónlist... og svo smá diskói... (já, ég þarf að panta mér tíma hjá geðlækni hið snarasta). Get annars ekki beðið eftir að Junior Senior diskurinn sem ég var að panta mér skili sér! Move your feet er skemmtilegasta lag í heimi! :D Fuck the pain away með Peaches og Coin-operated boy með Dresden Dolls og fullt af lögum með Daft Punk eru líka æði.... ég elska radioblogclub.com!!!!

18.3.2006

26.2.2006

The sound of music...

Fór að sjá Depeche Mode í gærkvöldi, alveg frábærir tónleikar :) Frekar magnaði líka að fara á svona tónleika í Parken, ekkert smááá mikið af fólki þarna! :D (40-50 þúsund manns?) Samt gekk allt eins og smurt, tók enga stund að komast inn etc. Danir kunna að skipuleggja :) Núna hefst bara biðin eftir næstu tónleikum! Fer að sjá The Cardigans með systur minni á miðvikudaginn :) Úh, og svo fer ég á Belle & Sebastian í maí!!! Svo er bara spurning, á maður að kaupa sér miða á Iron Maiden í nóvember? Salan hefst á morgun og það selst örugglega strax upp... Ætla bara að hafa þessa færslu stutta, er eiginlega bara alveg búin eftir þessa helgi, hún er búin að vera alveg mega sweet :) Í dag verður því bara tekið rólega og tekið til! Held herbergið mitt/íbúðin hafi aldrei verið jafn... ruslaraleg :P

18.2.2006

“My good opinion once lost is lost forever.”

Jæja, ég ætlaði nú ekkert að blogga á meðan dvöl minni stæði hér á Íslandi en hins vegar bjóst ég nú heldur ekki við að hún yrði svona löng. Nú hef ég verið hérna í þrjár vikur og það styttist óðum í heimferð. Ég ætla ekki að blogga neitt um það sem á daga mína hefur drifið hér á Klakalandi enda samræmist það ekki tilgangi þessa bloggs, það var stofnað til þess að leyfa fjölskyldu og vinum að fylgjast með lífi mínu í Baunaveldi.

Ef ég ætti þó að nefna það mér þykir merkilegast við þessa Íslandsheimsókn mína þá væri það:
- Mín mikla ást á hnífum hefur aðeins minnkað (eftir mín snilldarlegu tilþrif sem enduðu með heimsókn á slysó).
- Ég talaði meiri dönsku hér á einu kvöldi heldur en ég hef gert á 6 mánuðum í Kaupmannahöfn (allt spurning um að finna rétta fólkið að tala við?)
- Enduruppgötvun á því hversu heimurinn er lítill.
- Komst að því að partý geta verið mjög skemmtileg þó svo að það sé engin tónlist spiluð! Því hefði ég aldrei trúað.

Eins og margir vita þá hef ég undanfarið verið að reyna að ákveða hvort ég eigi að búa áfram í Köben, flytja til Íslands eða flytja til Lúxemborgar með fjölskyldunni. Ég hef valið Köben. Er bara að byrja að leita að íbúð þar (má ekki búa áfram á kollegínunni þar sem ég er ekki í námi). Spennandi spennandi :)

Það sem ég hlakka til í augnablikinu:
- Party í kvöld (ég er búin að vera að hlakka til þess að fara þarna í meira en viku! ég! sem hef aldrei verið mikil partý-manneskja. Það var bara svo rosalega gaman síðast þegar þessi hópur hittist).
- Skoða í póstkassann minn þegar ég kem út til dk! :D
- Hitta 2 bestu vini mína í .dk, þeir eru svo mikil æði. sakna þeirra :)
- Depeche Mode tónleikar 25.feb
- Heimsókn Benediktu og The Cardigans tónleikarnir sem við ætlum saman á 1.mars
- Finna íbúð
- Fara til Lúx og skoða húsið sem fjölskyldan mín er að fara að flytja í
- Halda upp á tvíttugsafmælið mitt í apríl? :D

Annars get ég mælt með bæði Munich og Walk the line. Kem kannski með umfjöllun um þær seinna. Endurhorfði svo á Calendar girls í gær, hún er yndisleg!

Dúddúdú! Læt þetta nóg í bili... nema, ég ætla að láta hérna textabrot úr lagi með Maus sem hefur setið svolítið í mér:

ég vil aldrei, aldrei aftur heimsækja þig.
og ég vil aldrei aftur að þú heimsækir mig.
því nú loksins, loksins á ég vin sem skilur mig.
og ég vil aldrei, aldrei aftur snerta þig.