18.5.2006

Rokk og rigning / Rock & Rain

Jæja! Eftir næstum því tvær vikur af geðveiku veðri, aka. hita, sól og sælu.... kom ekki jafn geðveikt veður. Þvílíka rigningin í dag! Ojbara! (Búið að vera heldur leiðinlegt frá síðasta laugardegi en ekki svona slæmt!) Ég þurfti að mæta á fund í dag... og á leiðinni rigndi eins og hellt væri úr fötu :( Sem þýddi að þrátt fyrir fínu regnhlífina mína þá urðu gallabuxurnar mínar gjörsamlega blautar í gegn... og það voru ekki margir þurrir þræðir í restinni... Þannig ég sat s.s. gegnblaut... á fundi í rúma klst... og svo tók það næstum því klst að komast heim því einn strætó bilaði og blokkaði leiðina fyrir öllum hinum... þannig mér var ískalt í næstum þrjár klst... og líður núna eins og ég sé að verða veik :( Vona að það sé bara vitleysa því á morgun er ég að fara á; *TaTa* BELLE & SEBASTIAN tónleika!!!!!! Omgsí. Týpískt að ég verði svo bara hundlasin og geti ekki farið. Ugh.. vona ekki :/

Annars er svo sem ekki mikið í fréttum... Húsið í Víðihvamminum verður afhent 15.júní og þá flytja mamma og Gísli til Lúxemborgar. Benedikta er nú þegar flutt í íbúðina sem hún mun leigja í gamla góða Kópavogi.. og jáh. Hmm hmm... Ég held til Lúxemborgar þann 23.júní til að hitta fjölskylduna og fara á tónleika :)
- 25. júní er það Rock-A-Field þar sem meðal annars Placebo og Franz Ferdinand spila
- 10. júlí er það svo Ziggy Marley
..og
- 12. júlí útitónleikar með Sigur Rós

*hlakk hlakk*



Síðan verður líklega haldið í brúðkaup frænku minnar á Jótlandi... þannig jáh.. sumarið mitt er allt að skýrast svona smám saman :)

Húsnæðisbrask er ennþá í fullum gangi.. voðalega flókið allt saman.. nenni ennþá ekkert að skrifa um það fyrr en það er allt komið á hreint.

Dúddúrú..

Jáh.. held ég láti þetta duga í bili.. ætla að fara að sofa!
*snúll* til þín frá Danaveld!

EDIT:
P.S. Omgsa deisí! Hvernig gat ég gleymt...! Á einum af ljósmyndaflippdögunum mínum hérna á meðan góða veðrið var fór ég í Botanisk Have og eyddi þar e-m 2 klst í að rölta, taka myndir og lesa "Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð". Allavega, ein myndin var tekin sérstaklega fyrir einn af vinum mínum. Jubb jubb, Atli Már, þessi mynd er fyrir þig ;) (Híhí!)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úhhh, ég vildi óska þess að sumarið mitt væri svona planað... eina sem ég veit er að ég verð í frakklandi í 3 vikur... eftir það hef ég ekki grææææna hvað ég geri... ertu til að skipta um sumar eftir 16 júní :)

Nafnlaus sagði...

*snúll-á-móti*

Gott að sjá líflegt sumar framundan hjá þér :)

Og skemmtu þér vel Belle & Sebastian ^^