Í dag hef ég nánast ekki gert annað en að hnerra. Afleiðingarnar eru að ég er þreytt í nefinu :S
Síðastliðinn mánudag var ég með dúndrandi hausverk allan daginn og gat ekkert gert. Það gerist svona öðru hvoru og tel ég það vera orsakað af mínum illgjarna hálsi. Um kvöldið hins vegar fór mér að líða undarlega í hálsinum, nánar tiltekið eins og ég hefði étið hálfan ullarvettling. Því miður hélt sú tilfinning áfram að versna á þriðjudeginum og undir kvöld var ekki bara eins og ég hefði étið heilt par af þeim heldur var mér líka illt í lungunum og hausnum og maganum og. Já. Þar byrjaði fjörið.
Á föstudagskvöldið ætlaði ég á julefroskost hjá nemendafélaginu. Á laugardeginum var ég búin að plana að mæta á julefroskost hjá FNU. Ég sleppti báðum vegna veikinda og nú er ég bitur.
Pirruð á að vera heima líka. Og pirruð á að hnerra og sjúga upp í nefið.
En svona á jákvæðu nótunum þá er ég í svo miklu jólaskapi að ég ræð varla við mig! =D Síðustu ár hef ég varla farið í jólaskap nema þá kannski svona rétt í kringum aðfangadag. Nú hef ég verið að laumulega raula jólalög í meira en tvær vikur! Búin að kaupa jólagjafir fyrir fjölskylduna og get EKKI BEÐIÐ eftir að fara til Íslands og halda jól með fjölskyldunni! Ef ég ætti jólaskraut þá myndi ég skreyta....
Er annars núna að hlusta á mixdisk með japanskri tónlist sem hin yndislega Miho setti saman fyrir mig... Spes tónlist.

4 ummæli:
Klapp klapp fyrir Salóme. Þú færð hrós dagsins fyrir að vera orðin svona dugleg að blogga :)
Ég þarf alltaf mjög nauðsynlega að lesa öll blogg þegar ég á að vera að lesa fyrir prófin, merkilegt hvað maður er lélegur að forgangsraða :S
Láttu þér nú batna stelpa, hljómar ekki nógu vel að vera með ullarvettlinga í hálsinum.
Ég hlakka til að hitta þig þegar þú kemur ;)
Knús Sigga
Jóla jóla jóla!
Hvenær kemurðu heim? Hlakka til að sjá þig! Verðum samt að hittast fyrir áramót því ég fer til NY þann 30.des :) svo ég get kannski komið með sniðugar uppástungur þegar ég kem aftur! sem verður nú reyndar ekki fyrr en 19.jan.
Æji, leiðinlegt að heyra með þessi veikindi í þer.. mikið rosalega erum við samt samstíga eitthvað, ég var veik alla seinustu viku líka :P
En já, klapp klapp fyrir Salóme súper bloggara :D
Hlakka alveg rosalega til að sjá þig þegar þú kemur á klakann :)
Sigga: Hehe, takk fyrir það! Veit ekki hvaðan þetta bloggbrjálæði kom :) Kannast við þetta með brengluðu forgangsröðina... held að flestir upplifi þetta! Hver fær t.d. ekki tiltektar og þrifnaðaræði á prófatímanum?
Held mér sé að byrja að batna, ullarvettlingarnir virðast allavega horfnir ;D Hnerrum hefur líka snarfækkað í dag!
Sjáumst fljótlega! *knús*
Hulda: Hó hó hó! Kem heim 17.des og hlakka líka til að sjá þig! Hvernig væri að reyna að taka eins og eitt spilakvöld eða e-ð? Ótrúlega langt síðan ég hef spilað Popppunkt... og svo minnir mig að þið systur hafi verið ansi sleipar í Risk?
Með hverjum ertu að fara til NY? Hvað er planið og hvað verðuru lengi? :D Hefurðu farið áður? Fyndið að við séum að fara á svona svipuðum tíma! Mun bíða spennt eftir að heyra um ferðina þína og fá uppástungur þegar þú kemur tilbaka!
Heyri í þér þegar ég kem til landsins, knús!
Benedikta: Samstíga er ekki endilega gott í þessu tilviki :P
Takk fyrir klappið :D
Sjáumst eftir 2 vikur!!! :D *OFURKNÚS*
Skrifa ummæli