20.11.2007

Maðurinn



Vá hvað mig langar í þessa bók eftir að hafa lesið um hana! Verst hvað hún er dýr :S

Maðurinn – Leiðsögn í máli og myndum

Einstakt og stórglæsilegt verk um manninn og tilveru hans

Hjá JPV útgáfu er komin út bókin Maðurinn – Leiðsögn í máli og myndum, afar stór og vönduð bók rituð af hópi fræðimanna og sérfræðinga á sviði mannfræði, líffræði, félagsfræði, sálfræði og fjölda annarra fræðigreina er snerta manninn og tilvist hans á einn eða annan hátt. Bókin er samstarfsverkefni Smithsonianstofnunarinnar í Bandaríkjunum og bresku bókaútgáfunnar Dorling Kindersley og er hún afar ríkulega skreytt litljósmyndum, skýringarteikningum og uppdráttum, sannkölluð veisla fyrir augað ekki síður en óþrjótandi fróðleiksnáma. Þau Karl Emil Gunnarsson, Ágúst H. Bjarnason og Anna María Hilmarsdóttir önnuðust íslenska þýðingu verksins undir ritstjórn Sigríðar Harðardóttur.

Maðurinn er einstakt verk í máli og myndum, fullt af fróðleik, snertir á öllu sem viðkemur manninum og eykur skilning okkar á því hver við erum. Aldrei áður hefur verið gefin út bók með jafn víðtækri umfjöllun um tilvist okkar. Hér er farið yfir afar vítt svið, allt frá margslunginni starfsemi líkamans og þroskaskeiðum á lífsferli okkar til hinnar undraverðu hæfni mannshugans. Dregin er fram hin stórkostlega fjölbreytni í menningarháttum mannsins eins og hún birtist í hefðum okkar og helgisiðum, listum og átrúnaði, tungu og tækni.

Í bókinni er jafnframt að finna mikinn fróðleik um þjóðir heims því að yfir 250 mismunandi þjóðum er lýst, frá Saramökum í Súrínam og Merínum á Madagaskar til Sama í Skandinavíu og Katalóna á Spáni; fádæma fjölskrúðugu mannlífi er lýst og gefin mynd af því hvernig fólk býr, vinnur, klæðist og mótar sjálfsmynd sína.


Maðurinn er 506 blaðsíður í stóru broti, afar vegleg bók um manninn og mannkynið, tilveru þess og umhverfi.

http://www.jpv.is/Forsida/Article.aspx?id=3489

Engin ummæli: