Á laugardaginn síðasta pöntuðum ég og vinur minn miða til New York! Já, ég sagði New York! =D
Ég er gríðarlega spennt því enda þótt ég hafi ferðast ansi mikið í gegnum árin með minni ástkæru fjölskyldu (og e-ð án hennar) þá hef ég aldrei komið út fyrir Evrópu.
Við stefnum að því að vera í stóra eplinu að kvöldi 26.janúar og halda heim á leið þann 1.febrúar. Að versla verður aðal markmið ferðarinnar (ég fæ litlu um það ráðið) en vonandi verður nóg skoðað í leiðinni líka. Ennþá er allt óráðið með gistingu en við ætlum að reyna að gerast sófadýr, þeas. sníkja gistingu í gegnum couchsurfing.com -Það ætti líka að verða spennandi... Gista heima hjá ókunnugu fólki í landi geðveika fólksins, víj :P
En já, kæru lesendur, ef svo vill til að þið hafið komið til New York og getið mælt með e-u þá endilega gerið það hér eða sendið mér email! Kaffihús, búðir, veitingastaðir, túristastaðir - hvað er must see? Við vitum ekki rass í bala um NY og þiggjum allar ábendingar með þökkum!
Líka ef svo ótrúlega vill til að þú eigir e-a sæta frænku eða frænda þarna sem ætlar akkúrat í skíðafrí þessa viku og vantar e-n til að passa íbúðina sína.... *blikk blikk*
Og svona smá til skemmtunar:
Best First Dance at a Wedding - Watch more free videos


2 ummæli:
Ertu ekki að grínast!!??
Mig langar til NY :(
og snilldar vídeo, alltaf gaman að smá aulahúmor :)
Nibb, ekkert grín :P
Fáðu bara einhvern til að skreppa með þér þangað áður en þú byrjar í háskólanum =) Er ekki svo dýrt að fljúga, við fengum flugmiða á ca. 2700 dkk. (Myndi bjóða þér að fara með okkur en ef við erum 3 er harla ólíklegt að við fáum couchsurfing gistingu er ég hrædd um).
Skrifa ummæli