19.11.2007

Október og nóvember so far







Klukkan er núna hálf eitt og ég á að vera á leiðinni í skólann. Ég er hins vegar með bakverk, hundþreytt (veit ekki afhverju þó) og e-ð illt í hálsinum þannig ég ætla ekkert að nenna því. Hefði áfanginn sem ég er í (lífeðlisfræði) verið eitthvað spennandi hefði ég ef til vill pínt mig í að fara en hann er það ekki.

Helgin var voða fín. Á föstudagskvöldið hélt ég smá partý í fyrsta skipti í langan tíma. Guðrún blandaði rosa góða cosmpolitans sem við bárum fram í nýju fínu glösunum mínum. Kvöldið endaði svo í SingStar keppni þannig ég hugsa að nágrannar mínir hafi ekkert verið himinlifandi.

Eftir tæplega 6 tíma slitróttan svefn vaknaði ég til að fara að hitta japanskan couchsurfara niðrá Hovedbanegård. Eftir morgunverðarstopp á Robert's Coffee héldum við á myndlistarsýningu í heimahúsi í Österbro. Þar var kona sem ég þekki að sýna verk sín og bjóða upp á jólaglögg og fleira. Ég endaði á að kaupa eftir hana bæði jólakort og STÓL! S.s. ósköp venjulegan tréstól nema hvað hún hefur málað á hann. Þar sem ég er ennþá að sjá eftir að hafa ekki keypt könnu sem mig langaði svo í á listasýningu fyrir rúmum 4 árum síðan þá ákvað ég að vera ekkert að hika við þessi kaup. Hann er voða sætur, set upp mynd af honum þegar ég er búin að fá hann.


Flakkaði svo um bæinn til kl. 17 með japananum þrátt fyrir þynnku og þreytu. Restinni af deginum og kvöldinu eyddi ég svo í rólegheitum með einum af vinum mínum sem var hundlasinn og vantaði félagsskap. Sunnudagurinn var svo frekar dapurlegur, var með hausverk allan daginn þannig ég gerði mest lítið nema taka til og sinna veikindagemlingnum í nokkrar klukkustundir.

Ég hef víst ekkert bloggað síðan ég kom heim frá Lúxemborg enda hefur síðasti mánuðurinn verið frekar brjálaður. Þegar ég kom aftur til Danmerkur tók við hrikaleg törn í skólanum. Í miðri þeirri törn fór ég svo á tékk upp á spítala í e-ð tékk. Í stað þess að vera þar í ca. klst eins og planlagt var þá var ég þar í tvo daga. Þetta var mjög viðburðarrík spítalavist skulum við segja og því miður var hún svo endurtekin tæplega viku síðar.
S.s. á miðvikudegi (24/10) skiluðum við inn stórri skýrslu (sem allur áfanginn gekk út á). Morguninn eftir fór ég upp á spítala og var innlögð í tvo daga. Kom heim á föstudagskvöldi (26/10) og var alla helgina bara að jafna mig eftir hremmingarnar á spítalanum (mamma flaug hingað á föstudeginum til að vera hjá mér og var fram á sunnudag). Fór í skólann á mánudeginum (29/10) til að undirbúa kynninguna á skýrslunni sem var síðan á þriðjudeginum. Eyddi öllu mánudagskvöldinu á slysó. Eyddi öllum þriðjudeginum í skólanum og við lukum kynningunni. Á miðvikudeginum átti ég svo að vera í munnlegu lokaprófi (sem ég hafði s.s. EKKERT haft tíma til að undirbúa mig fyrir) en fór í staðinn aftur á slysó og var innlögð í 3 daga. Að þessu sinni voru það Guðrún Ágústa, Guðný og Josef sem héldu mér félgaskap meðan á þessu veseni stóð og daganna eftir - það er gott að eiga góða að. Var líka svo heppin að kennararnir mínir voru sjúklega yndislegir og buðu mér að taka prófið í vikunni eftir.

Ég hef s.s. ágætis afsökun að þessu sinni fyrir að hafa ekkert bloggað.
Annars er nú margt sem mætti nefna frá þessum mánuði þarna. Til dæmis fór ég á Sigur Rósar kvöld sama dag og ég kom heim frá Lúxemborg. Þar spiluðu SR s.s. fyrst acoustic tónleika, síðan var sýnd heimildarmyndin "Heima" og því næst var langt viðtal og Q&A við SR, umboðsmann þeirra og leikstjóra myndarinnar. Þetta var hreint og beint frábært! Kvikmyndin var æðisleg, tónleikarnir undursamlegir og viðtalið skemmtilegt. Hef sjaldan verið jafn stolt af því að vera Íslendingur :P Annars var líka frekar skemmtilegt að sjá þetta af því að ég þekki þann sem var að taka viðtalið, hann kom einmitt heim til mín í kökuboð 2 dögum seinna með dóttur sinni og hálfbróður hennar :)



Ég smakkaði grænt te í fyrsta skipti núna fyrir 10 dögum síðan þegar vinur minn bauð mér á e-ð fancy tehús. Þetta var allt saman voða flott úr úrvals hráefnum, búið til eftir kúnstarinnar reglum en afgreiðslukonan hafði farið í teskóla í Tokyo. Við tvö vorum hins vegar sammála um að þetta væri eins og að drekka spínat. Með öðrum orðum vorum við ekki sérlega hrifin.



Í byrjun október ákváðum ég og einn af vinum mínum að elda graskerssúpu. Hvorugt okkar hafði nokkra reynslu af því að nota grasker í eldamennsku og þetta var hið mesta basl. Tókst þó vel eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Vil nota tækifærið og vara ykkur við tveimur kvikmyndum. Þær eiga það s.s. sameiginlegt að vera með þeim allra verstu myndum sem ég hef nokkur tímann séð. Sú fyrri kom út núna í ár og heitir Sunshine. Það er hreint og beint ótrúlegt hversu slæm þessi mynd er. Sú seinni er frá 2001 og er grínmynd sem ber heitið Rat Race. Ef þú fílar ógeðslega heimskulegan húmor þá er þetta ef til vill mynd fyrir þig en að mínu mati er hún hreint og beint hræðileg.

Ætla að fara núna og hvíla bakið. Má annars nefna að ég á von á mömmu og pabba hingað næstu helgi og það stefnir í að verða rosa skemmtilegt. Förum að sjá HK keppa í handbolta á móti Köben og svo á julefrokost (með fyrrum vinnufélögum pabba).

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa svona langt og myndarlegt blogg :)
En já ég keypti póstkort handa þér í Svíþjóð í sumar sem að þú færð um jólin, tými ekki að skrifa á það ;)
En hafðu það nú gott...farðu nú að láta þér batna stelpa, vona að þú þurfir ekki að verja meiri tíma á þessum blessaða spítala í bráð :)
Knús og kossar, Sigga.

Salóme Mist sagði...

Takk fyrir kommentið sæta :)
Fólk er voða latt við að gefa þau...

Úúúú, póstkort segirðu? Hlakka til að sjá það :D Ég hef það ágætt núna btw... kemst að því á þriðjudaginn hvort ég þarf að hafa e-r meiri afskipti af spítölum á næstunni eða ekki...
Heyrumst fljótlega, knús!

Benedikta sagði...

Vá, ég veit ekki alveg hvernig ég missti af þessu bloggi þínu, þar sem síðan þín er partur af reglulegri rútínu, ég missi aldrei þolinmæðina jafnvel þótt þú bloggir sjaldan :P

en já, einhvern vegin fór ég að því að taka ekki eftir þessu bloggi, sem er skrítið, enda langt og myndarlegt blogg, en ég kvitta hér með fyrir lesturinn, þótt seint sé :D

Salóme Mist sagði...

Tíhí, skondið ;)
Takk fyrir kvittið! Alltaf gott að vita að það er e-r sem les þessa vitleysu!