1.12.2007

Kvikmyndir frá 2006

Fyrir rúmu hálfu ári síðan sá ég á stuttum tíma slatta af bíómyndum. Flestar þessara bíómynda voru frá 2006. Planið var að skrifa um þær og segja ykkur mitt álit á þeim. Ég byrjaði á að finna myndir sem tengdust kvikmyndunum til að nota í færsluna og setti þær í möppu. Síðan, tja... síðan ekkert. Ég kom því aldrei í verk að skrifa þessa blessuðu færslu og var bara að finna möppuna með myndunum aftur núna. Man ekki lengur nógu vel eftir kvikmyndunum til að geta skrifað ítarlega um þær en ætla þó að skrifa örfá orð um þær núna.




The Holiday (2006)
Hjartnæm. Bjóst við einhverjum væmnum hrylling en svo reyndist þessi mynd bara vera ágæt. Horfði meira að segja á hana aftur daginn eftir að ég sá hana fyrst. Passar rosa vel að horfa á þessa svona rétt fyrir jól. Feel good mynd.




The Departed (2006)
Fjögur Óskarsverðlaun, mynd ársins og ég veit ekki hvað og hvað. ERUÐ ÞIÐ EKKI AÐ GRÍNAST? Jeddúddamía. Þessi mynd er sko 2,5 klst af leiðindum eða því sem næst. Á meðan þessar blessuðu klukkustundir liðu hægt hægt fannst mér alltaf eins og ég hefði séð þessa mynd áður. Það er eins og þeir hafi tekið búta héðan og þaðan úr hinum ýmsu mafíu og löggu myndum og splæst þeim saman í eina langloku. Matt Damon er líka bara svo leiðinlegur leikari. Tímaeyðsla.




Children of men (2006)
Skemmtileg hugmynd. Mega skemmtileg hugmynd! Ég stóðst ekki mátið að sjá þessa þó ég væri búin að heyra dómana. Hún er hrikalega endasleppt. Byrjar ágætlega en svo er eins og þeir sem gerðu myndina hafi ekkert vitað hvert þeir vildu fara með þessa mynd... og eins og handritshöfundurinn hafi látist í miðju verki. Svekkjandi.




Hard Candy (2005)
Damn, þessi er rosaleg. Í byrjun myndarinnar skilur áhorfandinn ekkert hvað er að gerast. Myndin er gerð með alveg rosalega fáum leikurum og í frekar takmörkuðu umhverfi. Einnig er frekar óþægilegt að horfa á hana, sérstaklega fyrir karlkynið. En hún er góð, svakalega góð. Ég var ekki alveg viss fyrst eftir að ég horfði á hana. En svo gat ég ekki hætt að hugsa um þessa mynd í nokkra daga eftir að ég sá hana og langaði að sjá hana aftur. Þá hlýtur hún að vera góð. Sérstök pæling. Góður leikur. Vel útfært. Ekki fyrir alla en ég mæli með henni fyrir flesta. Ef þú ert viðkvæm sál eða/og með óþroskaðan kvikmyndasmekk, ekki sjá hana.




Jesus Camp (2006)
Mjög áhugaverð heimildarmynd um trúarlegar "sumarbúðir" fyrir börn í Bandaríkjunum. Frekar rosalegt að sjá hverning börnin eru heilaþvegin þannig þau m.a. fara að tala tungum. Ef ég man rétt voru þeim einnig innréttaðar ákveðnar pólitískar skoðanir sem var annað atriði sem gerði þetta ótrúlega óhuggnalegt...




Notes on a scandal (2006)
Góð, vel leikin og allt í lagi áhugaverð. Hins vegar fékk ég ekkert út úr því að horfa á hana ef svo má segja. Held ég hefði ekki misst af neinu ef ég hefði ekki séð hana. Man ekki nákvæmlega afhverju en ég held ég myndi ekki mæla með henni við fólk.




The Illusionist (2006)
Þessi kom skemmtilega á óvart! Hafði ekkert heyrt um hana áður en ég sá hana en það kom á daginn að hún er bara fjandi góð. Skemmtilegt plott, vel leikin, etc. Ekki endilega uppáhalds mynd en það er klárlega þess virði að eyða kvöldstund í að sjá þessa.


Ég vil svo enda á því að segja að ég þoli ekki Will Ferrell. Hann er leiðinlegasti leikari í heimi! Ojjjjbara hvað hann pirrar mig! Horfði á Stranger than fiction áðan og bara gat ekki notið hennar því hann leikur aðalhlutverið :S

10 ummæli:

Atli Sig sagði...

Departed er geðveik! Ég er ekki að grínast! :D

Benedikta sagði...

Ég sofnaði yfir departed.. svo reyndi ég aftur að horfa á hana.. og entist í 30mín áður en ég sofanði aftur!

Illusionist er geðveik :)

Jesus camp hræðir mig, frekar disturbing að horfa á þetta :/

Salóme Mist sagði...

Já Atli, þú ert líka furðulegur ;)

Mikið er ég glöð að heyra að þú ert hins vegar sammála mér systir góð, þá veit ég að ég er ekki sú eina sem dauðleiðist þessi mynd (miðað við dóma og vinsældir þá elska hana flestir).

Atli Sig sagði...

Þessi mynd er bara of karlmannleg fyrir ykkur. :D Ég held hún eigi heimsmet í að orðið "fuck" komi oftast fyrir. Sbr. þetta: http://youtube.com/watch?v=mFTeG-RoBTQ

Benedikta sagði...

Ertu að segja mér að hún nái að slá út 'The Big Lebowski'? Því það væri frekar impressive, einhvers staðar las ég að sú mynd ætti metið í tíðni orðsins 'fuck'

http://youtube.com/watch?v=gU2ZgaQ_H-Y

Salóme Mist sagði...

Vá, fyndið... mér varð einmitt hugsað til The Big Lebowski þegar ég las kommentið hans Atla áðan! Við verðum að komast til botns í þessu ;) Eruð þið með tölur?

Myndin of karlmannleg? Ef með karlmannleg þú meinar leiðinleg... þá já :P

Er e-ð karlmannlegt við orðið fuck btw? Síðan hvenær?

Atli Sig sagði...

Það er karlmannlegt að blóta! Kannastu ekki við setningar eins og "Don´t swear, there are women present here!"

Ég held samt að kvenfólk blóti meira en karlmenn í raun og veru, en hversu margar svokallaðar stelpumyndir innihalda jafn mörg fuck? Hollywood er vitaskuld bara að reyna að viðhalda þeirri hugmyndir að stelpur séu góðar og prúðar og blóti ekki. Sem er þvílíkt kjaftæði.

Aðrar myndir sem eru líklegar til að eiga met í að fuck komi oftast fyrir: Goodfellas, Pulp Fiction og Reservoir Dogs. Þetta eru allt mjög karlmannlegar myndir!

Atli Sig sagði...

Auðvitað er Wikipedia búið að sjá um þetta fyrir okkur:

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_films_that_most_frequently_use_the_word_%22fuck%22

Atli Sig sagði...

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_films_that_most_frequently_use_the_word_%22fuck%22

e-ð fokkaðist þarna...

Atli Sig sagði...

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_films_that_most_frequently_
use_the_word_%22fuck%22

þetta verður víst að vera svona...