24.9.2006

Hver á sér fegra föðurland?

Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?

Að kvöldi mánudagsins 11. september tók ég þá skyndiákvörðun að skreppa til Íslands. Venjulega er mér mein illa við skyndiákvarðanir og forðast að taka þær en þessi reyndist góð. Þessir fimm dagar sem ég átti á Íslandi voru alveg einstaklega yndislegir og ánægjulegir. Vil nota tækifærið og þakka vinum og vandamönnum kærlega fyrir samveruna :)

*VARÚÐ RITGERÐARFÆRSLA*

Eitt sem ég tók eftir meðan á dvöl minni stóð var hversu græn Reykjavík er! Það er alls staðar gras! Á umferðareyjum, í kringum vegi og auðvitað í öllum görðum. Í Kaupmannahöfn sér maður ekki svona mikið gras! Vissulega eru almenningsgarðarnir og stöku svæði en ekki jafn yfirgnæfandi og heima. Auk þess er grasið ekki svo grænt hér í Kaupmannahöfn í ár eftir hitann sem var í júní og júlí. Í byrjun ágúst var Kongens have t.d. svo til alveg gulbrúnn :S Allavega, þá fannst mér Reykjavík alveg einstaklega græn og falleg, hef aldrei áður hugsað um Reykjavík sem beint fallega borg. Sitjandi í strætó núna í síðustu viku naut ég þess þó bara að sitja og horfa á umhverfið. Sýn mín á Reykjavík hefur breyst.

Ferðin heim (s.s. ferðalagið sjálft) var frekar spes og ekkert sérlega notaleg. Mætti frekar snemma út á flugvöll þar sem miklar tafir höfðu verið við öryggishliðið fyrr í vikunni vegna veikinda starfsfólks og var búist við þeim áfram. Það reyndist þó ekki vera þetta kvöld enda flugið frekar seint (22:50). Var komin gegnum öryggishliðið alveg tveimur tímum fyrr! Úff úff! Var þvílíkt þreytt, sat við barin drekkandi pepsi og maulandi M&M's (sykur sykur sykur) hlustandi á The Arcade Fire og The Smashing Pumpkins til að reyna að halda mér vakandi... var samt ekki auðvelt!
Flugvélin var hálftóm en þó tókst mér einhvern veginn að festast í gluggasæti við hliðina á miðaldra dönskum lesbískum konum sem voru á leið til Íslands á H*rbalife námskeið (vil ekki að þeir sem leiti að þessu orði á google álpist hér inn!!). Sú sem sat við hliðina á mér var með svo stór læri að þau ýttu upp sætisörmunum. Að sökum þreytu var ég ekkert að taka eftir því og notaði arminn samt sem áður... þar til ég tók eftir því að það olli því að hann þrýstist niður í lærið á greyið konunni (afhverju sagði hún ekki neitt?) gaman, gaman!
Í rútunni á leiðinni til Reykjavíkur sat ég svo við hliðina á ungum sænskum rúmasölumanni sem var kominn til Íslands ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum á rúmasöluráðstefnu! Ég var þreytt og komin í svefngalsa og átti mjög erfitt með að fela hversu fyndið mér þótti það. Spjallaði þó við hann svo til alla leiðina (annars hefði ég sofnað) og tókst að móðga hann ekki! ...held ég...
Annars kemur fólk greinilega til Íslands af hinum ótrúlegustu ástæðum, held það mætti alveg nota þetta í handrit á einhverri súrrealískri bíómynd :)
Unnur kom svo og sótti mig niður á BSÍ en ég fékk að dvelja hjá henni þessa daga sem ég var á Íslandi (OG hún skutlaði mér líka upp á flugvöll þegar ég var að fara). Hún er pottþétt krútt mánaðarins. Takk Unnur mín! :*

Hvað gerði ég svo á klakanum?
- Fór í matarboð: -Á föstudeginum hjá ömmu og afa í Hafnarfirðinum. Bara við Benedikta en svo kíkti Nonni frændi við með Védísi frænku og vinkonu hennar.
-Á sunnudeginum var okkur systrum svo boðið að borða hjá Lalla frænda og co. Ívar og kærastan komu líka. Taco og tortillas og pönnukökur í eftirrétt, nammi namm!
-Á mánudeginum var mér boðið í mat hjá Gilla frænda og co. Umræður fóru að mestu fram á ensku þar sem þau eru með ítalskan gest í nokkrar vikur. Þegar hún fór var þó skipt yfir í ástkæra ylhýra og mest rætt um kanínur!
-Á þriðjudeginum vorum við systurnar og Aggi svo boðin aftur til ömmu og afa en í þetta skiptið voru Ívar frændi og kærastan með líka. Mikið var reynt að ná í Ella frænda (hef ekki hitt hann í e-r ár!) en það gekk ekki.
Öll þessi matarboð voru yndisleg og ef gestgjafarnir lesa þetta þá vil ég bara segja: Takk fyrir mig!! :)

- Fór í bíó: - Á föstudeginum fórum við Tommi á Thank you for smoking. Get svo sannarlega mælt með henni sem skemmtilegri gamanmynd :) Finnst hún ekki beint eftirminnileg en alveg stórgóð afþreying samt sem áður.
- Á sunnudeginum fórum við Atli Sig. á Clerks 2. Tæplega hálftíma fyrir sýningu hringdi ég í systur mína til að segja henni af matarboði og þá tilkynnti hún mér að hún, Aggi og e-r vinir þeirra ætluðu að koma og sjá myndina með okkur (e-r: Dóri, Kristó, Kristján og uh... Bippi? rétt munað hjá mér systa? Þetta nafna-óminni mitt er óþolandi!). Korteri fyrir sýningu hringir svo Unnur og spyr hvort ég vilji koma með henni og Orra á An Inconvenient Truth í Háskólabíói. Þegar þau heyrðu að ég væri að fara á Clerks 2 ákváðu þau hins vegar að koma bara með mér í staðinn. Þannig að á korteri stækkaði hópurinn úr 2 í 10, frekar skondið :D
Allavega! Myndin var ÆÐI! Ég hélt ég myndi bókstaflega kafna úr hlátri :) Langar þvílíkt að sjá hana aftur! Ef þið hafið séð Clerks I, hafið nördahúmor og sóðahúmor.... sjáið þessa mynd!! =D

- Sá nýjar íbúðir: - Á föstudeginum sá ég í fyrsta skipti íbúðina hjá Benediktu og Agga. Hún er alveg ofur kózí og svo eru þau með sturtu sem lítur út eins og geimskip! :D
- Á mánudeginum sá ég nýju íbúðina hennar Bjöggu. Hún er alveg mega krúttleg. Notaleg kjallaraíbúð í vesturbænum sem er rosalega sjarmerandi að sökum þess hversu mikið er upprunalegt í henni. Hlakka mikið til að sjá hana aftur þegar búið er að mála og flytja almennilega inn. Held hún eigi eftir að verða rosa sæt :)
- Á þriðjudeginum kíkti ég á nýju íbúðina hennar Söru frænku. Stór íbúð þar sem er hátt til lofts, alveg í miðbæ Reykjavíkur. Algjört æði! Var ekkert smá gaman að kíkja þangað! Bæði vegna þess að það er nú ekki svo oft sem ég hitti Söru heldur líka afþví að þangað komu einnig Unnsteinn frændi og svo Davíð, Eva og sonur þeirra Óliver. Hann er orðinn 11 mánaða en þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk að sjá hann. Hann er ekkert smá mikil rúsína! Takkaóður grallari með ofursætt frekjuskarð! Íhhh! :) Þegar Benedikta heyrði að Óliver væri á staðnum kom hún líka brunandi því hún hafði ekki séð hann heldur.
Sara var líka svo sæt að gefa mér nokkrar gamlar Enid Blyton bækur! Var ekkert smá glöð með það en eins og þið sum vitið þá er ég rosalegur nostalgíu safnari. Safna gömlum barnabókum (bara þeim sem ég las sjálf sem krakki þó) og gömlum 80's og early 90's teiknimyndum (á slatta af þeim á DVD) svo e-ð sé nefnt.

- Hitti vini: - Fór með Xibei á kaffihús. - Á KFC með Nonna. - Heimsótti Siggu og fór með henni að sjá aðsetur Hjálparsveitar Kópavogs (mjög áhugavert). - Hékk með Unni og fór með henni í Góða hirðinn og á bókamarkað Eddu (bækur, bækur, bækur bækur!!). - Hékk allan laugardaginn með Sölva og Jóa. Um kvöldið bættust svo í hópinn Arna & Einar, Edda, Leifur & skiptineminn hans og Unnur og þá var pizzuát og spilerí.

Svo svona hitt og þetta... heimsótti ömmu og afa í Kópavogi 2x, var search-uð í 11-11, sótti myndavélina mína til Steina og Auju, etc.

Úff! Vá hvað ég nenni ekki að skrifa meira! Bókafærsla verður að bíða í bili!!

Þrennt sem ég hef að segja samt áður en ég lýk þessari blessuðu ritgerð:
a) Ég byrja á dönskunámskeiði á morgunn. Verð þar alla virka daga frá 8:30-11:15 næstu sex vikurnar, jeij! Vakna á morgnanna, úff!
b) Er búin að bæta við allavega tveimur blogglinkum (á frænkur mínar; Söndru Dögg og Birgittu).
c) Þið ykkar sem hlustið á rokk/metall, tékkið á fyrstu plötu hljómsveitarinnar Shima sem mun koma út á næstunni, "... and for a moment all fell silent". Fyrsta lagið, Coma, er komið í spilun á Xfm, svo þið getið fengið tóndæmi þar :) Þeir eru svo með allavega tvo tónleika á næstunni, skoðið síðuna þeirra ef þið hafið áhuga. (Á maður ekki alltaf að auglýsa smá fyrir vini sína?)

Endilega verið jafn dugleg að kommenta og síðast, var voða glöð með það! :)

4.9.2006

Sumri lokið..



Rúmlega mánuður frá síðustu færslu.... úff púff.


Einhverjir af mínum fáu lesendum heimta bloggfærslu þannig ég hef ákveðið að verða við þeirri bón. Það er samt einhvern veginn alltaf svo erfitt að blogga þegar svona langt hefur liðið á milli :)

Nokkrir punktar um hvað hefur gerst síðastliðinn mánuðinn:
- 16.ágúst fékk ég internettengingu heim og gat því hætt að heimsækja subbulega netkaffihúsið þar sem ég var vön að fara til að svala netfíkn minni. Húrra húrra!
Get ekki sagt að ég muni sakna reykingarstybbunar, svitafýlunnar, mínútuteljarans, hitans, counter strike nördanna, undarlega gamla listamannsins eða gaursins sem lyktaði verr en rotinn fiskur og gekk alltaf um í þröngum svörtum sokkabuxum.

- 18.ágúst fékk ég fallegu nýju fartölvuna mína! Nýju ástina í lífi mínu ;P Reyndar var smá klúður þegar þeir voru að koma með hana og er það bara snarræði Siggu að þakka að ég þurfti ekki að fara alla leið upp í Tåstrup að sækja gripinn! Sigga er því útnefnd Bjargvættur mánaðarins!

- Um miðjan mánuðinn keypti ég þrjár ágætis dvd myndir í ComputerCity á 150dkk og fannst ég gera ágætis kaup. Tveim dögum seinna fór ég í Fona og keypti 8 dvd myndir á 200dkk og fattaði að hin fyrri kaup voru ekkert svo sérstök í samanburði við þetta. Í Fona voru þeir með fullt af æðislegum myndum á 20 eða 30 dkk stykkið! Ekki amalegt.

- Sunnudaginn 13.ágúst komu Sigga vinkona mín og Ásgeir kærastinn hennar hingað til Köben og fengu þau að gista á sófanum mínum til föstudagsins þar sem eitthvað klikkaði með staðinn sem þau ætluðu að gista á. Það var alveg yndislegt að hafa þau hér og vona ég að þau komi fljótlega aftur ;) Um helgina voru þau svo á farfuglaheimili því að þá höfðu bæst í hópinn Halla systir Siggu og Atli vinur Ásgeirs. Við fórum öll saman út að skemmta okkur bæði föstudags og laugardagskvöld og var það svaka stuð :) Á föstudagskvöldinu héldum við okkur að mestu á The Dubliner sem ég var reyndar ekkert að fíla svo vel. Laugardagskvöldið byrjaði með stuttri viðkomu á Stengade 30 en hann var tómur þannig við fórum yfir á Coconut Beach Bar og drukkum ógeðslega sykursæta kokteila og enduðum svo á Rosie McGee's.
Þess má reyndar geta að á föstudagskvöldinu spjölluðum við við ungan íslenskan mann sem býr á götunni hér í Kaupmannahöfn. Viku seinna var þessum sama manni hrinnt fyrir lest eins og þið hafið vísast lesið um í blöðunum og er hann nú kallaður heppnasti maður Danmerkur.

- Helgina 25.-27.ágúst var Fanney Sísí í heimsókn hjá mér. Ég var reyndar að jafna mig eftir einhverja flensudruslu sem var búin að halda mér rúmliggjandi í 3 daga en þrátt fyrir það var helgin mjög fín. Á laugardagskvöldinu dró ég hana með í innfluttningspartý hjá Russell vini mínum en þar átti fólk að mæta uppáklætt sem persónur úr einhverju ævintýri. Þetta var frekar stórt partý, enda stór íbúð (fjögur sem leigja saman auk þess sem Russell og Casper eru með stúdíóið sitt þarna) og því var frekar mikið af skondnum búningum :) Við Fanney fórum sem álfar (ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn hálfvitalega í strætó og þegar við vorum á leiðinni þangað... með vængina mína og fiðrildasprotann!!). Fór með flösku af Opal vodkaskotum þangað og vakti það mikla lukku!

- Síðasta föstudag kíktum við Guðný á Iceland Airwaves WarmUp-ið sem var á Lille Vega. Fannst reyndar tónlistin og fólkið takmarkað áhugavert þannig við stoppuðum bara í ca. 2 tíma... héldum svo yfir á Stengade 30 þar sem var mun meira fjör :)

Þetta eru svona hápunktarnir sem ég man eftir. Er annars bara mikið búin að vera að hangsa með vinum mínum hér... það minnkar kannski e-ð á næstunni þar sem háskólinn byrjaði aftur hjá þeim í dag. Hmmm...

Jáh, annars vil ég segja eitt. Mér finnst sjálfri svona persónuleg fréttablogg alveg takmarkað skemmtileg. Ég geri mér grein fyrir því að bloggið mitt er ekkert æðislegt en eins og ég tók fram þegar ég byrjaði að blogga fyrir ári síðan þá er þessi síða fyrst og fremst hugsuð sem fréttasíða fyrir fjölskyldu og vini sem búa í öðrum löndum. Finnst miklu skemmtilegri svona blogg eins og t.d. bloggið hans Sölva þar sem alltaf er skrifað um e-ð áhugavert, komið með pælingar og svo framvegis. Því ætla ég að reyna að koma með svoleiðis færslur inn á milli í framtíðinni... eða kannski bara lauma svoleiðis köflum inn í færslurnar mínar.

Annars ætla ég að segja þetta gott núna þar sem uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn er að byrja eftir 10 mínútur (sá eini sem ég fylgist alltaf með). Það er s.s. "Grey's Anatomy", þáttur um skurðlæknanema.. rétt upp hönd sá sem er hissa á að slík sería sé í uppáhaldi hjá líffræðinördinu mér? :D En í alvöru talað, þetta er æðisleg sería með frábærri tónlist líka. Tékkið bara á soundtrackinu ef þið trúið mér ekki! Okkar yndislega Emiíana Torrini er meira segja með lag í þáttunum.

Minnið mig á að skrifa um bækur í næstu færslu... er búin að lesa nokkrar mjög svo góðar í sumar og langar að skrifa um þær...

Ahh.. og þarna, ég gat loksins sett inn restina af myndunum frá Lúxemborg og myndirnar frá Berlín. Endilega kíkið á þær :P


26.7.2006

He who hesitates; masturbates.

Jæja, hef svo sem ekki mikid ad segja en vil adeins bæta upp fyrir bloggleysi undanfarna vikna. Her i Baunalandi heldur vedrid afram ad vera dásamlegt og ég sé fram a ad eg verdi ad fara ad kikja a strøndina. Tha tharf eg nu liklega ad fara fyrst og kaupa mer sundføt en svoleidis hef eg ekki att i 7 ár...
Ibudin er... dasamleg tho enntha se slatti af drasli (mest pappirum) sem liggur utum allt og gerir hana ponsu ruslaralega. Ef hef bara einfaldlega ekki haft mikinn tima i ad sinna henni. Benedikta var her fram a sidasta fimmtudag, tha for ekki mikill timi i tiltekt.. eyddum honum frekar i bæjarrølt og Tivoli med Isju. Sidan var eg med 5 gesti fimmudag til føstudag. Helgin for reyndar i e-a tiltekt en lika i hangs med einum af vinum minum.
Manudagurinn var virkilega skemmtilegur en tha hitti eg Sölva sem er staddur her i Køben i viku. Strikid, Christiania, Nyhavn og Nørrebro lysir deginum agætlega :)
Gærdagurinn.. uff.. eg var alveg buin eftir hann! Hann for i ad leita ad manneskju. Malid er ad thad er kona sem eg thekki (gegnum fjølskylduna) sem byr rett hja mer. Eg bad thessa konu (sem er a sjötugsaldri) um ad geyma aukalykilinn ad gømlu ibudinni minni fyrir nokkrum manudum sidan (t.e.a.s. thegar eg komst ad thvi ad manneskjunni sem geymdi lykilinn fyrir mig adur væri ekki einu sinni treystandi fyrir thvi ad segja sannleikann og væri undirförulli en gódu hófi gegnir). Nu tharf eg hins vegar ad skila lyklunum ad gømlu ibudinni (og thrufti lika ad lana hana fyrr i manudinum) og hef verid ad reyna ad na i thessa konu i heilan manud! Hun svaradi aldrei simanum ne kom til dyra thegar eg reyndi thad... Amma og afi, sem thekkja hana vel, voru ordin alveg vel ahyggjufull um ad e-d hefdi komid fyrir hana. Fjølskyldan min kannast alveg vid dottur hennar en engin var med heimilsfangid hennar ne sima og enginn vissi eftirnafnid sem hun hefdi tekid eftir ad hun giftist. Engir adrir sem vid gatum spurt. Thannig... jah.. eg er undanfarna daga buin ad vera ad leita ad leidum til ad finna hana.
Lokaspretturinn var i gær, tokst ad redda addressu dotturinnar med ad sweet talka nokkra borgarstarfsmenn, utfra heimilsfanginu fann eg simanr. a netinu, utfra thvi nadi eg sambandi vid... barnabarn konunar... sem er svona 11 ara eda e-d, sem sagdi mer ad amma hans væri a spitala og hefdi verid i manud. Labbadi upp a spitala og tokst ad finna hana. Jeij. Dottir hennar ætlar ad redda lyklunum fyrir mig fljotlega (ef eg skila ekki lyklinum tharf eg liklega ad borga svona 30-50.000 isk thvi ad thetta er lykill sem gengur ad ollu a kollegiunni..). Jeij, eg er potthétt spæjari mánadarins! ;)
Jæja.. tonlistin a thessu netkaffihusi er farin ad valda heilaskemmdum og maginn farinn ad gaula thannig eg ætla ad forda mer!
P.S. Thad eru myndir fra fyrstu... 5 dögunum i Lux a myndasidunni minni... en restin er annars vegar föst a minniskortinu minu (thad er bögg med myndavelina mina sem eg nenni ekki ad utskyra] og svo er systir min med helling lika... thannig.. thær koma.. e-r timann. Eg mun hins vegar ekki taka fleiri myndir sjalf i sumar... skildi velina eftir i Luxembourg.
Annad... ef e-r af ykkur sem les thetta er ad koma til Køben er alveg skilda ad lata mig vita :) Sendid mer email eda kommentid her bara. Eg er reyndar EKKI til i fleiri Tivoliferdir.. er komin med vægt ofnæmi fyrir theim... en er game i flest annad ;)

21.7.2006

...

Ups, meira en manudur sidan eg bloggadi :o
Nokkrar astaedur fyrir thvi:
- Ekki haft tima
- Verid a ferdalagi og thar med ekki med adgang ad nettengdri tølvu
- Thegar eg hafi tima og adstødu (kom fyrir ørfau sinnum i Lux) tha var einfaldlega of heitt a efri hædinni (thar sem tølvan er) til ad hægt væri ad sitja vid tølvuna nogu lengi til ad skrifa bloggfærslu.

Er nuna a netkaffi sem er nanast vid hlidina a nyju ibudinni minni (sem er btw ædi!)... er ekki med nettengingu i henni enntha... Ætla ekkert ad fara ad skrifa mikid nuna.. bara svona ad lata vita ad eg er a lifi :P Sidasti manudurinn er buinn ad vera gedveikur :) Bara um fyrsta dag ferdarinnar hefdi eg audveldlega getad (og ætladi) ad skrifa heila færslu... og adra um tjodhatidardaginn i Lux thegar borginn breyttist bara i eitt mega stort party og vip partyid... og audvitad enn adra um Rock a Field hatidina.. Berlinarferdina (fotbolti, søfn og fylleri)... brudkaupid a Jotlandi.. Sigur Rosar tonleikana... fotboltastemmingjuna i Thyskalandi.... nyju ibudina... etc... :D

Hmm hmm.. jah.. thad er nu thad... verdur allt ad bida betri tima. Er ad pæla i hvort eg eigi ad kikja til Islands i lok agust... eda hvort eg eiga bara ad fara til Irlands... eda hvorugt? Held Spann se alveg utur myndinni... Æj... eg er svøng og nenni thessu ekki.. blogga meira seinna.

Vona ad thid hafid thad øll sem best og seud ad njota sumarsins!
chao

16.6.2006

Discovering Homework and hating SAS


Faye: I'm sorry Dora, but liking Homework more than Discovery is like enjoying vanilla more than chocolate ice cream. It means you are boring. / Dora: Whatever. You indie kids can take your pop bias and stick it somewhere cramped and smelly. Homework is Daft Punk's best album, hands down.
-Questionable Content; September 21, 2005 12:19am

Núna loksins, 9 mánuðum eftir að hafa lesið þetta comic strip, veit ég hvorri þeirra ég er sammála. Pantaði
Homework á þriðjudaginn og hún kom í póstinum í dag. Eins og ég ELSKA Discovery (keypti hana í lok mars) þá finnst mér Homework bara hreint út sagt frekar leiðinleg! Allavega svona við fyrstu hlustun. Hverjir eru sammála? Er þvílíkt vonsvikin :S

Hins vegar er það nú ekki ástæðan fyrir því að ég er að blogga. Ástæðan er sú að ég ákvað í gærkvöldi að fljúga út til Lúxemborgar á sunnudagsmorguninn (18.júní) í stað þess að fara næsta föstudag (23.júní). Ástæðan fyrir því er sú að þann 23.júní er þjóðhátíðardagur Lúxemborgar. Þeir halda samt upp á það daginn áður! Af því tilefni eru allir í vinnunni hjá pabba og fjölskyldur þeirra boðnir í e-ð VIP partý og ég tými bara ekki að missa af því :P Bæði bara afþvíbara og líka því þá fæ ég tækifæra til að hitta fólkið sem pabbi er að vinna með og svona (hlaðborð, opinn bar og besta útsýni ever fyrir flugeldasýninguna voru líka atriði sem heilluðu!).
Ég vildi helst bara breyta fluginu og fljúga 20., 21. eða 22. en þegar ég hringdi og reyndi að breyta miðanum var mér sagt að þetta væri óbreytanlegur miði! Ekki hægt að breyta þótt maður borgaði á milli ef hinn miðinn er dýrari plús borga breytingargjald eins og hjá öðrum flugfélögum.. heldur bara.. ekki hægt. Helvítis plebbar. Daginn eftir ákvað ég að reyna að fara og tala við þá og gerði mér því sér ferð út á Kastrup (eina skrifstofan þeirra hér). Það gerði nákvæmlega ekkert gagn. Blablablalba... eina leiðin að kaupa annan miða. Engin önnur flugfélög sem fljúga þangað nema LuxAir sem eru okrarar. Allir miðarnir hjá SAS í næstu viku voru þá orðnir geðveikt dýrir.. en ég sá fyrir tilviljun að miðarnir á sunnudeginum voru ekki svo dýrir svo að ég skellti mér bara á það. Þetta var s.s. um kl. 19 í gærkvöldi... en.. þar sem ég var að panta miðann svona fáum dögum fyrir brottför.. þá varð ég að sækja miðann.... og það varð að gerast... í gær! Kl. orðin 19... þannig ég þurfti þá að fara AFTUR upp á helvítis Kastrup.. bara til að sækja miðann. Það tók tvo tíma og ég var svona frekar pirruð. Afhverju mátti ég ekki bara sækja miðann daginn eftir? Eða bara áður en ég var að fara í flugið? Fávitar.
Fattaði svo þegar ég var búin að panta miðann að það voru þá skrilljón hlutir sem ég þyrfti að redda.. á tveimur dögum! Plús ég þyrfti nauðsynlega að undirrita mikilvæga pappíra útaf íbúðinni áður en ég færi úr landi og frekar hæpið væri að redda því fyrr en í næstu viku :S Stress, stress og meira stress!

Gærdagurinn var hreint og beint ömurlegur s.s. En dagurinn í dag... ekkert nema góðar fréttir!! Í fyrsta lagi gengur bara frekar vel að hakka á "to do" -listann. Í öðru lagi, komu mikilvægu pappírarnir í póstinum í dag þannig ég gat undirritað þá strax og sent tilbaka! Í þriðja og síðasta lagi... fékk ég email um að umsókn mín um að mega kaupa íbúð í Danmörku... var samþykkt!!! Sem var síðasta hindrunin í vegi okkar fyrir að geta keypt íbúð hér (þær hafa verið nokkuð margar!).... e-ð sem við erum búin að vera að vinna í síðan í mars! Þvílíkur léttir! Víj :D

Þannig jáh.. ég er að fara frá Danmörku, kem aftur eftir mánuð, flyt þá í nýtt húsnæði... nóg að gera! :D

Ekki mikið annað í fréttum... pabbi kom hérna á þriðjudaginn, það var voða gaman þótt það hafi verið ferlega mikið að gera hjá okkur. Fórum samt á írskan pöbb um kvöldið og horfðum á fótboltann ;) Daginn eftir fór ég svo að hitta ömmu, afa, frænda minn, konu frænda míns og frændsystkini mín þrjú... þau stoppuðu við hér í Kaupmannahöfn í nokkrar klst á leið sinni til Póllands. Það var rosa gaman líka :) Bara búin að vera ágætis vika.. svona þegar á heildina er litið!

Yfir og út!

12.6.2006

Sun is shining, the weather is sweet


Góða veðrið er komið aftur! Spurning hvað það stoppar lengi í þetta skiptið...

Vissuð þið að hér í Kaupmannahöfn er fullt af fólki sem fer í sólböð í kirkjugörðunum? Það er kirkjugarður hér rétt hjá og þegar síðasta góðviðristímabil var fór ég þangað að taka myndir. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom inn í garðinn og þið getið ímyndað ykkur hvað ég var hissa þegar ég sá hálfnakið fólk útum allt í sólbaði milli grafanna!! Hins vegar ákvað ég bara að prófa að fylgja þessu skondna fordæmi og get ég sagt ykkur að þetta venst ansi fljótt! :P Yndislegur garður.. (ég hef alltaf verið frekar hrifin af kirkjugörðum, bara ekki í myrkri).
Reyndar var ég að lesa á skilti þarna í gær og komst að því að svæðið þar sem ég hreiðra venjulega um mig (eins og margir aðrir) er víst svæði þar sem þeir biðja mann að vera ekki því þar eru nýju grafirnar... en þetta er besti bletturinn! Þannig á meðan aðrir halda áfram að vera þarna þá held ég að ég sé ekkert að flytja mig... *skammast sín smá*.

En jáh, ekki eyða tíma ykkar í að sjá The Omen, það er lítið varið í hana. Frekar slöpp svona... ef þið hins vegar farið á hana þá hafið augun opin fyrir nafninu mínu :P
X-men 3 er hins vegar vel þess virði að sjá í bíó. Betri en ég bjóst við :)

Fór á klassíska tónleika um daginn í tónleikasalnum í tívolí. Sá Carmina Burana með vini mínum en þetta var s.s. afmælisgjöfin mín frá honum. Þetta var voða fínt þó svo "sumir" hafi ekki alveg verið að pæla þegar þeir keyptu miðana og því sátum við FREMST og þá meina ég hnén á okkur voru í 10 cm fjarlægð frá sviðinu og allt sem ég sá ef ég horfði beint fram voru fætur. Ég HATA að sitja fremst (erft frá pabba)... En jáh, vel flutt verk þó svo að þeir sem sáu um óperu-partana hafi verið misjafnlega góðir (kvenröddin var hrikalega flott!!). Hah, og litli kórinn var ÚBER SÆTUR! Drengjakór með meðalaldur ca. 7 ár, algjörar dúllur :) Líka frekar skondið að sjá þá syngja á móti stóra kórnum sem samanstóð mestmegnis af ömmum og öfum.
Kíkti reyndar í tívolí aftur tveim dögum seinna með vinkonu minni (erum báðar með árskort). Fengum okkar svona spænskar vöflustangir með ís (mmm) og horfðum á H.C. Andersen brúðusýninguna, mega notalegt bara.

Hmmm hmm.. annars var ég frekar vonsvikin þegar það var tilkynnt um daginn að The Subways myndu ekki getað spilað á Rock a Field... áður var búið að tilkynna að Juliette & the Licks hefðu þurft að hætta við. Önnur bönd voru reyndar sett inn í staðinn... en ég vildi sjá The Subways! :(
Komst líka að því að þó að ég komi út á þjóðhátíðardegi Lúxemborgar þá halda þeir upp á það daginn áður en nota daginn sjálfan í þynnku og leti. Þannig ég missi af því, urr!

Annars er lítið að frétta... skemmdi hvítu buxurnar mínar um daginn.. sem ég er búin að eiga í 6 ár! Datt og það kom gaaaaat :S (Ég er snillingur!) Fór í partí síðasta laugardag sem var ekkert sérstakt... uhm.. hvað fleira?... Jáh, pabbi kemur á morgunn! :) Verður einn dag hér, þurfum að fara að hitta lögfræðing og bankakall og skrifa undir fullt af pappírum.

Jæja, blah.. held ég hafi ekki meira að segja... nema jú, búin að bæta við fullt af linkum hér á síðuna nýlega. Örfáir nýjir bloggarar, t.d. Sölvi (þið verðið að finna sjálf út hverjir hinir eru). Setti svo inn fleiri af mínum uppáhaldslinkum; myndasögur og teiknimyndir og alls konar dót ef ykkur leiðist. Salóme to the rescue sko!

4.6.2006

Sumar!



Jiiiiii, það er kominn júní! Tíminn líður svo hratt! Finnst árið 2006 bara hafa flogið hjá hingað til... nánast :) Bráðum hálfnað! :o


Ég held þetta sumar eigi eftir að vera svo geeeeðveikt! :D *hlakka til, hlakka til, hlakka til*

23.júní --> haldið til Lúxemborgar, sama dag er þjóðhátíðardagur þar og því örugglega mikið fjör.

25.júní --> Rock A Field - Placebo, The Subways, Franz Ferdinand o.fl.
7.-10.júlí? --> Skreppa til Berlínar - skoða, chilla, etc (ath. úrslitaleikurinn í HM er í Berlín 9. þannig það verður geðveikt stemming í borginni).

10.júlí --> Ziggy Marley tónleikar í Lúx

12.júlí --> Sigur Rós á útitónleikum í Lúx

13/14.júlí --> Keyra til Jótlands

15.júlí --> Brúðkaup hjá Boggu frænku

--->Keyrt til Köben
16./17./18. júlí --> Flytja í nýju íbúðina?!?! :o

Byrjun ágúst --> Kíkja til Spánar?


En jáh.. Næstu vikur fara bara í chill og oh.. pakka niður í kassa? :S Reyndar tónleikar á þriðjudaginn... og jáh, svo eru nú einhverjir búnir að hóta að koma kannski í heimsókn í júní, veit nú ekki hvort e-r láti verða af því?

P.S. Ég útnefni hér með Sölva sem krútt mánaðarins! Takk aftur fyrir hjálpina Sölvi, þú ert æði ;)

26.5.2006

I'm a cuckoo

Veðrið virðist lítið vera að skána. Það birtir upp inn á milli en svo koma þessi leiðinda ský með rigningunni sem þeim fylgja. Sumarið kom og fór, ég vona að það rati tilbaka á endanum!
En á meðan veðrið er svona þá er bara um að gera að halda sig inni og hafa það notalegt í staðinn. Í dag kom vinkona mín í heimsókn. Við fórum út á kebabstaðinn á horninu og keyptum okkur hlussustórar pizza-samlokur og lime kók. Komumst að því að lime kók er ekki gott og að þessi kebab staður er betri í flestu öðru en pizza-samlokugerð. Við átum nú samt á okkur gat og lögðumst svo yfir kvikmyndagláp. Hlógum alveg vel mikið yfir Poltergeist :D Tvær myndir í röð en svo hélt hún heim um ellefuleitið þar sem hún þurfti að ná strætó (hver nennir að hjóla í rigningu?).



En jáh.. svo ég bakki nú aðeins.. um ca. viku! Þegar ég skrifaði síðustu færslu hélt ég að yðar einlæg væri að verða veik og hafði áhyggjur af því að missa af Belle & Sebastian tónleikum. Þær áhyggjur voru óþarfar sem betur fer :D Þrátt fyrir mega stress bæði á fimmtudeginum og föstudeginum vegna fasteignamála leið mér bara vel. Fór og hitti Guðný og Þóru niðrá Vesterport (þær komu til DK sérstaklega til að sjá tónleikana). Þaðan héldum við og fengum okkur að borða og síðan var rölt niður á Vega.

Tónleikarnir voru alveg mega góðir, hvað get ég annað sagt?!?! :D Belle & Sebastian eru náttúrulega yfirgengilega skemmtileg og yndisleg hljómsveit þannig ekki var við öðru að búast! Suburban kids with biblical names hituðu upp, tóku örfá lög og voru alveg ágæt bara. B&S tóku svo alveg mega gott sett og spiluðu bæði gamalt og nýtt... Mitt uppáhald var þegar þau spiluðu I'm a cuckoo :D Bliss! Alsæla! Um leið og þau byrjuðu að spila þetta lag hættu fæturnir mínir að hlýða og fóru að hoppa og skoppa. Brosið gerði sitt besta til að þröngva sér alla leið til eyrnanna og sælutilfinningin var algjör. "Tónlistarleg fullnæging" -svo ég vitni nú í sjálfa mig, ekki er hægt að lýsa þessu öðruvísi, hehe ;)
Við stóðum næstum alveg fremst og vorum því í svona 3 metra fjarlægð frá hljómsveitinni allan tímann. Er yfirleitt ekki mikið fyrir að troða mér svona framarlega en þetta var frábært :D Þó það hefði ekki verið nema til að sjá Bobby í návígi... gæti þessi maður verið e-ð fallegri? ;D Hehe.
En jáh.. eftir tónleikana.. fórum við í hliðarsal og fengum okkur að drekka... ætluðum svo bara að yfirgefa svæðið en þegar við vorum að labba í gegnum tónleikasalinn komum við auga á Stuart M, söngvara og forsprakka Belle & Sebastian. Að sjálfsögðu fórum við til hans og spjölluðum við hann ;) Spurðum hann m.a. hvort það væri satt sem sagt væri að þau ætluðu ef til vill að halda til Íslands í sumar..... og.. viljið þið vita svarið?? :D
"It's a definite possibility" -sagt með yndislegum skoskum hreim ;) (Ef þau fara til Íslands verða líklega tvennir tónleikar).



Jáh jáh... síðan héldum við á Stengade 30. Bar/skemmtistaður sem hefur m.a. þá kosti að þaðan er örfárra mínútna labb heim til mín og aldurstakmarkið er aðeins 18 ár (þar sem sumir eru ekki orðnir 20 ;) ). Annar kostur er að hann er á tveimur hæðum þannig ef manni líkar ekki tónlistin/stemmingin á annarri þá færir maður sig bara á hina :) Staðurinn er reyndar frekar subbulegur og klósettin ógeð en það er allavega áhugavert fólk. Kvöldið var fínt en við héldum heim um þrjúleitið. Ég komst að því að strákar geta verið alveg óendanlega þrjóskir... Ekki myndi ég halda áfram að spurja sömu manneskju aftur og aftur hvort hún vildi dansa ef í hún segir í 75% tilvika nei :P (Ekki það að viðkomandi hafi hlustað á þessi nei, en hvað um það).

Guðný morgunhani vakti okkur Þóru kl. 10... úff úff... en það var allt í lagi.. ég hélt bara áfram að sofa þegar þær voru farnar og tók því rólega yfir daginn. Um kvöldið komu þær, báðar með fangið fullt af pizzum og bjór! Yesss! Svona eiga laugardagskvöld að vera! ;D Seinna um kvöldið gekk til liðs við okkur vinur Guðnýjar að nafni Viktor og síðan um kl. 23 héldum við öll fjögur niðrá Stereo Bar.
Ágætis staður en við vorum ekki alveg að fíla tónlistina og skortinn á sætum strákum (held reyndar að Viktori hafi verið slétt sama um það síðarnefnda) en um ehhhh... eitt eða tvö leitið... ákváðum við að rölta niðrá Stengade 30 frekar.. auðvitað með viðkomu í 7eleven fyrir pulsukaup!
Byrjuðum á efri hæðinni þar sem við höfðum haldið okkur fyrra kvöldið. Guðný og Þóra voru hins vegar ekkert alltof sáttar við tónlistina sem DJ-inn, Miss cockrock, hafði í hávegum, þannig við héldum á þá neðri. Þar var alveg mega góð tónlist í gangi... svo góð... að við dönsuðum þar til kl. 5... en þá var staðnum lokað! :o
Ég komst aftur í kast við þrjóska stráka... en þessi lét sér ekki nægja að biðja mig um að dansa við sig aftur og aftur og aftur ... og spyrja hvert við ætluðum næst þegar staðurinn lokaði kl. 5.. .. neih.. heldur elti hann okkur líka!! Tókum ekki eftir því fyrr en við komum aftur að 7eleven, þá reyndi hann e-ð að tala við mig en ég var búin að fá nóg og flúði bara inn í búðina en þá lét hann sig hverfa.



Þetta var þó ekki síðasta ævintýri kvöldsins því í 7eleven lentum við á e-ð tæpum starfsmanni sem sakaði tvö úr hópnum um stuld!! Þrátt fyrir að honum væri sýnt mjög greinilega fram á að svo væri (AUÐVITAÐ!) ekki þá átti hann e-ð erfitt með að játa að hann hefði haft rangt fyrir sér og var með þvílíkan dónaskap! Sagði okkur að PISS OFF og var svo að segja að við helvítis íslendingarnir ættum bara að drullast aftur til Íslands og halda okkur þar og ég veit ekki hvað og hvað. Óskemmtileg reynsla það :(
En jáh... við stúlkurnar fórum að sofa um kl. 6:15 og ég held það sé óhætt að segja að okkur hafi ekki verið ætlað að sofa. Við vorum vaktar við 3 kirkjuklukkna session, 2 símtölum, 2 sms-óhljóðum, símavekjaraklukku... er ég að gleyma e-u? Þessi helgi var samt kannski full mikið af því góða fyrir mig! Var alveg illt í lærunum í 3 daga á eftir vegna þess að ég dansaði allt of mikið :S Já ég, anti-dans manneskjan mikla... úffsí púffs, allt getur gerst.
Kl. 16 á sunnudeginum fór ég niður í bæ að hitta Önnu Guðrúnu sem var stödd hér í DK í tilefni af fermingu frænda hennar. Fórum og fengum okkur að borða á kaffihúsi og var það voða huggulegt :)

Annars er alveg allt að gerast í fasteignamálum... síðustu dagar hafa alveg farið í íbúðarskoðun, fundi, ákvarðanatökur, símtöl, stress og emailsendingar. Woohoo :) Meira um það seinna þegar allt er komið á hreint.

Þessi færsla átti að koma upp í gærkvöldi en tafðist um hálfan sólarhring, úbbosí :)