24.9.2006

Hver á sér fegra föðurland?

Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?

Að kvöldi mánudagsins 11. september tók ég þá skyndiákvörðun að skreppa til Íslands. Venjulega er mér mein illa við skyndiákvarðanir og forðast að taka þær en þessi reyndist góð. Þessir fimm dagar sem ég átti á Íslandi voru alveg einstaklega yndislegir og ánægjulegir. Vil nota tækifærið og þakka vinum og vandamönnum kærlega fyrir samveruna :)

*VARÚÐ RITGERÐARFÆRSLA*

Eitt sem ég tók eftir meðan á dvöl minni stóð var hversu græn Reykjavík er! Það er alls staðar gras! Á umferðareyjum, í kringum vegi og auðvitað í öllum görðum. Í Kaupmannahöfn sér maður ekki svona mikið gras! Vissulega eru almenningsgarðarnir og stöku svæði en ekki jafn yfirgnæfandi og heima. Auk þess er grasið ekki svo grænt hér í Kaupmannahöfn í ár eftir hitann sem var í júní og júlí. Í byrjun ágúst var Kongens have t.d. svo til alveg gulbrúnn :S Allavega, þá fannst mér Reykjavík alveg einstaklega græn og falleg, hef aldrei áður hugsað um Reykjavík sem beint fallega borg. Sitjandi í strætó núna í síðustu viku naut ég þess þó bara að sitja og horfa á umhverfið. Sýn mín á Reykjavík hefur breyst.

Ferðin heim (s.s. ferðalagið sjálft) var frekar spes og ekkert sérlega notaleg. Mætti frekar snemma út á flugvöll þar sem miklar tafir höfðu verið við öryggishliðið fyrr í vikunni vegna veikinda starfsfólks og var búist við þeim áfram. Það reyndist þó ekki vera þetta kvöld enda flugið frekar seint (22:50). Var komin gegnum öryggishliðið alveg tveimur tímum fyrr! Úff úff! Var þvílíkt þreytt, sat við barin drekkandi pepsi og maulandi M&M's (sykur sykur sykur) hlustandi á The Arcade Fire og The Smashing Pumpkins til að reyna að halda mér vakandi... var samt ekki auðvelt!
Flugvélin var hálftóm en þó tókst mér einhvern veginn að festast í gluggasæti við hliðina á miðaldra dönskum lesbískum konum sem voru á leið til Íslands á H*rbalife námskeið (vil ekki að þeir sem leiti að þessu orði á google álpist hér inn!!). Sú sem sat við hliðina á mér var með svo stór læri að þau ýttu upp sætisörmunum. Að sökum þreytu var ég ekkert að taka eftir því og notaði arminn samt sem áður... þar til ég tók eftir því að það olli því að hann þrýstist niður í lærið á greyið konunni (afhverju sagði hún ekki neitt?) gaman, gaman!
Í rútunni á leiðinni til Reykjavíkur sat ég svo við hliðina á ungum sænskum rúmasölumanni sem var kominn til Íslands ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum á rúmasöluráðstefnu! Ég var þreytt og komin í svefngalsa og átti mjög erfitt með að fela hversu fyndið mér þótti það. Spjallaði þó við hann svo til alla leiðina (annars hefði ég sofnað) og tókst að móðga hann ekki! ...held ég...
Annars kemur fólk greinilega til Íslands af hinum ótrúlegustu ástæðum, held það mætti alveg nota þetta í handrit á einhverri súrrealískri bíómynd :)
Unnur kom svo og sótti mig niður á BSÍ en ég fékk að dvelja hjá henni þessa daga sem ég var á Íslandi (OG hún skutlaði mér líka upp á flugvöll þegar ég var að fara). Hún er pottþétt krútt mánaðarins. Takk Unnur mín! :*

Hvað gerði ég svo á klakanum?
- Fór í matarboð: -Á föstudeginum hjá ömmu og afa í Hafnarfirðinum. Bara við Benedikta en svo kíkti Nonni frændi við með Védísi frænku og vinkonu hennar.
-Á sunnudeginum var okkur systrum svo boðið að borða hjá Lalla frænda og co. Ívar og kærastan komu líka. Taco og tortillas og pönnukökur í eftirrétt, nammi namm!
-Á mánudeginum var mér boðið í mat hjá Gilla frænda og co. Umræður fóru að mestu fram á ensku þar sem þau eru með ítalskan gest í nokkrar vikur. Þegar hún fór var þó skipt yfir í ástkæra ylhýra og mest rætt um kanínur!
-Á þriðjudeginum vorum við systurnar og Aggi svo boðin aftur til ömmu og afa en í þetta skiptið voru Ívar frændi og kærastan með líka. Mikið var reynt að ná í Ella frænda (hef ekki hitt hann í e-r ár!) en það gekk ekki.
Öll þessi matarboð voru yndisleg og ef gestgjafarnir lesa þetta þá vil ég bara segja: Takk fyrir mig!! :)

- Fór í bíó: - Á föstudeginum fórum við Tommi á Thank you for smoking. Get svo sannarlega mælt með henni sem skemmtilegri gamanmynd :) Finnst hún ekki beint eftirminnileg en alveg stórgóð afþreying samt sem áður.
- Á sunnudeginum fórum við Atli Sig. á Clerks 2. Tæplega hálftíma fyrir sýningu hringdi ég í systur mína til að segja henni af matarboði og þá tilkynnti hún mér að hún, Aggi og e-r vinir þeirra ætluðu að koma og sjá myndina með okkur (e-r: Dóri, Kristó, Kristján og uh... Bippi? rétt munað hjá mér systa? Þetta nafna-óminni mitt er óþolandi!). Korteri fyrir sýningu hringir svo Unnur og spyr hvort ég vilji koma með henni og Orra á An Inconvenient Truth í Háskólabíói. Þegar þau heyrðu að ég væri að fara á Clerks 2 ákváðu þau hins vegar að koma bara með mér í staðinn. Þannig að á korteri stækkaði hópurinn úr 2 í 10, frekar skondið :D
Allavega! Myndin var ÆÐI! Ég hélt ég myndi bókstaflega kafna úr hlátri :) Langar þvílíkt að sjá hana aftur! Ef þið hafið séð Clerks I, hafið nördahúmor og sóðahúmor.... sjáið þessa mynd!! =D

- Sá nýjar íbúðir: - Á föstudeginum sá ég í fyrsta skipti íbúðina hjá Benediktu og Agga. Hún er alveg ofur kózí og svo eru þau með sturtu sem lítur út eins og geimskip! :D
- Á mánudeginum sá ég nýju íbúðina hennar Bjöggu. Hún er alveg mega krúttleg. Notaleg kjallaraíbúð í vesturbænum sem er rosalega sjarmerandi að sökum þess hversu mikið er upprunalegt í henni. Hlakka mikið til að sjá hana aftur þegar búið er að mála og flytja almennilega inn. Held hún eigi eftir að verða rosa sæt :)
- Á þriðjudeginum kíkti ég á nýju íbúðina hennar Söru frænku. Stór íbúð þar sem er hátt til lofts, alveg í miðbæ Reykjavíkur. Algjört æði! Var ekkert smá gaman að kíkja þangað! Bæði vegna þess að það er nú ekki svo oft sem ég hitti Söru heldur líka afþví að þangað komu einnig Unnsteinn frændi og svo Davíð, Eva og sonur þeirra Óliver. Hann er orðinn 11 mánaða en þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk að sjá hann. Hann er ekkert smá mikil rúsína! Takkaóður grallari með ofursætt frekjuskarð! Íhhh! :) Þegar Benedikta heyrði að Óliver væri á staðnum kom hún líka brunandi því hún hafði ekki séð hann heldur.
Sara var líka svo sæt að gefa mér nokkrar gamlar Enid Blyton bækur! Var ekkert smá glöð með það en eins og þið sum vitið þá er ég rosalegur nostalgíu safnari. Safna gömlum barnabókum (bara þeim sem ég las sjálf sem krakki þó) og gömlum 80's og early 90's teiknimyndum (á slatta af þeim á DVD) svo e-ð sé nefnt.

- Hitti vini: - Fór með Xibei á kaffihús. - Á KFC með Nonna. - Heimsótti Siggu og fór með henni að sjá aðsetur Hjálparsveitar Kópavogs (mjög áhugavert). - Hékk með Unni og fór með henni í Góða hirðinn og á bókamarkað Eddu (bækur, bækur, bækur bækur!!). - Hékk allan laugardaginn með Sölva og Jóa. Um kvöldið bættust svo í hópinn Arna & Einar, Edda, Leifur & skiptineminn hans og Unnur og þá var pizzuát og spilerí.

Svo svona hitt og þetta... heimsótti ömmu og afa í Kópavogi 2x, var search-uð í 11-11, sótti myndavélina mína til Steina og Auju, etc.

Úff! Vá hvað ég nenni ekki að skrifa meira! Bókafærsla verður að bíða í bili!!

Þrennt sem ég hef að segja samt áður en ég lýk þessari blessuðu ritgerð:
a) Ég byrja á dönskunámskeiði á morgunn. Verð þar alla virka daga frá 8:30-11:15 næstu sex vikurnar, jeij! Vakna á morgnanna, úff!
b) Er búin að bæta við allavega tveimur blogglinkum (á frænkur mínar; Söndru Dögg og Birgittu).
c) Þið ykkar sem hlustið á rokk/metall, tékkið á fyrstu plötu hljómsveitarinnar Shima sem mun koma út á næstunni, "... and for a moment all fell silent". Fyrsta lagið, Coma, er komið í spilun á Xfm, svo þið getið fengið tóndæmi þar :) Þeir eru svo með allavega tvo tónleika á næstunni, skoðið síðuna þeirra ef þið hafið áhuga. (Á maður ekki alltaf að auglýsa smá fyrir vini sína?)

Endilega verið jafn dugleg að kommenta og síðast, var voða glöð með það! :)

7 ummæli:

Benedikta sagði...

Það er ekki furða að þú munir öll nöfnin, alltof mikið af nýju fólki :D En já, ég held að þetta hafi verið ég og Aggi, Kristján, Dóri, Bippi og... uhm.. var Máni ekki með líka? Ég held það... en er ekki viss :D

Takk æðislega fyrir samveruna sæta systa, þett var frábært :)

Gangi þér vel að vakna :) Ég er alveg að morkna úr leiðindum í Sögutíma kl.8:30 á mánudagsmorgni... úff...

Nafnlaus sagði...

Hehe það er heldur ekki svona mikið gras í Chicago, tak eftir því svona þegar þú nefnir það!! :p

Nafnlaus sagði...

Það var dásamlegt að fá þig til landsins, þrátt fyrir að ég hafi bara verið með þér í uþb. 3klst.

Og frábært að heyra að þú skemmtir þér vel.

Hjalti sagði...

Hyvä Islanti. Já sama með grasið í Helsinki... hvað er málið með að þurfa að hellulegja ALLT... þó enginn muni nokkurntíman ganga þar :Þ

Nafnlaus sagði...

Þú veist að grasið er alltaf grænna hinumegin við girðinguna. Verst hvað það er allta líka blautt, grasið á Íslandi.

Padre

Nafnlaus sagði...

TAKK Salóme fyrir að senda mér þennan bubblewrap leik

TAKK KÆRLEGA

ég hef ekki eytt jafn miklum tíma í ekkert síðan á Airwaves hérna um árið.

Salóme Mist sagði...

Unnur: Heheheheheh :D Mig grunaði að þessi leikur/tímasóun myndi ná til þín *fliss*djöfullegt bros*