Faye: I'm sorry Dora, but liking Homework more than Discovery is like enjoying vanilla more than chocolate ice cream. It means you are boring. / Dora: Whatever. You indie kids can take your pop bias and stick it somewhere cramped and smelly. Homework is Daft Punk's best album, hands down.
-Questionable Content; September 21, 2005 12:19am
Núna loksins, 9 mánuðum eftir að hafa lesið þetta comic strip, veit ég hvorri þeirra ég er sammála. Pantaði Homework á þriðjudaginn og hún kom í póstinum í dag. Eins og ég ELSKA Discovery (keypti hana í lok mars) þá finnst mér Homework bara hreint út sagt frekar leiðinleg! Allavega svona við fyrstu hlustun. Hverjir eru sammála? Er þvílíkt vonsvikin :S
Hins vegar er það nú ekki ástæðan fyrir því að ég er að blogga. Ástæðan er sú að ég ákvað í gærkvöldi að fljúga út til Lúxemborgar á sunnudagsmorguninn (18.júní) í stað þess að fara næsta föstudag (23.júní). Ástæðan fyrir því er sú að þann 23.júní er þjóðhátíðardagur Lúxemborgar. Þeir halda samt upp á það daginn áður! Af því tilefni eru allir í vinnunni hjá pabba og fjölskyldur þeirra boðnir í e-ð VIP partý og ég tými bara ekki að missa af því :P Bæði bara afþvíbara og líka því þá fæ ég tækifæra til að hitta fólkið sem pabbi er að vinna með og svona (hlaðborð, opinn bar og besta útsýni ever fyrir flugeldasýninguna voru líka atriði sem heilluðu!).
Ég vildi helst bara breyta fluginu og fljúga 20., 21. eða 22. en þegar ég hringdi og reyndi að breyta miðanum var mér sagt að þetta væri óbreytanlegur miði! Ekki hægt að breyta þótt maður borgaði á milli ef hinn miðinn er dýrari plús borga breytingargjald eins og hjá öðrum flugfélögum.. heldur bara.. ekki hægt. Helvítis plebbar. Daginn eftir ákvað ég að reyna að fara og tala við þá og gerði mér því sér ferð út á Kastrup (eina skrifstofan þeirra hér). Það gerði nákvæmlega ekkert gagn. Blablablalba... eina leiðin að kaupa annan miða. Engin önnur flugfélög sem fljúga þangað nema LuxAir sem eru okrarar. Allir miðarnir hjá SAS í næstu viku voru þá orðnir geðveikt dýrir.. en ég sá fyrir tilviljun að miðarnir á sunnudeginum voru ekki svo dýrir svo að ég skellti mér bara á það. Þetta var s.s. um kl. 19 í gærkvöldi... en.. þar sem ég var að panta miðann svona fáum dögum fyrir brottför.. þá varð ég að sækja miðann.... og það varð að gerast... í gær! Kl. orðin 19... þannig ég þurfti þá að fara AFTUR upp á helvítis Kastrup.. bara til að sækja miðann. Það tók tvo tíma og ég var svona frekar pirruð. Afhverju mátti ég ekki bara sækja miðann daginn eftir? Eða bara áður en ég var að fara í flugið? Fávitar.
Fattaði svo þegar ég var búin að panta miðann að það voru þá skrilljón hlutir sem ég þyrfti að redda.. á tveimur dögum! Plús ég þyrfti nauðsynlega að undirrita mikilvæga pappíra útaf íbúðinni áður en ég færi úr landi og frekar hæpið væri að redda því fyrr en í næstu viku :S Stress, stress og meira stress!
Gærdagurinn var hreint og beint ömurlegur s.s. En dagurinn í dag... ekkert nema góðar fréttir!! Í fyrsta lagi gengur bara frekar vel að hakka á "to do" -listann. Í öðru lagi, komu mikilvægu pappírarnir í póstinum í dag þannig ég gat undirritað þá strax og sent tilbaka! Í þriðja og síðasta lagi... fékk ég email um að umsókn mín um að mega kaupa íbúð í Danmörku... var samþykkt!!! Sem var síðasta hindrunin í vegi okkar fyrir að geta keypt íbúð hér (þær hafa verið nokkuð margar!).... e-ð sem við erum búin að vera að vinna í síðan í mars! Þvílíkur léttir! Víj :D
Þannig jáh.. ég er að fara frá Danmörku, kem aftur eftir mánuð, flyt þá í nýtt húsnæði... nóg að gera! :D
Ekki mikið annað í fréttum... pabbi kom hérna á þriðjudaginn, það var voða gaman þótt það hafi verið ferlega mikið að gera hjá okkur. Fórum samt á írskan pöbb um kvöldið og horfðum á fótboltann ;) Daginn eftir fór ég svo að hitta ömmu, afa, frænda minn, konu frænda míns og frændsystkini mín þrjú... þau stoppuðu við hér í Kaupmannahöfn í nokkrar klst á leið sinni til Póllands. Það var rosa gaman líka :) Bara búin að vera ágætis vika.. svona þegar á heildina er litið!
Yfir og út!


11 ummæli:
Furðulegu Lúxembúrgarar! En já, flugfélög eru bara órökrétt fyrirbæri. Til hamingju með íbúðina samt! Þetta er rosa mikið. Stikkorða komment.
Leiðinda flugfélög!
En til hamingju með samþykkið! Og góða skemmtun í út-útlöndum! :p
Nei! Færð þú að fara í Landsbanka-partýið!? ósanngjarnt! :( *mubmles some unhearable words angrily*
just kiddin, öfunda þig samt systa! Þú verður bara að skemmta þér, drekka, borða og horfa á flugeldasýninguna fyrir okkur báðar! Man, are you gonna be one bloated, drunk, neck-strained muthafucka :D
sheesh.. þetta er skrítið comment...
En til hamingju með íbúða-dótið elskan mín :*
kv.Þín stórfurðulega systir
Sölvi: Hehe, jáh.. allavega eru SAS asnalegir! Annars er ekkert Lúxemborgískt við Scandinavian Airlines... P.S. Takk fyrir hamingjuóskirnar :)
Anna Guðrún: Takk takk! :D
Benedikta: Hehe, jubb ég fæ að fara.. en trúðu mér.. það kostaði vesen og pirr! :) Og með hitt; will do & will be! ;D Takk fyrir hamingjuóskirnar og fyrir næst skrítnasta komment sem hefur verið skrifað á þessa bloggsíðu (sorry en það er ekki séns að þú sláir út Atla Má) ;D *snúll*
Nei ég meina, furðulegir Lúxembúrgarar að halda upp á þjóðhátíðardaginn á deginum fyrir...
Ég bloggaði í fyrra uum SAS. Helvítis SAS!!!!
Hey, eru tid ad segja ad eg aetti EKKI ad fara ad vinna hja SAS a naesta ari?!! ;)
úff, það er asnalegt að þú máttir ekki breyta flugmiðanum. Við breytum okkar flugi heim og það var ekkert mál!! Þurftum auðvitað að borga þeim smá pening :) Skil ekki afhverju það kostar svona mikið að breyta flugmiða, ekki eins og það fylgi því brjáluð vinna að færa dagsetninguna á fluginu!!
Vona að allt sé að ganga glimrandi vel hjá þér og ég bíð spennt eftir að fá póstkort frá þér (verður að vera stórt og flott eins og mitt *tíhí*)
Til hamingju með íbúðina og allt :)
Og flugfélög eru fífl. Vesen ofaná veseni, blandað með meira veseni. Gott að heyra að þetta hafi reddast, þrátt fyrir auka kostnaðinn.
En hvað meinarðu 'skrítnasta comment-ið' ? Hvað þyrfti ég að gera til að slá það met?
*Fer að plana*
Baráttukveðjur frá verkamanninum á klakanum.
og á ekkert að blogga meir?
*pot*
Skrifa ummæli