4.9.2006

Sumri lokið..



Rúmlega mánuður frá síðustu færslu.... úff púff.


Einhverjir af mínum fáu lesendum heimta bloggfærslu þannig ég hef ákveðið að verða við þeirri bón. Það er samt einhvern veginn alltaf svo erfitt að blogga þegar svona langt hefur liðið á milli :)

Nokkrir punktar um hvað hefur gerst síðastliðinn mánuðinn:
- 16.ágúst fékk ég internettengingu heim og gat því hætt að heimsækja subbulega netkaffihúsið þar sem ég var vön að fara til að svala netfíkn minni. Húrra húrra!
Get ekki sagt að ég muni sakna reykingarstybbunar, svitafýlunnar, mínútuteljarans, hitans, counter strike nördanna, undarlega gamla listamannsins eða gaursins sem lyktaði verr en rotinn fiskur og gekk alltaf um í þröngum svörtum sokkabuxum.

- 18.ágúst fékk ég fallegu nýju fartölvuna mína! Nýju ástina í lífi mínu ;P Reyndar var smá klúður þegar þeir voru að koma með hana og er það bara snarræði Siggu að þakka að ég þurfti ekki að fara alla leið upp í Tåstrup að sækja gripinn! Sigga er því útnefnd Bjargvættur mánaðarins!

- Um miðjan mánuðinn keypti ég þrjár ágætis dvd myndir í ComputerCity á 150dkk og fannst ég gera ágætis kaup. Tveim dögum seinna fór ég í Fona og keypti 8 dvd myndir á 200dkk og fattaði að hin fyrri kaup voru ekkert svo sérstök í samanburði við þetta. Í Fona voru þeir með fullt af æðislegum myndum á 20 eða 30 dkk stykkið! Ekki amalegt.

- Sunnudaginn 13.ágúst komu Sigga vinkona mín og Ásgeir kærastinn hennar hingað til Köben og fengu þau að gista á sófanum mínum til föstudagsins þar sem eitthvað klikkaði með staðinn sem þau ætluðu að gista á. Það var alveg yndislegt að hafa þau hér og vona ég að þau komi fljótlega aftur ;) Um helgina voru þau svo á farfuglaheimili því að þá höfðu bæst í hópinn Halla systir Siggu og Atli vinur Ásgeirs. Við fórum öll saman út að skemmta okkur bæði föstudags og laugardagskvöld og var það svaka stuð :) Á föstudagskvöldinu héldum við okkur að mestu á The Dubliner sem ég var reyndar ekkert að fíla svo vel. Laugardagskvöldið byrjaði með stuttri viðkomu á Stengade 30 en hann var tómur þannig við fórum yfir á Coconut Beach Bar og drukkum ógeðslega sykursæta kokteila og enduðum svo á Rosie McGee's.
Þess má reyndar geta að á föstudagskvöldinu spjölluðum við við ungan íslenskan mann sem býr á götunni hér í Kaupmannahöfn. Viku seinna var þessum sama manni hrinnt fyrir lest eins og þið hafið vísast lesið um í blöðunum og er hann nú kallaður heppnasti maður Danmerkur.

- Helgina 25.-27.ágúst var Fanney Sísí í heimsókn hjá mér. Ég var reyndar að jafna mig eftir einhverja flensudruslu sem var búin að halda mér rúmliggjandi í 3 daga en þrátt fyrir það var helgin mjög fín. Á laugardagskvöldinu dró ég hana með í innfluttningspartý hjá Russell vini mínum en þar átti fólk að mæta uppáklætt sem persónur úr einhverju ævintýri. Þetta var frekar stórt partý, enda stór íbúð (fjögur sem leigja saman auk þess sem Russell og Casper eru með stúdíóið sitt þarna) og því var frekar mikið af skondnum búningum :) Við Fanney fórum sem álfar (ég sver að mér hefur aldrei liðið jafn hálfvitalega í strætó og þegar við vorum á leiðinni þangað... með vængina mína og fiðrildasprotann!!). Fór með flösku af Opal vodkaskotum þangað og vakti það mikla lukku!

- Síðasta föstudag kíktum við Guðný á Iceland Airwaves WarmUp-ið sem var á Lille Vega. Fannst reyndar tónlistin og fólkið takmarkað áhugavert þannig við stoppuðum bara í ca. 2 tíma... héldum svo yfir á Stengade 30 þar sem var mun meira fjör :)

Þetta eru svona hápunktarnir sem ég man eftir. Er annars bara mikið búin að vera að hangsa með vinum mínum hér... það minnkar kannski e-ð á næstunni þar sem háskólinn byrjaði aftur hjá þeim í dag. Hmmm...

Jáh, annars vil ég segja eitt. Mér finnst sjálfri svona persónuleg fréttablogg alveg takmarkað skemmtileg. Ég geri mér grein fyrir því að bloggið mitt er ekkert æðislegt en eins og ég tók fram þegar ég byrjaði að blogga fyrir ári síðan þá er þessi síða fyrst og fremst hugsuð sem fréttasíða fyrir fjölskyldu og vini sem búa í öðrum löndum. Finnst miklu skemmtilegri svona blogg eins og t.d. bloggið hans Sölva þar sem alltaf er skrifað um e-ð áhugavert, komið með pælingar og svo framvegis. Því ætla ég að reyna að koma með svoleiðis færslur inn á milli í framtíðinni... eða kannski bara lauma svoleiðis köflum inn í færslurnar mínar.

Annars ætla ég að segja þetta gott núna þar sem uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn er að byrja eftir 10 mínútur (sá eini sem ég fylgist alltaf með). Það er s.s. "Grey's Anatomy", þáttur um skurðlæknanema.. rétt upp hönd sá sem er hissa á að slík sería sé í uppáhaldi hjá líffræðinördinu mér? :D En í alvöru talað, þetta er æðisleg sería með frábærri tónlist líka. Tékkið bara á soundtrackinu ef þið trúið mér ekki! Okkar yndislega Emiíana Torrini er meira segja með lag í þáttunum.

Minnið mig á að skrifa um bækur í næstu færslu... er búin að lesa nokkrar mjög svo góðar í sumar og langar að skrifa um þær...

Ahh.. og þarna, ég gat loksins sett inn restina af myndunum frá Lúxemborg og myndirnar frá Berlín. Endilega kíkið á þær :P


12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

*Whee*

First comment!

Alltaf gaman að heyra um þig og þínar athafnir.

Þrátt fyrir það met ég pælingarfærslur þínar mun betur en dagbóksfærslna.

Farðu vel með þig, og segðu mér hvort póstmaðurinn kemur ekki með eitthvað skemmtilegt í vikunni ;)

Nafnlaus sagði...

Gaman, hélt þú værir bara alveg hætt.
MA

Hjalti sagði...

Mjög sammála þér varðandi fréttablog, þó það séu mjög fáar færslur á mínu eiginbloggi sem innihalda eitthvað annað. En Grey´s Anatomy er líka sýnt hérna.. tékka pottþétt á því!
Og auddað... wííí blogg ;)

Nafnlaus sagði...

Hæhæ :) Gaman að lesa svonna helstu fréttir af þér. Já annars finnst mér þetta frekar fyndið með róna-"vin" okkar :P hehe...bara fyndið.
Já það eru til mjög sætar myndir af okkur af Coconut Beach Bar :) Jeijjjj....það var svo gaman :) Enda vorum við líka aðal-skvísurnar i byen :)
Ég skal senda þér nokkrar útvaldar myndir fljótlega :)

Kveðja Sigga bjargvættur

Nafnlaus sagði...

voðalega er gaman hjá þér á meðan ég sit enn föst á menntaskólabekknum fram að jólum.. :/
Grey´s Anatomy er kúl! ;)

Salóme Mist sagði...

Jeij, fullt af kommentum, gaman gaman!! :D

Sigga: Hlakka til að fá að sjá myndirnar!


p.s. ég kem til Íslands á fimmtudagskvöldið... :P

Benedikta sagði...

Yayj! Mér finnst þessi fréttablogg þín bara ágæt :) Fullt af pælarabloggurum þarna úti hvorteðer :)

En já, gæti ég nokkuð fengið nákvæmari upplýsingar um flugið þitt pweez?

og annað, viltu far frá flugvellinum?

Salóme Mist sagði...

Benedikta: Hehe, jubb jubb :) Sendi þér email um það...

Nafnlaus sagði...

Gaman að rekast á ykkur Guðnýju á Stengade um daginn! Vonandi að þið hafið skemmt ykkur vel.. =) Hins vegar sá ég einmitt þennan Heppnasta mann Danmerkur þegar við systurnar vorum að labba upp úr Metro. Sat hann þá ekki bara kallinn á dagblaði og var að betla klink af vegfarendum með mest áberandi íslenska hreim sem fyrirfinnst. Mér fannst það mjög merkilegt...

Salóme Mist sagði...

Tinna: Hæjjj! Já, sömuleiðis! Mjög svo óvænt ánægja að rekast á þig þar ;) Hvað varstu að gera í dk? Heimsækja systur þína?
Ég reyndi svona 5x að kommenta á bloggið þitt um daginn en það kom alltaf upp villa "staðfestingarkóði ekki réttur" eða e-ð crap... :S Annars hefði ég verið á undan með "gaman að rekast á þig" ;D

Nafnlaus sagði...

Vá hvað ég er fegin að þú fannst bloggið mitt! Var nefnilega búin að gleyma slóðinni á þitt og týna númerinu þínu og allar græjur:/

Við Sasja erum að hugsa um að kíkja til höfuðstaðarins í næsta mánuði og það væri frábært að hitta þig ef þú hefur einhver tök á því!

Svo ert þú auðvitað velkomin hvenær sem þér dettur í hug:)

Þú ættir líka að vita að það er gaman að lesa bloggið þitt þó maður sé í sama landi:p

Knús, Sandra

Ps. nr mitt er 3021-0799 og heimasíminn er 8617-7722

Salóme Mist sagði...

Sandra Dögg:
Líst rosa vel á að þið séuð að koma til Köben :D Ef ykkur vantar gistingu þá er ykkur velkomið að vera hjá mér :)

Jeij, gaman að heyra að bloggið mitt sé lesanlegt ;) Hafði líka mjög gaman að þínu! Vildi bara að ég hefði vitað fyrr að þú værir með blogg :P

En já, vertu í bandi... ég reyndi að senda þér sms með símanúmerunum mínum en ég veit ekki hvort það komst til skila.
*knús*

(Set þetta hér því ég get ekki sett komment á þitt blogg! Kemur alltaf "villa í staðfestingarkóða".. urg!)