Góða veðrið er komið aftur! Spurning hvað það stoppar lengi í þetta skiptið...
Vissuð þið að hér í Kaupmannahöfn er fullt af fólki sem fer í sólböð í kirkjugörðunum? Það er kirkjugarður hér rétt hjá og þegar síðasta góðviðristímabil var fór ég þangað að taka myndir. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom inn í garðinn og þið getið ímyndað ykkur hvað ég var hissa þegar ég sá hálfnakið fólk útum allt í sólbaði milli grafanna!! Hins vegar ákvað ég bara að prófa að fylgja þessu skondna fordæmi og get ég sagt ykkur að þetta venst ansi fljótt! :P Yndislegur garður.. (ég hef alltaf verið frekar hrifin af kirkjugörðum, bara ekki í myrkri).
Reyndar var ég að lesa á skilti þarna í gær og komst að því að svæðið þar sem ég hreiðra venjulega um mig (eins og margir aðrir) er víst svæði þar sem þeir biðja mann að vera ekki því þar eru nýju grafirnar... en þetta er besti bletturinn! Þannig á meðan aðrir halda áfram að vera þarna þá held ég að ég sé ekkert að flytja mig... *skammast sín smá*.
En jáh, ekki eyða tíma ykkar í að sjá The Omen, það er lítið varið í hana. Frekar slöpp svona... ef þið hins vegar farið á hana þá hafið augun opin fyrir nafninu mínu :P
X-men 3 er hins vegar vel þess virði að sjá í bíó. Betri en ég bjóst við :)
Fór á klassíska tónleika um daginn í tónleikasalnum í tívolí. Sá Carmina Burana með vini mínum en þetta var s.s. afmælisgjöfin mín frá honum. Þetta var voða fínt þó svo "sumir" hafi ekki alveg verið að pæla þegar þeir keyptu miðana og því sátum við FREMST og þá meina ég hnén á okkur voru í 10 cm fjarlægð frá sviðinu og allt sem ég sá ef ég horfði beint fram voru fætur. Ég HATA að sitja fremst (erft frá pabba)... En jáh, vel flutt verk þó svo að þeir sem sáu um óperu-partana hafi verið misjafnlega góðir (kvenröddin var hrikalega flott!!). Hah, og litli kórinn var ÚBER SÆTUR! Drengjakór með meðalaldur ca. 7 ár, algjörar dúllur :) Líka frekar skondið að sjá þá syngja á móti stóra kórnum sem samanstóð mestmegnis af ömmum og öfum.
Kíkti reyndar í tívolí aftur tveim dögum seinna með vinkonu minni (erum báðar með árskort). Fengum okkar svona spænskar vöflustangir með ís (mmm) og horfðum á H.C. Andersen brúðusýninguna, mega notalegt bara.
Hmmm hmm.. annars var ég frekar vonsvikin þegar það var tilkynnt um daginn að The Subways myndu ekki getað spilað á Rock a Field... áður var búið að tilkynna að Juliette & the Licks hefðu þurft að hætta við. Önnur bönd voru reyndar sett inn í staðinn... en ég vildi sjá The Subways! :(
Komst líka að því að þó að ég komi út á þjóðhátíðardegi Lúxemborgar þá halda þeir upp á það daginn áður en nota daginn sjálfan í þynnku og leti. Þannig ég missi af því, urr!
Annars er lítið að frétta... skemmdi hvítu buxurnar mínar um daginn.. sem ég er búin að eiga í 6 ár! Datt og það kom gaaaaat :S (Ég er snillingur!) Fór í partí síðasta laugardag sem var ekkert sérstakt... uhm.. hvað fleira?... Jáh, pabbi kemur á morgunn! :) Verður einn dag hér, þurfum að fara að hitta lögfræðing og bankakall og skrifa undir fullt af pappírum.
Jæja, blah.. held ég hafi ekki meira að segja... nema jú, búin að bæta við fullt af linkum hér á síðuna nýlega. Örfáir nýjir bloggarar, t.d. Sölvi (þið verðið að finna sjálf út hverjir hinir eru). Setti svo inn fleiri af mínum uppáhaldslinkum; myndasögur og teiknimyndir og alls konar dót ef ykkur leiðist. Salóme to the rescue sko!


3 ummæli:
Ú... er ekki svoldið rosalegt að fara á Carmina Burana? Svoldið mikið... læti?! Þekki sjálfur skammarlega lítið af klassískum verkum, en það er eitthvað sem maður hefur alltaf þekkt sem eitt það rosalegasta ever...
Ég get svooooleiðis séð fyrir mér litlu sætu drengina að syngja :)
Ætli það séu einhver skyldumenni í þessum mismunandi kynslóðum? Hver veit...
Gangi þér vel að bæta við fleiri götum í gamlar buxur, lífið er fullt af stöðum til að detta, og fullt af stöðum til að kaupa nýjar flíkur :)
Og gangi þér vel með pappírvinnuna!
Ps. Við verðum að tala saman um X-men 3...
Hæhæ Salóme mín. Það er rosalega gaman að lesa bloggið þitt :)
Annars verð ég að vinna í sundlauginni uppí Sölum í sumar, svaka stuð :) Væri samt meira en til í að kíkja til Köben í haust svonna áður en skólinn byrjar ;)
Jæja best að fara að gera eitthvað gáfulegt hérna....
Hafðu það gott :)
Kveðja Sigga
Skrifa ummæli