Í gærkvöldi fékk ég ansi skemmtilegt símtal frá ástkærum föður mínum. Við fjölskyldan erum víst að fara til Túnis í næsta mánuði! Til eyjunnar Djerba nánartiltekið.
Fyrir 3 vikum síðan hafði ég aldrei komið útfyrir Evrópu (þrátt fyrir að hafa alla ævi ferðast nokkuð mikið með foreldrum mínum) og þótti stórt skref að fara til Norður-Ameríku. Datt sko ekki í hug að önnur heimsálfa myndi svo fljótt bætast á listann og hvað þá að það yrði Afríka. Hef alltaf verið meira spennt fyrir Asíu og Suður-Ameríku en þetta er sko ekki slæmt! Ég get varla setið kyrr ég er svo spennt :P

2 ummæli:
Ekkert smá spennandi!! :)
Ef að það hjálpar þér að hlakka ENN meira til þá get ég sagt þér að það snjóar-rignir-snjóar-rignir-........ á Íslandi og akkurat núna er fljúgandi hálka, gjörsamlega allt út í klaka.
Kv.Sigga
Takk fyrir kommentið sæta :)
Úff, ég öfunda þig sko ekkert af því að búa á Íslandi núna. Þetta hefur verið hrikalegur vetur þarna, finn til með ykkur í hvert sinn sem ég les um veðrið á mbl.is :S
Skrifa ummæli