16.2.2008

Í gær:



Veit nú satt að segja ekki alveg hvað þessi ganga var fyrir. Skildi ekki borðana þeirra.

Það má hins vegar nefna að í gær var fimmta eða sjötta kvöldið í röð þar sem (annarrar kynslóðar) innflytjendur gengu berserksgang út um alla Danmörku og brenndu meðal annars bíla og endalaust mikið af ruslagámum. Í Kaupmannahöfn var kveikt í 28 bílum, 35 ruslagámum, 14 minni bál voru kveikt á götunum auk þess að 5 minniháttar brunar voru í byggingum. Þetta taldist vera lítið miðað við kvöldin á undan. Á undanförnum dögum hafa þeir bæði brennt t.d. skóla og allavega eitt íbúðarhúsnæði. Allt niður í 12 ára krakkar hafa sést taka þátt í þessu. Afsökunin er víst endurtekin birting Múhammeðsmyndar.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kvitt ;)

Unknown sagði...

Máttur myndlistarinnar er mikill, allt þetta reiða fólk af því að maður teiknaði mynd.. ;)