23.2.2007

Loksins, loksins.... erh...

Því lengra sem líður á milli færslna því erfiðara verður að hafa sig í að blogga. Núna t.d. eru tveir mánuðir frá síðustu almennilegu bloggfærslu - ég er búin að lofa að blogga um milljón hluti og síðan það loforð var gefið hafa milljón aðrir hlutir bæst við til að blogga um. Ég get ómögulega staðið undir því. Í fyrsta lagi því ég nenni því ekki og í öðru lagi því ég hef ekki tímann í það. Það yrði auk þess á lengd við ágætis skáldsögu og það myndi enginn nenna a lesa það. Ætla samt að láta af því verða núna að skrifa allavega um e-ð :P Þetta verður svona hoppa-úr-einu-í-annað færsla.



Þetta ár hefur liðið hrikalega fljótt hingað til. Sem er gott, bara merki um að maður hafi nóg fyrir stafni. Eina sem ekki er svo gott við það er að það styttist óðum í 15.mars! Þá þarf ég að vera búin að sækja um í háskólanámið sem ég ætla í næsta haust. Vandamálið er að ég veit ekki ennþá hvaða n
ám það á að vera. Get vel sagt ykkur að þessi óvissa er mikill stressvaldur í mínu lífi þessa dagana! :S

Tónleikar, byrjum á tónleikum. Tvennir eftirminnilegir sem vert er að nefna:
Fór að sjá Women and Children í Turbinehallerne með Russell. Þau komu skemmtilega á óvart (hafði aldrei heyrt þeirra getið fyrr). Endilega tékkið á laginu þeirra Oranges.
Nýja ástin í lífi mínu er svo The Magic Numbers og fór ég að sjá þau á Vega. Þó svo að mér hafi ekki tekist að fá neinn til að koma með mér (vesen á öllu þessu blanka fólki) þá kom ekki til greina að fara ekki. Ég sá smá eftir því á meðan upphitunarbandið var að spila en svo voru tónleikarnir bara svo yndislega frábærir að mér hefði ekki getað staðið meira á sama. Endilega tékkið á fyrstu plötunni þeirra (sem er samnefnd bandinu), hef sjálf ekkert hlustað á seinni plötuna og spiluðu þau lítið af henni. Yndislegt popp.
- Óh, hey... sá líka Pétur Ben spila í 12 tónum... það var mega mega flott. Varð barasta að kaupa diskinn eftir að hafa séð hann spila... finnst hann reyndar so far betri live en á plötunni.



Fyrir þremur vikum síðan fór ég í "helgarferð" til suðurhluta Sjálands en þangað hef ég aldrei komið áður (svo ég muni...). Josef vinur minn var svo frábær að bjóða mér með í heimsókn til ömmu hans og afa sem búa í Mern. Við tókum lestina niður til Voldingborg og þangað kom afi hans (sem er 80 og e-ð) og sótti okkur. Þetta var nú held ég bara hressasta 80+ par sem ég hef nokkurn tímann hitt! Fyrir utan að sjá um slatta af geitum, hænsnum og fleiri dýr þá veiða þau sjálf í matinn (fiska í net og skjóta fasana, dádýr og fleira), höggva eldivið og bara allt. Mega yndisleg bæði tvö líka og var þetta frábær helgi. Smakkaði ál og er það bara einn besti matur sem ég hef nokkur tímann fengið! Hundinum á bænum (sem er btw e-ð geðveikur) leist þó ekki á mig og reyndi ítrekað að komast að mér til að éta mig fyrsta daginn. Hann róaðist þó þegar við fórum með hann í langan göngutúr í skóginum á laugardeginum og ég mútaði honum með fullt af illalyktandi hundakexi.



Stutt kvikmyndagagnrýni og view-blogg:

"...bíómyndir (Das Leben der Anderen, The Queen, 200 cigarettes, Eragon, James Bond, Rocky Horror Picture Show, Happy Feet),..."

- Das Leben der Anderen er mjög fín en ekki jafn stórkostleg og dómarnir benda til að hún sé. Dró Guðrúnu Ágústu og Isju með mér á þessa.
- The Queen kom mér skemmtilega á óvart og var ég flissandi eins og hálfviti mest allan tímann (grunar að öðru fólki í salnum hafi fundist ég heldur skrítin). Kannski ekki fyrir alla (maður þarf að geta séð húmorinn í litlu hlutunum) en ég mæli þó með henni. Minnir að það hafi verið með Isju sem ég fór að sjá þessa í Grand Teatret.
- 200 cigarettes, jájá, gömul mynd og ekki seinna vænna að sjá hana. Þetta er ein mesta feel good mynd sem ég hef nokkur tímann séð og hlakka ég til að sjá hana aftur! Svona mynd sem gott er að eiga á DVD og horfa á aftur og aftur (þunglyndis-, þynnku- og ástarsorgarmeðal?). Við Sara horfðum saman á hana e-r tímann í desember - mega kósí að hreiðra um sig upp í rúmi með pizzu og kók á meðan vindurinn baulaði úti með tilheyrandi rigningu og kulda.
- Eragon var drasl. Frekar sundurlaus, skrítinn uppbygging, söguþráðurinn samansull úr nokkrum öðrum myndum/bókum? Man ekki nógu mikið eftir henni til að geta gagnrýnt hana illilega en það hafði ég nú ætlað mér að gera. Ekki alslæm (heldur alveg athygli þinni) en það hefði verið hægt að gera mun betri mynd úr þessu... well.. allavega skárri. Við systkinin og Aggi sáum þessa í Lúxemborg rétt fyrir jól.
- Casino Royale/James Bond var barasta fín. Fannst nú reyndar ekki svo mikið gerast í henni miðað við hvað hún er löng en það er gaman að sjá hvernig persónan James Bond varð eins og hann er. Auk þess er minna lagt upp úr svona gadget rugli og því verður hún mun trúverðugari en aðrar James Bond myndir. Daniel Craig stendur sig vel en djöfull er hann ljótur þegar hann er kominn úr fötunum. Besta við myndina var atriðið á Bodyworld sýningunni. Enginn sem ég þekkti hafði áhuga á að sjá Bondinn þannig ég fór bara ein (plebbar :) ).
- Rocky Horror Picture Show - já, ég hafði virkilega aldrei séð hana áður. Fyndið hvað hún er bara gerð til að hneyksla fólk :) Ágætlega gaman af henni bara. Einar Valur var svo hneykslaður á að ég hefði ekki séð þessa mynd að hann bauð mér að koma og horfa á hana hjá sér í september. Busy little me varð að beila á því í þeirri Íslandsferð en ég kíkti til hans í staðinn núna eftir áramótin.
- Happy Feet. Jiii, já... þessi mynd. Ekki slæm... en... eh.. jáh, shite... rosalega verið að mata mann á fullu með alls konar boðskap út í gegn. Hefði alveg verið hægt að gera miklu betri mynd úr þessu... alveg fín atriði inná milli samt. Fór með Huldu, Sillu og sillukærasta að sjá þessa á Íslandi.

Jólin í Lúxemborg voru mega kósí - yndisleg í alla staði. Gísli guidaði okkur systrunum og Agga um næturlíf Lúxemborgar og var það óhugnalega troðið af rosalega ungum krökkum - sem orsakaði það að við flúðum yfir á hommabarina. (Btw Benedikta sendu mér myndirnar sem við tókum þegar við fórum þarna í bæinn seinna kvöldið :D Man það voru e-r mega fyndnar - langar að sjá og eiga!)
Áramótin og dagarnir þar í kring á Íslandi voru voða fínir. Fór í nýárspartý hjá Sölva sem var mega nice og hélt svo yfir í Hawaii partý hjá Dabba sem var ágætt (takk fyrir farið Tommi ;*) - yndislegt að hitta alla þessa vini sem maður hefur ekki séð svoooo lengi! Tókst reyndar að detta illilega á rassinn á leiðinni úr einu partýinu í annað... nei, ég var ekki full, það var bara fokking hált... btw þá þarf maður að vera mega fær til að geta dottið á rassinn og hnéð í einu! (skil ekki ennþá hvernig það gerðist en ég var marin á hnénu lengi á eftir...). Held samt að afmælispartýið hennar Benediktu hafi verið skemmtilegasta partýið sem ég fór í á meðan þessari Íslandsdvöl stóð - kannski af því það var svo gaman að kynnast öllum þessum flippuðu vinum hennar ;D
Jájá, annars var ég nú ekki alveg nógu dugleg við að þeytast um og hitta fólk á klakanum, bæði vegna leti og veikinda og... já.. og vegna þess að Tommi gúrka gaf mér fimmtu seríu af 24 í jólagjöf og ég var föst (ásamt svotil allri fjölskyldunni) við sjónvarpið ansi margar klukkustundir af þeim sökum.

Talandi um sjónvarp, Heroes er best. Ef þið vitið ekki hvað ég er að tala um - finnið út úr því. (Nei, það er ekki bara af því að svo margir af gaurunum í þessum þáttum eru hrikalega hot - það skaðar þó ekki!! :P ).



Og já, talandi um hot þá er það andstæðan við Kaupmannahöfn þessa daganna. Það byrjaði að snjóa síðasta þriðjudag (það var hreint og beint ógeðisveður). Danir eru ekki alveg að höndla 20cm af snjó og hefur hálf Danmörk því verið í stöppu síðustu 3 daganna. Ég er ekki alveg að höndla þetta heldur, einfaldlega því ég hata snjó í borgum og held mig því innandyra eins mikið og ég get.

Á þriðjudaginn kom líka annar óvæntur atburður uppá - ég kom heim og fann blómvönd á útidyramottunni minni. Það var umslag með þeim merkt mér og í því skilaboð (á ensku) en ekkert nafn.. Ennþá veit ég ekki hvaða sæta sál sendi þessi blóm en ég vil gjarnan komast að því :)



Í byrjun janúar fór ég og hitti lækni sem gerðist svo djarfur að heimta vöðvasýni úr sköflungnum mínum. Staðdeyfing, gert gat, stórri nál (sem er hol að innan) stungið í vöðvann og þannig bútur rifinn út. Ekki þægilegt get ég sagt ykkur en það varð verra þegar staðdeyfingin fór. Hef þó prófað margt sársaukrafyllra (það er ótrúlegt hvað læknar eru tilbúnir að láta mann ganga í gegnum ef maður er með forvitnilegan vöðvasjúkdóm) þannig þetta var allt í lagi. Verst að þetta skilaði voða litlum niðurstöðum... Þá heimtuðu þeir bara blóð í staðinn og líklega á að senda það út um allar trissur (mögulega til Parísar, Ástralíu og Helsinki) til að skoða dna-ið mitt betur... gaman gaman...

Hjalti og Kaisu kíktu í heimsókn til mín síðustu helgi frá Finnlandi og var alveg frábært að hafa þau hér :) Þau komu á föstudagskvöldi og voru fram á þriðjudagsmorgunn. Sunnudagurinn var virkilega kósí en þá sýndi ég þeim hverfið mitt - set hér með eina mynd sem ég tók af þeim útí kirkjugarði. Er andlega skemmd eftir mánudaginn en þá drógu þau mig á Erótíkursafnið. Nei, ég er ekki tepra - það þarf ansi mikið til að mér blöskri. Það sem dugði til var stuttmynd sem sýndi konu hafa ýmis alltof náin samskipti við hest, svín og hund. Þetta var held ég bara það viðbjóðslegasta sem ég hef nokkur tímann séð :/



Helvítis ungdomshus-fávitarnir eru ennþá með djöfulsins leiðindi og stefnir allt í risastríð hérna þegar lögreglan mun ráðast til atlögu til að rýma húsið. Sjá m.a. hér og svo er e-ð smá hér.

Jiiii, nú ætla ég að hlífa ykkur við meira blaðri í bili! Sleppa því að segja ykkur frá ferðinni í Folketinget (alþingi dana), læknisfræðisafninu, Apparatet að sjá Russell dj-a, blablabla... nennir hvort sem er enginn að lesa meira :D
Endilega kommentið! Langar að vita hvort e-r kíkir hérna inná ennþá! (og hey! Addið mér á Skype! (Smisty))!! ;)


*knús og kram*

24.1.2007

Bloggleysi!

Já, hæ þið! Ég hef ekki staðið mig í því að blogga undanfarið.. veit það vel. Er alltaf á leiðinni að bæta úr því en e-n veginn er bara búið að vera svo mikið að gera síðan árið hófst :)
Ég hef heldur ekki tíma núna... kl. 22:30 og ég er dauðþreytt eftir langan og frábæran dag. Fór með Guðrúnu Ágústu í hádegisbíó, síðan á rosalega óhugnalega en áhugaverða sýningu um geðlækningar og enduðum á myndlistarsýningu. Síðan ég kom heim fyrir ca. 4 tímum er ég búin að elda, borða, þvo þvott, tala allt of mikið í símann (hey, það var hringt í mig - ekki öfugt), fylla út spurningalista og sitthvað fleira... á ennþá eftir að læra, vaska upp, taka til etc... en þarf samt eiginlega að drífa mig í háttinn því ég þarf að vakna 6:30 á morgunn.. þannig já, blogg verður að bíða áfram!



En það mun verða bloggað um jólafríið, skemmtileg áramót, bíómyndir (Das Leben der Anderen, The Queen, 200 cigarettes, Eragon, James Bond, Rocky Horror Picture Show, Happy Feet), sóðalega sögu geðlækninga, subbulega bari, hommabari, tónleika (The Magic Numbers, Women and Children og fleiri), drykkju dana á þriðjudagskvöldum, Heroes-fíkn mína, djamm menningu Lúxemborgar, Bítlavegg, vöðvasýni og sársaukann sem þeim fylgir, hversu mikið ég elska ipod-inn minn, kulda, neikvæðni, Chaplin og svo framvegis.



Í sárabætur fyrir stuttaralega bloggfærslu set ég hérna tvær myndir sem voru teknar uh... þarsíðasta laugardag (gerir færsluna pínu ponsu áhugaverðari, errr... eða e-ð). Teknar stuttu áður en að við héldum yfir á Rust og dönsuðum frá okkur allt vit :)




8.1.2007

Myndir úr jólafríi





























Smá sýnishorn - meira á myndasíðunni.

Fjölskyldumyndin er tekin af Gassa

17.12.2006

Myndir frá því í gærkvöldi og í morgun





















Fleiri myndir frá Benediktu

Myndir á Politiken.dk (!)

Myndir á Jyllands-Posten.dk


Þetta er ekki allt frá því í gærkvöldi. Danske Bank útibúið þarna var t.d. ekki svona illa farið í gærkvöldi heldur var því rústað (meira) í nótt. Greinilegt að þeir sem ekki voru handteknir hafa ekki verið í skapi til þess að fara heim? Ég er bara fegin að ekkert virðist hafa verið gert við bygginguna sem ég bý í (Netto búðin meira að segja látin í friði) fyrir utan að það var spreyjað á hana.
Það var skrítið að fara í gegnum hverfið í dag; brotnar rúður út um allt og brunarústir á götunum.

16.12.2006

Riot









Það var allt brjálað í Nørrebro fyrr í kvöld. Aðallega þó við götuna mína, Nørrebrogade, og svo á Jagtvej þar sem Ungdomshuset er. Torgið sem þessar götur mætast á (Nørrebros Runddel) er svo nálægt að ég sé það út um svefnherbergisgluggann minn.

Þannig eru mál að vexti (í stuttu máli) að árið 1982 gaf Kaupmannahafnarborg ungmennum borgarinnar hús við Jagtvej 69. Það hús var notað sem félagsmiðstöð og aðstaða fyrir tónleika, myndlistarsýningar og annað. Þeas. ef þið heyrið það frá þeim. Réttara væri þó að segja að það væri staður þar sem ungir uppreisnaseggir koma til að hella sig fulla. Nágrannar kvarta yfir því að geta aldrei sofið um helgar, allt umhverfis húsið (og bílar og fl.) er þakið í graffítí og megn hlandlykt er umhverfis staðinn eftir hverja helgi. S.s. það er ekki allir jafn ánægðir með þetta blessaða hús.
Árið 2000 ákvað Kaupmannahafnarborg af e-m undarlegum ástæðum að selja húsið sem það gaf 18 árum fyrr. Það var selt til kristilegs félags sem heitir Faderhuset. Síðustu 6 árin eru þeir búnir að berjast fyrir að fá húsið sem þeir eiga með réttu en ungmennin neita að yfirgefa það. Þetta er búið að fara fyrir dómstóla og staðfest var að Faderhuset á réttinn. Ungmennin una þó ekki sátt við þessa niðurstöðu og berjast tilbaka með kjafti og klóm. Í kvöld gengu þau of langt. Ekki í fyrsta skipti sem þau ganga of langt en ég held þetta hafi aldrei verið svona slæmt áður.


Járnstangir, múrsteinar, bálkestir, hjálmar, andlitsgrímur, götuvígi, táragas, slagsmál, málningasprengjur, ólöglegar púðurkellingar, brotnar rúður, slasað fólk og fleira einkennir þennan dag í hverfinu mínu.
M.a. brutust ungmennin inn í Kvickly búðina til að stela vörubrettum, pappakössum og fleiru til að nota í bálkesti og í götuvígi. Þau brutu rúður í bönkum og réðust á lögreglubíla og menn.

Við vorum niður í miðbæ þegar þetta byrjaði og vissum ekki af þessu fyrr en við komum að brúnni yfir Søerne - sem var lokuð. Sáum ekkert nema blá blikkandi ljós út um allt. Strætó tók krók yfir að næstu brú og keyrði svo götu sem liggur samsíða Nörrebrogade. Ef litið var til hægri þegar við keyrðum framhjá þvergötum sáust bara fleiri blá blikkandi ljóst... hellingur af þeim!
Komumst loks út við Nörrebro station og löbbuðum þaðan heim til mín(ég, Benedikta, Gísli og Aggi). Við sáum ekki svo mikið á leiðinni heim enda voru ólætin alls staðar í götunni nema í þessum enda. Þó hafði greinilega e-ð gengið á þarna fyrr um kvöldið/daginn því að það var alls staðar rusl á götunum og svo voru allar rúður brotnar í Nordea bank sem við löbbuðum framhjá.

Reyndar urðum við aðeins vör við að e-ð var í gangi áður en allt varð brjálað. Síðustu nótt kl. 2:30 var rosalegur hvellur e-r staðar mjög nálægt íbúðinni. Það hefur líklega verið ein af þessum ólöglegu púðurkellingum (her-dæmi e-ð). Þegar við vorum svo á leiðinni niður í bæ uppúr hádegi í dag voru löggur (í vestum og vopnaðar) að stoppa e-ð af fólki á götunni og leita á þeim.

Að minnsta kosti 5 slösuðust e-ð að ráði, þar af 3 löggur. Einn drengur/maður sprengdi af sér fingurnar þegar ein af áðurnefndum púðurkellingum (sem hann var að henda í lögguna) sprakk í höndunum á honum. Getið lesið meira á www.pol.dk

Video 1 á Politiken.dk

Video 2 á Politiken.dk

Bloggfærsla Benediktu um þetta.
Video 3 á YouTube

11.12.2006

Jólin 2005





















Eins og mörg ykkar vita eyddum við fjölskyldan, ásamt Agga og ömmu & afa, jólunum 2005 í Suður-Frakklandi. Reyndar ekki bara þar, við fórum einnig saman í Tívolí í Köben, skíðaferð upp í frönsku Alpana og jóladag eyddum við í Mónakó. Með öðrum orðum þá létum við okkur verða hrikalega kalt í Danmörku, sátum í sólinni á ströndinni í Nice, pökkuðum inn jólagjöfunum út í garði (engar yfirhafnir og rauðvínsglas í hönd) í Vallauris, krakkarnir duttu á rassinn í Ölpunum og reyndu að skauta niður litla krakka í Mónakó ;) Ég fór fyrr heim en restin en ég held þau hafi líka skroppið yfir til Ítalíu. S.s. jólafrí í 4 löndum?
Benedikta var loksins að setja e-ð af sínum myndum á netið. Ég fékk leyfi til að setja hluta þeirra hér á bloggið en restina getið þið skoðað á síðunni sem þær eru hýstar á, merkisteinn.is

Ég átti ekki digital myndavél þegar þessi ferð var farin en tók e-ð smá af myndum á gömlu myndavélina mína en þær má sjá hér (ásamt myndum sem teknar voru í SingStar partýi sem ég hélt í Víðihvamminum).