Já, hæ þið! Ég hef ekki staðið mig í því að blogga undanfarið.. veit það vel. Er alltaf á leiðinni að bæta úr því en e-n veginn er bara búið að vera svo mikið að gera síðan árið hófst :)
Ég hef heldur ekki tíma núna... kl. 22:30 og ég er dauðþreytt eftir langan og frábæran dag. Fór með Guðrúnu Ágústu í hádegisbíó, síðan á rosalega óhugnalega en áhugaverða sýningu um geðlækningar og enduðum á myndlistarsýningu. Síðan ég kom heim fyrir ca. 4 tímum er ég búin að elda, borða, þvo þvott, tala allt of mikið í símann (hey, það var hringt í mig - ekki öfugt), fylla út spurningalista og sitthvað fleira... á ennþá eftir að læra, vaska upp, taka til etc... en þarf samt eiginlega að drífa mig í háttinn því ég þarf að vakna 6:30 á morgunn.. þannig já, blogg verður að bíða áfram!
En það mun verða bloggað um jólafríið, skemmtileg áramót, bíómyndir (Das Leben der Anderen, The Queen, 200 cigarettes, Eragon, James Bond, Rocky Horror Picture Show, Happy Feet), sóðalega sögu geðlækninga, subbulega bari, hommabari, tónleika (The Magic Numbers, Women and Children og fleiri), drykkju dana á þriðjudagskvöldum, Heroes-fíkn mína, djamm menningu Lúxemborgar, Bítlavegg, vöðvasýni og sársaukann sem þeim fylgir, hversu mikið ég elska ipod-inn minn, kulda, neikvæðni, Chaplin og svo framvegis.
Í sárabætur fyrir stuttaralega bloggfærslu set ég hérna tvær myndir sem voru teknar uh... þarsíðasta laugardag (gerir færsluna pínu ponsu áhugaverðari, errr... eða e-ð). Teknar stuttu áður en að við héldum yfir á Rust og dönsuðum frá okkur allt vit :)

3 ummæli:
Ég held ég verði svona eiginlega að fyrirgefa þér fyrir að blogga ekki of mikið uppá síðkastið, Salóme mín.
Bara því ég er svo góður í mér.
Farðu vel með þig og vöðvasýnin þín.
Úff, loksins, ég var farin að hafa áhyggjur af þessu bloggleysi :p en ég bíð spennt eftir alvöru blogginu, flott preview hjá þér :)
Hlakka til að lesa meira.
Skrifa ummæli